Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1999, Blaðsíða 15
Þrír kóngar
slá í gegn
Það er ekki alltaf sem saman
fara í kvikmyndaheiminum góðir
dómar gagnrýnenda og vinsældir
hjá almenningi en um síðustu
helgi var frumsýnd í Bandaríkjun-
um myndin Three Kings sem varð
önnur vinsælasta kvikmynd helg-
arinnar. Hún halaði inn fjórtán
milljónir dollara og fékk um leið
mjög góða gagnrýni. Myndin, sem
David 0. Russell stjórnar, gerist
rétt eftir Persaflóastríðið og voru
gagnrýnendur á því að betri hasar-
mynd hefði ekki verið gerð lengi.
Hefur henni einnig verið líkt við
Apocalypse Now hvað varðar’
móral í bandaríska hernum en
myndin fjallar um hermenn sem
verða eftir i eyðimörkinni þar sem
þeir telja sig vita hvar geymt er
gull sem Saddam Hussein stal af
Kúveit. Þessi örlagaríka leit þeirra
á eftir að breyta þeim öllum, við-
horfum þeirra til araba, sem og
viðhorfum til síns heimalands. Að
sumu leyti er Three Kings hefð-
bundin hasarmynd en í myndinni
er einnig velt upp þeirri spurningu
hvort það hafi verið siðferðilega
rétt hjá Bandaríkjamönnum að
taka þátt í stríðinu. Blaðakona fer
á vettvang og spyr hermenn en
kemur að tómum kofunum því
þeir hafa ekki hugmynd um hverju
þeir eiga að svara og vita jafnvel
ekki hvað hún er að tala um.
í aðalhlutverkum eru George
Clooney, Mark Wahlberg, Ice Cube,
Nora Dunn og Mykeiti Williamson.
Leikstjórinn, David O. Russell, sem
einnig skrifar handritið eftir skáld-
sögu Johns Riley, hefur leikstýrt
þremur kvikmyndum, að Three
Kings meðtalinni. Fyrsta kvikmynd
hans var Spanking with Monkey,
svört unglingakómedía, og fyrir
tveimur árum sendi hann frá sér
Flirting with Disaster með Ben Still-
er og Patricia Arquette í aðalhlut-
verkum. -HK
George Clooney leikur einn hermannanna sem hefja gullleit í eyðimörkinni.
bíódómur
Sam-bíóin / Stjörnubíó
- American Pie ★
Fyrirmyndarlíf
Satt að segja stóð ég í þeirri
meiningu að meira en nóg væri af
svona efni í sjónvarpi, þetta er
svona létt og löðurmannleg sápa
um unglinga og kynlíf, vafið inn í
huggulegan móral um forgangsat-
riðin í lífinu. Ætti ekki að stuða
neina nema þá sem gera kröfur um
eitthvað bitastætt, en hverjir gera
það svo sem á þessum síðustu og
verstu? Þeir hinir sömu geta þá
farið að sjá Fucking Ámál í Há-
skólabiói þar sem fjallað er um
nokkurn veginn sama efni af
miklu meira innsæi og krafti. En
íslenskir bíógestir, sem flestir eru
á sama aldri og persónur þessarar
myndar, eiga sjálfsagt eftir að fjöl-
menna á þessa enda aldir upp á
svona fóðri þar sem hinum amer-
ísku fjölskyldugildum og velferð er
haldið að þeim sem einhvers konar
„normi“ í lífinu og allt annað
flokkast undir mismunandi stig af
barbarisma. Og hvar hefur maður
séð þetta allt áður og það oftar en
maður kærir sig um?
Fjórir drengir eru að útskrifast
úr „high school" og gera með sér
samning um að „afsveinast“ eigi
síðar en á útskriftarkvöldinu. Við
fylgjumst siðan með tilburðum
þeirra og oft á tíðum hugvitsamleg-
um nálgunum en auðvitað gengur
allt á afturfótunum þar til smám
saman rennur upp fyrir þeim að
leiðin til að verða að manni er að
sigrast á sjálfum sér en ekki öðrum.
Allt svo sem gott og blessað og
ósköp sætt, krakkamir allir falleg-
ir og öllu í umhverfi þeirra hagan-
lega fyrir komið. Um leið fjarska-
lega óspennandi og fyrirsjáanlegt;
andvana fætt verk fyrir svefn-
gengla sem vita það verst að vakna
upp af sætum draumum erindis-
leysunnar.
Leikstjóri: Paul Weitz. Handrit:
Adam Herz. Kvikmyndataka: Ric-
hard Crudo. Tónlist: David
Lawrence. Leikarar: Jason Biggs,
Shannon Elizabeth, Thomas lan
Nicholas, Alyson Hannigan og
Chris Klein.
Ásgrímur Sverrisson
Alec Baldwin, fyrir miöri mynd, leikur föður aöalpersónunnar, Timothy Dunby.
*
Út úr kortinu (Outside
Providence) sem Regnboginn frum-
sýnir í dag fjallar um ungan og
ósköp venjulegan ungling, Timothy
Dunby, sem lendir í klandri. Þegar
útséð er um að ekkert bíði hans
nema fangelsið hefur faðir hans
samband við vini sina sem eru í
tengslum við mafiuna sem hefur
tök á dómaranum sem á að dæma f
máli drengsins. í stað þess að
dæma hann í fangelsi er hann send-
ur á einkaskóla til að klára mennta-
skólanámið. í menntaskólanum
sem hann er sendur til er hann eins
og þorskur á þurru landi því þetta
er fínn skóli þar sem ríkir foreldr-
ar koma börnunum sínum fyrir.
Timothy er af fátæku fólki kominn
og í stað þess að koma með fót sín
og skó í ferðatösku í skólann kem-
ur hann með allt sitt í plastpoka.
Fljótt fær Timothy að kenna á því
að ekki er allt gull sem glóir og þar
Timothy (Shawn Hatosy) veröur hrifin
Weston (Amy Smart).
Nýiiöinn Shawn Hatosy í hlutverki
Timothys.
sem hann er sæmilega greindur
lærir hann fljótt á kerfið og staða
hans vænkast heldur betur þegar
hann fer að vera með vinsælustu
stúlkunni í skólanum.
Óþekktur leikari, Shawn Hatosy,
leikur aðalhlutverkið, Timothy, en
í öðrum hlutverkum eru meðal
annars Alec Baldwin, sem
leikur föður hans, George
Wendt, Richard Jenkins og
Amy Smart.
Leikstjóri og handritshöf-
undur er Michael Corrente
en hann skrifar handritið í
samvinnu við höfund sam-
nefndrar skáldsögu sem
myndin er gerð eftir, Peter
Farrelly, þess þekkta leik-
stjóra sem meðal annars leik-
stýrði Dumb and Dumber og
There’s Something about
Mary. Farrelly skrifaði skáld-
söguna löngu áður en hann
af Jane lagði fyrir sig kvikmyndagerð
en söguna byggir hann á eig-
Út úr kortinu
(Outside
Providence), sem
frumsýnd er í
Regnboganum í
dag, er gerð eftir
skáldsögu sem
leikstjórinn Peter
Farelly (Dumb and
Dumber, There’s
Something about *
Mary) skrifaði fyrir
mörgum árum.
in reynslu. Corrente og Farrelly
hafa lengi verið félagar, ólust báðir
upp á Rhode Island og höfðu fyrir
nokkrum árum byrjað að skrifa
handrit eftir sögunni. Þá voru þeir
báðir að hefja feril sinn í kvik-
myndaheiminum, Farrelly að
skrifa handritið að Dumb and
Dumber og Corrente að undirbúa
sína fyrstu kvikmynd, Federal Hill.
í millitiðinni leikstýrði Corrente
svo American Buffalo eftir leikriti
Davids Mamets. Þeir félagar tóku r
sér svo tak og luku við gerð hand-
ritsins og ákváðu í sameiningu að
Corrente skyldi leikstýra mynd-
inni. -HK
8. október 1999 f ÓkuS
15