Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1999, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1999, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 9. JUNI 1999 5 Fréttir Þingmennskan „leggst engan veginn“ í Sverri Hermannsson Skildu spaugstofuna eftir - en lögðu vinnudeildirnar niður „Þetta leggst engan veginn í mig, ég hef ekkert velt þessu fyrir mér,“ sagði Sverrir Hermannsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, aðspurður um hvernig það legðist í hann að taka nú aftur setu á Al- þingi eftir 11 ára hlé. Sverrir sagði að margt væri breytt á þeim 11 árum sem hann hefði verið fjarverandi. „Alþingi er orðin ein málstofa og ég var al- gjörlega andvígur því á sínum tíma. Nýjabrumsmenn hafa haft allt sitt í gegn enda löggjöfin verið þeim mun óvandaðri eftir að deild- ir voru lagðar niður því að þar fékk hvert lagafrumvarp miklu vandaðri meðferð en nú. Seinni Þingmenn á leið í þingsal þar sem þingsetning fór fram. Fremstir eru for- menn ríkisstjórnarflokkanna, Davíð Oddsson forsætisráðherra og Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra. DV-myndir Hilmar Þór Allt á tjá og tundri Heldur nöturiegt er um að litast í Kvosinni þessar vikurnar, Dómkirkjan í viðgerð, götur í kringum kirkjuna og þinghúsið endurbyggðar og þrjú hús í uppbyggingu. DV-mynd GVA Miðborg Reykjavíkur er heldur betur í upp- námi þetta vorið. Við Austurvöll eru miklar framkvæmdir í gangi, húsbyggingar, viðgerðir á húsum og gatnafram- kvæmdir. Alþingismenn rétt sluppu til vinnu sinnar í gær, þegar sum- arþingið var sett, búið var að helluleggja næst húsinu. „Þetta eru svokallaðar Kvosarframkvæmdir, það á að endumýja Kirkjustrætið og svæðið kringum Dómkirkjuna. Það verða lagðar í þetta snjóbrajðslulagnir og hellulagt," sagði Harald B. Alfreðsson, verkfræðingur hjá gatnamálastjóra, i samtali við DV. Framkvæmdum við svæðið kring- um þinghúsið og kirkjuna verður ekki lokið fyrir þjóðhátíðardaginn og Aust- urvöllur talsvert skertur. Fjórðungur Austurvallar, norðvesturhlutinn, er notaður tyrir verktakann sem vinnur að gatnaframkvæmdinni, Völ hf., en svæðið notar Ármannsfell að hluta fyrir húsbyggingu sem fyrirtækið stendur fyrir á gömlu ísafoldarlóðinni. Enn ein framkvæmdin á þessum slóðum er bygging á nýju húsi fyrir Alþingi og við Aðalstræti mun rísa gamla ísafoldarhúsið sem flutt var um set úr Austurstræti. -JBP deild rakst oft á kórvillur hjá fyrri deild og gat leiðrétt þær. í fyrri deild var oft tekist mjög á um pólitíkina í lagafrumvörpun- um, mönnum sást þá kannski yfir margt sem betur hefði mátt fara. Þegar málið var komið í seinni deild hafði pólitísku öldurnar lægt þannig að menn voru málefnalegri í lagasmíðinni og það var mjög al- gengt að seinni deild hnyti um mjög alvarlega hnökra frá fyrri deild. Þetta var tvöfalt kerfi og mikið glapræði að leggja það af, leggja niður vinnudeildirnar, eins og ég hef nefnt það, og skilja eftir spaugstofuna. Þar fer auglýsinga- mennskan stöðugt fram í sjónvarp- inu og menn komast ekki eins að rólegri íhugun og yfirvegun í af- stöðu til mála eins og áður var. Ég hef ekki reynslu af þessu nýja fyrirkomulagi, nema ég sé að það hafa orðið stórir fingurbrjótar við lagasetningu eftir að þingið varð ein málstofa." -JSS Sverrir Hermannsson þingmaður á tali við tvo kollega við þingsetninguna í gær. DV-myndir Hilmar Þór Sumarþing sett Þingsetning í gær var með óhefð- bundnum hætti þar sem þingmenn gátu nú ekki sótt messu í Dómkirkj- unni vegna yfirstandandi viðgerða á henni. Biskup íslands, Karl Sigur- björnsson, flutti blessunarorð í þinghúsinu og forseti íslands, Ólaf- ur Ragnar Grímsson, las síðan for- setabréf og setti þingið. Halldóri Ás- grímssyni var falið að stjóma þing- fúndi í forföllum Páls Péturssonar. Halldór Blöndal var kjörinn forseti Alþingis og Guðmundur Ámi Stef- ánsson, Guðjón Guðmundsson, ísólfur Gylfi Pálmason og Árni S. Jóhannsson vora kjörnir varafor- setar. 9 nýir þingmenn og varaþing- menn taka nú sæti á þingi. í gær flutti forsætisráðherra stefnuræðu sína og í gærkvöld fóm fram stjórn- málaumræður á Alþingi. Frá þeim er sagt annars staðar í blaðinu í dag. Helsta hlutverk þessa sumar- þings, sem sett var í gær, verður einkum að staðfesta breytingu á stjórnarskránni sem lýtur að nýrri kjördæmaskipan. -JSS Biskup íslands, Karl Sigurbjörnsson, flutti blessunarorð við athöfnina. Á myndinni eru einnig forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og Geir Haarde fjármálaráðherra. Davíð Oddsson forsætisráðherra og Guðjón Arnar Kristjánsson, þingmaður Frjálslynda flokksins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.