Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1999, Qupperneq 15
<
Heather Graham og Eddie Murphy í hlutverkum smástirnisins og kvikmyndastjörn-
unnar.
Kennedy, Robert Downey jr. (sem
sjálfsagt hefur ekki séð myndina
þar sem hann situr í fangelsi) og
Terence Stamp.
Leikstjóri Bowfinger er Frank
Oz sem fyrst varð frægur sem
meðreiðarsveinn Jims Hensons i
sköpun Prúðu leikaranna þar
sem hann skapaði raddir á bak
við sumar af vinsælustu persón-
unum. Fyrsta kvikmyndin sem
hann leikstýrði var brúðumyndin
The Dark Crystal. í kjölfarið kom
The Muppets Take Manhattan.
Aðrar kvikmyndir sem hann hef-
ur leikstýrt eru Litlle Shop of
Horrors, Dirty Rotten Scoundrels,
What About Bob?, Housesitter,
The Indian In the Cupboard og In
& Out. Bowfinger er fimmta kvik-
myndin sem þeir Frank Oz og
Steve Martin starfa saman við.
Steve Martin fékk hugmyndina
að Bowfmger fyrir tíu árum og
hafði lengi gælt við að skrifa hand-
ritið en lét loks verða af því í fyrra.
Upprunalega hafði hann í huga
hvítan leikara í hlutverk kvik-
myndastjörnunnar en þegar fram-
leiðandinn Brian Glazer, sem hafði
framleitt The Nutty Professor með
Eddie Murphy, stakk upp á
Murphy í hlutverkið leist honum
vel á hugmyndina og breytti hand-
ritinu svo það félli betur að Eddie
Murphy. Bowfinger, sem sýnd
verður í Háskólabíói, hefur verið
sýnd í Bandaríkjunum undanfarn-
ar vikur og notið ágætrar aðsókn-
ar. -HK
Háskólabíó frumsýnir í dag gamanmyndina
Bowfinger þar sem þeir mætast í fyrsta
sinn grínistarnir Eddie Mutphy og
Sfeve Martin í kvikmynd eftir
handriti Martins um gjaldþrota
kvikmyndaframleiðanda sem
sér leið út úr ógöngunum.
Bobby Bowfinger er nærri gjald-
þrota kvikmyndaframleiðandi og
leikstjóri sem sér fram á að allir
draumar hans eru að verða að
engu. í örvæntingu sinni ákveður
hann að freista gæfunnar einu sinn
enn og láta sem hann sé að fara að
gera stórmynd. Þar sem hann á
enga peninga fær hann til liðs við
sig utangarðsfólk í kvikmynda-
bransanum sem til er í að látast
vera meira en það er og gerir
helstu kvikmyndastjörnunni í
Hollywood tilboð sem hann getur
ekki neitað en auðvitað er það sem
er á yfirborðinu, dýr Hollywood-
kvikmynd, aðeins yfirklór til að
plata stjömuna til að samþykkja
hlutverkið.
Steve Martin leikur kvikmynd-
framleiðandann Bobby Bowfinger
og Eddie Murphy kvikmynda-
stjömuna Kit Ramsey og hann leik-
ur einnig bróður stjörnunnar, Jiff,
sem er mun viðkunnanlegri en um
leið einfaldari.
Fjöldi þekktra leikara er í auka-
hlutverkum. Má þar nefna Heather
Graham sem leikur smástirnið
Daisy, Christine Barinski, Jamie
Þýska kvikmyndin Lola Rennt er
vinsælasta kvikmyndin sem komið
hefur frá Þýskalandi í mörg ár og
nýlega var hún frumsýnd í Banda-
ríkjunum þar sem hún fékk al-
menna dreifingu. Hefur aðsókn á
hana verið góð þegar miðað er við
að hún er aðeins sýnd í stærstu
borgunum. Þetta er athyglisvert
þar sem ekki hefur mikið farið fyr-
ir þýskum kvikmyndum á alþjóð-
legum kvikmyndamarkaði á und-
anfomum árum en þýsk kvik-
myndagerð hefur verið að rétta úr
kútnum eftir lægð og er Lola Rennt
dæmi um hina nýju þýsku kvik-
mynd sem tekur mið af alþjóðleg-
um markaði. Lola Rennt var sýnd á
Kvikmyndahátíð í Reykjavík og
vakti athygli og hefur nú verið tek-
in til sýningar aftur.
í myndinni byrjum við að fylgj-
ast með smákrimmanum Manni
sem vinnur fyrir mafiuna. Þótt
hann haldi öðru fram þá er Manni
aðeins ómerkileg senditík en hann
hefur metnað og er ákveðinn í að
vinna sig í virðingarstöðu innan
mafíunnar. Unnusta hans er hin
pönkaða Lola sem er mun meiri
harðjaxl en kærastinn, eins og
kemur í ljós þegar Manni í
stresskasti hendir frá sér tösku
með 100 þúsund mörkum í neðan-
jarðarlest þegar hann sér tvo lög-
reglumenn nálgast. Manni er sem
sagt kominn í djúpan skít og í öng-
um sínum biður hann Lolu að
bjarga sér. Lola hefur aöeins tutt-
Ein athyglisverð-
asta kvikmyndin á
síðustu kvikmynda-
hátíð í Reykjavík,
Hlauptu Lola,
hlauptu, hefur verið
tekin til sýningar í
Stjörnubíói
ugu mínútur til að bjarga kærast-
anum því að þeim tíma loknum
verður Manni að standa skil á fjár-
hæðinni. Lola þarf því að stíga
bensínið í botn og fer hún um alla
Berlín í björgunaraðgerðum sín-
um.
Leikstjóri myndarinnar, Tom
Tykwer, er í dag einhver eftirsótt-
asti leikstjóri Þjóðverja. Áður en
hann gat snúið sér alfarið að kvik-
myndagerð rak hann kvikmyndhús
í Berlín og skrifaði handrit í hjá-
verkum. Hann leikstýrði sinni
fyrstu kvikmynd 1993. Lola Rennt
er fjórða kvikmyndin sem hann
gerir.
Lola Rennt hefur unnið til fjölda
verðlauna í Þýskalandi og var til-
nefnd til evrópsku kvikmyndaverð-
launanna í fyrra sem besta kvik-
mynd. Þá þótti áhorfendum á Sund-
ance-kvikmyndhátíðinni í ár hún
það góð að þeir völdu hana bestu
kvikmyndina. -HK
Pfeiffer hætt - í bili
Nýjasta kvikmynd Michelle
Pfeiffer, The Story of Us, þar
sem hún leikur á móti Bruce
Willis, hefur fengið misjafnar
viðtökur, aðsóknin er rétt
sæmileg þegar miðað er við
hvað þessir leikarar eiga að
venjast og gagn-
rýnendur eru ekki
hrifnir. í nýju við-
tali segir Pfeiffer
að hún ætli að
taka sér langt frí,
jafnvel hætta að
leika í kvik-
myndum. Hún
eigi tvö börn
sem hún ætli að
hugsa um og
hafi margt annað á prjónunum:
„Ég fer þó ekkert í felur eins og
Greta Garbo, ég á frægan eigin-
mann (sjónvarpsframleiðand-
inn David E. Kelley) og verð því
eitthvað áfram í sviðsljósinu."
Áður en hún hverfur tímabund-
ið af sjónarsviðinu eigum við
eftir að sjá Michelle Pfeiffer i
What Lies Beneath þar sem
hún leikur á móti Harrison
Ford, en sú mynd verður frum-
sýnd á næsta ári.
Norton í Motherless
Brooklyn
Ekki er hægt að segja að Ed-
ward Norton fari auðveldu leið-
ina í hlutverkavali, en hann
hefur sýnt og sannað að hann
ræður við erfið hlutverk. Eftir
að hafa aðeins
leikið í fimm
kvikmyndum
á hann að baki
tvær óskar-
stilnefningar,
fyrir besta
aukahlutverk
í Primal Fear
og besta að-
alhlutverk í
American
History X
og hann
gæti alveg
eins bætt þriðju
tilnefningunni við fyrir leik
sinn í The Fight Club sem
frumsýnd var um síðustu helgi.
Ekki bíður hans auðveldara
hlutverk í Motherless Brook-
lyn þar sem hann mun leika
lögreglumann sem rannsakar
morðmál, en lögreglumaðurinn
er með taugasjúkdóminn
Tourette Syndrome, sem veldur
ósjálfráðum hreyfingum og
hljóðum. Norton verður einn
framleiðenda myndarinnar sem
byggð er á skáldsögu eftir Jon-
athan Lethem. Þessa dagana er
Norton að leggja síðustu hönd á
Faith, sem er fyrsta kvikmynd-
in sem hann leikstýrir.
Hugh Grant í föður-
hlutverki
Nick Homby er rithöfundur
sem virðist í miklum metum í
kvikmyndaheiminum. Þegar er
verið að kvikmynda High
Fidelity, eftir skáldsögu hans
um ungan tónlistarmann sem
John Cusack
leikur og Steph-
en Frears leik-
stýrir, og nú hef-
ur Robert De
Niro tryggt sér
réttinn á
About a Boy.
Sagan fjallar
um mann sem
kominn er
hátt á fertugsaldurinn en
hann telur að besta leiðin til að
hitta hina fullkomnu konu sé að
þykjast vera einstæður faður.
De Niro hefur fengið Hugh Gr-
ant til að leika aðalhlutverkið,
sjálfur mun hann framleiða
myndina og Ian Softley (Wings
of the Dove) leikstýra. Þessa
dagana er Grant að leika í nýj-
ustu kvikmynd Woody Allens,
sem ekki hefur fengið nafn enn
sem komið er.
22. október 1999 f ÓkUS
15