Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1999, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1999, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 1999 Fréttir sandkorn Olga vegna vafasamra Qárfestinga lífeyrissjóöa í heimabyggö: Lífeyrissjóðurinn verði kannaður ofan í kjölinn - segir Halldór Guðbjörnsson, stjórnarmaður Veröandi í Vestmannaeyjum „Félagið er með þessi mál í mjög alvarlegri skoðun," segir Halldór Guðbjömsson, stjómarmaður í Skip- stjóra- og stýrimannafélaginu Verð- andi, um fjárfestingar Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja í Vinnslustöðinni hf. Buxnalausar flugfreyjur: Spennandi pilsamál „Svona pilsamál hefur aldrei kom- ið til okkar áður; við höfum aðallega verið í mannaráðningunum þannig að þetta er nýtt og spennandi," sagði Elsa Þorkelsdótt- ir, framkvæmda- stjóri Jafnréttis- ráðs, um kæm Flugfreyjufélags- ins sem ráðinu hefur borist. Þar kvarta fLugfreyjur yfir því að vera gert að klæðast pilsum í vinnunni í sumar en alls ekki buxum. Mál- ið verður tekið fyrir í kærunefnd jafnréttismála á næstunni. „Ég minni á að það era ekki svo ýkja mörg ár síðan eitt helsta baráttumál Rauðsokka var að fá að klæðast bux- um í vinnunni en það var þá fá- heyrt,“sagði Elsa. Þóra Sen hjá Flugfreyjufélaginu sagði að hér væri um jafnréttismál að ræða. Karlkynsstarfsmenn Flug- leiða væm ekki skikkaðir til að skipta um klæðnað eftir árstíðum: „Það er einstaklingsbundið hvort fólki lætur betur að vinna í buxum eða pilsum. Myndu karlkynsstarfs- menn sætta sig við að vera settir í stuttbuxur yfir sumartimann? Þetta er einnig spuming um að klæðast al- mennilega þegar kalt er í veðri. Það er nauðsynlegt að þetta mál fari fyr- ir Jafnréttisráð og einhver botn fáist í það,“ sagði Þóra Sen. -EIR í Vestmannaeyjum og fleiri fyrir- tækjum. Lífeyrissjóðurinn hélt í heiðri hiö foma slagorð, „verslum í heima- byggð“, og keypti stóran hlut í Vinnslustöðinni í Eyjum. Kaupin em umdeild í ljósi erfiðrar stöðu fyrir- tækisins sem rekið hefur verið með stórtapi. Þá vekur það undrun heimamanna og sjóðfélaga að sjóður- inn keypti bréfin á yfirverði eða sem nemur genginu 2,3. Vikumar fyrir kaupin var gengi bréfanna á bilinu 1,6 til 1,7. „Maður spyr sig hverjum sé verið að hygla með þessum kaupum og hvort hag félagsmanna sé betur borgið innan einhvers annarsl sjóðs,“ segir Halldór. Hann segir að stjóm Verðandi muni taka mál þessi fýrir á næstunni og framhaldið ráðist af þeirri niðurstöðu sem þar fæst. Reiði sjómanna snúist ekki eingöngu um vafasamar fiárfest- ingar heldur sé á sama tíma verið að skerða kjör sjómanna innan sjóðsins. Hann segist hafa sömu athugasemdir og Vestfirðingar en eins og ffarn kom í DV í gær er Lífeyrissjóður Vestfirð- inga í svipuðum fiárfestingum. Skip- stjóra- og stýrimannafélagið Bylgjan á Vestfiörðum hefur farið fram á það að Farmanna- og fiskimannasamband ís- lands standi fyrir úttekt og skoðun á framferði stjórnar lífeyrissjóðsins. Inn- an Bylgjunnar em uppi raddir um að ganga úr lífeyrissjóðnum vegna óá- nægjunnar. Alls er greitt af hverjum launþega til lífeyrissjóða sem nemur 10 prósentum af öllum launum. Óhætt er að áætla að 300 til 400 þúsund krónur renni frá hverjum félagsmanni Verðandi í lífeyr- issjóðinn þannig að miklir hagsmunir em í húfi hjá hverjum og einum. Sam- kvæmt heimildum DV er fleira en fiár- festingin í Vinnslustöðinni sem sjó- menn í Vestmannaeyjum era ósáttir við. Þannig fiárfesti stjóm sjóðsins í amerískri skyndibitakeðju, Arthur Tr- eachers Inc. fyrir nokkrum árum. Alls vora keypt bréf fyrir 63,5 milljónir króna. Bréfin hafa hrunið í verði og samkvæmt gengi þeirra fengjust nú um 34 milljónir króna fyrir þau. Verði það niðurstaðan er tap sjóðsins sem nemur 10 prósentum af iðgjöldum eins árs. Halldór segir að lagt verði til innan síns félags að málin verði skoðuð ofan i kjölinn. „Það hefúr komið til tals að gera at- hugasemdir beint til Fjármálaeftirlits- ins. Við munum leggja til í stjóm Verð- andi að fiárfestingin í Vinnslustöðinni, sem og aðrar mndeOdar fiárfestingar, verði skoðaöar," segir hann. -rt Hús hefur risið á methraða í Nauthólsvík þar sem almenningur, göngu- og hjólreiðamenn, sem og aðrir, geta nú þeg- ar í sumar skotist inn og notið dvalar og veitinga í „heitu víkinni". Reykjavíkurborg hefur þegar hafið framkvæmdir rétt fyrir neðan, við sjálfa víkina, þar sem heitavatnslón, sjópottar og annað verður í boði fyrir fólk. Sú aðstaða mun verða opnuð almenningi á næsta ári. DV-mynd Pjetur Elsa Þorkels- dóttir hjá Jafn- réttisráði. Haltu kjafti og vertu sæt Þær eiga sem sagt aö vera buxnalausar. í því felst nefnilega munur kynjanna. Líkami konunn- ar er almennt talinn fallegri en karlanna. Þær þola því að ganga um buxnalausar en karlar ekki. Krafa stjórnenda Flugleiða er því sú að flugfreyj- ur gangi í pilsum en ekki buxum. Kálfar og hné- skeljar kvenna eru vel frambærfiegar en það sér hver í sjónhending hvílíkur hryllingur það væri að láta karla á hálfbuxum þjóna sér, með loðnar lappir og ljót hné. Það færi enginn fleiri en eina ferð með flugfélagi sem byði upp á slíka hörmung í farþegarýminu. Nú munu tfi þær flugfreyjur sem skilja ekki þessa eðlilegu kröfu stjórnenda flugfélagsins. Þær munu jafnvel hafa gengið svo langt að kæra þessa ákvörðum til jafnréttisyfirvalda og vfija ganga um beina í buxum sem karlar væm. Sú kæra er, eins og flestir velmeinandi menn sjá, á misskiln- ingi byggð. Konurnar í flugfreyjustéttinni njóta einmitt þeirra forréttinda að mega ganga um í pilsum og sýna á sér hnéskeljarnar, jafnvel að- eins upp eftir lærinu ef pilsið dregst upp í erli starfsins. Það vita konurnar sem kærðu að fagurt bros rauðmálaðra vara og nettur fótleggur er söluvara og stuðlar að velgengni hvers flugfélags. Þær ættu þvi með réttu að gleðjast vegna yfirburða- stöðu sinnar, stöðu sem körlum er fyrirmunað á ná. Flugfreyjurnar hljóta því að draga kæruna til baka, halda áfram að brosa og vera sætar - og buxnalausar. Dagfari Fá eða engin störf munu eftirsóttari en flugfreyjustarfið. Það hefur frá árdögum flugsins haft yfir sér ævintýraljóma. Flestar ungar stúlkur dreymir um það og draumur sumra rætist. Það hefur þó gerst þegar Flugleið- ir auglýsa laus störf til sumarafleysinga að 700-900 umsóknir hafa borist. Það má þvi ljóst vera að aðeins fáar era til kallaðar. Flugfreyjustarfið nýt- ur meira að segja þess heiðurs að vera kven- kennt öndvert við flest önnur störf þar sem karlremban tröllríður öllu. Karlar hafa aðeins reynt að komast í flug- freyjustörf og kalla sig þá flugþjóna. Það fellur gersamlega flatt enda frá- leitt sami hljómur í þjóni og í freyju. Drengir sem hafa hætt sér út á þann hála ís hafa því mætt for- dómum og aðkasti, jafnvel kallaðir pungfreyjur. Konurnar halda því yfirburðastöðu sinni á þess- um vettvangi. Flugfreyjumar era andlit hvers flugfélags. Það vita stjómendur félaganna og gera því kröfur í samræmi við það. Fyrsta skilyrði til ráðningar er því hvorki þjónustulund né tungumálakunnátta heldur almennur fríðleiki og góður limaburður. Flugfreyjur eiga að vera sætar. Þær eiga líka að vera vel til hafðar, málaðar og greiddar og eink- um og sér í lagi kvenlegar. Elín blómstrar Tekið er eftir þvi að lifnað hefur mjög yfir fréttum Sjón- varpsins. Mikið líf er í fréttun- um og þunglyndislegt yfirbragð er horfið. Víst er að áhyggjur Páls Magnús- sonar, frétta- stjóra Stöðvar 2, hafa vaxið og þá einkum eftir að fréttatími Sjón- varpsins var færður fram. Elín Hirst, sem á sínum tíma vék fyrir Páli á Stöð 2, er nú í miklum ham á Sjónvarpinu og vegur hennar vex þar með hverjum degi. Hún er oftar en ekki vaktstjóri á fréttastofu og í síðustu viku mun Bogi Ágústsson frétta- stjóri hafa tilkynnt starfsfólki að Elín yrði staðgengill sinn... Saklaust bréf Dreifiritið fræga sem var stöðvað í pósti reyndist sára- saklaust enda Framsókn hætt við málaferli. Þar var fátt sem hægt er að skoða sem sérlega meið- andifyrir Hall- dór Ásgríms- son, nema ef vera skyldi að þar. voru birt- ar inyndir af honum og Finni Ingólfssyni með Jóni Ólafssyni. Lögmenn sem þekkja málið fullyrða að ríkis- saksóknari hafi bent framsókn- armönnum pent á þessar stað- reyndir fyrir alllöngu, að í mál- inu var ekkert saknæmt. Allur þessi málatilbúnaður nú um að ákveðið sé að gera ekkert frek- ar af hálfu flokksins en horfa frekar til framtíðar er því hálf- hlægilegur... Arftaki Ásdísar Höllu Eins og fram hefur komið hyggst Ásdís Halla Braga- dóttir ekki gefa kost á sér til endurkjörs í forystuembætti Sambands ungra sjálf- stæðismanna. Mikið er um það skrafað hver taka muni við á næsta SUS-þingi í ágúst og hafa ýmsir verið nefndir þó enginn hafi enn tilkynnt framboö sitt opin- berlega. Nýjustu fregnir herma að veralegar líkur séu á að Sig- urður Kári Kristjánsson , 26 ára lögfræðingur, bjóði sig fram til formanns. Hann situr nú í stjórn SUS og ku hafa öfl- ugan stuðningshóp á bak við sig... Fær hann bréf? Ungir sjálfstæðismenn eru eitthvað að steita göm vegna þess að þeir hafa misst ráðherr- ann sinn hann Halldór Blön- dal og eru ungu sjallarnir á Ak- ureyri óánægðir með að allir ráðherrar Sjálf- stæðisflokks- ins skuli koma af höfuðborg- arsvæðinu. Þeir sendu frá sér tilkynningu vegna þessa og enduðu hana á að segja við Davíð formann sinn að svona gerðu menn ekki. Nú er spurningin hvort formað- ur Varðar, ungra sjálfstæöis- manna á Akureyri, fær ekki bréf frá Davíð, svona eins og biskupinn fékk á dögunum frá honum og fleiri menn hafa feng- ið í gegn um tíðina... Umsjón: Reynir Traustason Netfang: sandkorn ®ff is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.