Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1999, Blaðsíða 17
16
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 1999
MIÐVIKUDAGUR 9. JUNI 1999
Sport
Sport
10 sigrar
í röð ocj met
í augsýn
San Antonio Spurs hefur nú unnið 10 leiki í röð í úr-
slitakeppninni og er aðeins einum leik frá því að jafna
met Los Angeles Lakers frá 1989, yfir flesta sigra í röð á
einu ári í úrslitakeppni. Lakers vann þá fyrstu 11 leik-
ina en tapaði 0-4 fyrir Detroit í úrslitunum. Meiðsli
hrjáðu þá reyndar lykihnenn Lakers í úrslitaleikjunum.
Á þessu sést best að þeir leikir sem á undan hafa farit 1
skipta engu þegar í úrslitin er komið og San Antonk :
Spurs þarf enn 4 sigra í viðbót til að verða meistarar. j
David Robinson hefur átt marga Möguleikarnir eru þó miklir enda hefur enginn getað 1
stórleiki í vetur og er að öðrum stoppaö turnana tvo það sem af er úrslitakeppni NBA í ár. 1
ólöstuðum fremstur meðal jafningja í Indiana og New York heyja síðan enn mikla baráttu um
afar sterku liði Spurs. að fá að mæta heitasta liði NBA-körfuboltans í dag -ÓÓJ
Sinadráttur
Heiðar Helguson nýtur hér aðstoðar Stefáns Stefánssonar, Helgi Kolviðsson og Guðjón Þórðarson iandsliðsþjálfari ræða málin
sjúkraþjálfara landsliðsins, á æfingu í Moskvu í gær. fyrir leikinn gegn Rússum. DV-mynd JKS ^
DV, Moskvu:
Rússar leggja gífurlega
mikla áherslu á aö kom-
ast í úrslitakeppnina í
Hollandi og Belgíu
næsta sumar. Ef þaö
gengi eftir hefur þeim
verið heitið tugum milij-
óna. Það er því Rússum
í mun að leggja íslend-
inga að velli í dag.
Jafntefli
- yrði góð úrslit að mati Guðjóns Þórðarsonar
Frakkar sœkja Andorra heim í 4.
riðli, íslandsriðlinum, í kvöld. Reynd-
ar ekki heim, því leikið er á Montju-
ic-leikvanginum í Barcelona. Heima-
völlur Andorra rúmar aðeins 1250
manns en reiknað er með um 10 þús-
und frönskum áhorfendum á leikinn.
Frakkar eru enn án Zinedine Zi-
dane. sem er meiddur, og þá verður
Youri Djorkaeff ekki með vegna
veikinda.
Nýr þjálfari hefur tekið við liði And-
orra, David Rodrigo að nafni. Hann
Leikmenn 1 NBA-deildinni í
körfuknattleik komast ekki upp með
neitt múður. í gær var Larry John-
son, leikmaður New York Knicks,
sektaður vegna þess að hann mætti
ekki á tilsettum tíma til viðræðna við
blaðamenn. Slika hegðun eiga for-
ráðamenn NBA erfitt með að líða og
þeir gripu umsvifalaust til þess ráðs
að sekta Johnson um 700 þúsund
krónur og forráðamenn New York
Knicks fengu sömu afgreiðslu.
Reikna má með að Johnson mæti
næst þegar blaðamenn bíða hans.
-SK
Guðjón Þórðarson stappar stáli í sína menn á æfingu í Moskvu í gær.
Starfsmenn íslenska
sendiráðsins í Moskvu
ætla að tjölmenna á leik
Rússa og íslendinga í
kvöld. Jón Egill Egils-
son, sendiherra og tíu
manna lið úr sendiráð-
inu kemur á leikinn.
Starfsmenn SH hér í
Moskvu láta ekki heldur
sitt eftir liggja og koma
einnig á leikinn. Hér er
um einhvern hóp að
ræða og svo er einnig
vitað af fleiri Islending-
um í Moskvu í við-
skiptaerindum.
Vióar Halldórsson og
Jón Gunnlaugsson, í 21-
árs nefndinni, fóru árla
morguns á Lokomotiv-
leikvanginn til að skipu-
leggja leikinn við Rússa
sem verður leikinn á há-
degi að islenskum tíma,
eða klukkan fjögur að
staðartíma.
Halldór B. Jónsson og
Geir Þorsteinsson fóru í
sömu erindagjörðum
klukkan 11 að staöar-
tíma til að skipuleggja
með Rússum A-landsleik
þjóðanna sem hefst
klukkan 7 að Moskvu-
tima, eöa klukkan 3 að
íslenskum tima.
Þegar íslenska lands-
liðið keyrði inn í borg-
ina í gær frá flugvellin-
um fékk það lögreglu-
fylgd. Á undan bil lands-
liðsins fór lögreglubill
með blikkandi ljós og
gerði þannig leiðina
greiðfærari en efla, en
umferð var allnokkur.
Ekki veróur annað sagt
en íslendingar hafi feng-
ið hlýjar móttökur hér í
Moskvu. Allir eru reiðu-
búnir að greiða götu ís-
lendinganna, svo ekki
verður annað sagt en
gestrisnin sé fyrsta
flokks.
Viö komuna í gær var
um 30 stiga hiti í
Moskvu og voru tölu-
verð viðbrigði fyrir ís-
lensku landsliðsmenn-
ina að koma að heiman í
þennan mikla hita.
A-landsliöid æfði á
Dynamo-leikvanginum í
gærkvöldi í 22 stiga hita
og fylgdist þónokkur
hópur með æfingunni.
Völlurinn er góður og
lét landsliðið vel af hon-
um og engin meiðsl hrjá
leikmennina.
Guöjón Þóróarson
landsliðsþjálfari kann-
aðist við sig þegar hann
gekk inn á Dynamo-leik-
vanginn í gær. Hann
stýrði þar Skagamönn-
um í Evrópukeppninni
1996 gegn Dynamo.
-JKS
Turnarnir
tveir
- Tim Duncan og David
Robinson leiddu SA Spurs
i úrslit NBA í fyrsta sinn
Árangur San Antonio Spurs hefur vakið mikla athygli í úrslita
keppni NBA-deildarinnar í ár. Spurs er nú búið að vinna 10 leiki í
röð í úrslitakeppninni, „sópa“ ekki minni liðum út en Los Angel-
es Lakers og Portland Trailblazers 4-0 og er nú komið í úrslit
NBA-deildarinnar í fyrsta sinn í sögu félagsins.
213 cm og 216 cm
Ástæðuna fyrir hinum snögga uppgangi liðsins frá
olíuríkinu Texas eru flestir sammála um, frammi-
staða turnanna tveggja, David Robinson og Tim
Duncan, bæði í sókn og vörn.
David Robinson er 34 ára, 216 cm á hæð, 113,4
kg og hefur verið í deildinni frá 1989. Hann var
reyndar valinn 1987 en þurfti að sinna skyldum
sínum í hemum í tvö ár. Robinson hefúr leikið
10 tímabil, samtals 685 leiki og skorað í þeim
24,4 stig að meðaltali, tekið 11,5 fráköst og var-
ið 3,39 skot.
Tim Duncan er 23 ára, 213 cm á hæð, 112,5
kg og er að spila sitt annað ár í NBA-deildinni.
Hann var kosinn nýliði ársins 1997-98 og hef-
ur bæði árin sín verið kosinn í lið ársins í
NBA auk þess að verða þriðji í kosningu á
leikmanni ársins í ár.
36,7 stig að meðaltali
Styrkurinn hjá Spurs er að hafa tvo mið-
herja/stóran framherja sem geta hlaupið völl-
inn, sent boltann, varist og skelft vamir and-
stæðinga á alla mögulega vegu.
Tölur kappanna í úrslitakeppninni i ár era
líka ógnvænlegar fyrir næstu andstæðinga en
þær má sjá hér til hliðar. Þeir félagar skora
36,7 stig að meðaltali, taka 19,5 fráköst og
verja 4,91 skot. Ólíkt mörgum stóram mönn-
um í deildinni þýðir líka lítið að brjóta á
þeim því báðir hitta þeir yflr 72% úr vítun-
um auk þess að nýta skotin sín um 50%.
Styrkur liðsins felst síöan í því að nýta
sér þegar andstæðingar bregða á það ráð að
tvídekka Duncan eða Robinson. Boltinn
gengur vel í liöinu, í því eru góðir
skotmenn og leikmenn liðsins era
fljótir að finna opna
manninn.
-
?*.
€t>
*
Tim Duncan hefur átt frábæra
leiki með San Antonio Spurs i
vetur og það er ekki síst Duncan
að þakka að Spurs er komið í
úrslitaleikina.
Reuter
F Tölfræði
Turnanna
í úrslita-
keppninni
■ Stig að meðaltali
í leik: 36,7
Tim Duncan 21,5
David Robinson 15,2
Fráköst að meöaltali
íleik: 19,5
Tim Duncan 10,4
David Robinson 9,1
Varln skot að meðaltali
í leik: 4,91
Tim Duncan 2,83
David Robinson 2,08
Skotnýting: 50,3%
Tim Duncan 49,7%
David Robinson 51.2%
Vítanýting: 73,4%
Tim Duncan 72,7%
||^ David Robinson
■Mfc:.. 74,4%
stýrði
botnliði i C-deildinni
par til fyrir skömmu, en nú biður
hans leikur viö sjálfa heimsmeist-
arana.
Julen Lucendo, hættuleg-
asti sóknarmaður og fyrir-
liði Andorra, leikur
kveöjuleik sinn í kvöld.
Lucendo, sem á sínum tima spil-
aði einn leik með Barcelona, er 29
ára en ætlar nú að leggja skóna á
hifluna og einbeita sér að fjölskyld-
unni og vinnu sinni sem bilstjóri.
Úkraina sækir Armeníu heim í
þriðja leiknum í 4. riðli og verður
án aðalmarkvarðar síns, Olexand-
ers Shovkovskys. Hann meiddist á
æfíngu í gærmorgun.
Vm 97 prósent þeirra sem taka af-
stöðu telja að Guöjón Þóröarson
hafi staðið sig mjög vel eða frekar vel
sem landsliðsþjálfari, samkvæmt nið-
urstöðu í skoðanakönnun sem Price-
waterhouseCoopers ehf. hefur sent
frá sér. Rúmlega 90 prósent i sömu
könnun eru ánægð með gengi is-
lenska landsliðsins að undanfómu.
Markvörður landsliðs Úkrainu,
Olexander Shovkovsky, meiddist á
æflngu liösins fyrir leikinn gegn
Armeníu í kvöld. Meiðslin em alvar-
legri en talið var i fyrstu og ljóst að
Shovkovsky mun ekki leika á milli
stanganna í kvöld.
írska sundkonan Michelle Smith-de
Bruin hefur ákveðið að leggja sund-
bolinn á hifluna. Ástæðan er sú að yf-
irvöld halda fast við þá nið’urstöðu
að hún hafl neytt ólöglegra lyfja en
hún hefur afltaf neitað þeim ásökun-
um.
Brasilíski landsliðsmaöurinn í knatt-
spymu, Paulo Sergio, er mjög ná-
lægt því að skrifa undir samning við
þýsku meistarana í Bayem Munchen.
Uli Höness hjá Bayern Munchen
greindi frá þessu í gær en Bayem
mun kaupa Brasilíumanninn frá
ítalska liðinu AC Roma.
Verölaun á opna breska mótinu í
golfi, British Open, verða hækkuð
verulega. British Open fer fram í
næsta mánuði og þá mun sigurvegar-
inn fá 40,2 milljónir króna sem er 6
milljóna króna hækkun frá síðasta
móti.
DV, Moskvu:
Guðjón Þórðarson, landsliðsþjálf-
ari íslands í knattspymu, stjórnaði
lokaæfmgu landsliðsins af röggsemi
á Dynamo-leikvangnum í Moskvu í
gærkvöld fyrir leikinn gegn Rúss-
um í riðlakeppni Evrópumóts lands-
liða.
Fyrir leikinn er staða íslands
sterk í 4. riðli en liðið er í öðru sæti
með 12 stig, eða tveimur stigum á
eftir efsta liðinu, Úkraínu. Frakkar
eru í þriðja sæti með 11 stig og
Rússar eru með 9 stig í fjórða sæt-
inu eftir glæstan sigur á Frökkum i
París um síðustu helgi. Guðjón ætl-
aði ekki að velja byrjunarliðið fyrr
en eftir göngtúr liðsins snemma í
morgun.
Hvernig œtli þessi mikilvœgi
leikur leggist í þjálfarann?
„Ég geri mér fulla grein fyrir því
að þetta verður erfitt og það mun
því ekki af veita að brýna strákana
fyrir þessi átök. Við ætlum inn í
leikinn með svipuðum hætti og við
gerðum í Úkraínu og við sjáum
hvað það fleytir okkur langt. Við
erum búnir að ná góðum úrslitum
gegn Frökkum, Úkraínu og Rússum
án þess að vera velta okkur of mik-
ið upp úr andstæðingnum.
Það sem skiptir máli er að við
náum að stilla saman strengina og
setja okkur í þær stellingar og ein-
beitingu sem til þarf. Það skiptir
öllu máli að menn nái að einbeita
sér fyllilega að því sem til stendur.
Minnstu mistök geta reynst okkur
dýrkeypt," sagði Guðjón Þórðarson
við DV í Moskvu í gærkvöld.
„Það hefur orðið töluverð breyt-
ing á mannskap Rússanna frá í
Reykjavík í fyrrahaust og nýr þjálf-
ari tók við eftir tapið gegn okkur.
Það virðist verða annar bragur á
rússneska liðinu í dag og það getur .
virkaö á tvennan hátt. Annars veg-
ar mæta þeir fullir sjálfstrausts en
þeir eru og sjálfumglaöir eftir sigur-
inn á Frökkum.
Ef það væri reyndin gæti það
reynst okkur vel. Jafntefli yrði að
mínu mati góð úrslit enda voru
Rússar sofandi framan af en eru
vaknaðir til lífsins. í upphafi gerðu
fáir sér vonir um að við næðum ein-
hverjum úrslitum í þessum riðli
enda firnasterkur.
Mér finnst hjá mörgum vera fariö,
að gæta og mikillar bjartsýni um að ’
það sé sjálfgefið að fara til Moskvu
og ná í jafntefli. Ég vara við því
hugarfari en ef það reyndist niður-
staðan þá yrði ég mjög ánægður,"
sagði Guðjón í spjallinu við DV.
-JKS
Bera virðingu fyrir Islandi
DV, Moskvu:
Það kom fram í viðtölum við rússnesku
landsliðsmennina í dagblöðum í Rússlandi í gær að
þeir bera fuUa virðingu fyrir íslenska liðinu.
Þeir segja íslenska liðið sterkt og tU að leggja það
þurfi þeir að leggja sig aUa fram.
Ljóst þykir að Rússa muni tefla fram óbreyttu liði
frá fræknum sigri gegn heimsmeisturam Frakka um
síðustu helgi. Sá leikmaður sem vakti hvað mesta
athygli í rússneska liðinu var hinn sókndjarfi
Alexander Panov sem leikur með Leningrad. íslenska
liðið verður að hafa góðar gætur á honum í leiknum
í dag. -JKS
„Spurning hvort
við nýtum færin“
- segir Rúnar Kristinsson um leikinn í dag
DV, Moskvu:
Rúnar Kristinsson, sem leikur sinn 76.
landsleik í dag, segir að liðið muni leika stífan
varnarleik gegn Rússum og reyna síðan að
leika hratt upp völlinn þegar tækifærin gefast.
„Við munum reyna að pota inn í einu marki
en þetta verður erfltt.
Við höfum gengið í gegnum svipað í
Úkraínu og þetta verður eflaust áþekkt hér í
Moskvu. Það er allt hægt ef viljinn er fyrir
hendi og ef menn koma vel stemmdir til
leiksins og taka á því. Það var gifurlega sterkt
hjá Rússum að sigra Frakka á útivelli og þau
úrslit undirstrika styrkleika þeirra. Fyrir
vikið era þeir komnir í bullandi séns í
riðlinum og ef þeir vinna í dag fara þeir upp
fyrir okkur. Þeir hafa í raun allt að vinna og
pressan er á þeim. Við þurfum helst að ná í
stig þarna en við erum samt ekki út úr
myndinni þótt við töpum,“ sagði Rúnar
Kristinsson í samtali við DV eftir æfingu í
gaer.
Rúnar sagði í raun að jafntefli yrðu mjög
góð úrslit en að sjálfsögðu reyndu þeir að
koma sér fram á völlinn.
„Ég er þess fullviss að við fáum tækifærin í
leiknum en spurningin er aðeins hvort við
náum að nýta þau,“ sagði Rúnar Kristinsson
sem leikur í dag sinn 76. landsleik fyrir ísland.
-JKS
36 þúsund
koma á leikinn
DV, Moskvu:
Uppselt er á leik Rússa og ís-
lendinga í 4. riðli Evrópumóts
landsliða í knattspymu sem
fram fer á Dynamo-leikvangin-
um í Moskvu í dag. 36 þúsund
miðar runnu út eins og heitar
lummur og sögðu talsmenn rúss-
neska knattspymusambandsins
það í gær að hæglega hefði verið
hægt að selja helmingi fleiri
miða.
Aðgöngumiðinn kostar um 100
rúblur eða um 300 íslenskar
krónur. Það þykir ekki ýkja
ódýrt þegar horft er til þess að
meðallaunin era um fimm þús-
und krónur íslenskar.
Ástæða þess að láta ekki leik-
inn fara fram á Lenin-stadion,
sem tekur um 80 þúsund manns,
var sú að rússneska liðið lék
framan af ekki vel í riðlinum og
því fundu forsvarsmcnn knatt-
spyrnusambandins ekki fyrir
miklum áhuga. Hins vegar eftir
frábæran sigur á Frökkum um
síðustu helgi jókst áhugi aftur en
fyrri ákvöröun um leikstað stóð
óbreytt.
Lárus Orri Sigurðsson með knöttinn en til varnar er Ríkharður Daðason en 0
hann skorað'i fyrra mark ísiands gegn Armeníu um síðustu helgi.
1 -'4|.
_
Guðjón Þórðarson landsiiðsþjálfari og Ásgeir Sigurvinsson, tæknilegur ráðgjafi KSÍ, brosa
vonandi eins og á þessari mynd eftir leikinn í dag.
Blcmd í
Bland i noka