Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1999, Qupperneq 4
Hvar va
- sunnud. 27.
1968 kl. 6 árdegls
Ólafur Gunnarsson rithöfundur.
Ég var í
bíltúr með
unnustunni
„Ég reif mig nú ekkert sérstak-
lega upp kl. 6 um morguninn til
þess aö fylgjast með umferðar-
breytingunni en aftur á móti fór
ég í bíltúr þegar nær dró hádeg-
inu. Á þessum tíma átti ég bláan
Chevrolet station, árgerð ‘57. sem
var afskaplega glæsilegur bill og
ég sé mikið eftir. Ég man ég fór og
náði í þáverandi unnustu mína
og núverandi konu mína í Heiðar-
gerði og við hringsóluðum um
bæinn. Það var eitthvert átak í
gangi þennan dag þar sem öku-
menn voru hvattir til að brosa
sem mest. Umferðin gekk mjög
vel en ég man þó að mér fipaðist
einu sinni í akstrinum en þá kom
lögregluþjónn aðvífandi og benti
mér á að fara á aðra akgrein.
Áður en breytingarnar gengu í
gegn var ég ekkert sérstaklega
hlynntur hægri umferð og skildi
ekki af hverju verið var að breyta
þessu. Nokkrum mánuðum
seinna fannst manni þetta hins
vegar bara vera hið besta mál og
ég er náttúrlega alveg orðinn van-
vu- þessu í dag.“
Hægri umferö tök gildi á íslandi 27. maí
1968 klukkan 6 um morguninn. Skoöanir
María Ellingsen á einn fjölbreyttasta feril
íslenskra leikara. Hún hefur verið í sápu-
óperu, Hollywood-myndum, metnaðarfullum
leikhúsverkum og auðvitað rammíslenskum
kvikmyndum. í kvöld umbreytist hún svo í
Sölku Völku í Hafnarfjarðarleikhúsinu.
Fókus tók púlsinn á henni og fékk hana
auk þess til að rifja ferilinn upp.
Kona á buxu
María Ellingsen stendur í
ströngu þessa dagana. í kvöld
frumsýnir Hafnarfjarðarleikhúsið í
samvinnu við Annað svið Sölku
Völku eftir Halldór Laxness i
leikgerð Hilmars Jónssonar og
Finns Arnar. En Maria leikur
einmitt Sölku og á frumkvæðið að
þessari sýningu sem hún hefur
gengið með í maganum í mörg ár.
„Salka hefur verið í uppáhaldi
hjá mér frá því ég var lítil stúlka
því ég sá alltaf svolítið af sjálfri
mér í henni,“ segir María og bætir
því við að Salka hafi upphaflega
verið hugsuð sem kvikmyndahand-
rit sem Laxness skrifaði í
Hollywood og hét þá Women in
Pants - Kona á buxum. „Svo er ég
líka hálfur Færeyingur, ólst upp að
hluta til, á sumrin, hjá afa mínum
sem var sjómaður í Færeyjum.
Þess vegna er þessi heimur sem
lýst er í Sölku Völku mér mjög
hugleikinn ...“
En þetta er einmitt ástæðan fyr-
ir því að María vippaði litla leik-
húsinu sínu, Annað svið, upp úr
vasanum. En Annað svið hefur
m.a. sett upp Svaninn sem sýndur
var í Borgarleikhúsinu 1997.
Útgerðarfólk og fyrirtæki
Nú eru Annaö sviö og Hafnar-
fjaröarleikhúsiö ekki stórfyrirtœki
og viö uppsetningu svona stórrar
sýningar þarf auövitaö fjármagn og
sagan segir að þú hafir fariö í þaö
mál?
„Já,“ segir María og kímir. „Það
var mikið ævintýr. Ég fór og hitti
útgerðarmenn og -konur á Suður-
nesjum og víðar. Og þau ásamt öðr-
um góðum fyrirtækjum tóku hönd-
um saman og standa bak við þessa
sýningu ásamt menntamála-
ráðuneytinu.“
Salka er því ekki bara hlutverk
fyrir Maríu heldur eitthvað sem
hún hefur lagt á sig ómælda vinnu
til að koma á fjalimar. Þetta byrj-
aði þannig að hún fékk Hilmar
Jónsson leikstjóra til liðs við sig og
hann ákvað að skrifa leikgerðina.
Fékk Finn Amar leikmyndahönn-
uð strax til liðs við sig hvað hug-
myndavinnu varðar. Og nú er
verkið tilbúið og auk Maríu leika
þau Benedikt Erlingsson, Gunn-
ar Helgason, Þrúður Vilhjálms-
dóttir, Magnea Björk Þorvalds-
dóttir, Þorvaldur Kristjánsson,
Jóhanna Jónas, Dofri Her-
mannsson og Jón Stefán Krist-
jánsson í verkinu.
Heima er best
Ferillinn hér á síðunni er vægast
sagt stórmerkilegur og fjölbreyttur
ferill leikkonu.
„Ég hef verið mjög heppin," seg-
ir María um ferilinn, „og er þakk-
lát fyrir öll þessi tækifæri sem ég
hef fengið."
En séröu ekkert eftir þvi aö hafa
aldrei hellt þér út í meikiö?
„Hlutverkin sem standa konum,
hvað þá útlenskum konum, til boða
eru frekar ófullnægjandi og þegar
ég sá stórar kvenstjömur vera líka
að leika ófullnægjandi hlutverk
fannst mér þetta ekki efnilegt. Ég
er allavega ekki í leiklist til að
eignast sundlaug með marmara-
botni en um það snemst samræð-
urnar í búningsherbergi leikar-
anna í Santa Barbara."
Er mikill munur á bíóleik og leik-
húsleik?
„Leikhúsið er heimili leikarans.
Þar þroskast hann og vex á æfinga-
tímanum en í kvikmyndum er
sama og enginn æfingatími. En
bæði formin hafa sína töfra.“
Svo það er engin eftirsjá í aö vera
alkomin heim?
„Ég er nú það mikill íslending-
ur í mér að það skiptir mig miklu
máli að vera héma. Maður fer
líka til útlanda til að koma aftur
heim, reynslunni ríkari. En auk
þess er ég enn þá með umboðs-
menn úti og mjög gott að loka
glugganum ekki alveg,“ segir Mar-
ía og bætir því við, svona að lok-
um, aö henni finnist samt lífið
vera meira en leiklist. „Maður á
sína fjölskyldu og vini og það
skiptir mig mjög miklu máli. Mér
finnst leiðinlegt að fá fax um að
vinkonur mína séu búnar að eign-
ast böm. Ég vil vera héma.“
manna um nauösyn breytingar frá vinstri til
hægri höföu veriö skiptar en eftir aö endan-
leg ákvöröun var tekin lögöu flestir sig fram
til aö tryggja aö breytingin mætti takast
sem best. Gekk breytingin áfallalaust fyrir
sig um land allt og mjög lítiö var um um-
feröaróhöpp. Margir Reykvíkingar vöknuöu
snemma og voru komnir út á götu til þess
að fylgjast meö umferöarbreytingunum.
GRI
Ferill
1988
Útskrifaðist sem leikari
frá New Vork University
Ef ég væri þú - Þjóöleik-
húsiö
Óvitar - Þjóöleikhúsiö
Ofviöriö - Þjóölelkhúsiö
Foxtrott - Frostfilm
1989
Hættuleg kynni - Þjóö-
leikhúsiö
Sjúk I ást - Annaö sviö
Magnús - Nýtt líf
1990
Endurbyggingin - Þjóö-
leikhúsiö
Vlkivaki - RÚV
1991-1992
170 Santa Barbara-
þættir - NBC
1993
Curucao - Showtime
The Mighty Ducks II -
Disney
1994
Vasaleikhúsið - RÚV
The New Age - Warner
Bros.
Laggó - RÚV
1995
Trójudætur - Hvunn-
dagsleikhúsiö
Agnes - Pegasus
1996
Fagra veröld - LR
Largo Desolato - LR
Konur skelfa - Ajheims-
leikhúsiö
1997
Svanurinn - Annaö sviö
OgLR
Bein útsending - Loft-
kastalinn
1998
Stikkfrí - íslenska kvik-
myndasamsteypan
Hjartans mál - RÚV
Síðasti bærinn í dalnum
- Hafnarfjaröarleikhúsiö
1999
Virtuoso - Maksla Prod-
uctions
Beöiö eftir Becket -
Annaö sviö og RÚV
Dómsdagur - RÚV
Salka Valka - Hafnar-
flaröarleikhúsiö og Ann-
aö sviö
EN Efc EKKl SAMT oXUílO KKEYTAkíÞI AO
VERA öv/OWA ©►6KK.TUR ?
JÁ, VAR KAÐHANN? £G SA KÁTTINN...
ÞÚ ER.T BAR.A DÁlDIO LÍKUR HONUM
EG ER E.KKI OKEKKTUR -
DISCOVERY, S'ÍNDURÍ
PABBl VAR A
■?2 LÖNDUM
f Ó k U S 22. október 1999
4