Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1999, Page 6
6
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 1999
Viðskipti_________________________________________________________________________________________dv
Þetta helst: ...Viðskipti á Verðbréfaþingi alls 1.092 m.kr. ... Mest með húsbréf, 819 m.kr. ...
Húsnæðisbréf, 170 m.kr. ... Hutabréf, 71 m.kr. ... Mest með bréf Fjárfestingarbanka atvinnulífsins,
26 m.kr. ... Gengi FBA hækkaði um 3,9% ... Síldarvinnslan og Pharmaco hækka um 3,2% ...
Karlar
Karlar hafa að meðaltali um 32%
hærri laun en konur. Þetta kemur
skýrt fram í nýrri launakönnun Kjara-
rannsóknametndar sem kom út fyrir
skömmu. Lægstu meðallaun hefur al-
Star Wars-
stríð á
íslandi
Nýjasta Star Wars-myndin verður
frumsýnd á íslandi í ágúst en heims-
frumsýning á henni var á mánudag-
inn. Mikill áhugi er á myndinni og
mörg fyrirtæki hyggjast nýta sér
þennan áhuga. Björn Sigurðsson,
forstöðumaður kvikmyndadeildar
Skífunnar, segir að mörg íslensk fyr-
iræki vilji nýta sér þennan áhuga og
sem dæmi má nefna að allur auglýs-
ingatími fyrir sýningu myndarinnar
er uppseldur. „Við höfum aldrei
fundið eins mikla eftirvæntingu fyr-
ir neinni mynd og nú með þær
margar og stórar," segir Bjöm Sig-
urðsson, forstöðumaður kvikmynda-
deildar Skífunnar. Heyrst hefúr að
mörg íslensk fyrirtæki sem reka
ákafa markaðssetningu á sínum vör-
um geri nú allt hvað þau geta til að
gerast styrktaraðilar myndarinnar.
Liklegt verður að teljast að sá sem
hreppir hnossið hér á landi geti
hagnast töluvert á því. Hins vegar er
það ekki auðsótt mál að fá að styrkja
útkomu myndarinnar hér á landi.
Fyrirtæki þurfa að gera mjög ítar-
lega greinargerð um sig og tilgang
sinn á ensku og senda hana út. Sag-
an segir að sjálfur George Lucas
velji sjálfur þá aðila sem hann telji
heppilegasta til starfans. Bjöm segir
að komið sé á hreint hver hinn
heppni verður en vildi ekki gefa það
upp að svo stöddu. Til viðbótar við
innlendan styrktaraðila hafa nokkur
erlend stórfýrirtæki einkarétt á að
nota sér nafnið. Pepsi, Pizza Hut,
Kentucky og Lego era meðal þeirra.
Hvað sem styrktaraðilum líður þá
biða aðdáendur hér á landi spenntir
en þeir verða að bíða fram í ágúst.
Myndin verður sýnd i Regnboganum
og sex öðrum bíóum. -BMG
Launakönnun Kj ararannsóknarnefndar:
með mun hærri laun
- biliö hefur þó minnkaö
Föst mánaðarlaun karla og kvenna 1998
Karlar Konur Hlutfallsmunur
fllmennt verkafólk 106.019 96.396 10,0%
Véla- og vélgæslufólk 124.965 95.720 30,6%
Sérhæft verkafólk 139.736 93.539 49,4%
Iðnaíarmenn 193.664 vantar
Þjónustu- og afgreiðslufólk 142.241 95.531 48,9%
Skrífstofufólk 127.665 106279 20J%
Tæknar og sénnenntað starfsfólk 205.796 150.593 36,7%
Sérfræðingar 293.600 228.994 282%
Heimild:Kjararannsðknamefnd rsrm
mennt verkafólk, eða 101.908 kr. á
mánuði, en hæstu meðallaunin hafa
sérfræðingar á ýmsum sviðum, 277.112
kr. á mánuði. Aðrar stéttir falla þama
á milli og raun fátt sem kemur vera-
lega á óvart. Að meðaltali var tima-
kaup verkafólks 545 kr. en hæsta tíma-
kaupið höfðu iðnaðarmenn, 876 kr.
Hins vegar er ljós að sérfræðingar hafa
að öllum likindum hærra tímakaup en
yfirleitt era slíkir menn ekki á tíma-
kaupi og því er það ekki gefið upp í
könnuninni.
Hér era skoðuð fost mánaðarlaun og
ekki tekið tillit til yfirvinnu sem getur
verið mjög misjöfn hjá þessum hópum.
Einnig skiptast þessir hópar í marga
undirflokka og á milli þeirra getur ver-
ið nokkur munur. Þrátt fyrir ákveðna
annmarka er ljóst
að þessar tölur gefa
sterka vísbendingu
um launamun og
launaþróun.
Mikill munur
Það sem er
áhugavert að skoða
er hversu mikill
launamunur milli
karla og kvenna er
enn þrátt fyrir
ágæta viðleitni
margra til að leið-
rétta þennan mun. Hér er gerður skýr
greinarmunur á störfum og sam-
kvæmt því sem hér kemur fram er
ljóst að karlar hafa mun hærri laun en
konur í sömu stéttarhópum. Ef skipt
væri upp í afmarkaðari hópa myndi
munur minnka eitthvað. Hluta af skýr-
ingunni má rekja
til þess hversu ólík
störf karlar og kon-
ur vinna innan
þessara hópa. Til
dæmis má nefna að
meðal sérmenntaðs
starfsfólks era kon-
ur fiölmennar í
hópi kennara og
hjúkrunarfræðinga
á meðan karlar
sækjast í aðrar
stöður. Þó er ljóst
að þessi munur
hefur minnkað
því að meðaltali
hafa laun
kvenna hækkað
meira en laun
karla.
Er launamun-
ur skiljanleg-
ur?
Nú á dögum
virðast allir
vera sammála um að greiða eigi kon-
um og körlum jafnhá laun fyrir sömu
vinnu. Hins vegar sýna tölumar
greinilega að svo er ekki. Vinnumark-
aðssérfræðingar hafa margir reynt að
útskýra hvemig á þessu stendur en
enga einhlíta skýringu er hægt að
ftnna á þessu. Ein skýring er sú að
konur séu einfaldlega dýrari starfs-
kraftar séð frá sjónarhóli vinnuveit-
enda. Konur bera tvimælalaust meiri
ábyrgð á heimilum, era líklegari til að
fara í fæðingarorlof og sinna veikum
bömum. Það hækkar kostnað vinnu-
veitenda við að hafa konur í vinnu
samanborið við karla. Þetta er hins
vegar aðeins ein skýring af mörgum og
er sjálfsagt algerlega ófuUnægjandi.
Launamunurinn er staðreynd en ljóst
er að það er langur vegur að því að
fullt launajafhrétti kynjanna nái fram
að ganga hér á landi. -BMG
Meðailaunabreyting 1997-1998
Almennt verkafólk 6,6%
Véla- og vélgæslufólk 3,9%
Sérhæft verkafólk 8,9%
Iðnaðarmenn 6,7%
Þjónustu- og afgreiðslufólk 6,6%
Karfar 6,3%
Konur 6,9%
Höfuðborgarsvæði 6,7%
Landsbyggðin 6J%
flllir 6,5%
Heimild:Kjararannsóknarnefnd ll »x»al
- byggir á grunni Handsals
Á fóstudaginn I síðustu viku var
Burnham Intemational hf. formlega
stofnað. Fyrirtækið er byggt upp á
grunni Handsals hf. sem nú hefur
verið lagt niður. Starfsemi fyrirtæk-
isins mun felast í ráðgjöf og þjón-
ustu við fiárfesta svo sem við miðl-
un verðbréfa, fasteignaveða, fiár-
vörslu og stýringu á fiármagni.
Jafnframt mun fyrirtækið sérhæfa
sig í erlendum verðbréfaviðskiptum
og einbeita sér aö því að innleiða
ýmsar áhugaverðar nýjungar á ís-
lenskum verðbréfamarkaði.
Jon Burnham er stjórnarformað-
ur nýja fyrirtækisins og Guðmund-
ur Franklín Jónsson, verðbréfa-
miðlari í New York, er varamaður.
Forstjóri Bumham á íslandi er Guð-
mundur Pálmason. -BMG
Guömundur Franklín Jónsson, Jon Burnham og Guömundur Pálmason.
DV-mynd Teitur
Nýtt verðbréfafyrirtæki,
Burnham International
viðskipta-
molar
Hlutabréfaeign lífeyris-
sjóða
Hlutabréfaeign lifeyrissjóða
hefur aukist jafnt og þétt undan-
farið. Sérstaklega er athyglisvert
hversu mikið erlend eign hefur
aukist. Árið 1997 áttu sjóðimir er-
lend hlutabréf að verðmæti 7,1
milljarður en 21,2 milljarðar árið
1998. Á sama tíma hefur innlend
hlutabréfaeign tvöfaldast.
Betri afkoma ríkissjóös
Fyrstu þrjá mánuði þessa árs
var afkoma ríkissjóðs nokkru
betri en á sama tima í fyrra. Á
tímabilinu var 300 milljóna króna
afgangur af ríkissjóði á móti svip-
uðum halla í fyrra.
Óvænt í Þýskalandi
Svo virðist
sem veik
staða evrunn-
ar sé að hafa
jákvæð áhrif
á þýskt efna-
hagslíf. Veik
evra gerir það
að verkum að
eftirspurn eftir þýskum vörum
hefur aukist. Hagvöxtur var enn
fremur meiri fyrstu mánuði
þessa árs en búist var við og
mældist 0,4% samanborið við
0,7% í fyrra. Hins vegar er at-
vinnuleysi enn mikið, eða 9,1%.
Framkvæmdastjóri hjá Skýrr
Gengið hefur verið frá ráðn-
ingu Atla Arasonar sem fram-
kvæmdastjóra Sölu- og markaðs-
deildar Skýrr hf. Atli er við-
skiptafræðingur að mennt og hef-
ur starfað alls um 20 ár hjá Skýrr
hf. og er því öllum hnútum kunn-
ugur. Atli mun taka við af Stefáni
Kjæmested þann 15. júlí n.k.
Indónesar fá lán
Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn
hefur samþykkt að lána Indónes-
um 34 milljarða króna lán. Þetta
er gert í tilefni fyrstu lýðræðis-
legu kosninganna í 44 ár og er
hluti af mun stærri efnahagsað-
stoð sem Indónesar þurfa á að
halda.
Minni stálframleiðsla
Stálframleiðsla dróst saman
um 2,5% í vikunni sem lauk 5.
júní. Stálframleiðslan var 9,8%
minni en meðaltal síðasta árs og
var nýting framleiðslugetu 79,7%
en hefur undanfarið ár verið
92,3%. Nýtingartölur eru taldar
vera vísbending um hvort hag-
kerfið sé að ofhitna og er birting
talnanna því talin draga úr likum
á vaxtahækkun. Þetta kom fram í
Morgunpunktum Kaupþings í
gær.
F-1500M
Faxtæki, sími, símsvari,
Windows prentari, skanni,
tölvufax.og Ijósriti í einu tæki
Sjálfvirkur deilir fax/sfmi
Hitafilmu prentun
Prentar á A4 pappír
20 blaða frumritamatari
300 blaða pappírsbakki
FO-4500
• Prentar á A4 pappír
• Laserprentun
• 1 mb í minni (ca 50 slður)
• 50 blaða frumritamatari
• 650 blaöa pappírsgeymsla
FO-2600
• Innbyggður sími
• Prentar á A4 pappír
• Sjálfvirkur deilir fax/sími
• Símsvara tengimöguleiki
• Laserprentun
• 512 kb minni
• 20 blaða frumritamatari
• 100 blaða pappírsbakki
FO-1460
• Innbyggður sími
• Sjálfvirkur deilir fax/sími
• Símsvara tengimöguleiki
• Hitafilmu prentun
• Prentar á A4 pappír
• 20 blaða frumritamatari
• 200 blaða pappírsbakki