Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1999, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1999, Side 15
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1999 15 Sex milljarðasti íbúi jarðar „Verið frjósöm, margfaldist og upp- fyllið jöröina," segir í Fyrstu Mósebók. Ný- lega var tilkynnt að sex milljarðasti íbúi jarðarinnar væri fæddur. Hraði fólks- fjölgunarinnar eykst og stutt er í að við verðum 10 milljarðar. Þrátt fyrir batnandi lífskjör og aukna tækni á Vesturlöndum eykst bilið miili ríkra og fátækra og stöðugt fleiri draga vart fram lífið vegna fátæktar. Þeir svartsýnustu telja að við séum þegar orð- in of sein að grípa inn í þróunina, of sein að hjálpa verst settu þjóðunum. Kjallarínn Umhugsunarefni Tölurnar eru svo stórar að menn skynja þær ekki. Vandamálin svo mörg og stór að menn gefast upp á að hugsa um þau. En ef við reynum að ein- falda stööuna til þess að átta okkur betur á henni. Hugsum okk- ur að aðeins lifðu 100 manns á jörðinni en samsetning þeirra væri sú sama og nú er. Tölumar verða viðráðanlegar og hugsanlegt að menn nái betur yfírsýn hvemig málin standa. Þá væra á jörðinni: 57 Asíubúar, 21 Evrópubúi, 14 byggju Guömundur G. Þórarinsson verkfræðingur í Suður- og Norður Ameríku, 8 Afríkubúar. 30 væm hvítir, 30 væru kristinnar trúar, 6 einstak- lingar ættu helming af auði heims- ins og þeir byggju allir í Banda- „Hraði fólksfjölgunarínnar eykst og stutt er í að við verðum 10 milljarðar. Þrátt fyrir batnandi iífskjör og aukna tækni á Vestur- löndum eykst bilið milli ríkra og fátækra og stöðugt fleiri draga vart fram lífið vegna fátæktar.“ Og svo kemur rúsínan í pylsu- endanum ef þessar tölur em ekki allar slíkar rúsínur. Einn maður á jörðinni hefði háskólamenntun! - Samandregnar gefa tölumar okk- ur þá yflrsýn sem okkur er nauðsyn- leg til þess að átta okkur á ástandinu á jörðinni sem við lif- um á. ríkjunum. Aðeins 30 væm læsir. 50 þjáðust af næringarskorti, 80 lifðu í húsum sem fullnægja ekki kröfum til nútíma húsnæðis i okk- ar þjóðfélagi. „Töiurnar eru svo stórar að menn skynja þær ekki. Vandamalin svo mörg og stór að menn gefast upp á að hugsa um þau,“ segir greinarhöfundur og vitnar til hraða fólksfjölgunar í heiminum. Horfið á okkur deyja Fyrir nokkra sá ég kvikmynd sem hafði gríðarleg áhrif á mig. Nafn myndar- innar var „Horfið á okkur deyja“. Ungur maður gekk út í eyðimörkina í Afríku með konu sína og böm og hellti yfir sig og þau bensíni, ætlaði að kveikja í. Engin von, engin vinna, enginn matm-. í neyðinni reis upp foringi sem safnaði fólkinu saman og sagði: Evrópa er rík. Þeir skilja bara ekki hvemig komið er. Við skul- um ganga til Evrópu og láta þá horfa á okkur deyja. Þá munu þeir skilja. Og hersingin lagði af stað. Stöðugt fjölgaði, milljónir og millj- ónir og milljónir hálfnakins og hungraðs fólks sem ekkert hafði til neins, bókstaflega ekkert. Þegar að Gíbraltarsundi kom voru spumir famar að berast til Evrópu. Menn áttuðu sig á vand- anum, vildu ekki fá þennan ófógn- uð yfir sig, héldu fundi og lofuðu og lofuðu ef fólkið sneri aftur. Sundraður heimur andstæðna. Eftir snjallar hátíðarræður finnst mönnum þeir hafa lagt sitt til mál- anna. Það verður að gera eitthvað segja menn, það sjá allir segja menn og leggjast sáttir til svefns. Þeir eru búnir að gera sitt. Guðmundur G. Þórarinsson Mikilvæg réttarbót fyrir neytendur Fjögur mikilvæg frumvörp til laga sem varða rétt neytenda lágu fyrir Alþingi á síðastliðnum vetri án þess að þau yrðu að lögum. Um er að ræða lagafrumvarp um inn- heimtustarfsemi, frumvarp til nýrra kaupalaga og laga um þjón- ustukaup, auk frumvarps um ábyrgðarmenn. Þrjú fyrstu eru stjórnarfrumvörp og framvarp til laga um ábyrgðarmenn var lagt fram í nafni þingmanna úr öllum flokkum. Hvatning til þingmanna Neytendasamtökin telja afar mikilvægt að frumvörpin verði öll lögð að nýju fyrir yfirstandandi þing og hljóti þar afgreiðslu enda er að finna í þeim ýmis mikilvæg hagsmunamál fyrir neytendur. Neytendasamtökin hafa raunar skrifað Finni Ingólfssyni við- skiptaráðherra bréf þar sem þau mælast til þess að stjómarfrum- vörpin þrjú verði endurflutt. Þetta tækifæri er einnig notað tU þess að hvetja viðkomandi þingmenn til að endurflytja frumvarp tU laga um ábyrgðar- menn. íslensk neytendalöggjöf stendur löggjöf ýmissa annarra Evrópulanda langt að baki. Yfirlýs- ingar stjórnvalda vekja þó vonir um að úr þessu verði bætt. Samþykkt frumvarpanna fjögurra yrði stórt skref í þá átt. Réttlætismál Frumvarpið um innheimtustarf- semi felur í sér afar mikUvæga réttarbót fyrir þá sem rata í greiðsluerfiðleika og geta ekki staðið við skuldbindingar sínar. í frumvarpinu er gert ráð fyrir að þeir sem hafa innheimtukröfu tU meðferðar geti ekki lengrn- ráðið því hvaða þóknun er tekin. Sem stendur getur skuldareig- andi valið inn- heimtuaðUa án þess að skuldari geti nokkru um ráðið. Varnarleysi skuldar- ans er algjört og hann verður að sætta sig við þá upp- hæð sem kröfuhafi setur upp vegna þjónustu sinnar. Samþykkt frum- varpsins myndi bæta þama úr en því mið- ur hefur þröng hags- munaklíka inn- heimtulögmanna náð að hindra fram- gang þessa réttlætis- máls á undanfomum þingum. Neytenda- samtökin skora á stjómvöld að láta það ekki viðgangast lengur. Kaupalög og lög um ábyrgðarmenn í öðra lagi telja Neytendasam- tökin afar brýnt að ný kaupalög verði afgreidd á yfirstandandi þingi. Núgildandi kaupalög eru frá árinu 1922. Þau eru um margt ófullkomin og standa sambæri- legri löggjöf á Norðurlöndum langt að baki. í frumvarpinu er meðal annars kveð- ið á um lengri ábyrgð- artíma. í þriðja lagi þarf að samþykkja frumvarp til laga um þjónustukaup en um það hafa ekki staðið deilur. Framvarp Lúðvíks Bergvinssonar og fleiri þingmanna um ábyrgðarmenn myndi jafhframt verða mikil réttarbót fyrir neyt- endur. Samkomulag við lánastofnanir sem meðal annars Neyt- endasamtökin stóðu að ná ekki að tryggja rétt neytenda í þess- um efnum svo full- nægjandi sé. Neytendasamtökin hafa fjallað um þessi frumvörp og gert við þau fjölmargar athugasemdir enda er það eitt af mikilvægum hlutverk- um samtakanna að hafa áhrif á setningu laga sem snerta hag neyt- enda. Við treystum því að frum- vörpin fjögur verði til umfjöllunar á Alþingi í vetur og munum fylgj- ast grannt með afgreiðslu þeirra. Jóhannes Gunnarsson „íslensk neytendalöggjöf stendur löggjof ýmissa annarra Evrópu- landa langt að baki. Yfírlýsingar stjórnvalda vekja þó vonir um að úr þessu verði bætt. Samþykkt frumvarpanna fjögurra yrði stórt skref í þá átt.u Kjallarinn Jóhannes Gunnarsson formaöur Neytenda- samtakanna Með og á móti Eru veðurfréttir í sjónvarpi að drukkna í flóði auglýs- inga og ffétta? Veöurstofustjóri hefur lýst yfir áhyggjum sínum vegna þess aö vart sé hægt aö fylgjast meö veöurfregn- um f sjónvarpi lengur vegna auglýs- ingaflóös og skörunar á fréttatimum Ríkissjónvarpsins og Stöövar 2. Samkeppnis- hernaður Magnús Jónsson veöurstofustjóri. Mér finnst það merkilegt að á markaði sem er ekki stærri en sá íslenski, með tvær stórar sjónvarps- stöðvar, þurfi fréttir og veð- ur að vera hvert ofan í öðru. í útlönd- um get ég horft á veður og fréttir í sjónvarpi án þess að það rekist á. í út- löndum em menn ekki í sam- keppnishemaði þar sem barist er um sömu mínútumar. Ríkis- sjónvarpið og Stöð 2 eru með fréttatíma sína hver ofan i öðr- um. Afleiðingamar verða þær að veðurfregniraar em á þeim tíma sem fréttatímarnir skarast. Menn geta því átt það á hættu að missa af veðurfregnum í sjón- varpi þó svo þeir vilji og jafnvel þurfi að sjá þær. Þá gagnrýni ég að menn stilli veðurfréttunum upp eftir auglýsingahlé og brjóti þar allar reglur en það er önnur saga. Ég vil sjá veðurfregnir sem eðlilegan hluta af fréttum og tel þær reyndar vera í eðli- legra samhengi við fréttir en til dæmis íþróttir. Ég vil geta horft á veðurfregnir í Ríkissjónvarp- inu án þess að sleppa fréttum á Stöð 2 og öfugt. Óþarfa áhyggjur Ég hef engar áhyggjur af því að íslendingar fylgist ekki með veðrinu sem skyldi. Þetta er einu sinni aðalumræðu- efni allra þeirra sem tala á íslandi. Fréttastofa Stöðvar 2 hef- ur lagt sig í lima við að þjóna veður- þyrstum Is- lendingum og samkvæmt síðustu könnunum horfir ná- læga helmingur landsmanna á aUa aðalfréttatíma Stöðvar 2 og þar með væntanlega á veðrið sem við höfum sett í mjög heill- andi búning aö mati allra sem til þekkja. Þar að auki er veður- fréttum sinnt reglulega í út- varpsmiðlum okkar og miðað við það magn af veðurfréttum sem viö flytjum í miðlum okkar á hverjum degi og miðað við þá hlustun og áhorf sem við njót- um, þá held ég að áhyggjur veð- urstofustjóra séu óþarfar. Sá sem missir af veðri á íslandi er sjálfsagt að missa af líflnu öllu. -EIR Kjallarahöfundar Athygli kjallarahöfunda er vakin á því að ekki er tekið við greinum í blaðið nema þær ber- ist i stafrænu formi, þ.e. á tölvu- diski eða á Netinu. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni á stafrænu formi og i gagnabönk- Sigmundur Ernir Rúnarsson aðstoó- arfréttastjóri. Netfang ritstjómar er: dvritst@ff.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.