Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1999, Qupperneq 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1999
Fréttir
DV
Ekki allt sem sýnist í þingmannalaunum:
„Kóngarnir" fá allt
að hálfa milljón
- formenn fastanefnda meö fimmtán prósenta bónus
Laun nokkurra alþingismanna
367.495
469.000
522.521
493.021
KrisUnn H.
Gunnarsson Jón Krístjánsson
W
656.495
i Oddsson
Misjöfn eru kjör þeirra sem sæti eiga á Alþingi. Formennska í nefndum er það sem gefur mest
í aðra hönd að undanskildum ráðherradómi.
I síðustu viku var kosið í fastanefnd-
ir Alþingis, tólf talsins. Eins og komið
hefur fram var stjómarandstaðan ósátt
við að fá hvergi formannsstól en hún
átti þrjá formenn á síðasta kjörtíma-
bili. Formennska í nefhdum gefur
nefhilega, fyrir utan áhrif og völd,
drjúga viðbót, eða 15 prósent, ofan á
þingfararkaupið. Formenn þingflokka
fá sama álag. Þingfararkaupið er, eftir
hækkunina í vor, 295 þúsund krónur
þannig að í krónum talið eru laun for-
manna nefndanna og þingflokkanna
tæplega 39 þúsund krónur á mánuði.
Að auki fá varaformenn tveggja
nefnda, utanríkis- og fjárlaganefndar,
10 prósent af þingfararkaupi fyrir störf
sín eða tæplega 30 þúsund krónur á
mánuði.
Fimm menn sitja í forsætisneftid Al-
þingis, Halldór Blöndal, forseti Alþing-
is, og fjórir varaforsetar. Varaforset-
amir fjórir fá hver um sig 39 þúsund
krónur á mánuði fyrir nefndarsetuna
en forsetinn sjáffur er á ráðherralaun-
um.
Laun þingmanna em þó sem betur
fer langt frá því að vera þingfararkaup-
ið bert. Allir þingmenn fá um 43 þús-
und krónur á mánuði fyrir starfskostn-
aði og fasta fjárhæð fyrir ferðakostn-
aði, um 26 þúsund fyrir þingmenn
Reykjavíkur en 34 þúsund fyrir þing-
menn utan Reykjavíkur.
Alþingismenn utan Reykjavíkur og
Reykjaness fá síðan rúmlega 59 þúsund
krónur mánaðarlega í húsnæðis- og
dvalarkostnað og geta óskað eftir 40 pró-
sent álagi á þá upphæð ef þeir halda
annað heimili í Reykjavik. Má ætla að
fæstir sem heyri undir þá deild láti und-
ir höfuð leggjast að bera sig eftir því.
Þingmenn sem eiga heimili utan höfuð-
borgarsvæðisins og keyra daglega á
milli fá þriðjung þessa húsnæðisstyrks,
eöa um 20 þúsund krónur.
Þingmennska með öliu
Þannig fara laun „óbreyttra" al-
þingismanna, það er annarra en ráð-
herra og forseta, aldrei undir 367 þús-
und krónur og geta hæst orðið um 454
þúsund með öllum styrkjum og kostn-
aðargreiðslum.
Til samanburðar
eru fóst mánaðar-
laun Davíðs Odds-
sonar forsætisráð-
herra 584 þúsund
krónur og með fyrr-
nefndum styrkjum
og kostnaðargreiðsl-
um rúmlega 656
þúsund krónur.
Sé litið á lista yfir formenn fasta-
nefhdanna tólf virðist sem svo að tveir
þingmenn sérstaklega hafi komið ár
sinni vel fyrir borð, framsóknarmaður-
inn Jón Kristjánsson og sjáffstæðis-
maðurinn Sigríður Anna Þórðardóttir.
Jón Kristjánsson er formaður fjár-
laganefndar og fær sem slíkur um 39
þúsund krónur á mánuði og að auki
tæplega 30 þúsund krónur fyrir vara-
formennsku í utanríkisneftid. Samtals
tæplega 70 þúsund krónur eða rúmlega
23 prósent af þingfararkaupinu. Alls
munu laun Jóns nema
rúmlega 520 þúsund
krónum á mánuði sé
allt talið saman.
Sigríður Anna,
þingmaður Reykja-
nesskjördæmis, er for-
maður þingflokks
Sjáffstæðísflokksins
og einnig formaður
menntamálanefndar sem gefur henni
samtals tæplega 78 þúsund krónur á
mánuði ofan á 391 þúsund krónumar
sem hún fær fyrir þingmennskuna.
Annar þingmaður Framsóknar,
Kristinn H. Gunnarsson, er einnig í
finum málum. Hann er formaður þing-
flokksins og fær 39 þúsund krónur þar
ofan á 454 þúsund krónur fyrir þing-
mennsku, með öllu.
Athygli vekm-
einnig að Kristinn
gegnir varafor-
mennsku í hvorki
fleiri né færri en
þremur nefndum og
skyldi enginn efast
um að hann sé að
vinna fyrir kaupinu
sínu.
Kristinn skipti, sem
kunnugt er, úr Al-
þýðubandalagi yfir í
Framsóknarflokkinn á
liðnu kjörtímabili.
Álag á Framsókn
Reyndar er talsvert
álag á þingmönnum
Framsóknar. Sex af
tólf eru ráðherrar og
hinir sex þurfa að axla
nefndarstörf i 12
nefndum, þar af for-
mennsku í fjórum og
varaformennsku í átta.
Hið ánægjulega við
þetta fámenni er að allir þingmenn
Framsóknar sem ekki eru ráðherrar fá
sín 15 prósentin hver ofan á fastakaup-
ið. Kristinn fyrir formennsku í þing-
flokknum, Valgerður Sverrisdóttir,
Ólafur Öm Haraldsson, Jón Kristjáns-
son og Hjálmar Ámason fyrir nefhdar-
formennsku en ísólfur Gylfi Pálmason
fyrir setu í forsætisnefnd.
Og fyrst minnst var á álag þá er lík-
lega eins gott að Fijálslyndi flokkurinn
er ekki í ríkisstjóm, þar sem það gæti
reynst þrautin þyngri, fyrir tveggja
manna þingflokk Sverris Hermanns-
sonar formanns og Guðjóns Amars
Kristjánssonar varaformanns, að fylla
sex ráðherraembætti, að ekki sé talað
um öll nefndarsætin. Að vísu er lýðum
ljóst að Sverrir er maður ekki einham-
ur og því síður Guðjón en svona lagað
væri nú eiginlega að bera í bakkafull-
an lækinn.
Fréttaljós
Finnur Vílhjálmsson
Utan frá eða utangátta
Samfylkingin hefur fram að
þessu verið að kljást við timbur-
mennina eftir hrakfarirnar í al-
þingiskosningunum í síðasta mán-
uði. En þeir eru óðum að ranka
við sér og átta sig á því að þeir
hafa engan flokk og engan for-
mann. Nú vilja menn drífa í því að
stofha flokkinn og er eiginlega allt
til reiðu.
Það eina sem vefst fyrir þeim
samfylkingarmönnum varðandi
stofhun formlegs flokks er auðvit-
að sú staða að flokkurinn hefur
engan formann og það sem verra
er, sér engan líklegan eða vænleg-
an sem getur orðið formaður. Að
minnsta kosti ekki í flokknum
sjálfum.
Þess vegna er nú farið að tala
um að ná í formanninn utan frá!
Ekki er gott að átta sig á því hvað
við er átt þegar sagt er að einhver
eigi að koma utan frá. Það gæti verið um að ræða
geimveru eða útlending. Ef það er hugmyndin er
Starvo til dæmis upplagt formannsefni sökum
gjörvileika síns og hetjudáða, en ef þeir hafa
augastað á útlendingi má benda á að nú eru
margir Kosovo-Albanar á lausu og eins hefur
Jeltsín rekið úr ríkisstjómum sínum legíó af
reyndum stjómmálamönnum sem eflaust mundu
þiggja það að verða formenn í Samfylkingunni.
Almennt má ætla að kjósendur séu upp til
hópa sammála þeim samfylkingarmönnum að í
þeirra hópi sé engan frambærilegan kandídat að
finna til formennsku.
Og ef meiningin er ekki sú að sækja formann-
inn til Kosovo eða út í geiminn er ekki um ann-
að að ræða en snúa sér til fólks í öðram flokkum
hér á landi og auðvitað gæti Samfylkingin slegið
tvær flugur í einu höggi með því að gera Stein-
grím J. Sigfússon að formanni
hjá sér og sameina þannig
Vinstrigræna og Samfylkinguna
í eina sæng.
Svo er einnig hægt að snúa sér
til Kristins Gunnarssonar, sem
er vanur maður í því að skipta
um flokka og komast til metorða
- og því ekki að reyna við ein-
hverja sjálfstæðismenn sem eru
orðnir langeygir eftir ráðherra-
stólum? Árni Johnsen væri til að
mynda heppilegur for-
mannskandídat.
Besti kosturinn er þó sá að
gera Davíð Oddssyni tilboð um
að hann gerist formaður í Sam-
fylkingunni. Davíð ræður hvort
sem er öllu og fólk mun kjósa
Davíð hvort heldur hann er i
framboði fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn eða Samfylkingu. Býttar
engu þótt menn skipti um flokka
og Davíð þyrfti í rauninni alls ekki að skipta um
flokk. Hann gæti verið formaður í báðum fylking-
um, sem er langákjósanlegasta fyrirkomulagið
með vísan til þess að Samfylkingin á sér engrar
viðreisnar von meðan hún þarf að kljást við Dav-
íð.
Hver svo sem verður formaður, utan frá eða
inn á við. Alla vega yrði formaðurinn ekki utan-
gátta. Dagfari
sandkorn
Án veiðileyfis
Eitt af kosningatrikkum Samfylk-
ingar var að efna til happdrættis
hvers aðalvinningur var þorskkvóti
upp á eitt tonn til eignar að verðmæti
um 800 þúsund krónur. Grunsemdir
eru uppi um að fáir
hafi látið ánetjast og
að syngjandi tap sé á
fyrirtækinu og ekki
sé til fyrir kvótanum.
Alla vega hafa Mar-
grét Frímannsdótt-
ir og félagar enn
ekki dregið út vinn-
ingshafann. Nú
heyrist að Fiskistofa muni
hugsanlega blanda sér í máhð og í
framhaldinu svipta Samfylkinguna
kvótalausu veiðileyfi í samræmi við
reglur. Innan úr Valhöll heyrðist ill-
kvittin athugasemd um að Fylkingin
sé betur komin án veiðileyfis því hún
fiski hvort eð er ekkert þótt róið sé...
Sighvatur seldi
Svo sem greint var frá í Sand-
komi er Sighvatur Bjamason,
sem stýrði Vinnslustöðinni milli
skeija um árabil, fluttur upp á fasta-
landið. Hermt var að hann hefði
keypt hús Hriflu-Jónasar við Há-
vallagötu fyrir 30
milljónir. Rétt er að
hann keypti hús
samvinnuleiðtog-
ans en kaupverðið
var aðeins 20 milfj-
ónir króna árið
1998. Síðan seldi
hann húsið aftur
en ekki ljóst
hvert hann fór.
Sighvatur mun að sögn ekki hafa
átt inni atvinnutilboð frá ÍS eftir
brotthvarfið frá Vinnslustöðinni.
Hann mun vera að hugsa sinn gang
hvað varðar atvinnu og í haust ský-
rist hvað verður ofan á ...
Pólitísk ábyrgð
Á slóðinni sameining.is á Netinu
má lesa mergjaða kvikmyndagagn-
rýni sem skrifúð er af Guðmundi
Ólafssyni sem titlaður er „hagíræð-
ingur og fjölfræðingur". Umrædd
slóð virðist vera útrás fyrir síðustu
andvörp Þjóðvaka enda tenging á
hana af heimasíðu Jóhönnu Sig-
urðardóttur. Hið merkilega er að
téður Guðmundur er
hinn sami og varð
frægur í kosningabar-
áttunni fyrir þau um-
mæh að allt vitlaus-
asta fólkið í efna-
, hagsmálum landsins
væri saman komið í
Fylkingunni. Gamli
Þjóðlífsritstjórinn
Óskar Guðmunds-
son var kosningastjóri Fylkingar-
innar en hann er lika umsjónar-
maður Sameiningar.is, þar sem
Guðmundur hefur birt afurðir sin-
ar. Óneitanlega er skondið að kosn-
ingastjóri Fylkingarinnar í Reykja-
vík skuli því bera pólitíska ábyrgð á
manninum sem -slökkti í kosninga-
baráttu hennar...
Leiðtoga að utan
Forystukreppa hijáir Samfylk-
inguna sem aldrei
fyrr. Leit að leiðtoga
stendur sem hæst en
ekki er neinn í sjón-
máli enn sem kom-
ið er. Bæði Sig-
hvatur Björg-
vinsson, formað-
ur hins foma Al-
þýðuflokks, og______
Margrét Frímanns-
dóttir, foringi tvístraða allaballa,
hafi lýst því að toppsæti Samfylk-
ingar heilli þau ekki. Margrét tals-
maður hefur nú undirstrikað enn
ffekar sina afstöðu og lýst því yfir
að foringinn eigi að koma utan frá.
Til eru þeir sem vilja þetta sama og
að foringinn komi að utan. í þeirri
afstöðu felst að hinn yfirvegaði Jón
Baldvin Hannibalssson snúiheim
frá Washington og hjálpi lamaðri
fylkingu að taka flugið ...
Umsjón Reynir Traustason
Netfang: sandkorn @,ff. is