Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1999, Side 8
8
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 1999
Útlönd
Stuttar fréttir i>v
Hershöfðingjar NATO og Júgóslavíu ræddu saman í alla nótt:
Hóflega bjartsýnir
Júgóslavneskir herforingjar
geröu hlé á viðræðum sínum við
starfsbræður sína frá Atlantshafs-
bandalaginu (NATO) I morgun til
að ráðfæra sig við stjórnvöld heima
í Belgrad um áætlanir um brott-
flutning serbneskra hermanna frá
Kosovo.
Fundahöld hershöfðingjanna hafa
staðið i alla nótt í tjaldi í herbúðum
NATO í Makedóníu. Það þykir til
marks um djúpstæðan ágreining
milli aðila um hvernig skuli hagað
brottflutningi Serba frá hinu um-
deilda héraði.
„Við erum hóflega bjcirtsýnir á að
samkomulagið verði undirritað í
dag. Við verðum bara að bíða og
sjá,“ sagði heimildarmaður Reuters
fréttastofunnar sem var á fundin-
um. „Nú er þetta undir valdamönn-
unum komið,“ bætti hann við og
vísaði þar til þess að allt ylti nú á af-
stöðu Slobodans Milosevics
Júgóslavíuforseta.
Helstu ágreiningsefnin í nótt
voru tímasetning brottflutnings
serbnesku hversveitanna og í hvaða
röð þær ættu að fara frá Kosovo. Þá
stóð alþjóðlegt friðargæslulið, undir
forystu NATO, enn í júgóslavnesku
herforingjunum.
Opinber talsmaður NATO sagði
einnig í morgun að þar á bæ væru
menn hóflega bjartsýnir á að niður-
staða fengið í viðræðunum.
Friðarferlið allt í Kosovo ræðst að
miklu leyti af viðræðum herforingj-
anna og þær hafa ekki gengið allt of
vel til þessa.
Heimildarmaðurinn sagði frétta-
manni Reuters að júgóslavnesku
herforingjarnir hefðu fengið í hend-
urnar nýjan texta að samningi um
brottflutning serbnesku hersveit-
DV er í Moskvu.
ítarleg umfjöllun
um landsleik
Rússlands og
íslands.
Viðtöl verða við alla sem keppa á heimsmeistaraúrtökunni og auk
þess verður landsliðseinvaldurinn tekinn tali.
Umsjón efnis hefur Eiríkur Jónsson í síma 550 5839.
► Auglýsendum er bent á að hafa samband við Selmu Rut
Magnúsdóttur í síma 550 5720,milli kl. 9 og 14, netfang: srm@ff.is
mmmmn
Miðvikudaginn 16. júní mun sérblað um hestamennsku fylgja DV.
anna. Þar er að fmna mikilvægar
ákvarðanir sem teknar voru á fundi
utanríkisráðherra G-8 hópsins í
Þýskalandi í gær, það er sjö helstu
iðnríkja heimsins, auk Rússlands.
Júgóslavar neituðu að undirrita
fyrri samningsdrög um helgina.
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, sagðist í morgun vonast
til að friðarsamningar tækjust í dag.
Hann sagði þó að fyrri reynsla af
Serbum hefði kennt mönum að bú-
ast ekki við allt of miklu.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
er að búa sig undir að leggja bless-
un sína yfir friðarskilmálana sem
fulltrúum Rússa og Vesturveldanna
tókst að berja saman og sem Milos-
evic samþykkti. Hugsanlegt er að
Öryggisráðið gangi frá málinu í dag.
Gengið verður frá öðrum smáat-
riðum í Moskvu. Einhver dráttur
verður þó á því. Hernaðarsendi-
nefnd NATO sem var væntanleg til
Moskvu í dag kemur þangað vænt-
anlega ekki fyrr en á morgun.
Michael Jackson hershöf>ingi, a>-
alfulltrúi Atlantshafsbandalagsins,
kemur til vi>ræ>na vi> júgóslav-
neska hershöfdngja í bú>um NATO
í Makedóníu. Jackson og Júgósla-
varnir ræ>a um hvernig haga skuli
brottflutningi serbneskra hersveita
frá Kosovo-héra>i. Vi>ræ>urnar
hafa ekki gengi> allt of vel til flessa
en talsma>ur NATO sag>i engu a>
sí>ur a> flar á bæ ríkti hófleg bjart-
sfni á a> ni>ursta>a fengist.
Danmörk:
Konur í fyrsta
sinn á vakt við
Amalienborg
í fyrsta sinn I sögunni hefur
konunglegi danski lífvörðurinn
þjálfað konur til að gegna
lífvarðarstöðum fyrir utan
konungshöllina í Amalienborg.
Meðal 300 nýliða í lífverðinum
eru nefnilega þrjár konur sem frá
og með nóvember næstkomandi fá
að standa vaktina í hinum vel
þekktu búningum lífvarðarins,
rauðum jökkum og svörtum, háum
bjamarskinnshúfum.
Konurnar eru allar yfir 175
sentimetra háar, hafa staðist
skriflegt próf og ef þær klára hinn
þriggja mánaða þjálfunartíma taka
þær til starfa í haust.
Yflrmenn í lífverðinum hafa þó
tekið skýrt fram að ekki verði
hannaðir sérstakir búningar í
konurnar - þeir eru bara til í einni
útgáfu og verður ekki breytt.
Lasse Harkjær, starfsmannastjóri
og næstráðandi lífvarðasveitanna,
segist að minnsta kosti ekki reikna
með að konurnar verði ófrískar á
meðan á þjónustu þeirra stendur,
svo ekki verður um neina
aðkallandi þörf á breytingum á
sniði búninganna að ræða.
Kóreuríkin bítast
Suður-kóresk stjórnvöld sendu
tólf hraðskreiða eftirlitsbáta til
móts við norður-kóresk herskip í
morgun. Ríkin sökuðu hvort ann-
að um landhelgisbrot.
Stepasjín ákallar þingiö
Sergei Stepa-
sjín, forsætis-
ráðherra Rúss-
lands, gengur
væntanlega
fram fyrir
skjöldu í dag og
hvetur þing-
menn til að ljá
stuðning sinn óvinsælum sköttum
sem stjómvöld segja nauðsynlegt
að koma á til að tryggja bráðnauð-
synleg lán frá Alþjóðagjaldeyris-
sjóðnum.
Hague í vígahug
William Hague, leiðtogi breska
íhaldsflokksins, er kátur mjög
vegna vaxandi andstöðu breskra
kjósenda við sameiginlega mynt
Evrópusambandsins. Hague sak-
aði Tony Blair forsætisráðherra í
gær um að fórna hagsmunum
Bretlands.
Naktir við höllina
Fimm karlmenn voru hand-
teknir eftir að þeir fóra úr hverri
spjör fyrir framan Buckingham-
höll í London. Mennirnir tilheyra
hópi sem krefst þess að fá að vera
nakinn að vild. Ekki er vitað til að
blygðunarkennd drottningar hafl
verið særð.
Fresta ferðalögum
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, og Bertie Ahern, for-
sætisráðherra írlands, hafa
frestað ferðum sínum til Suður-
Ameríku í þessum mánuði til að
reyna rjúfa kyrrstöðuna sem frið-
arferlið á Norður-írlandi er komið
í.
Hætta ekki loftárásum
Þrátt fyrir að viðræður um
þrætueplið Kasmír séu fram und-
an hjá Pakistan og Indlandi næsta
laugardag munu Indverjar ekki
hætta loftárásum nærri línunni
sem skiptir átakasvæðinu.
Krefjast lausnar
ísrael og Bandaríkin hafa kraf-
ist lausnar 13 íranskra gyðinga
sem sakaðir eru um njósnir í þágu
landanna tveggja. Bandaríkin vísa
ásökununum alfarið á bug.
Lýðræðið á hilluna
Bandarísk tillaga um verndun
lýðræðis á vesturhveli var lögð á
hilluna eftir að Mexíkó og önnur
lönd í Sambandi Ameríkuríkja
sögðu ódaun afskiptastefnu leggja
af henni.
Átök í Nígeríu
Nígeriuher hefur styrkt tök sín
á oliubænum Warri sunnarlega í
Nígeríu og bundið enda á sex daga
þjóðernisróstur þar sem tugir
manna hafa verið myrtir og fjöldi
heimila eyðilagður.
Páfinn í
Jóhannes Páll
páfi II eyddi
gærdeginum í
siglingu á hinu
afskekkta
Wigryvatni í
Póllandi þar
sem hann stund-
aði kajaksigl-
ingar sem ungur maður á sjötta
áratugnum. Páfi hefur nú lokið
íjórum dögum af þrettán í heim-
sókn sinni til heimalands síns Pól-
lands og mun hann hvílast í dag í
klaustri í nágrenni Wigryvatns.
Belgía bregst við
Belgar segjast hafa snúið vöm í
sókn gegn matvælavandanum en
nær allar belgískar landbúnaðar-
afurðir hafa verið bannaöar af
Evrópusambandinu vegna krabba-
meinsvaldandi efna sem fundist
hafa í þeim. Belgíski forsætisráð-
herrann Jean-Luc Dehaene segir
95 prósent framleiðslu Belga ör-
ugga.
siglingu