Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1999, Page 19
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1999
27
I
Sviðsljós
s
Islenskir kvikmyndalistarunnendur ættu aö þekkja þessa konu, spænsku
leikkonuna Penelope Cruz. Hún leikur í mynd Almodovars, Allt um móður
mína. Penelope var viö frumsýningu hennar vestan hafs um helgina.
Robbie í stríði
við Minouge
Robbie Williams hjálpaði Kylie
Minouge að skrifa þrjú ný lög.
Fyrirhugað er að eitt af lögunum,
þar sem Robbie og Kylie Minouge
syngja saman, komi út á smáskífu
fyrir jólin. En Robbie hefur
greinilega ekki lesið smáa letrið í
samningnum.
Samkvæmt blaðinu News of the
World fær Robbie ekkert greitt frá
plötuútgefandanum EMI fyrr en
smáskífan hefur selst í 80 þúsund
eintökum. Robbie er nú æfur vegna
málsins
„Hann skilur ekki hvers vegna
hann fær enga peninga seljist
platan bara i 79 999 eintökum. Það
ætti að vera nóg til þess að platan
verði í þriðja sæti á topplistanum í
margar vikur,“ segir einn vina
Robbies. „EMI meðhöndlar eina af
súperstjörnum heimsins eins og
hann væri byrjandi. Það er
óskiljanlegt að það skuli vera farið
svona með Robbie," segir vinurinn.
Salma aldrei
verið jafnvinsæl
Mexíkóska þokkadisin og leik-
konan Salma Hayek hefur aldrei
verið eftirsóttari en einmitt nú.
Blessuð stúlk-
an fær varla
frið fyrir leik-
stjórum og
framleiðendum
sem vilja fá
hana í myndir
sinar. Sá ágæt-
ismaður Mike
Figgis hafði heppnina með sér
þegar Salma féllst á að leika að-
alhlutverkið í sálfræðidramanu
hans, Time Code 2000. Salma
mun vera fyrsti leikarinn sem
Figgis réð til myndarinnar.
Tökur hefjast í næsta mánuði og
verður notuð nýjasta tækni.
Robbie Williams gleymdi aö lesa
smáa letriö. Símamynd Reuter
Prinsamir í brúð-
kaupi barn-
fóstrunnar Tiggy
Vilhjálmur og Harry prins voru
meðal gesta þegar bamfóstran
þeirra, Tiggy Legge Bourke, sem er
34 ára, giftist æskuást sinni, Charles
Pettifer. Karli prinsi var einnig boð-
ið en hann kvaðst upptekinn af
skyldustörfum, ef til vill vegna þess
að Camillu ástkonu hans var ekki
boðið.
Tiggy varð ástfangin af Charles
Pettifer þegar hann var nemandi i
Etonskólanum. Hún var þá í einka-
skóla í Sviss. Þá var Charles ekki
nógu flnn, að mati foreldra Tiggy.
Hann gekk að eiga konu, sem reynd-
ar heitir CamUla, og eignaðist með
henni tvö böm. En nú hafa sem sagt
Tiggy og Charles náð saman á ný.
Undur og stórmerki í bresku konungsfjölskyldunni:
Karl kyssti á
hönd mömmu
Karl Bretaprins var næstum bú-
inn að kyssa drottninguna, mömmu
sína, á kinnina á almannafæri á
mánudag. Af því varð þó ekki, held-
ur nudduðu þau saman kinnum og
hann smellti kossi á hanskaklædda
hönd hennar.
Mörgum þætti þetta nú ekki
merkileg tíðindi. Þau eru það sosum
ekki, nema fyrir það að breska
kóngafólkið er ekki þekkt fyrir að
flíka tilfinningum sinum hvort í
annars garð á almannafæri. Menn
minnast enn atviksins í Indlandi
1992 þegar Karl reyndi að smella
kossi á kinn Díönu eiginkonu sinn-
ar. Hún sneri þá bara upp á sig.
En tilefni þess tilfinningaþrungna
atburðar er Karl næstum kyssti
móður sína var kynnisferð á slóðir
góðgerðarstofnunar ríkisarfans.
Karl hefur nefnilega látið sér annt
um ungt fólk sem fyrir einhverjar
sakir hefur orðið undir í lífsgæða-
kapphlaupinu. Karl sýndi móður
sinni íbúðablokk í vesturhluta
Lundúna sem góðgerðarstofnunin
Elísabet Englandsdrottning og Karl
ríkisarfi, sonur hennar, kinn viö kinn
á mánudag. Þaö sem meira er, Karl
kyssti á hönd móöur sinnar og þótti
sýna henni óvenjumikla ástúö á al-
mannafæri.
hefur íjármagnað. Drottning var
stórhrifin.
Kryddpíur berjast
hart um toppsæti
Slagur aldarlokanna er haflnn.
Kryddpíurnar Geri og Emma, sú
fyrrnefnda að vísu fyrrverandi, eru
komnar í hörkuslag um efsta sæti
vinsældalistanna um heim allan.
Nýjar plötur stúlknanna komu í
verslanir á mánudag. Gagnrýnend-
ur æsiblaðsins Mirror héldu ekki
vatni af hrifningu yfir plötu Emmu
litlu barnakrydds og gáfu henni ein-
kunnina níu, af tíu mögulegum.
Geri fékk hins vegar ekki nema
fimm, vesalings stúlkan.
Einkunnagjöfln þarf þó ekki að
segja allt. Bent er á að Geri hafi
reynsluna umfram stallsystur sína
fyrrverandi, hún hefur jú áður sent
frá sér tvær einleiksplötur sem
nutu gríðarlegra vinsælda.
Talsmaður Geri segir að mikið
hafl verið pantað af nýju plötunni
og hún komist vonandi á toppinn.
„Hann hefur unnið stórkostlegt
afrek,“ sagði drottning yfir sig hrif-
in af syninum.
Karl stofnaði góðgerðastofnun
sína fyrir 23 árum. Á þeim tíma hef-
ur hún rétt meira en fjögur hundr-
uð þúsund ungmennum hjálpar-
hönd.
Eftir heimsóknina í blokkina var
farið í móttöku í Buckinghamhöll
þar sem drottning lýsti enn á ný yf-
ir ánægju sinni með soninn.
„Ég vil nota þetta tækifæri, Karl,
til að segja þér hvað ég er óumræði-
lega stolt af því sem góðgerðarstofn-
un þín hefur áorkað og hvað þú hef-
ur verið drífandi í starfi hennar,"
sagði drottning.
Karl þákkaði fyrir sig og kallaði
drottningu nú bara mömmu.
„Góðgerðarstofnuninni hefur
ekki verið meiri sómi sýndur en
nú,“ sagði Karl ríkisarfi.
leit.is
og þér munuð fmna...
...yfir 300.000 íslenskar vefsíður.
xr
Vetrarakstur vsk-bílar
Miövikudaginn 10. nóvember mun sérblaö um vetrarakstur og vsk-bíla fylgja DV.
í þeim hluta sem snýr
að vetrarakstri er fjallað
um ýmisleat í sambandi viö
búnað bílsins unair vetur og gefin
góð róð þar að lutandi.
ila
Einnig verður talað um akstur í
vetrarfærð og ýmislegt sem muna þarf
eftir þegar farið er í ferðalög að
vetrarlagi. Upplýsingar um vsk^bíla
verða settar upp í areinilega töflu þar
sem hægt er að oera saman stærð
bílsins, vélarstærð, burðarpetu,
flutningsrými og ýmsan bunað
ásamtverði. Ennfremur
verður rætt við nokkra
sem hafa atvinnu af að
aka vsk-bílum oa/eða
relca þá.
nis: Jóhannes Reykdal og SigurSur HreiSar, sími 550 5000.
isjón auglýsinga: Osp Kristjánsdóttir, sími 550 5728
og Selma Rut Magnúsdóttir, sími 550 5720.
Netfang auglýsingadeildar: auglysingar@ff.is'
Bréfsími: 550 5727