Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1999, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 1999
13
Hringiðan
DV
A fostudaginn var
vígður nýr staður þar
sem Órafmögnuð
stemning nýtur sín út f
ystu æsar. Við erum að
tala um efri hæðina á
Gauknum þar sem
hljómsveitin írafár hélt
fyrstu tóneikana, von-
andi af mörgum, þarna
uppi.
ís-
lands-
meist-
ara-
keppnin í
handflökun
fór fram á
hafnardeginum á
laugardaginn. Þar
öttu kappi bestu flakarar ís-
iands og að sjálfsögðu skilur slíkur hópur
eftir sig mikið af flökum og ekki síður mikið
af fiskdáikum. Tímaverðirnir Ólafur Þorvalz
og Helga Teitsdóttir bregða hér á leik á með-
an þrif standa yfir og Björn „slöngumaður"
Björnsson fyigist vel með.
Bubbi Morthens skemmti
fólkinu sem lagði leið sína
niður á Miðbakka í tilefni
hafnardagsins á laugar-
daginn. Vel fór á með
þeim Bubba og Sæmundi
Pálssyni eða Sæma rokk,
eins og þjóðin þekkir
þennan hressa lögreglu-
þjón, við það tilefni.
Litla hryllingsbúðin var
frumsýnd í Borgarleik-
húsinu á föstudaginn.
Hjónin Stefán Hilmars-
son og Anna Björk Birg-
isdóttir eru hér ásamt
Silju Rún Gunnlaugs-
dóttur í teiti sem haldið
var eftir sýninguna.
Þeir Brynjar Örn Þor-
ieifsson og Daníel
Traustason voru
Selmu Björnsdóttur
til halds og trausts í
söngvakeppni evr-
ópskra sjónvarps-
stöðva f Jerúsal-
em fyrir stuttu og
að sjálfsögðu
voru þeir mættir
til að fylgjast
með henni í
Litlu hryllings-
búðinni.
Á þessu síðasta ári
árþúsundsins munu DV,
Bylgjan og Vísir.is standa
fyrir viðamikilli könnun meðal
landsmanna um hvaða
íslendingar og hvaða atburðir hafi
mótað mest líf okkar undanfarin
þúsund ár.
telja að beri af í 1000 ára
sögu þjóðarinnar.
Tilnefningar berist á
www.visir.is fyrir 10. júní
Almenningur getur síðan sagt
skoðun sína í beinni útsendingu á
Bylgjunni eða á Lögréttu á Vísi.is og
greitt atkvæði um hver íslendinga hafi
dugað þjóð sinni best.
I hverri viku veröur kastljósinu beint að
ákveðnum geirum sögunnar með greinum
í DV, umræðum á Bylgjunni og ýmiskonar
fróðleik á Vísi.is og reynt að draga fram
þá menn og þau mannanna verk sem hafa
haft einna afdrifaríkustu áhrif á söguna.
A fullveldisdaginn, 1. desember, verða
atkvæðin úr öllum flokkum dregin saman
og tilkynnt hver er íslendingur
árþúsundsins.
Landsmenn geta tilnefnt þá einstaklinga,
atburði og þau bókmenntaverk sem þeir
IBYLGJANI