Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1999, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 9. JUNÍ 1999
Djasstón-
leikar Bláu
kirkjunnar
Næstu tónfeikar í tónleikaröð-
inni Bláa kirkjan eru í kvöld,
miðvikudagskvöld, á Seyðisfirði.
Þetta er tónleikaröð sem verður
vikulega í allt sumar. í kvöld
koma fram tónlistarmennirnir
Einar Bragi Bragason, á saxófón
og flautu, og Kristján Edelstein á
gítar en þeir leika léttan djass í
Tónleikar
kirkjunni á Seyðisfirði klukkan
20.30. Einar Bragi hefur komið
víða við í tónlistinni og verið í
mörgum hljómsveitum, meðal
annarra Grafik, Stjórninni,
Ríkshaw, Sálinni hans Jóns
míns, Bítlavínafélaginu og fleiri.
Einar hefur leikið inn á yfir 50
hljómplötur og var einn af full-
trúum fslands í Eurovision árin
1990 og 1993. Nú er hann skóla-
stjóri Tónlistarskóla Seyðisfjarð-
ar.
Kristján Edelstein gítarleikari
hefur starfað við tónlist frá 18
ára aldri og hefur starfað með
ýmsum tónlistarmönnum á ferli
sínum. Hann hefur lokið 5. stigi
í pianóleik hjá Tónlistarskóla
Reykjavikur og starfar sem
kennari á Akureyri við Alþýðu-
deild Tónlistarskóla Akureyrar.
Hann er einnig í hljómsveitinni
P.K.K. sem spilar tónlist frá
ýmsum þjóðlöndum en hefur þó
lagt áherslu á írska þjóðlagatón-
list.
Bubbi á
Fógetanum
í maímánuði hófst tónleikaröð
Bubba hjá Fógetanum sem ber yfir-
skriftina Bubbi í 20 ár. Þessi tón-
leikaröð stendur út júnímánuð og í
Tónleikar
kvöld verða tónleikar í röðinni á
dagskrá. Bubbi leikur lög af plötu
sinni, Allar áttir, og nýtt efni í
bland. Dagskráin í kvöld hefst
klukkan tíu og gefst þar gott tæki-
færi fyrir Bubba-unnendur að hlýða
á hann.
Olíumálverk á 22
Á sjómannadag var opnuð mál-
verkasýning á skemmtistaðnum
22 á Laugavegi. Þar sýnir Garðar
B. Sigvaldason olíumálverk eftir
Sýningar
sig en hann vinnur við út-
litsteiknun á Morgunblaðinu.
Verk Garðars eru fimm talsins og
eru af fyrirsætu en Garðar er út-
skrifaður úr skúlptúrdeild Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands.
Þúsundeyj asósan
Stefán lofar góðu í hlutverki Sigurðar Karls
Hádegisleikhús Iðnó frumsýnir í
dag leikritið Þúsundeyjasósuna.
Verkið er eftir Hallgrím Helgason
og er þetta gamanleikur sem vann
til verðlauna í leikritasamkeppni
sem efnt var til þegar Iðnó var opn-
að á ný sem menningarhús. Þús-
undeyjasósa segir frá Sigurði Karli
sem er ævintýramaður í íslensku
viðskiptalífi og hefur flækt mál sín
svo vel að hann veit varla sjálfur
hvaða fyrirtæki hann rekur lengur.
Hann er hins vegar snillingur í því
að tala sig út úr vandamálum og
þegar sýningin hefst hefur hann
ákveðið að tala sig út úr landinu.
Þúsundeyjasósa er önnur sýning-
in sem sýnd er í Hádegisleikhúsi
Skemmtanir
Iðnó en innifaldar í miðaverði eru
veitingar á meðan sýningu stendur.
Leitum að ungri stúlku var sýnd
fyrir fullu húsi frá því í febrúar en
sú sýning víkur nú fyrir Þús-
undeyjasósunni. í Hádegisleikhús-
inu hefst borðhald kl. 12 og sýning-
in um 12.20 en sýningin stendur til
12.45 og geta þá gestir setið áfram og
þegið kafFi og meðlæti eða haldið
sína leið. Leikari í Þúsundeyjasós-
Veðrið í dag
Áfram hægviðri
í dag verða sunnan- og suðvestan-
áttir áfram ríkjandi á landinu.
Vindhraði verður 5-8 metrar á sek-
úndu um vestanvert landið en hæg-
ari austan til. Skýjað verður að
mestu á vestanverðu landinu en
léttskýjað á Norður- og Austurlandi.
Hitinn verður á bilinu 8-16 stig,
hlýjast á Norðurlandi. í nótt lítur út
unni er Stefán Karl Stefánsson, leik-
stjórn er í höndum Magnúsar Geirs
fyrir aðeins hvassari suðaustanátt,
8-13 metra á sekúndu og súld suð-
vestan- og vestan til á landinu.
Á höfuðborgarsvæðinu lítur út
fyrir að verði fremur hæg suðvest-
an- og síðar sunnanátt, 5-8 metrar á
sekúndu og skýjað að mestu.
Sólarupprás í Reykjavík: 3:06
Sólarlag í Reykjavík: 23:50
Síðdegisflóð: 14:37
Árdegisflóð: 1:59
Þórðarsonar og Ólafur Bjöm Ólafs-
son sér um tónlistina í verkinu.
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri hálfskýjaö 9
Bergsstaöir skýjaó 8
Bolungarvík skýjaö 8
Egilsstaóir 9
Kirkjubœjarkl. skýjaö 7
Keflavíkurflv. þokumóöa 8
Raufarhöfn skýjaó 7
Reykjavík alskýjaó 8
Stórhöföi alskýjaö 8
Bergen rigning 11
Helsinki léttskýjaö 18
Kaupmhöfn léttskýjaó 13
Ósló rigning 12
Stokkhólmur skúr 14
Þórshöfn skýjaö 9
Þrándheimur skýjað 11
Algarve heiöskírt 17
Amsterdam léttskýjaó 12
Barcelona þokumóöa 17
Berlín skýjaó 11
Chicago hálfskýjaö 23
Dublin léttskýjaö 8
Halifax alskýjaó 10
Frankfurt skýjaö 11
Hamborg skýjaó 11
Jan Mayen skýjaó 5
London léttskýjaó 9
Lúxemborg skýjaó 9
Mallorca skýjaó 19
Montreal þoka 17
Narssarssuaq alskýjaö 10
New York léttskýjaö 25
Orlando skýjaö 23
París skýjaö 13
Róm heiöskírt 21
Vín léttskýjaö 15
Washingtonskýjaö 22
Vegir á hálendi
eru lokaðir
Yflrleitt er góð færð á öllum aðalleiðum á land-
inu. Vegir á hálendi íslands eru lokaðir vegna snjó-
komu og aurbleytu. Aurbleyta hefur einnig gert það
Færð á vegum
að verkum að öxulþungi hefur verið lækkaður og er
það tilkynnt með merkjum við viðkomandi vegi.
Vegavinnuflokkar eru að störfum víða á landinu,
meðal annars á suðvesturhominu og Suðurlandi.
Ástand vega
4>- Shafrenning
m Steinkast
m Hálka s Vegavinna-aögát @ Öxulþungatakmarka
(3^) ófært ED Þungfært © Fært fjallabílum
Nanna og Sigþór
eignast dreng
Litli drengurinn á myndinni
heitir Sindri Þór. Hann fæddist á
Landspítalanum 29. janúar siöast-
liðinn. Hann rcyndist vera 49 sm
langur og vó 12 merkur. Foreldr-
Barn dagsins
ar hans heita Nanna Dröfn Harð-
ardóttir og Sigþór Sigurðsson en
Sindri Þór er þeirra fyrsta barn.
Á myndinni er Adda María Ótt-
arsdóttir, móðursystir Sindra
Þórs, að passa hann en Adda Mar-
ía er 5 ára gömul.
dags
Úr myndinni Metroland.
Metroland og
Eigin örlög
Háskólabíó og Regnboginn
standa nú fyrir kvikmyndahátíð-
inni Vorvindum sem lýkur í
kvöld. Mynd Háskólabíós heitir
Metroland og gerist snemma á átt-
unda áratugnum. Hún fjallar um
tilvistarkreppu sem Chris Bale
lendir í þegar Tim, æskuvinur
hans, kemur heim eftir nokkurra
ára fjarveru. Hann minnir Chris á
gömlu, góðu dagana áöur en hann
varð auglýsingamaður, giftist, átti
barn og flutti í úthverfl London
sem kallað er Metroland. Tim er
ljóðskáld, frjáls eins og fuglinn og
engum háður. Heimsóknin fær
Chris til að rifja upp tímabil í
París þegar hann
bjó þar, tók ljós- ’/////////
Kvikmyndir
myndir og átti þokka-
fulla kærustu sem kenndi honum
að elskast. Tim reynir að fá Chris
til að breyta aftur í gamla horfið
og kynnir hann fyrir framhjá-
haldi, partíum og dópi.
Regnboginn sýnir myndina Eig-
in örlög (A destiny of Her Own).
Hún gerist í Feneyjum á 16. öíd og
er byggð á sannri sögu Veronicu
Franco sem gerðist gleðikona yfir-
stéttarinnar fremur en að lifa í fá-
tækt eða giftast öldruðum aðals-
manni. Hana skorti hvorki fé né
aðdáendur en tímabil breytinga
var hafið í Feneyjum og gullöld
allsnægta senn á enda. Veronica
er leikin af Catherine McCormack
sem hóf feril sinn í mynd Mel Gib-
son, Braveheart, en meðal með-
leikara hennar eru Rufus Sewell
og Oliver Platt. Báðar þessar
myndir eru sýndar kl. 7 og 9 í
kvöld.
/
yrval
A NÆSTA
SÖLUSTAÐ
EÐA
í ÁSKRIFT
ÍSÍMA
550 5000
Gengið
Almennt gengi LÍ nr. kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollqenqi
Dollar 74,050 74,430 74,600
Pund 118,830 119,440 119,680
Kan. dollar 50,230 50,540 50,560
Dönsk kr. 10,4170 10,4750 10,5400
Norsk kr 9,4280 9,4800 9,5030
Sænsk kr. 8,6760 8,7240 8,7080
Fi. mark 13,0141 13,0923 13,1796
Fra.franki 11,7963 11,8671 11,9463
Belg. franki 1,9182 1,9297 1,9425 *
Sviss. franki 48,6100 48,8800 49,1600 *
Holl. gyllini 35,1128 35,3238 35,5593
Þýskt mark 39,5629 39,8007 40,0661
ít. líra 0,039960 0,040200 0,040480
Aust. sch. 5,6233 5,6571 5,6948
Port. escudo 0,3860 0,3883 0,3909
Spá. peseti 0,4651 0,4678 0,4710
Jap. yen 0,620300 0,624000 0,617300
Irskt pund 98,250 98,840 99,499
SDR 99,660000 100,260000 100,380000
ECU 77,3800 77,8400 78,3600
Simsvari vegna gengisskráningar 5623270