Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1999, Side 8
30
MÁNUDAGUR 26. APRÍL 1999
Sport
DV
Eva B.
Hlöðvers-
dóttir, fyrir-
liði og leik-
stjórnandi
Gróttu/KR,
fagnar hér óg-
urlega að fá
fyrsta bikarinn
undir merkjum
Gróttu og KR.
Eva og félagar
unnu KA, 21-19,
í úrslitaleik.
Eva kemur upp-
haflega úr KR.
Hún var tekin úr
umferð allan
leikinn en tókst
samt að skora
5 mörk. Eva
átti frábæran
leik í undan-
úrslitunum
gegn FH.
íslandsmeistarar Fjölnis í 10. flokki karla. Þeir unnu KR,
63-62 í æsispennandi úrslitaleik. Fjölnisliðið var komið
20 stigum undir en sýndu ótrúlegan sterkan karkater
og komu aftur og tryggðu sér titilinn. KR-ingar tóku
tapinu mjög illa en þeir unnu þennan fiokk í fyrra í
svipaðri dramatík.
Hjalti Vilhjálmsson (til vinstri), Geir Þorvaldsson fyrirliði og Helgi Jóhannsson voru liði sínu
afar mikilvægir í úrslitleiknum með Fjölni gegn KR. Hjaiti fór ískaldur á vítalínuna í lok
leiksins og skoraði öruggglega og tryggði mönnum sínum titilinn. Hjalti gerði 29 stig í
leiknum og tók 12 fráköst, Helgi átti 8 stoðsendingar og stal 4 boltum. Fjölnir vann KR, 63-62.
- hjá Gróttu/KR eftir sigur í bikarúrslitum 2. flokks kvenna
•Vi
A dögunum fór fram hörkuúrslitleikur í bikarkeppni 2. flokks kvenna í Víkinni. Til úrslita léku Grótta/KR og KA en liðin eru uppist-
aðan í meistaraflokkum félaganna. Grótta/KR lagði FH að velli í undanúrslitum í hörkuleik en KA vann á sama tíma léttan sigur á Fram.
Grótta/KR vann á endanum, 21-19, eftir að hafa haft 14-10 forustu í leikhléi.
i Fyrir fram mátti búast við sigri
Gróttu/KR en KA sendi aðeins lið í bik-
* arkeppnina í ár sökum álags á þessar
ungu stelpur sem eru sumar líka að spila
með 3. og 4. flokki. Grótta/KR á aftur á
móti í mikillri keppni við Val og FH um sig-
ur á íslandsmótinu i 2. flokki.
Leikurinn byrjaði jafnt en fljótlega náði
Grótta/KR forustu sem stúlkurnar létu ekki
af hendi. KA gafst aldrei upp og náði, með því
að taka lykilleikmenn Gróttu/KR, þær Evu B.
Hlöðversdóttur og Eddu Hrönn Kristinsdóttur úr
umferð, að trufla nokkuð sóknarleik liðsins.
Katrín Tómasdóttir og Þóra Hlíf Jónsdóttir í
narkinu komu í þeirra stað og léku báðar vel.
Hjá KA lék Þóra B. Ottesen frábærlega í markinu,
varði 15 skot, þar af 3 víti, og þær Anna Pálsdóttir og
Eyrún Karlsdóttir voru allt í sóknarleik liðsins ásamt
Heiðu Valgeirsdóttur.
KA kvartaði mikið undan dómgæslunni enda
dæmdi annar dómarinn umdeilda dóma undir lok-
in en það tekur það samt ekki frá Gróttu/KR-liðinu
að það var betra og vann langþráðan sigur á
alvörumóti en tími KA mun örugglega koma á
næstu árum, enda liðið mjög efnilegt.
Stefnan að vinna tvöfalt
Bikarmeistarar Gróttu/KR í 2. flokki kvenna. Þetta var fyrsti titill félaganna frá því að þau
sameinuðust undir merkjum Gróttu og KR.
„Við spiluðum versta leik okkar í
vetur en þær sinn besta. Það var mikið
taugastress og þær hefðu getað náð
okkur en nú er bara að fara alla leið
og stefna að því að vinna tvöfalt,"
sagði Eva B. Hlöðversdóttir, fyririiði
Gróttu/KR, eftir leikinn.
Eva hefur æft frá því að hún var 13
ára þegar hún flutti í vesturbæinn.
Hún byrjaði í marki en segist hafa
farið út því það sé miklu skemmti-
legra að horfa á eftir boltanum í
netið í stað þess að fá hann i
netið hjá sér. Eva var einnig í
fótbolta en hún er ásamt fleiri
leikmönnum 2. flokks, lykil-
menn 1 meistaraflokki
Gróttu/KR sem stóð sig mjög
vel í vetur. Þær voru flestar sam-
an i 3. flokk hjá KR og tókst þá að
vinna en það var orðið langþráð
að vinna loksins eitthvað með
Gróttu/KR.
Mörk Gróttu/KR: Katrín Tómas-
dóttir 6, Eva B. Hlöðversdóttir 5/4,
Edda Hrönn Kristinsdóttir 3/1,
Harpa Ingólfsdóttir 3, Kristín Þórö-
ardóttir 2, Sigríður B. Jónsdóttir 1,
Hulda Ásmundsdóttir 1. Þóra Hlíf
Jónsdóttir varði 18 skot
Mörk KA: Anna Pálsdóttir 6,
Eyrún Karlsdóttir 4, Heiða Valge- Hann er flottur, bikarinn. Ragna K. Sigurðardóttir, Harpa Ingólfsdóttir og Edda Hrönn Kristinsdóttir
irsdóttir 4, Asdís Sigurðardóttir vjrða fyrir sér nýjustu viðbótina í bikarsafn Gróttu og KR en jafnframt þá fyrstu sem stúlkurnar fá
Ottensen varði 15/3 skot undir sameinuðum merkjum félaganna. Grótta /KR er enn með í íslandsmótinu en þar mætir liðið
-ÓÓJ FH-stúlkum í undanúrslitum en Valsstúlkur mæta Völsungi.