Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1999, Page 12
80 Ferðir innanlands
s
A ferb um Fljótsdalshérað og Borgarfjörö:
MIÐVIKUDAGUR 23. JUNI 1999
Lagarfljótsormurinn kominn í gagnið
- mikiö um skemmtilegar gönguleiöir
Lagarfljótsormurinn var til sýnis á 17. júní og leist fólki prýðisvel á farkostinn.
viö Jökulsá í Lóni. Þaðan er stutt
ganga yfir Illakamb en þangað er
bílfært um Kjarrdalsheiði úr Lóni.
Önnur skemmtileg gönguleið og
öllu styttri og viðráðanlegri er í
Stórurð neðan við Dyrfjöll, Hér-
aðsmegin. Farið er af veginum um
Vatnsskarð og er leiðin stikuð og
merkt. Þessi gönguferð tekur um
tvær klukkustundir hvora leið. í
Stórurð er skemmtilegt samspil
gróðurs og stórbjarga sem fallið
hafa úr Dyrfjöllum. Þá eru af Hér-
aði margar gönguleiðir til fjarða.
Má þar nefna leiðina um Þórdals-
heiði úr Skriðdal til Reyðarfjarðar
sem nú er orðin bílfær. Úr Eyvind-
arárdal um Eskifjaröarheiði til
Eskifjarðar og um Svínadal til
Reyðarfjarðar. Einnig eru göngu-
leiðir úr Eiðaþinghá til Loðmund-
arfjarðar og Seyðisfjarðar. Frá
Borgarfirði eru merktar göngu-
leiðir um Víkur og til Loðmundar-
fjarðar. Að öðru leyti skulu ferða-
menn leita til ágætrar upplýsinga-
miðstöðvar ferðamála á Egilsstöð-
um. -SB
Olafsfjöröur:
sveifla í
ferðaþjónustu
- mikil fjölgun gistirýma og ný sportbdtahöfn
Nýjasta sprengjan i ferðamálum
á Héraði er Lagarfljótsormurinn,
ferjan sem í sumar hefur siglingar
um Lagarfljót milli Egilsstaða og
Atlavíkur. Skipið tekur um 130
manns í sæti og leiðsögn og veit-
ingar verða um borð. Tvær ferðir
verða á dag og tekur siglingin
fram og til baka um þrjár klukku-
stundir en leiðin er um 30 km.
Auk þess verður kvöldsigling og
getur það orðið rómantískt eftir að
rökkvað er orðið. Enginn ferða-
maður sem leggur leiö sína um
Hérað má láta undir höfuð leggjast
að fara í siglingu um Lagarfljót.
Aö Snæfelli
Ferðin inn í Snæfell tekur einn
dag. Farið er inn Jökuldal og
Hrafnkelsdal, en þar er aftur kom-
ið á slóðir Hrafnkels sögu. Á leið-
inni um Jökuldal er komið í
Klaustursel, en þar eru tamin
hreindýr og fleiri dýr til sýnis. Oft
er einnig hægt að sjá villt hrein-
dýr á þessari leið. Ekki er langt
inn að jökli frá Snæfelli. Á heim-
leiðinni er komið við í heita lækn-
um við Laugarfell og farið í nátt-
úrlega sturtu. Kannski eru síðustu
forvöð að líta augum gróðurlendið
sunnan við Snæfell, Eyjabakkana,
sem fara undir vatn ef eða þegar
Fljótsdalsvirkjun verður byggð.
Byggð dlfa og undra-
steina
Frá Egilsstöðum liggur leið
norður um Eiðaþinghá og Út-
mannasveit. Farið er fram hjá
kofa Kjarvals við Selfljót. Leiðin
liggur yfir Vatnsskarð til Borgar-
fjarðar og af skarðinu er viðsýnt
yfir Úthérað, ósa Lagarfljóts og
Jökulsár á Dal sem falla til sjávar
í faðmlögum og í góðu skyggni sést
norður á Langanes. Af Vatns-
skarði er fyrst komið niður í
Njarðvík og þaðan liggur leið um
hinar hrikalegu Njarðvíkurskrið-
Hátíðahöld á 17. júní á Egllsstöðum fóru fram í Lómatjarnargarðlnum og voru vel sótt.
ur. Þar er kross við veginn og
skulu allir er þann veg fara hafa
yfir eitthvað gott við krossinn. 1
skriðunum bjó forynja sem Naddi
hét og ásótti ferðamenn. Krossinn
var reistur á 14. öld en fór í snjó-
flóði og var endurreistur.
Fjallahringur er fagur í Borgar-
firði þar sem Dyrfjöll eru þekkt-
ust. Þar er álfabyggð meiri en víð-
ast annars staðar á landinu. Við
Hafnarhólma er hægt að skoða
fuglavarp. Á Borgarfirði er
steiniðjan Álfasteinn sem löngu er
landsþekkt.
Skógur forn og nýr
Fljótsdalshérað er þekkt fyrir
gróðursæld. Þar eru viða skógar
og kjarr þó Hallormsstaðarskógur
beri þar langt af. En nú er að vaxa
upp nýr skógur sem á að verða
efni í hús framtíðarinnar. Frá Eg-
ilsstöðum og upp í Hallormsstað er
að verða samfelldur lerkiskógur.
Á vegum Héraðsskóga gróðursetja
bændur á Héraði yfir milljón
plöntur árlega, mest lerki en
einnig greni, furu og birki. Eftir
tuttugu ár verður allt Mið- og Upp-
Hérað einn samfelldur skógur.
Með staf og mal
Margar skemmtilegar göngu-
leiðir er um að velja. Sú lengsta og
þekktasta er um Lónsöræfi niður í
Lón og er þriggja daga ferð. Gang-
an hefst við Snæfell og gist er í
skála við Geldingafell. Annan dag
er gengið að Kollumúla og gist í
skálanum við Kollumúlavatn. Á
þriðja degi er komið að Múlaskála
Ferðir um Hérað
Nokkrar fastar áætlunarferðir
eru um Hérað og nágrenni. Fyrst
skal nefna leiðina „kringum Fljót-
ið“. Þá er fariö um Hallormsstað-
arskóg en þar þyrfti minnst einn
dag til að njóta og skoða. í skógin-
um er trjásafn sem hægt er að
skoða undir leiðsögn
Sigurðar Blöndals. Fyrir
innan Hallormsstað er
farið fram hjá Hrafn-
kelsstöðum, bæ Hrafn-
kels Freysgoða. Þá er
komið við á Valþjófsstað
og skoðuð eftirlíking af
kirkjuhurðinni fomu,
sem er fagurlega útskor-
in. Skammt fyrir utan
(norðan) Valþjófsstað er
Skriðuklaustur. Þar er
hið glæsilega hús sem
Gunnar Gunnarsson
byggði er hann flutti
heim frá Danmörku, en
hann bjó á Klaustri í
nokkur ár. Nokkru utar
í dalnum fellur Hengi-
fossá niður af Fljótsdals-
heiði. Ofarlega í hlíðinni
fellur hún fram af stand-
bergi og myndar 118
metra háan foss. Upp að
fossinum er um klukkutíma gang-
ur. Ekið er til Egilsstaða vestan
Lagarfljóts um Fellin. Á leiðinni
er ekið fram hjá minnisvarða um
Magnús Jóhann Bjarnason, þann
er skrifaði margar bækur og varð
þekktur bæði hér á landi og í
Kanada, en þangað flutti hann átta
ára gamall og var þar kennari og
bóndi.
RIVER RAFTING
8^“ FLJÓTAREIÐ
Nánari upplýsingar:
Tindfjfíll ehf.: Simi 4875557
Truusti Traustuson:GSM 8629637
Vefslóö: www.tindfjoll.is
Netfung:tindfjfíll(a)fmdfjoll. is
Mikil uppsveifla er nú fram und-
an í ferðaþjónustu á Ólafsfirði því
gistirýmum verður fjölgaö til muna
í sumar. „Við höfum í vet-
ur verið að byggja át+
bjálkahús að finn:
fyrirmynd sem verí
á bökkum Ólafs-
5arðarvatns,“ seg-
ir Ásgeir Ás-
geirsson, einn
af aðstand-
endum fram-
kvæmdarinnar.
„Eru fjögur hús-
anna hugsuð
sem stækkim á
gistirými Hót-
els Ólafsfjarðar og
verða tvö herbergi í hverju með
sameiginlegri salernisaöstöðu og
sturtu. Önnur tvö eru hugsuð fyrir
fjölskyldur því svefnloft er í þeim og
eldunaraðstaða þannig að fólk getur
verið alveg út af fyrir sig. Síðustu
tvö húsin eru 47 fermetrar auk ver-
andar og eru þau ætluð fjölskyldum
eða hópum. Það er stefnan að koma
a.m.k. sex húsum upp fyrir 20.
júni,“ segir Ásgeir.
Bdtaþjónusta
Að sögn Ásgeirs var í fyrra graf-
in sportbátahöfn inn úr Ólafsfjarö-
arvatni til að auka á fjölbreytnina í
afþreyingu á staðnum. Boðið er upp
á smábáta til leigu á vatninu og
hægt er að renna fyrir silung úr
þeim því nokkuð er um fisk
í vatninu. Bátamir em
fyrir 4-5 manns en
einnig er hægt að
leigja kajaka. „Hér
er einnig ýmislegt
annað í boði fyrir
ferðamenn. Góð
íþróttaaðstaða er á
staðnum, sundlaug
með heitum pottum
og gufubað og 9 holu golfvöllur sem
er mjög vinsæll. Fólki gefst kostur á
að fara í sjóstangaveiði því hér er 10
tonna dekkbátur og eins þykir alltaf
jafngaman að dorga hér á bryggju-
endanum. Ekki má svo gleyma því
að náttúrugripasafn er á efstu hæð
Sparisjóðsins en þar er meðal ann-
ars að finna gott fuglasafn og glæsi-
legan ísbjöm." -hdm