Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1999, Síða 26
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 1999
*42
Afmæli
Guðmundur G. Jónsson
Guðmundur Gísli Jónsson, bóndi,
trillukarl og hreppstjóri á Munaðar-
nesi í Árneshreppi í Strandasýslu,
er sextugur í dag.
Starfsferill
Guðmundur fæddist á Munaðar-
nesi og ólst þar upp. Hann lauk al-
mennu barnaskólanámi og hefur
verið bóndi og trillukarl á Munað-
arnesi frá 1960.
Guðmundur hefur verið hrepp-
stjóri Árneshrepps frá 1971. Hann
sat í sýslunefnd Strandasýslu
1972-86 og hefur setið í hreppsnefnd
Ámeshrepps frá 1986.
Guðmundur hefur skrifað ýmis-
legt í Strandapóstinn og lagt sitt-
hvað að mörkum til héraðssögu
Strandasýslu.
Fjölskylda
Guðmundur kvæntist 15.7. 1961
Sólveigu Stefaníu Jónsdóttur, f. 12.6.
1942, húsfreyju og bónda. Hún er
dóttir Jóns Guðmundssonar og Unn-
ar A. Jónsdóttur sem bjuggu í
Stóru-Ávík í Ámeshreppi en þau
eru bæði látin.
Böm Guðmundar og Sólveigar
Stefaníu em Bergvin Sævar, f. 18.10.
1961, sjómaður i Grundar-
firði, kvæntur Elínborgu
Þórsteinsdóttur frá Lax-
árdal í Hrútafirði og eiga
þau þrjú böm; Birgir, f.
13.3. 1963, fangavörður
við Kvíabryggju, búsettur
í Grundarfirði, kvæntur
Patriciu Laugensen frá
Nýja-Sjálandi og eiga þau
þrjú börn; Unnur Pálína,
f. 22.7. 1966, húsmóðir í
Grundarfirði en maður
hennar er Sigurjón F.
Jakobsson sjómaður og
eiga þau þrjú böm; Guðbjörg, f. 6.2.
1975, starfsmaður við álverið í
Straumsvík; Bryndís, f. 13.4. 1978,
starfsmaður við álverið i Straums-
vík; Hafrún, f. 7.4. 1981, framhalds-
skólanemi.
Systkini Guðmundar eru Guðlaug
Jónsdóttir, f. 3.11. 1937, húsmóðir i
Reykjavík; Guðjón Jónsson, f. 22.5.
1942, leigubílstjóri í Mosfellsbæ;
Samúel Vilberg Jónsson, f. 26.2.
1944, pípulagningarmeistari í Hafn-
arfirði; Þorgerður Erla Jónsdóttir, f.
18.11. 1946, húsmóðir í Borgarnesi;
Ragnar Sólmundur Jónsson, f. 26.2.
1950, vatnsveitustjóri í Hafnarfírði;
Anna Sigríður Jónsdótt-
ir, f. 25.9.1951, verkakona
í Hafnarfirði; Jón Elías
Jónsson, f. 10.6. 1955, bú-
settur í Noregi; Ólöf
Brynja Jónsdóttir, f.
16.10. 1961, búsett í Hafn-
ardal við ísaijarðardjúp.
Foreldrar Guðmundar:
Jón Jens Guðmundsson,
f. 27.5.1912, fyrrv. bóndi á
Munaðarnesi, og Pálína
Sigurrós Guðjónsdóttir, f.
13.11. 1919, húsfreyja.
Ætt
Jón Jens er sonur Guðmundar
Gísla, b. á Munaðamesi, Jónssonar,
b. á Munaðarnesi, Gíslasonar, frá
Bæ á Selströnd, Gíslasonar. Móðir
Jóns var Ragnheiður Óladóttir.
Móðir Guðmundar Gísla var Elísa-
bet Guðmundsdóttir, b. smiðs og
hreppstjóra á Munaðarnesi, Benón-
íssonar, b. á Bæ og í Norðurfirði
,Guðmundssonar. Móðir Guðmund-
ar var Þuríður Guðmundsdóttir, pr.
í Árnesi, Bjarnasonar, í Fjósakoti í
Flatey, Brandssonar. Móðir Elísa-
betar var Guðrún Jónsdóttir, í
Reykjanesi, EinarssoncU-.
Móðir Jóns Jens var Guðlaug
Jónsdóttir, b. í Reykjanesi, Sigurðs-
sonar, b. í Reykjanesi, Jónssonar, b.
í Reykjanesi, Einarssonar. Móðir
Sigurðar var Helga Þorsteinsdóttir.
Móðir Jóns var Guðrún Svein-
björnsdóttir, b. í Hrófbergi, Magnús-
sonar, b. í Hafnarhólmi, Svein-
björnssonar. Móðir Sveinbjörn var
Þuríður Andrésdóttir. Móðir Guð-
rúnar Sveinbjörnssonar var Guð-
rún Guðmundsdóttir, frá Kaldrana-
nesi, Jónssonar.
Bróðir Pálinu Sigurrósar var
Guðmundur, trésmiður á ísafirði,
faðir Björgvins verkfræðings og Sig-
mundar Tryggva lögfræðings.
Pálína Sigumós var dóttir Guðjóns,
b. í Skjaldabjarnarvík, Kristjáns-
sonar, húsmanns frá Litlu-Ávík,
Loftssonar, b. á Litlu-Ávík, Bjarna-
sonar, b. í Munaðarnesi, Bjarnason-
ar. Móðir Lofts var Jóhanna Guð-
mundsdóttir. Móðir Kristjáns var
Þómnn Einarsdóttir frá Bæ, bróður
Þuríðar á Bæ. Móðir Guðjóns var
Ólína Sigurðardóttir frá Eyri.
Móðir Pálínu Sigurrósar var
Anna Jónasdóttir, b. á Þóroddsstöð-
um í Hrútafirði, Eiríkssonar.
Guðmundur Gísli
Jónsson.
Hilmir Sigurðsson
Hilmir Sigurðsson framkvæmda-
stjóri, Ásholti 1, Hauganesi, Dalvík-
urbyggð, er flmmtugur í dag.
Starfsferill
Hilmir fæddist á Hauganesi og
„ ólst þar upp. Hann lauk gmnnskóla-
námi í Árskógi, stundaði síðar nám
við Vélskóla íslands og lauk þaðan
4. stigs-prófi 1973.
Hilmir var á sjó á sinum yngri ár-
um á ýmsum bátum og skipum.
Hann hefur verið framkvæmda-
stjóri, prókúmhafi, verkstjóri, auk
þess að vera eigandi, ásamt öðrum,
að fiskverkun Trausta ehf. á Hauga-
nesi.
Hilmir hefur sungið með
kirkjukór Stærri-Árskógskirkju frá
1974 og með Karlakór Dalvíkur frá
1995.
Fjölskylda
Hilmir kvæntist 31.12. 1978
Kristrúnu Júlíönu Sigurðardóttur,
f. 30.9. 1950, kennara. Hún er dóttir
Sigurðar Hjartarsonar, f. 12.4. 1926,
múrara í Reykjavík, og k.h., Freyju
Þorsteinsdóttur, f. 9.8.1916, húsmóð-
ur.
Börn Hilmis og Kristrúnar
Júlíönu eru Guðrún Hilmisdóttir, f.
9.1. 1976, myndlistamemi; Freyja
Hilmisdóttir, f. 5.7. 1977, nemi;
Trausti Sigurður Hilmis-
son, f. 4.1. 1986, nemi.
Systkini Hilmis eru
Anna Guðrún Sigurðar-
dóttir, f. 15.2.1947, starfar
við heimilisþjónustu Ak-
ureyrar; Stefanía Lára
Sigurðardóttir, f. 26.6.
1952, bankastarfsmaður á
Akureyri; Jón Gunnlaug-
ur Sigurðsson, f. 7.12.
1956, útgerðarmaður og
vélstjóri á Hauganesi;
Steindór Haukur Sigurðs-
son, f. 15.12. 1960, skrifstofumaður
og kokkur á Akureyri; Trausti Þór
Sigurðsson, f. 6.3. 1964, skipstjóri á
Hauganesi; Ólafur Helgi
Sigurðsson, f. 22.9. 1966,
sjómaður á Akureyri;
Hilmir Sigurðsson, f.
12.11. 1945, d. 8.4. 1946.
Foreldrar Hilmis: Sig-
urður Traustason. f. 4.7.
1905, d. 17.12. 1988, út-
gerðarmaður á Hauga-
nesi, og Nanna Jónína
Steindórsdóttir, f. 1.3.
1923, húsmóðir, nú bú-
sett á Dalbæ á Dalvík.
Hilmir og Kristrún era í
útlöndum um þessar mundir.
Hilmir Siqurðsson.
Kristbjörg Jónsdóttir
Kristbjörg Jónsdóttir, húsfreyja
að Ystafelli III í Köldukinn í Suður-
Þingeyjarsýslu, varð áttræð í gær.
Starfsferill
Kristbjörg fæddist að Ystafelli.
Hún lauk prófum frá Héraðsskólan-
um að Reykjum i Hrútafirði 1937 og
frá Húsmæðraskólanum á Laugum i
Reykjadal 1938.
Kristbjörg starfaði á saumastof-
um í Reykjavík um skeið. Hún
byggði, ásamt manni sínum, nýbýl-
ið Ystafell III og viðgerðarverkstæði
árið 1949.
Kristbjörg rak nokkurn búskap í
Ystafelli III, auk þess sem hún hafði
mikla rausn á stóm og gestkvæmu
heimili.
Fjölskylda
Kristbjörg giftist 11.8. 1945 Ingólfi
Kristjánssyni, f. 27.9. 1921, bifvéla-
virkja.
Börn Kristbjargar og Ingólfs eru
Ragnhildur Helga Ingólfsdóttir, f.
29.1.1946, húsfreyja að Eyvík á Tjör-
nesi, en maður hennar er Hreinn
Valtýsson, bóndi og sjómaður;
Kristbjörg Ingólfsdóttir, f. 20.1. 1948,
húsmóðir á Akureyri, en maður
hennar er Ólafur Dan Snorrasoon
rafeindavirki; Gunnhildur Ingólfs-
dóttir, f. 28.11. 1950, húsfreyja að Jó-
dísarstöðum, en maður hennar er
Árni Njálsson bóndi; Helga Ingólfs-
dóttir, f. 10.5.1953, símavörður á Ak-
ureyri en maður hennar er Valde-
mar Valdemarsson bifreiðastjóri;
Ólafur Ingólfsson, f. 18.7.1954, bóndi
í Hlíð í Köldukinn, en kona hans er
Elín Björg Sigurbjörnsdóttir; Ari
Ingólfsson. f. 16.3. 1959, bifvélavirki
í Svíþjóð, en kona hans er Berit
Hilda; Sverrir Ingólfsson, f. 27.8.
1965, bifvélavirki á Akureyri,
en kona hans var Guðrún Petra
Gunnarsdóttir.
Systkini Kristbjargar: Hólmfríður
Jónsdóttir, f. 4.2. 1921, fyrrv. bóka-
vörður á Akureyri; Sigurður Jóns-
son, f. 23.7. 1924, fyrrv. bóndi og
kennari í Ystafelli; Friðgeir Jóns-
son, f. 28.1. 1927, d. 29.1. 1996, skóg-
arbóndi í Ystafelli; Jónas Jónsson, f.
9.3. 1930, fyrrv. búnaðarmálastjóri,
búsettur í Kópavogi; Hildur Jóns-
dóttir. f. 2.6.1932, húsfreyja að Geit-
eyjarströnd í Mývatnssveit.
Foreldrar Kristbjargar voru Jón
Sigurðsson, f. 4.6. 1889, d. 10.2. 1969,
bóndi og rithöfundur í Ystafelli, og
Sigríður Helga Friðgeirsdóttir, f.
9.3. 1892, d. 5.1. 1972, húsfreyja.
Ætt
Jón var sonur Sigurðar, ráðherra
í Ystafelli, bróður Áma, afa Þórs
Vilhjálmssonar dómara. Annar
bróðir Sigurðar var Hjálmar, afi
Hjálmars Ragnarssonar tónskálds.
Sigurður var sonur Jóns, b. á Litlu-
strönd við Mývatn, Árnasonar, b. á
Sveinsströnd, Arasonar, bróður
Kristjönu, móður Jóns Sigurðsson-
ar, alþingisforseta á Gautlöndum.
Móðir Sigurðar, ráðherra í Ystafelli,
var Þuríður Helgadóttir, ættföður
Skútustaðaættar, Ásmundssonar.
Móðir Jóns í Ystafelli var Krist-
björg Marteinsdóttir, b. á Hofsstöð-
um i Mývatnssveit, Halldórssonar,
b. á Bjarnarstöðum í Bárðardal,
Þorgrímssonar. Móðir Halldórs var
Vigdís Hallgrímsdóttir, ættfóður
Hraunkotsættar, Helgasonar.
Móðir Kristbjargar var Kristín
Jónsdóttir, þjóðfundarmanns á
Lundarbrekku í Bárðardal, Jóns-
sonar, ættföður Reykjahlíðarættar,
Þorsteinssonar. Móðir Kristínar var
Kristbjörg Kristjánsdóttir, ættfoður
Illugastaðaættar, Jónssonar, föður
Sigurðar, langafa Bjarna Benedikts-
sonar forsætisráðherra, föður
Björns menntamálaráðherra.
Sigfríður Helga var dóttir Frið-
geirs, b. á Þóroddsstöðum í Köldu-
kinn, Kristjánssonar og Bóthildar
Grímsdóttur, b. á Krossi í Ljósa-
vatnshreppi, Einarssonar. Móðir
Gríms var Rannveig Jónsdóttir,
móðir Jónasar Jónssonar frá Hriflu
og Kristjáns, fóður Jónasar, for-
stöðumanns Árnasafns.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, .
tengdamóðir, amma og langamma,
Anna Daníelsdóttir
verður jarðsungin fimmtudaginn
10.06.1999, kl. 14.00, frá Akraneskirkju.
Gunnar Júlíusson
Sigrún Gunnarsdóttir
Ragnheiður
Viðar Gunnarsson
Daníel Gunnarsson
ívar Gunnarsson
Dröfn Gunnarsdóttir
Björgvin Eyþórsson
Gunnarsdóttir
Hafdís Sigurþórsdóttir
Hrefna Valsdóttir
Bjarney Pálsdóttir
Barnabörn og barnabarnabörn
DV
Til hamingju með afmælið 9. jum
85 ára
Aðalheiður Franklínsdóttir, Skagabraut 5B, Akranesi. Margrét Sæmundsdóttir, Miðhúsum, Garði.
80 ára
Gunnar P. Jóhannsson, Hæðargarði 35, Reykjavík.
75 ára
Anna Gísladóttir, Dalbraut 18, Reykjavík. Álfhildur Gimnarsdóttir, Núpskötlu 1, Öxarfj arðarhreppi. Guðbjörg Ásmundsdóttir, Borgarbraut 65A, Borgamesi. Jóna Örnólfsdóttir, Hlif I, Torfnesi, ísafirði.
70 ára
Aðalsteinn Bjamfreðsson, Ljósheimum 18A, Reykjavík. Aðalsteinn Einarsson, Miðtúni 1, Seyðisfirði. Einar Þórarinsson, Ártúni 2, Siglufirði. Friðrik Hjaltason, Dísarási 6, Reykjavík. Haraldur Sigfússon, Hvammi I, Svalbaröshreppi. Jón Valmundsson, Austurvegi 4, Vík. Ólafur Pétursson, Galtartungu, Dalabyggð.
60 ára
Hildur Sigurðardóttir, Seljabraut 42, Reykjavík. Lilja H. Sævars, Hæðarbyggð 12, Garðabæ. Oddur Sæmundsson, Stuðlaseli 12, Reykjavík. Sigríður Nikulásdóttir, Drekavogi 13, Reykjavík. Þóra Ottósdóttir, Aðalgötu 34, Ólafsfirði.
50 ára
Anna Ólafsdóttir, Hólabergi 54, Reykjavík. Benedikta Þórðardóttir, Njarðvíkurbraut 31, Njarðvík. Guðbjörn B. Bjarnason, Heiðarbraut 3C, Keflavík. Hilmir Sigurðsson, Ásholti 1, Dalvik. Hjördís Haraldsdóttir, Baldursheimi, Arnarneshreppi. Jón Kristfinnsson, Hesthömrum 2, Reykjavik. Jón Rúnar Kristjónsson, Kambaseli 3, Reykjavík. Júlíus Jónsson, Kveldúlfsgötu 8, Borgarnesi. Svava Kristjánsdóttir, Túngötu 4, Hvanneyri. Þór Sigurðsson, Helgamagrastræti 43, Akureyri.
40 ára
Sólbjört Hilmarsdóttir, Hjallagötu 10, Sandgerði. Hún verður heima laugar- dagskvöldið 12.6. nk. Hjördis Svavarsdóttir, Flúðabakka 6, Blönduósi. Jón Sigurðsson, Kópubraut 15, Njarðvík. Kristján Þorvaldsson, Seljahlíð 13D, Akureyri. Lilja Hreinsdóttir, Efstalundi 1, Garðabæ. Stefán Jóhannsson, Hólavegi 37, Siglufirði.