Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1999, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1999, Blaðsíða 7
3t „Ég fór að spá í hvað ég ætti eiginlega að gera við líf mitt fyrst ég kæmist ekki inn í Leiklistar- skólann. Þegar ég er í öllum þess- um vangaveltum þá hringir Gísli Aifreðsson í mig og segir að ná- ungi frá Selfossi, sem fengið hafði inni i skólanum, hefði hætt við og mér byðist því plássið hans. Það má því segja að ég eigi ein- hverjum Davið frá Selfossi starf mitt sem leikari að þakka,“ segir Halldór og segir að hann hafi heldur betur orðið ánægður með þessar fréttir enda orðinn heldur betur þreyttur á þvi að vinna á Dalbraut, heimili fyrir geðsjúka unglinga. Aldrei farið á Netið Síðan Halldór kláraði Leiklist- arskólann fyrir tveimur árum höf- um við séð hann á ýmsum stöðum: á fjölum Leikfélags Akureyrar, í Greece og 1 sjónvarpinu, svo fátt eitt sé nefnt. En hver eru eiginlega framtíö- arplönin? „Tja, sem leikari þá getur mað- ur ekki gert lengri plön fram í timann en nokkra mánuði. Mað- ur verður bara að sjá hvað býðst. Ég ætla allavega bara að halda áfiram að leika,“ segir Halldór al- veg rólegur. Hann er meira að segja svo rólegur að hann hefur ekki enn þá kynnt sér hvað Inter- netið er né hvað hann ætlar að gera um aldamótin. Hann segist ekki heldur eiga sér neina stærri drauma, eins og að ferðast um allan heiminn áður en hann hrökkvi upp af. Hann er bara ánægður á íslandi og er kominn með íbúð, konu og bam, já, og hest sem heitir Glaður. Hvaö ertu annars að gera þegar þú ert ekki í vinnunni? „Ég á mér fjöldann allan af áhugamálum og er algjör dellu- kall. Ég er ágætisknapi og svo er ég í briddsspilaklúbbi og finnst líka gaman að veiða,“ segir Hall- dór sem er 29 ára. Hann segist einnig vera liðtækur í eldhúsinu og eldi þá helst blautar kássur úr því sem til er í ísskápnum. Nú ertu farinn aö klæöa þig úr í Borgarleikhúsinu, er ekki bara nœsta skref aö skella sér í klám- bransann? „Ja, ég neita hvorki né játa. Það er aldrei að vita hvað maður gerir ef manni berst nógu freist- andi tilboð,“ segir Halldór hugsi. Hann verður allavega að sjá í föt- um I leikritinu Djöflarnir eftir Dostojevski sem verður fljótlega sýnt í Borgarleikhúsinu. -snæ skorarann Zinedine Zidane í farar- broddi. Samt eru þeir alltaf jafnmikið að farast úr minnimáttarkennd, sýkt- ir af krónisku nöldri og geta þar af leiðandi ekki stillt sig um að kvarta stöðugt yfir heimsmeisturunum. Þeir vita áð þeir eru með gott lið, en þeir vita líka að árangurinn er fall- valtur. Þeir treysta sínum mönnum illa til að halda dampi. Kannski þess vegna er þeim svona mikið í mun að láta aðeins sjá sig með stórþjóðum. Þeim fmnst þeir aðeins eiga heima þar á meðan þeir eru í hópi þeirra bestu og myndu alveg geta hugsað sér að sleppa við leiki á móti íslandi og Armeníu. Þeir fara einfaldlega hjá sér þegar þeir þurfa að leika við smálið eins og ísland. Jafnvel liðsmennimir verða vandræðalegir og tala um mótheijann í hálfum hljóðum. Helst reyna þeir að láta sem hann sé ekki til. Þeir þora að vísu ekki að gera lít- ið úr leikmnn, því þeir vita að úrslit- in geta reynst örlagarík: Ef þeir kom- ast ekki áfram verður það seint fyrir- gefið. Þeir einfaldlega verða að vinna. „Ég vil að allir séu sannfærðir um að við munum vinna þennan leik,“ segir Laurent Blanc. Þegar spurt er hvem- ig svarar hann: „Með því að skora. Með því að leiða leikinn og neyða ís- lendingana til að spila á sem ein- faldastan hátt.“ Franska landsliðið býst greinilega ekki heldur við nein- um stórleik. Við ættum hins vegar að hugleiða það hvort ekki sé hægt að ráða huldufólk fyrir leikmenn. Margrét Elísabet Ólafsdóttir Verð frá 99,- kr. Gríptu tækifærið og gerðu góð kaup! MoM MIÚSÍK & MYNDIR MJÓDD / AUSTURSTRÆTI ...í Mjódd 30 stk. PlayStation leikjatölvun fyrir aðeins 8.999,- kr. í verslunum Músík & Mynda dagana 7.-23. október /\||t med afs/ætt/f ...í Austurstræti Allar RAPP og DANS plötur með 25°/o afslætti 8. október 1999 fÓkUS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.