Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1999, Page 11
Paul finnst
„Lennon“
kúl nafn
Eins og komiö hefur fram var
sonur Oasis-jálksins Liam Gallag-
hers og leikkonunnar Patsy Kensit
skýrður Lennon Gallagher, eftir
John Lennon. Álit Johns sjálfs hef-
ur ekki fengist - þrátt fyrir ítrekað-
ar tilraunir hjá Sálarrannsóknarfé-
laginu - en Paul McCartney hefur
tjáð sig um málið.
„Þetta er kúl nafn,“
sagði hann í sam-
tali við The Sun.
„Þetta er fallegur
viðingarvottur.
Liam er greinilega
mega-aðdáandi
Johns.“ Gamli
bitlabassaleikar-
inn var einnig
spurður út í það hvort hann saknaði
Lindu enn þá jafn mikið en hún lést
ú r
krabbameini í apríl í
fyrra. „Mér líður betur núna,“ svar-
aði hann. „Það tók ár, en nú get ég
hugsað upi hana án þess að sakna
hennar óskaplega. Sú minning sem
lifir sterkast er rokk og ról-andinn
sem hún bjó yfir.“
Liam hefur hins vegar fengið frí
frá bleyjuskiptingum og gert sina
útgáfu af gamla Jam-laginu
„Camation" með Steve Cradock úr
Ocean Colour Scene. Lagið er á
plötu til heiðurs gömlu mod-rokk
sveitinni og þar eru önnur innlegg
m.a. frá Beastie Boys, Reef og stóra
bróður, Noel Gallagher.
Garbage grafa í rusli
og syngja
Næsta plata Shirley Manson og
sköllóttra félaga hennar í Garbage
verður tvöföld „gramsað í drasli“-
piata sem kemur út snernma á
næsta ári. Þama eru á ferð sjaldgæf
lög, b-hliðar og tónleikaupptökur,
en auk þess tvö glæný lög, þar af
eitt - „Silence is Golden“ - sem
Butch Vig segir að sé mjög frá-
brugðið fyrra efni sveitarinnar, sem
er auðvitað gott þar sem Garbage
fýrir Bond
hefur hingað til verið einstefnulegt
band. Butch segir að þetta lag sýni
hvernig þriðja platan komi til með
að hljóma, en hljómsveitin er nú á
ferð um Ástralíu með upptöku-
græjur með sér og dundar sér við
að semja ný lög í þeim umtalaða
dauöa tíma sem tónleikaferðum
fylgja. Garbage á titillagið í næstu
James Bond-mynd, „The World is
Not Enough", sem verður frumsýnd
í lok nóvember með Pierce
Brosnan í aðalhlutverki.
Butch segir að Bond-lagið
hljómi bæði i anda Garbage
og Bond-myndanna. Það
var samið af David Arnold
og 60 manna sinfóníuhljóm-
sveit hjálpaði Garbage í
u.
Björfc kem
á blað hjá
Evrópsku MTV-verðlaunin
verða veitt í Dublin 11. nóvember.
Staðfest hefur verið að Marylin
Manson troði upp ásamt Und-
erworld, The Cardigans, The Off-
spring, Sean Puffy Combs og The
Corrs. Nú hafa tilnefningarnar ver-
ið gerðar heyrinkunnar og kemur
engum á óvart að Ricky Martin,
Backstreet Boys og Geri Halliwell
koma oftast við sögu. Fyrir utan
þessa sykruðu flytjendur fá þessir
m.a. tilnefningu: Robbie „flaska“
Williams (besti karlsöngvari),
Lauryn Hill (besta söngkona, r&b-
flytjandi og besta platan) og Mary-
lin Manson (besta rokkatriðið).
Um besta myndbandið keppa Blur
.(“Coffee & TV“), Aphex Twin
(“Windowlicker") og Björk fyrir
„All is Full of Love“. Þjóðarstoltið
okkar kemst því á blað í ár þó
langt sé orðið liðið síðan nýtt efni
heyrðist frá henni.
Nýr Beck
16. nóv.
Beck snýr aftur 16. nóvember
með plötuna „Midnight Vultures".
Fyrsta smáskífulagið af plötunni
verður „Sexxlaws". Það er hægt að
hlusta á það á heimasíðu Bekksins
(www.beck.com) og er óhætt að
mæla með því fyrir hlustendur
Gullsins, svo 60’s-lega hljómar það.
Önnur lög á plötunni eru m.a.
„Milk and Honey“, „Debra“,
„Hlwd. Freaks" og „Mixed Biz-
ness“. Platan er sögð vera aftur-
hvarf í þann gír sem Beck hefur
einna helst skapað sér vinsældir út
á, góða hipphopp-flottpopp girinn
sem platan „Odelay" gekk út á og
„Mellow Gold“ þar áður. Það lið
sem Bekkurinn er með sér á plöt-
unni eru m.a. Dust-bræðurnir,
flipparinn Kool Keith og enska
þjóðlagahækjan Beth Orton.
ERU ÞAU?
HEATHER DONAHUE JOSHUA LEONARD
Þann 21. október 1994 héldu þrjú bandarísk ungmenni, þau Heather
Donahue, Joshua Leonard og Michael Williams inn í Black Hills
skóginn í Maryland, Bandaríkjunum. Ætlunin var að festa á filmu
heimildir um 200 ára goðsögn, “The Blair Witch”, eða nornina Blair.
Ekkert hefur spurst til þeirra síðan.
Einu ári seinna fundust upptökur frá fimm daga ferðalagi þeirra í
gegnum skóginn og sjást þar hinir hræðilegu atburðir sem leiddu til
hvarfs þeirra.
SANNANIRNAR
LIGGJA FYRIR...
FARÐU Á www.visir.is TIL AÐ SJÁ OG HEYRA
• Hljóð- og myndupptökur af hinni
örlagaríku ferð nemendanna í
gegnumBlack Hills skóginn.
• Viðtöl vió yfirvöld sem sáu um
rannsókn málsins.
• Dagbókina sem einn nemandanna,
Heather Donahue, hélt í skóginum.
www.visirJs
MICHAEL WILLIAMS
8. október 1999 f Ókus
11