Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1999, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1999, Side 3
MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1999 21 DV Sport Bland 1 P oka Wilson Kipketer og Gabriela Szabo færðust einu skrefi nær guUpottinum í frjálsum íþróttum þegar þau báru sigur úr býtum í sínum greinum á gullmóti i frjálsum íþróttum í Belgíu um helgina. Kipketer kom fyrstur i mark í 800 m hlaupi á 1:42,27 mín. og Szabo sigraði í 3000 metra hlaupi á 8:25,82 mín. Síðasta gullmótið fer fram í Berlín á morgun og vinni þau greinar sínar þar skipta þau 80 milljónum króna á miili sín. Charles Barkley ætlar að framlengja samning sinn við Houston Rockets í NBA-deildinni um eitt ár en kappinn var að hugleiða að leggja skóna á hill- una. Næsta timabil verður það 16. í röð- inni hjá Barkley í NBA en hann er 36 ára gamall. Manchester Vnited hefur boðið Inter 470 milljónir króna í franska vamar- manninn Michael Silvester. Sir Alex Ferguson, stjóri United, er bjartsýnn á að geta gengið frá kaupum á leikmann- inum i þessari viku. Michael Klim bætti í gær heimsmetið i 50 metra flugsundi á ástralska meistara- mótinu í sundi í 25 metra laug. Klim synti vegalengdina á 23,21 sekúndu og bætti met Króatans Milos Milosevics, 23,30 sek., sem hann setti í desember síð- astliðnum. Á kastmóti FH náði Norðmaðurinn Eivind Smörgras lengsta kasti Norður- landabúa á þessu ári þegar hann kastaði kringlunni 64,20 metra. Óöinn Þor- steinsson úr ÍR kastaði 54,50 m, Jón B. Bragason, HSS, 48,06 m, Stefún R. Jónsson, Breiðabliki, bætti sinn besta árangur þegar hann kastaði 46,30 m og Jón Þ. Heióarsson, USAH, kastaði 40,30 m. Ásdis Hjálmarsdóttir úr Ármanni bætti 31 árs gamalt met Ingibjargar Guðmundsdóttur í telpnaflokki þegar hún kastaði 35,06 metra en gamla metið var 34,64 metrar. Afturelding tryggöi sér í gær sigur í 3. deild karla í knattspyrnu með því að sigra KÍB, 2-0, i úrslitaleik á Varmár- velli. Ragnar Egilsson og Þorvaldur Árnason (bróðir Sumarliða) skoruðu mörk Mosfellinga í leiknum en bæði liö- in munu leika í 2. deild á næsta tímabili. í leik um þriðja sætið hafði Njarðvík betur gegn Huginn/Höttur, 3-2. Guðrún Arnardóttir varð í 3. sæti í 400 metra grindahlaupi á Grand Prix móti í frjálsum íþrótt- um á Ítalíu í gær. Guðrún kom í mark á 55,65 sekúnd- um. Jekaterina Bak- hvalova frá Rússlandi sigr- aði i hlaupinu á 55,36 sek. og í öðru sæti varð Debbie Ann Parris frá Jamaíka á 55,49 sekúndum. -GH Edda Lúvísa Blöndal vann til silf- urverðlauna í opnum flokki á enska meistaramótinu í karate sem fram fór í Crystal Palace um helgina en mótið er taliö með þeim sterkari í heiminum. Edda lagði Gitte Hel- mund margfaldan Norðurlanda- meistara á leið sinni í úr- slitaglímuna en þar tapaði hún fyr- ir Aalders frá Hollandi. Þetta voru ekki einu verðlaun Is- lendinga á mótinu því Bjarki Birgis- son vann brons í -70 kg flokknum. -GH ÞÝSKALAND Bad Schwartau - Lemgo........17-29 Minden - Flensburg..........22-28 Eisenach - Nettelstedt......26-23 Gummersbach - Wetzlar........19-21 Essen - Willstátt...........31-25 Magdeburg - Grosswallstadt . . 28-15 Kiel - Schutterwald ........34-24 Nordhorn - Dormagen ........28-17 Frankfurt - Wuppertal ......27-21 Kiel 3 3 0 0 93-67 6 Nordhorn 3 3 0 0 85-64 6 Lemgo 3 3 0 0 77-61 6 Flensburg 3 3 0 0 86-72 6 Magdeburg 3 2 0 1 80-61 4 Essen 2 2 0 0 60-47 4 Minden 3 2 0 1 82-75 4 Grosswallst. 3 2 0 1 69-68 4 Frankfurt 3 1 0 2 70-68 2 Eisenach 3 1 0 2 77-79 2 Wuppertal 3 1 0 2 68-74 2 Wetzlar 3 1 0 2 69-79 2 Nettelstedt 3 1 0 2 68-82 2 Dormagen 3 0 1 2 61-75 1 Schutterw. 3 0 1 2 71-86 1 Gummersb. 2 0 0 2 42^19 0 Wfflstatt 3 0 0 3 65-89 0 B. Schwartau3 0 0 3 57-84 0 Stórleikur Guðmundar Opin æfing hjá landsliðinu Almenningi gefst í kvöld kost- ur á að fylgjast með æfingu A- landsliðsins í knattspymu en lið- ið er sem kunnugt að búa sig undir stórleikinn gegn Úkraínu í undankeppni EM á miðvikudag- inn. Æfingin hefst klukkan 18 á aðalleikvangi Laugardalsvallar. Böm og fullorðnir geta þar séð Guðjón Þórðarson landsliðsþjálf- ara stjóma æfingu sinna manna og þá gefst fólki kostur á að hitta landsliðsmennina og fá eigin- handaráritanir. -GH . DEILD KARLA Fylkir 16 13 0 3 37-19 39 ÍR 16 8 2 6 44-31 26 Dalvik 16 7 3 6 26-34 24 Stjarnan 16 7 2 7 30-28 23 FH 16 6 4 6 35-28 22 Skallagr. 16 7 1 8 34-33 22 Þróttur, R. 16 6 2 8 24-25 20 Víðir 16 6 2 8 27-40 20 KA 16 5 4 7 23-24 19 KVA 16 4 2 10 26-44 14 Markahæstir: Hjörtur Hjartarson, Skallagrími . 17 Atli Viðar Bjömsson, Dalvik .... 11 Sævar Þór Gislason, ÍR..........11 Hörður Magnússon, FH............11 Hreinn Hringsson, Þrótti........10 Björgvin Sigurbergsson og Herborg Arnarsdóttir fögnuðu sigri á sjötta og síðasta stigamótinu í golfi í Grafarholti í gær. Á minni myndinni eru stigameistarar GSÍ í ár, Ragnhildur Sigurðardóttir og Örn Ævar Hjartarson. DV-mynd E.ÓI. Örn Ævar Hjartarson og Ragnhildur Sigurðardóttir: Stigameistarar Örn Ævar Hjartarson, GS, og Ragnhildur Sigurðardóttir, GR, eru stigameistarar Golfsambands ís- lands árið 1999 en sjötta og síðasta stigamót ársins fór fram í Grafar- holti í gær. Aðeins voru leiknir tveir hringir í Grafarholti í stað þriggja en fyrsti hringurinn á laug- ardaginn var felldur niður vegna veðurs. Meistari án þess að spila Örn fagnaði stigameistaratitli sínum án þess að keppa en hann er farinn til Bandaríkjanna í nám. Helgi Birkir Þórisson, GK, átti alla möguleika á að skjótast fram úr Erni en honum tókst ekki vel upp og endaði í 9. sæti á 157 höggum og varð því 10 stigum á eftir Emi í stigakeppninni. íslandsmeistarinn Björgvin Sig- urbergsson, GK, sigraði á mótinu í Grafarholti í gær en hann lauk keppni á 145 höggum, þremur högg- um á undan Haraldi H. Heimissyni, GR, sem lék á 148 höggum. Björgvin sló mjög vel og lék á pari vailarins, í gær eða 71 höggi. Björgvin átti ekki möguleika á að vinna stigameistaratitilinn því hann var aðeins með á fjórum mót- um af sex. Úrslitin á lokamótinu: Björgvin Sigurbergsson, GK........144 Haraldur H. Heimisson, GR.........148 Öm Sölvi Halldórsson, GR..........151 Þorsteinn Hallgrimsson, GR........152 Auöunn Einarsson, GÍ..............153 Kristinn Ámason, GR ..............155 Davíð Jónsson, GS.................155 Lokastaðan : Öm Ævar Hjartarson, GS ...........382 Helgi B. Þórisson, GK ............372 Haraldur H. Heimisson, GR.........344 Július Hallgrímsson, GV...........340 Kristinn Árnason, GR .............337 Auöunn Einarsson, GÍ..............329 Þorsteinn Hallgrimsson, GR........328 Örn Sölvi Halldórsson, GR.........324 Björgvin Þorsteinsson, GA.........310 Davíð Jónsson, GS.................300 Ólöf ekki með í gær Herborg Arnardóttir, GR, fagnaði sigri á lokamótinu. Herborg lék á samtals 158 höggum og tókst að hrista Ragnhildi Sigurðardóttur af sér með góðri spilamennsku á síðari 9 holunum í gær. íslandsmeistarinn Ólöf María keppti ekki i gær en hún boðaði for- föll rétt fyrir mótið og missti þar með af öðru stigamótinu í sumar. Úrslitin á lokamótinu: Herborg Arnardóttir, GR............158 Ragnhildur Sigurðardóttir, GR .... 162 Kolbún Sól Ingólfsdóttir, GK ......170 Þórdís Geirsdóttir, GK.............182 Lokastaðan: Ragnhildur Sigurðardóttir, GR . .. .393 Herborg Amardóttir, GR.............325 Ólöf María Jónsdóttir, GK..........316 Kolbrún Sól Ingólfsdóttir, GK .... 245 Kristín Elsa Erlendsdóttir, GK .... 231 -GH Guðmundur Hrafnkelsson átti stór- leik i marki nýliða Nordhorn sem vann Dormagen létt og er enn með fullt hús stiga. Guðmundur varöi meðal annars 3 vitaköst. Róbert Sig- hvatsson skoraði 4 mörk fyrir Dor- magen og Daói Hafþórsson 2. Róbert Julian Duranona var markahæstur i liði Eisenach með 7 mörk gegn Nettelstedt. Sigurður Bjarnason var marka- hæstur hjá Wetzlar með 6 mörk þeg- ar lið hans fékk sín fyrstu stig með góðum útisigri á Gummersbach. Gústaf Bjarnason var markahæstur hjá Wfflstátt með 7 mörk en það dugði skammt gegn Essen. Magnús Sigurðsson gerði 1 mark fyrir Wffl- státt og Patrekur Jóhannesson 2 fyr- ir Essen. Heiðmar Felixson og Valdimar Grimsson gerðu 3 mörk hvor fyrir Wuppertal i ósigrinum í Frankfurt. Ólafur Stefánsson skoraði 2 mörk fyrir Magdeburg, annað úr vítakasti, þegar lið hans burstaði Grosswall- stadt. -VS 1. deild kvenna í knattspyrnu: Þór/KA í úrvalsdeildina - FH mætir Grindavík um laust sæti Sameiginlegt lið Þórs og KA tryggði sér í gær sæti í úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu en úrslitakeppni 1. deildar lauk í gær. Þór/KA gerði 1-1 jafntefli gegn Sindra í gær og FH lagði RKV, 3-1. Lokastaðan í úrslitakeppninni varð sú að Þór/KA hlaut 5 stig, FH og Sindri 4 og RKV 3. FH náði öðru sætinu á markatölu. Markatala FH-liðsins var 6-7 en hjá Sindra 4-5 svo tæpara gat það ekki verið. FH mætir Grindavík í aukaleikjum um laust sæti í úrvalsdeildinni en Grindvíkingar höfnuðu í næstneðsta sæti úrvalsdeildarinnar sem lauk í gær. Fyrri leikurinn verður í Grindvík 11. september og sá síðari í Kaplakrika 14. september. -GH Karate: Edda Lúvísa tók silfrið Hjörtur a skotskónum 1- 0 Ivar Ö. Benediktsson (18.) 2- 0 Hjörtur Hjartarson (37.) 2- 1 Kristján Svavarsson (52.) 3- 1 Hjörtur Hjartarson (70.) 4- 1 Hjörtur Hjartarson (85.) 5- 1 Emil Sigurðsson (89.) 5-2 Andri Þórhallsson (90.) Skallagrímur vann mikilvægan sigur í botnbaráttunni þegar hann lagði KVA í miklum baráttu- og markaleik. Amgrímur Amarson var maðurinn á bak við fjögur mörk heimamanna en Hjörtur Hjartarson var á skotskónum eins og áður í sumar. Maður leiksins: Hjörtur Hjartarson, Skallagrími. -EP Komnir í toppbaráttuna 0-1 Atli Viðar Bjömsson (32.) „Ég held að við höfúm tryggt sæti okkar í deildinni með þessum sigri og það sem meira er, við em komnir i toppbaráttuna. Þvi held ég að enginn hafi reiknað með fyrir mót,“ sagði hinn stórefhilegi Atii V. Bjömsson sem tryggði Dalvíkingum sætan sigur á Stjörn- unni. Baráttuglaðir Dalvíkingar léku af skyn- semi en þeir áttu ekki í teljandi vandræðum með að stöðva hugmyndasnauðan sóknarleik heimamanna sem misstu Boban Ritic út af með rautt spjald á 75. mín. Maður leiksins: Atli V. Bjömsson, Dalvík. -GH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.