Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1999, Blaðsíða 18
Það eru félagsmiðstöövarnar Setrið, Músik og
Mótor, Verið og Vitinn sem sjá um móttökuna.
Á landsmótið koma 300 unglingar úr nem-
^enda- eða unglingaráðum félagsmiðstöðva
auk fjölmargra starfsmanna víðs vegar af
landinu til aö hittast og starfa saman í fjöl-
breyttri smiðjuvinnu. Einnig verða um 25 gest-
ir frá Danmörku. Boðið verður upp á mjög fjöl-
breytta og skemmtilega dagskrá. Eftir móttök-
una og setningu landsmótsins verður sund-
laugarpartí og grillveisla. Laugardagurinn er
tekinn snemma með morgunmat og smiðju-
vinnu, boðið er upp á USA-Iþróttir, fréttastofu,
ræðumennsku, vangaveltur, auglýsingastofu,
heimaslðugerö, tölvutónlist, útvarps-, leiklist-
ar-, ævintýra-, föndur-, uppistands-, afró-, lista-
mótor- og geimverusmiðju. Af þessari upp-
talningu má sjá að mikið er I boði og alls ekki
setið auðum höndum á laugardeginum. Um
kvöldið er síðan kvöldverðurí boði Hafnarfjarð-
*■ arbæjar og þá verður sýndur afrakstur ýmissa
smiðja. Hljómsveitln Gos spilar slöan fyrir
dansi. Á sunnudagsmorgninum er landsmót-
inu slitið og haldið heim á leið.
Ráðstefna verður haldin I Norræna húslnu um
það hvernig best sé að meika þaö sem popp-
stjarna. Popptónlistarmenn, útgefandi og
blaðamaður fjalla um umgjörð og möguleika
popptónlistar á hjara veraldar. Þátttakendur
taka virkan þátt I umræðunum. Öll dagskrá fer
fram á ensku enda taka um 12 þjóðir þátt I
þessari ráðstefnu. Umræðurnar byrja kl. 15
og halda áfram á morgun. Skráning og nánari
upplýsingar I síma 5510165. Allir eru vel-
komnir svo lengi sem þeir borga þátttökugjald.
iSport
Eggjabikarlnn í körfu karlaFimm leikir fara
fram I kvöld þar sem m.a.Hamar og Tindastóll
mætast I Hveragerði.
Nlssan-deildln i handbolta karla.Valur og
Stjarnan, eigast við á Hliðarendaen Víklngar
mæta ÍBV I Vestmannaeyjum.
Popp
Það verða hörkutónleikar I Félagslundl á Reyð-
_ arfirði I kvöld. Þeir hefjast kl. 19.30. Hljóm-
” sveitirnar sem spila eru allar hávaðasamar og
kröftugar: Soðmör, Spindlar, Einelti, Mínus og
Klink. Og yfirskrift tónleikana er llka öflug:
Sökkvum Eyjabökkuml. Hér eru þvl popparar
og rokkarar sem eru á öndverðum meiði við
innsetningar- og konseptliðið sem labbaði upp
að Eyjabökkum með þjóösönginn undir hend-
inni. Strið milli landshluta. Strlð milli list-
greina. (Og samkvæmt skoðanakönnunum -
strið miili kynja).
V' Ókeypis rokktónlelkar á Kakðbar Geysls.
Hér spila fimm erlendar hljómsveitir ásamt
hinum íslensku Mausurum. Þetta eru hljóm-
sveitirnar Candy Darllng frá Finnlandi, sem
minnir á Pixies, Merlln frá Litháen, sem er ein
allra vinsælasta hljómsveitin þar I landi, Siss-
isoq, sem koma frá Grænlandi og eru trash-
metalistar, Hatespeech frá Færeyjum, sem
spilar black-metal, og Blacky frá Eistlandi. Að
tónleikunum standa Nordklúbburinn, Norræna
húsið og íþrótta- og tómstundaráð Reykjavlk-
ur.Tónleikarnir byrja kl. 19.
GUESS
Watches
popp
Ert þú einn af þeim sem gengur um með poppstjörnudraum í maganum?
Þá er tækifærið sem þú hefur verið að bíða eftir'að finna í Norræna húsinu um
helgina. Þar verður nefnilega hægt að læra hvernig á að starta poppbandi
sem fær öruggar vinsældir og fúlgu fjár:
Lærðu að meika
_ JB *
ilrlfi íSslÉ S
11 lyjQI
„Það verður ekki mikið ráð-
stefnusnið á þessu. Við reynum
að hafa þetta frekar poppað," seg-
ir Stefán Vilbergsson, verkefnis-
stjóri Nordpopp-hátíðarinnar,
sem haldin verður í Reykjavík
um helgina. Hátiðin byrjar á ráð-
stefnu um norræna og baltneska
popptónlist þar sem blaðamaður-
inn Árni Mattiasson og útgefand-
inn Jens Guðfinnsson ræða um
umgjörð og möguleika popptón-
listar á hjara veraldar og erlendir
popptónlistarmenn miðla góðum
ráðum. Ráðstefnan fer fram á
ensku og þátttakendur taka virk-
an þátt í umræðunum.
12 mismunandi lönd
„Þessi ráðstefna er kjörin fyrir
alla þá sem áhuga hafa á tónlist,
hvort sem þeir eru bara hlustene-
dur eða eru sjálfir að vinna með
músík,“segir Stefán og upplýsir
að ríflega 100 manns frá 12 mis-
munandi löndum hafi nú þegar
skráð sig. Ráðstefnan byrjar kl. 15
á föstudag og lýkur með ailsherj-
ar tónleikum kl. 19 á laugardag og
er stefnan að þá verði ráðstefnu-
þátttakendur komnir fram með
uppskrift að þvi hvernig starta á
poppbandi sem fær öruggar vin-
sældir og fúlgu fjár.
Tónleikarnir á laugardags-
kvöldið verða haldnir á Kakóbar
Geysis og byrja eins og áður sagði
kl. 19. Þar munu fimm erlendar
hljómsveitir, ásamt hinum ís-
lensku Mausurum, stíga á stokk.
Þrusutónleikar
Erlendu hljómsveitimar sem
spila á tónleikunum eru Candy
Darling frá Finnlandi, sem spilar
tilraunarokk og minnir á Pixies,
Merlin frá Litháen sem er ein allra
vinsælasta rokksveit þar í landi,
Blacky frá Eistlandi sem spilar
kántrýpopp, Sussisiq frá Græn-
landi eru trash metalistar og
syngja gjcirnan um afrísk dýr og
Hatespeech frá Færeyjum spilar
black metcill.
„Þetta eru allt ungar og upp-
rennandi hljómsveitir í sínu
heimalandi og kjörið tækifæri til
að sjá hvað er að gerast í tónlistar-
bransanum hjá nágrannaþjóðum
okkar,“ segir Stefán og vill ekki
gefa upp hver af hljómsveitunum
honum þyki best. Þeir sem vilja
kynnast þessum hljómsveitum
nánar geta kíkt á heimasíðu hljóm-
sveitarinnar Candy darling sem er
www.sjoki.uta.fi/~latv-
is/yhtyeet/CandyDarl-
ing/index.html, heimasíða lithá-
ensku hljómsveitarinnar Merlin er
www.adecoma.lt/merlin/english/
og heimasíða Siissisoq frá Græn-
landi er www.angelfire.com/on/si-
issisoq/siissisoq.html.
Þess má að lokum geta að það er
ókeypis inn á tónleikana en þeir
sem vilja læra að slá í gegn í popp-
bransanum verða
að punga út
þátttökugjaldi á
ráðstefnuna.
Skráning og all-
ar nánari upplýs-
ingar fást í Nor-
ræna húsinu.
-snæ
Stefán Vilbergsson, verkefn-
isstjóri Nordpopp, er sjálfur
búinn að grafa alla sína popp-
stjörnudrauma en býður öðrum
sem enn hafa einhverja
drauma í þá átt að
taka þátt í popp-
ráðstefnu í Nor-
ræna húsinu um
helgina.
Bíóborgin
Eyes Wide Shut ★★★
Eyes Wide Shut er
draumleikur, dans á
mörkum Imyndunar og
veruleika, ferðalag innl
undirheima vitundarinnar
þar sem engir vegvlsar
finnast. Leiðarstef
Kubricks, afmennskun
og sálarleysi, eru forgrunni sögunnar en um
leið er þetta ein „mannlegasta" mynd hans, viö
finnum fyrir samkennd hans með aðalpersón-
unum en það stöðvar hann ekki frá þvl að fylgja
bölsýnni sannfæringu sinni allt til enda. -ÁS
Sýnd kl.: 5, 9
Analyze This ★★★ Ein af þessum dæmigerðu
skemmtimyndum sem daðra við sjónvarps-
gamanþáttaformið en ná að lyfta sér upp fyrir
það með því að notfæra sér þá byrði sem aðal-
stjörnur myndarinnar bera úr fyrri myndum. De
Niro er meinfyndinn sem illræmdur maflósi
sem fær mikið angistarkast og þarf að leita til
geðlæknis sem leikinn er af hvekktum Billy
Crystal. -ÁS
Sýnd kl.: 5, 7
Sex: The Annabel Chong Story ★★★ Mynd-
inni tekst að gera nokkuð vel grein fyrir þvl
hvernig persóna Anabel Chong er sem ákveður
að samrekkja 251 karlmanni á einum degi en
hún reynir einnig að grafast fyrir um það hvers
vegna hún taki þessa ákvörðun. Margt af þvi
sem hún segir er ekkert svo vitlaust en það
eyðileggur nokkuð fyrir málstað hennar að hún
er greinilega ekki alveg I lagi. -PJ
Bíóhöl 1 in
American Pie American
Pie er gamanmynd og
þykir húmorinn minna
mjög á There's Somet-
hing about Mary sem
segir okkur að hann er
frekar grófur og villtur.
Myndin fjallar um það
sem ungir sveinar þurfa
að fara I gegnum, að losna við sveindóminn.
Okkar strákar I myndinni eru nánast miður sín.
Hormónarnir flæða um líkamann en ekkert
gengur hjá þeim enda eru þeir með eindæmum
klaufalegir I öllum sínum tilburðum. Það sem
þeir ná ekki að skilja er að stelpunum er alveg
jafnannt um að missa meydóminn. í stað þess
að gripa gæsina eru þeir I töffaraleik sem ekki
gengurupp.
Sýnd kl.: 5, 7, 9, 11
The Haunting Tæknibrelluhrollvekjudrauga- og
ástarsaga með Liam Nesson og Catherine
Zeta-Jones. Leikstjóri er Speed-maðurinn Jan
De Bont.
Sýnd kl.: 5, 7, 9, 11
Inspector Gadget Sumar teiknimyndaseriur
eiga aðeins að vera teiknimyndaseríur og ekk-
ert annað, þannig er það með Inspector
Gadget. Þessi bjargvættur er flgúra sem geng-
ur upp I teiknimynd en ekki I leikinni mynd. Eins
og svo oft hefur sannast er lítið varið I tækni-
brellurnar ef ekkert kjöt er á beinunum og fljótt
verður maður leiður á öllum brellunum vegna
þess að þaö er nánast ekki boðið upp á neitt
annað. -HK
Sýnd kl.: 9
Sýnd kl.: 5, 7, 9, 11
Limbo ★★★* John Sayles tekur mikla áhættu
I Limbo þegar hann breytir rómantlskri sögu um
tvær manneskjur, sem nálgast miðjan aldurinn
og hafa orðið undir I llfinu, I dramatískt ævintýri
um hvernig hægt er að komast af I auðnum
Alaska. Sayles er vandanum vaxinn og vinnur
vel úr persónum slnum. Hann sýnir nýjar hliðar
á þeim sem ekki var hægt að merkja áður og
má segja að SayJes neyði okkur til að gleyma
þvl sem persónurnar voru áður og taka við
þeim á nýjan leik. Frábær úrvinnsla sem skilar
sér I sterku drama. -HK
Sýnd kl.: 5, 9, 11.15
Prince Valiant ★★ Gamaldags ævintýramynd
sem öll fjölskyldan ætti að geta skemmt sér
yfir. Atburðara¥sin er hröð og ágætur húmor inn
á milli. Leikarar eru flestir lítt þekktir og er dá-
lítill byrjendabragur á leik þeirra, þeir reyndustu
á borð við Edward Fox og Joanna Lumley eru á
heimaslóðum og fara létt \ gegn um sín hlut-
verk. -HK
Sýnd kl.: 5, 7, 9,11
Blg Daddy ★★ Adam Sandler hefur leikið I
nokkrum kvikmyndum á undanförnum misser-
um og satt best að segja hefur hann verið eins
I þeim öllum, rótlausi sakleysinginn sem I aug-
um fjöldans er langt I frá að vera eitthvert
gáfnaljós, en er einstaklega klár þegar á reynir,
mikið gæðablóð inni við beinið og nær alltaf I
fallegu stúlkuna I lokin. Þannig er hann I þess-
ari mynd. -HK
Sýnd kl.: 5, 7, 9, 11
Eyes Wide Shut ★★★
Sýnd kl.: 5, 9
Star Wars Episode 1 ★★ Fátt vantar upp á
hina sjónrænu veislu, stjörnustrlðsheimur
Lucasar hefur aldrei fyrr verið jafn kynngimagn-
aður og blæbrigðaríkur. Allt er þetta þó frekar
eðlileg þróun en einhvers konar bylting, eldri
myndirnar standast ágætlega samanburöinn.
Hins vegar vantar nokkuð upp á skemmtilega
persónusköpun, nauðsynlega eftirvæntingu og
hin Ijúfa hroll óvissu og uppgötvana sem er að-
all ævintýrasagna. -ÁS
Sýnd kl.: 4,30, 7
Matrix ★★★ „Fylkið stendur... uppi sem sjón-
ræn veisla, sci-fi mynd af bestu gerð, og er ekki
til neins annars til bragðs að taka en að fá sér
bita. -HVS
Sýnd kl.: 9.30
Háskólabíó
Dðttlr forlngj-
ans ★★ Byrjun-
in lofar góðu en
á einhvern hátt
tekst að klúðra
skemmtilegri
sakamálafléttu
og koma henni niður á plan miölungs kvikmynd-
ar. Stjörnudýrkunin er I hámarki þar sem John
Travolta leyfist allt og eru misvitrir handritshöf-
undar oft I vandræðum með að láta söguna
ganga upp. -HK
Sýnd kl.: 6.45, 9,11.15
Notting Hill ★★★ Eru kvikmyndastjörnur
venjulegt fðlk eða einhverjar ósnertanlegar ver-
ur sem best er að virða fýrir sér I nógu mikilli
fjarlægð svo þær missi ekki Ijómann. Um þetta
fjallar Notting Hill og gerir það á einstaklega
þægilegan máta. Myndin er ein af þessum
myndum sem ekki þarf að kafa djúpt I til að sjá
hvar gæðin liggja, hún er ekki flókin og er meira
að segja stundum yfirborðskennd en alltaf
þægileg og skapar vissa vellíðan sem fylgir
manni út úr kvikmyndahúsinu. -HK
Sýnd kl.: 6.45, 9
Svartur köttur, hvítur köttur ★★★* Emir
Kusturica sannar enn einu sinni snilld slna I
kvikmyndinni Svartur köttur, hvltur köttur, ein-
hverjum skemmtilegasta farsa sem sést hefur
I langan tima. Myndin sem kemur I kjölfarið á
meistaraverki Kusturica, Underground, er laus
við alla pólitlk sem hefur yfirleitt verið að finna
I myndum Kusturica. -HK
Sýnd kl.: 11
Ungfrúin góða og húsið ★★★ Eftir dálitið
hæga byrjun er góöur stígandi I myndinni sem
er ágæt drama um tvær systur snemma á öld-
inni. Tinna Gunnlaugsdóttir og Ragnhildur
Gísladóttir ná einstaklega góðu sambandi við
perónurnar og sýna afburðaleik. Vel er skipað
I minni hlutverkin og það hefur ekkert að
sega þótt hinir norrænu leikarar tali sitt eigið
tungumál er aðeins hluti af vel heppnaöri kvik-
mynd. -HK
Sýnd kl.: 5, 7, 9
Síðasti söngur Mifune ★ Er þetta ekki orö-
ið ágætt, strákar? Þessi nýjasta dogma-
mynd er hávaöasöm, ruglingsleg og óspenn-
andi og hefur ekkert sérstakt fram að færa.
Hér er galdurinn við Festen og óskammfeiln-
m I Fávitunum vlðs fjarri en eftir situr grautur
af kfisjum sem viröist hafa verið hent saman
til þess að reyna að búa til eitthvað sniðugt.
Allt um möður mína ★★★ Afbragðs
skemmtun og þakklát mynd fyrir okkur sem
lifum á alltof einhæfu biófæöi. Hér er nefni-
lega komin evrópsk mynd sem gefur snjöll-
ustu sápuóperum vestanhafs ekkert eftir I
þessum flóknu fléttum sem samt er svo auð-
velt aö fýlgja eftir. Munurinn er hins vegar sá
að Almodovar hefur ferska sýn á þetta út-
jaskaða form, melódramað. -ÁS
Sýnd kl.: 7, 9, 11
Fucking Amal ★★★ Hráslagaleg mynd sem
borin uppi af góðum leik og persónusköpun,
þar sem leitast er við að spila gegn heföinni.
18
f Ó k U S 8. október 1999