Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1999, Blaðsíða 7
24
MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ 1999
MÁNUDAGUR 28. JtÍNÍ 1999
25
Sport
menn tóku veðrinu með jákvæðu hugarfari og úr varð góð fjölskylduskemmtun
Aron Gunnarsson hjá Þór var
skorfastastur hjá yngri strákunum og
Kolbeinn Sigþórsson, Víkingi, hjá
þeim eldri.
DV, Eyjum
Eruð þið héma til að læra?
var sagt í hálfkæringi við
nokkra liðsmenn íslands- og
bikarmeistara ÍBV sem fylgdust
með úrslitaleikjunum í Shell-
mótinu í Eyjum í gær þar sem
áttust við strákar úr 6. flokki.
Hlynur Stefánsson, fyrirliði
ÍBV, greip spurninguna á lofti
og sagði: „Já. Það er eitt sem
við getum lært af þessum strák-
um, það er leikgleðin sem við
sjáum í hverjum einasta leik.“
Þar lýsti Hlynur í einni setn-
ingu því sem er aðall Shell-
mótsins í Eyjum. Það er sama
hverning vindar blása og þó
rigni eins og hellt sé úr fótu,
strákarnir leika sinn fótbolta
eins og ekkert sé og það með
hjartanu.
Sextánda mótið
Þetta er í 16. sinn sem Shell-
mótið er haldið og að þessu
sinni var voru þátttakendur um
1000, fararstjórar um 200 og
áætla mótshaldarar að um 800
foreldrar og aðrir aðstandendur
fylgi liðunum þannig að um
2000 manns eru staddir í Eyjum
mótsdagana. Þó knattspyrnan
sé í öndvegi eru farið í leiki,
boðið upp á kvöldvöku, sigl-
ingu, skoðunarferðir, grill-
veislu og ekki má gleyma móts-
setningunni þar sem strákamir
ganga fylktu liði um götu bæj-
arins að Týsvöllinn þar sem
safnast er saman.
Herlegheitunum lýkur svo
með lokahófi þar sem veitt eru
verðlaun fyrir góðan árangur.
Þau falla í hlut hinna útvöldu
en enginn fer án verðlaunapen-
ings frá Eyjum því allir þátttak-
endur fá verðlaunapeninga.
Héldu sínu striki
Mótið hófst á fimmtudaginn í
þokkalegu veðri en á fostudag-
inn var hífandi rok og rigning
sem gerði mótshöldurum og að-
standendum strákanna erfitt
fyrir, en strákamir héldu sínu
striki. „Þetta hefúr allt gengið
vel þó við fengjum þetta leið-
indaveður á föstudaginn," segir
Björn Elíasson, annar fram-
kvæmdastjóri mótstins.
„Menn tóku veðrinu með já-
kvæðu hugarfari í rigningunni
og hvassviðrinu. Það kom ekk-
ert upp á en við urðum að end-
urskipuleggja dagskrána lítils
háttar og það gekk vel. Það er
gaman að sjá að alltaf fjölgar
foreldrum sem fylgja strákun-
um og nú er maður farinn að
sjá afa og ömmur. Það er greini-
legt að mótið er að þróast upp í
að vera frekar fjölskyldu-
skemmtun en hreint knatt-
spymumót. Er það jákvæð þró-
un,“ sagði Björn.
Orkan til staðar
Foreldrar sem DV ræddi við
tóku í sama streng og voru und-
antekningalaust ánægðir með
skipulag mótsins. Sjálflr eru
strákamir ánægðir og ánægð-
astir með að fá þetta tækifæri
til að spila fótbolta. Hvert lið
lék sjö leiki nema liðin sem
komust í úrslit, þau léku átta
leiki. Það segir sig sjálft að
þessi leikjafjöldi kostar mikla
orku en hún er til staðar og
miklu meira en það.
Þessi orka, leikgleði, gott
skipulag og góðar aðstæður í Eyj-
um hafa gert Shellmótið að ein-
um af stærstu íþróttaviðburðum
ársins. Mótið stóð undir þessum
væntingum og hikstaði hvergi. -
Shellmótið í
Vestmannaeyjum
Texti:
Rútur Snorrason
Myndir:
Ómar Garðarsson
Sport
Hár-rauðir HK-ingar settu skemmtilegan svip á mótið um helgina.
Tveir Haukastrákar einbeittir á svip að fylgjast með sínu liði keppa gegn ÍA
í hörkuspennandi leik í undanúrsiitum.
Móðir úr Stjörnunni:
Til fvrirmyndar
Unnur Pétursdóttir var á sínu
fyrsta Shellmót og þegar við náðum
af henni tali var hún að
fylgjast með stráknum
sínum spila með C-liði
Stjörnunnar.
- Nú er þetta þitt
fyrsta skipti á þessu
móti, hvemig líkar þér?
„Mér hefur líkað alveg
mjög vel og það er alveg
frábært hvað allt iöar hér
af lífi og fjöri."
- Er eitthvað sem hefur komið
þér á óvart hér í Eyjum?
„Nei, í rauninni ekki. Ég er bara
mjög ánægð með þetta sem af er og
mér finnst skipulagningin vera al-
veg til fyrirmyndar."
- Hvaða lið telur þú
vera sigurstranglegust
á mótinu?
„Ég tel mig ekki vera al-
veg færa um að meta það,
þar sem ég hef fylgst með
svo fáum leikjum og þá
bara hjá Stjörnunni."
- Verður stefnan tekin
á Shellmótið á næsta
ári?
„Já, það er ekki spuming. Strák-
urinn minn er á yngra ári, þannig
að ég mun mæta hingað á næsta ári
líka,“ sagði Unnur Pétursdóttir.
FH-strákar sem spiluðu frábærlega á mótinu og giöddu augað hjá áhorf-
endum.
ívar Erik Yoeman úr Breiðabliki:
Keiko sýndi sig
Ivar Erik Yeoman er í C-liði
Breiðabliks og var á sínu
fyrsta Shellmóti. ívar er
vinstri kantmaður og
hafði gert átta mörk þeg-
ar DV ræddi við hann, í
öllum regnbogans litum.
Hann vildi ekki gera mik-
ið úr þessum mörkum
sem hann hefur skorað,
heldur segir hann að ár-
angur liðsins skipti mestu
máli.
Hvernig hefur
ykkur gengið?
„Mjög vel, við erum búnir að
spila vel og erum komnir í 8-liða úr-
slit.“
- Hvemig finnst þér þjálfarinn
ykkar?
„Úlfar Hinriksson er að þjálfa
okkur og mér fmnst hann mjög góð-
ur. Hann er mjög ákveðinn og stýr-
ir okkur vel.“
- Hvað er búið að vera
skemmtilegast á mót-
inu?
„Eiginlega allt. Kvöld-
vakan var skemmtileg og
í bátsferðinni sáum við
líka Keikó, sem var mjög
gaman.
Hvað er flottasta mark
sem þú hefur séð?
Það var markið sem Bri-
an Laudrup skoraði gegn
Króatíu í heimsmeistara-
keppninni í fyrra. Alveg frábært
mcirk!
Er eitthvað skemmtilegt sem hef-
ur komið upp á hjá ykkur Blikun-
um á mótinu?
„Já, það eru margir grallarar í
hópnum og ég held að mömmur
okkar verði ekkert allt of ánægðar
ef ég fer að nefna einhver dæmi!“
Úrslitin í Eyjum
A-lið:
1.-2. iBV - Þróttur R........5-1
Guðjón Ólafsson 2, Gauti Þorvarðar-
son, Eiður A. Sigurbjörnsson, Arnór
E. Ólafsson - Páll Fannar Helgason
3.-4. FH - tA ................4-2
5.-8. Fram - Víkingur ........0-3
5.-8. Breiðablik - Fylkir.....3-2
9.-24. Grindavík - Afturelding . . 0-3
Selfoss - ÍA .................1-1
Þór - Fjölnir ................4-2
Keflavík - Valur .............3-3
Haukur - KA...................3-3
KR - Njarðvík.................3-1
Leiknir R. - HK...............4-1
Stjarnan - Grótta ............3-2
Markahæstir: Bjöm Jónsson ÍA og
Kolbeinn Sigþorsson, Vikingi 15.
B-lið:
1.-2. Breiðablik - Víkingur . . 3-2
Jóhann B. Guðmundsson 2, Viktor
V. Illugason - Arnar Ingi Bjarkason,
Ernir Pétursson.
3.-4. KR - Fylkir ...........2-1
5.-8. Keflavík - Fjölnir.....0-3
5.-8. Leiknir R. - ÍA........3-0
9.-24. Grindavík - Grótta....3-3
Selfoss - Njarðvík ..........4-1
Fram - HK....................3-3
Haukar - Valur...............4-2
Stjarnan - KA ...............1-4
Þór - FH ....................3-1
ÍBV-ÍR.......................2-1
Þróttur R. - Afturelding.....3-2
Markahæstur: Örn Ingi Bjarkason,
Víkingi 15.
C-lið:
1.-2. Breiðablik - KR.........4-1
Símon P. Ágústsson 2, Daði Ingólfs-
son, sjálfsmark - Hrafn Jónsson.
3.^.Fylkir - Fjölnir...........1-3
5.-8. Þór - Vikingur...........3-1
5.-8. Stjaman - KA ............3-1
9.-24. Haukar - Afturelding .... 2-2
Selfoss -Grótta ...............1-1
IBV-ÍA ........................2-2
Þróttur R. - HK................1-1
Keflavík - FH .................0-3
Leiknir R. - Víkingur .........0-3
Grindavík - ÍR.................1-2
Fram - Njarðvík ...............2-3
Markahæstur: Ingimar Guðbjarts-
son, Rjölni 18 mörk.
D-lið:
1.-2. FH - Fjölnir...........5-1
Sigmar I. Sigurgeirsson 2, Ámi G.
Finnsson, Davíð Þorgilsson, Sævar I.
Sigurgeirsson- Stefán Þór Mikaelson.
3.-4. KR - Breiðablik 2-2 (KR vann)
Leikir um önnur sæti
FH - Breiðablik.................4-2
Fjölnir - KR...................4-2
Breiðablik - KA.................1-1
Þór - ÍA........................2-3
Stjaman - Fylkir...............1-4
KR E - HK......................1-1
Þróttur R. - Leiknir R..........3-0
ÍR - Keflavík...................1-1
Haukar - ÍBV ...................0-2
Markahæstur: Óli Bjöm Karlsson,
KR 13 mörk.
E-lið:
1.-2. Fjölnir - Fylkir ........4-1
3.-4. FH - Stjaman.............1-0
Leikir um önnur sæti
Keflavík - ÍA..................0-3
Víkingur - ÍR..................2-0
Þróttur R. - HK................3-2
Markahæstur: Bjarki Hrafn Sveins-
son, Fjölni, 17 mörk.
Önnur verðlaun
Besti leikmaður mótsins:
Rafn Haraldsson, Þrótti R.
Besti markmaður mótsins:
Bjarki Jónsson, Selfossi.
Skothittni, eldri: Guðni Páll Krist-
jánsson, FH
Skothittni, yngri: Bjartmar Bjöms-
son,ÍA.
Vítahittni, eldri: Guðmundur Steinn
Hafsteinsson, Val.
Vítahittni, yngri: Einar Ómarsson,
Grótta.
Knattrak, eldri: Sigurberg Rúríks-
son, Fram.
Knattrak, yngri: Amþór I. Kristins-
son,ÍA.
Skallaö á milli, eldri: Aron Stefáns-
son og Emil Reynisson Haukum
Skallað á milli, yngri: Aron Pálma-
son og Brynjar Benediktsson, FH.
Kappát: Hjálmar Þór Amarson,
Víkingi
Fimm mork
Eyjastrákar í úrslitaleik B-liða gegn Þrótturum
DV, Eyjum:
Heimamenn úr ÍBV unnu sigur
hjá A-liðum þetta árið er liðið
lagði Þrótt R, 5-1, í úrslitaleik.
Mikil fjöldi Eyjaskeggja var
mættur á leikinn aö styðja sitt lið
og einnig voru Þróttarar með
sterka stuöningsmenn á bak við
sig.
„Við áttum þennan sigur skilið,
enda erum viö búnir að spila mjög
vel í mótinu. Það er alveg frábært
að fá að spila hér á Hásteinsvelli
og þaö er eins og ÍBV geti bara
ekki tapað á þessum velli,“ sagði
Amór E. Ólafsson, leikmaður með
ÍBV, sem átti frábæran leik í liði
heimamanna.
Ætlaði að skora
Blikar unnu bæði sigur í B- og
C-liðum, unnu þar Víking og KR.
Jóhann B. Guðmundsson skor-
aði 2 mörk fyrir Breiðablik í B-
leiknum og var að vonum kampa-
kátur i leikslok. „Þetta var alveg
frábært, við spiluðum betur og
vomm ákveðnari. Ég ætlaði mér
að reyna að skora í leiknum og
það var meiriháttar að gera tvö
mörk og tryggja okkur sigurinn,"
sagöi hinn efhilegi Blikamaður,
Jóhann B. Guðmundsson.
Loks unnu FH-ingar sigur á
Fjölni í úrslitaleik D-liða. -RS
Tveir brattir Akurnesingar:
Nýtt Skagalag
Bjöm Jónsson, 8 ára, og Ás-
mundur Jónsson, 10 ára, vora í
sólskinsskapi að fylgjast með félög-
um sínum keppa í undanúrslitum
á laugardeginum. Þeir leika með
A-liði ÍA, sem sýndi góða takta.
Hvernig
hefur ykkur og
ykkar liði
gengið?
„Okkur hefur
gengið mjög vel
og við eigum að
spila viö ÍBV í
undanúrslit-
um.“
Bjöm er miðjumaöur og lék
geysilega vel og hafði skorað
hvorki fleiri né færri en 14 mörk.
Ásmundur hafði einnig staðið sig
vel, skorað tvö mörk og lagt upp
mörg fyrir félaga sína, enda sterk-
ur kantmaður þar á ferðinni.
- Eruð þið ánægðir með þjálf-
arann ykkar?
„Já, hann hvetur okkur áfram
og við lærum mikiö hjá honum.“
- Hver er ykkar uppáhalds-
leikmaður?
Björn: „Michael Owen í Liver-
pool.“ Ásmundur: „David Beck-
ham hjá Man.Utd."
- Hvað er fall-
egasta mark
sem þið hafið
séð? Björn:
„Þau eru mörg
öfga flott, en ég
man ekki eftir
neinu sér-
stöku." Ás-
mundur: „Það
var eitt víti hjá Roberto Carlos.
Hann snéri honum alveg frábær-
lega i homið.“
- Er eitthvað skemmtilegt
sem hefur komið upp á hjá ykk-
ur á mótinu?
„Já, við höfum verið að dunda
okkur við að semja lög og stefnan
er að vera búnir að semja nýtt
Skagalag þegar mótinu lýkur.“
Sigurdans Eyjamanna
Eyjamenn skemmtu sér vel eins og aðrir og tryggðu
sér sigur í keppni A-liða með 5-1 sigri á Þrótti f
úrslitaieiknum. Á minni myndinni eru liðin sem léku
þann leik.
Grindavík
. -r/
■ —J
«8W9e*»» f
ms
Leikgleði
Fararsíjóraball-
ið fór fram á
fostudagskvöldið
og hefur það sjald-
an verið flölmenn-
ara. Fólk
skemmti sér
konunglega
og var spilað
fyrir dansi
til klukkan
flögur.
Skari skrípó
vann hug og
hjörtu drengj-
anna á kvöld-
/ vökunni og
mátti sjá annan
hvem dreng vera að æfa sig í hinum
ýmsu töfrabrögðum eftir þessa frá-
bæru skemmtun.
Mikiö rigndi I Vestmannaeyjum í
upphafi móts og voru vellimir orðnir
eitt drullusvað og áttu drengirnir oft
erfitt með að fóta sig á erííðum völl-
unum. Drullan var orðin það mikil að
fyrir einn leikinn á mótinu harðneit-
aði einn drengurinn að spila i takka-
skóm, heldur vildi hann fara eitt-
hvert og útvega sér stígvél til að
keppa í.
Mikil stemning ríkti á leikjunum á
mótinu og er greinilegt að liðin leggja
mikið upp úr því að vera með öflug-
an stuðningshóp á bak við sig.
Mikil eftirvœnting var hjá strákun-
um í bátsferðinni, enda vddu allir fá
að sjá Keikó. Sem betur fer var Keikó
í góðu skapi þessa daga og sýndi list-
ir sínar fyrir strákana, sem fögn-
uðu af mikilli gleði.
„Þetta var bullandi varnarsigur,"
sagði einn pollinn þegar hann
gekk af velli. Hann var ánægður
með að lið hans, sem ekki hafði
gengið vel, hafði ekki tapað eins
stórt og i næstu leikjum á undan.
Pressuliðið vann landsliðið sann-
færandi, 1-3, í skemmtilegum leik.
Mörk pressuliðsins skoruðu þeir
Kolbeinn Sigþórsson, Vikingi,
sem gerði tvö mörk og Brynjar
Kristjánsson, Val, eitt mark. Eina
mark landsliðsins skoraði Arnór
Ingi Finnbjörnsson úr Fram.
Sigurvegarar í fimmtudagsmóti
innanhúss urðu eftirtalin lið: A-
lið FH, B-lió FH, C-lið Breiðabliks,
D-lið Fylkis.
Sigurvegarar í fóstudagsmóti innan-
húss urðu eftirtalin lið: A-lið KR, B-
lið Fjölnis, C-lið Fjölnis, D-lið Stjöm-
unnar.
Grindavík hlaut útnefninguna
sterkasta liöið, Víkingar unnu boð-
hlaupið, ÍA og Fram voru kosin
prúðustu liðin og KR og FH fengu
háttvísiverðlaun KSÍ.
Gylfi Sigurðsson, FH hélt bolta oft-
ast á lofti meðal þeirra yngri og Eió-
ur A. Sigurbjörnsson hjá ÍBV hjá
eldri strákum mótsins.