Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1999, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1999, Blaðsíða 3
meömæl i Það er engin spurning, spennur gera mann meira spennandi. Þó er ekki sama hvernig spennurnar eru. Fiðrildaspennurnar hreyfan- legu, sem voru svo vinsælar í sumar, eru löngu flognar úr heimi hátískunnar og í stað- inn er nú inn að vera með hænumunna ! hár- inu. Þessar gogga- löguðu spennur eru alveg gasalegar flottar og fást m.a. í Skarthúsinu Laugavegi, kosta 240 krónur stykkið eru til í öllum regnbogans litum. Það gæti reyndar verið að einhverj- ar stúlkur hlytu viðurnefnið hænu- hausar gangi þær um með þetta skraut! hárinu Loksins er kominn á markaðinn úði sem fær slöpp typpi til þess að rísa til lífsins. Þessi uppfinning kemur að sjálfsögðu frá Japan, frá sama uppfinningamanni og fann upp Floppy- diskinn, Yoshiro Naka- matsu. Úðinn nefnist „Love-jet" og inniheldur einungis náttúrleg efni. Úðinn á að vera miklu betri en Viagra því það er engin hætta á því að maður fái hjartaáfall af honum. Flann gagnast einnig fyrir konur sem úða honum bara á viö- eigandi staði og verða þá alveg spólgraðar. Þv! miður fæst þetta undra- efni enn sem komið er einungis I Japan en er ! prófun ! Evrópu og í Bandarikjunum. Nú er málíð að skella sór á Fókusvefinn á Visi.is og downioad-a tveím nýjum lögum. Laginu MPK með Skárr’ en ekkert og X+Y+Z=1 með gamla Ham-meðlimnum Hali Ingólfssyni. Lögin eru samin fyrir sýningu íslenska dansflokksins og á vefnum er líka hægt að downíoad-a myndbandi með flokknum í sínu besta formi. , Skárr’ en ekkert er meö lag á Fókusvefn- um í tilefni frumsýning ar íslenska óans flokksins. Fyrrum Ham-maöurinn, Hallur Ing ólfsson, segir lagið á Fókusvefn um vera gamaldags dægurflugu. Strákarnir í hljómsveitinni Brain Police eru þreyttir á aö ganga undir nafninu bakarísdrengirnir og vilja frekar vera þekktir fyrir aö gera góöa tónlist en fal- leg sætabrauö. Það verða engir piparkökusöngv- ar sem hljómsveitin Brain Police mun spila inn á sína fyrstu plötu. Nei, hinum 150 stúdótímum sem þeir fengu að launum þegar þeir unnu Rokkstokk ¥99 verður að þeirra sögn betur varið. Hljómsveit- in hafði verið að láta sig dreyma um að gefa út disk þannig að stúd- íótímarnir frá 60b í Keflavík munu reynast hin besta búbót fyrir hljóm- sveitina. „Við eigum tilbúin um átta lög og svo getum við verið mjög duglegir þegar til á að taka,“ segir söngvar- inn Vagn Leví. Þið sögðuó í viðtali vió Fókus í sumar aö þiö heföuö í hyggju aö gefa út síöustu plötu aldarinnar. Stenst þaö? „Okkur langar til þess, það er svona rokkaðra heldur en að lenda í jólaplötuflóðinu," segir Vagn Leví en bætir við að þetta sé nú reyndar meiri draumórar heldur en alvara. Þeir séu ekkert að stressa með að koma plötunni út. „Mér finnst þetta jólaflóð asna- legt og ég skil ekki hvað tónlistar- menn eru að reyna að keppast við að ná því. Fólk á náttúrlega að kaupa tónlist af því að þeim líkar hún, ekki af því að það eru jól,“ seg- ir bassaleikarinn Hörður. „Það er örugglega hagkvæmara að vera með í jólaflóðinu svona upp á gróðann að gera. Það er samt al- veg slatti af fólki sem hefur áhuga á þessari tónlist, þó svo að við séum alls ekki að spila tónlist sem er ný af nálinni," segir Vagn Leví og treystir á sína aðdáendur hvað sem öllum jólum líður. Bílar, mótorhjól og eyðimerkur Tónlist Brain Police flokkast undir svokallað Stone-Air rokk. Öll lögin eru sungin á ensku enda dreymir hljómsveitina svona hálft í hvoru um að meika það erlendis. En um hvaö eruö þiö aó syngja? „Það er dáldið erfitt að útskýra það,“ svarar Vagn Leví. Nú eru textarnir hjá ykkur bara eitthvað bull? „Nei, alls ekki. Ef þú ímyndar þér að þú sért mótorhjólatöffari Btjjáluðu bakararnir í hljómsveitinni Brain Police komu, sáu og sigruðu Rokkstokk ¥99. Að launum fengu þeir 150 stúdíótíma sem þeir munu veijja í allt annað en piparköku- söngva. sem gefur skít í allt og keyrir inn í eyðimörkina þá skilurðu um hvað lögin fjalla,“ svarar Vagn Leví og bætir við að enginn í bandinu eigi mótorhjól en suma dreymi um að eignast þannig fák. „Það er engin pólitík í textunum okkar heldur syngjum við oft um ýkta og flotta hluti eins og bíla og þjóðveginn," bætir Hörður við. -snæ Hver kannast ekki við vandamálið með clean only“-föt? Það er svo dýrt að setja þau I hreinsun að maður þorir varla að fara ! þeim út á djammið. Nú getur maður hins vegar farið að nota þessi föt með góðri samvisku því komið er á markaðinn undraefni sem heitir Dryel og þurrhreinsar föt- in heima. Nánari upplýsingar fást www.dryel.com ,dry Sendið gamla ísskáp- inn ekki á haugana þó að hann sé há- vaðasamur því með smámálningu getur hann orðið hin flottasta mubla. Is- skápur í flottum lit getur t.d. nýst ! unglingaherbergið undir plötur eða föt. Munið bara að taka hann úr sam- bandi ef hann á ekki aö hýsa mat lengur. Þeir sem eiga lög á vefnum eru strákamir í Skárr’ en ekkert og gamli Ham-kauðinn Hallur Ing- ólfsson. Lögin eru á disk sem ís- lenski dansflokkurinn gefur út í til- efni frumsýningar á nýju stórvirki í Borgarleikhúsinu 14. október. En hvernig lag er þetta sem við fáum aö heyra á vefnum, Hallur? „Þetta er nú bara svona gamal- dags dægurfluga." Ekkert í líkingu vió Ham? „Nei, þetta er ekki rokk,“ segir Hallur en hann samdi lögin eftir dansinum en ekki öfugt eins og venjan er. „Þetta er meira eins og ég sé að dansa eftir þeirra höfði. Þetta dægurlag er til dæmis sjö mínútur en ekki þrjár til fjórar eins og þessar dægurflugur eru yf- irleitt." Og ertu bara einn í þessu? „Já. Þetta er bara handspilað af mér og unnið í tölvu. Ég geri þetta allt sjálfur og því má líta á þetta sem heimilisiðnað," segir Hallur og þá er bara að athuga hvemig þetta hljómar hjá honum á vefnum en lagið heitir því undarlega nafni: X+Y+Z=l. Skárr’ en ekkert Strákamir Frank Hall, Eiríkur Þórleifsson, Guðmundur Stein- grímsson og Hrannar Ingason skipa grúppuna, Skárra en ekkert, sem á lag á umræddum diski og á Netinu. Lagið heitir MPK og það er nú svoldið einkennilegt nafn „Það er frekar erfitt að finna nöfn á þessi lög og þetta lag heitir því bara eftir dansinum,” segir Frank Hall talsmaður drengjanna knáu. Hvernig lag er þetta? „Það er tvískipt. Byrjar á trommuorgíu og feitar síðan yfir i svona bigbeat. Þungan takt með strengjalínu,“ útskýrir Frank en þeir félagar spila læf á sýningunni en eru samt ekki mikið að spila þetta misserið. Nú er einn úr hljómsveitinni, Guömundur, sonur Steingrims Hermannssonar. Ertu búinn aö lesa œvisöguna? „Nei. Ég hef ekki lesið hana og ætli ég bíði ekki bara eftir næsta hefti. Þá kemur Gummi í heim- inn,“ segir Frank og hlær. Dansflokkrinn frumsýnir sem áður sagði 14. október og diskurinn kemur út í tenglsum við frumsýn- inguna og forsmekkinn á bæði tón- listinni og dansinum er að finna á Fókusvefnum á Visir.is. e f n i Guðlaugur Óttarsson: 4 Algjört hitt á Sírfusi Halldór Gylfason: 6 Hefur aldrei farið á Internetið Emilíana_ Torrini: 8_9 Gerir hlutina með sín- um hætti KoolKeith: 10 Vill sýna fólki hvað sköpunargleði þýðir 12-13 Peningar og aftur peningar: 2 nýir seðlar Bíó: 14- Hús með vonda sál Horfnir 16 skemmtistað- ir: H-100 var aðal- diskó Akureyrar Lífid eftir vinnuj Jeep Jpside Pðul usca Lærðu að po Lossinn hans Hallgrii Iverjir vpfj f ókus fylgir DV á föstudögum Forsíðumyndina tók Dr. Gunni af Emilíönu Torrini 8. október 1999 f ÓkUS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.