Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1999, Síða 4
4
FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1999
Fréttir
Læknanemar boðaöir á fund á Grand Hótel:
Svíar á ung-
læknaveiðum
landlæknir áhyggjufullur
„Hér erum við að verða vitni að
því sem hlaut aö verða; vaxandi
samkeppni um starfsfólk í heilbrigð-
iskerfmu frá nágrannalöndum okk-
ar,“ sagði Sigurður Guðmundsson
landlæknir um fund sem lækna-
nemar fjölmenntu á í gærkvöld á
Grand Hótel og boðað var til af Karl
Gustaf Svenson frá Kalix-sjúkrahús-
inu í Norður-Svíþjóð.
„Allir læknanemar á síðasta og
næstsíðasta ári fengu fundarboð frá
Karl Gustaf og ég tel víst að hann sé
að reyna að lokka til sin íslenska
unglækna til starfa í Svíþjóð. Sér-
staklega býður hann okkur að taka
kandídatsárið ytra,“ sagði
Oddur Steinarsson, for-
maður Félags læknanema,
skömmu áður en hann fór
á fundinn með Karl
Gustaf. „Ég hef orðið var
við mikinn áhuga lækna-
nema á þessu tilboði Sví-
anna enda megn óánægja
í okkar röðum eftir síð-
ustu kjarasamninga. Þá
var yfirvinnuprósenta
kandídata á sjúkrahúsum
lækkuð um 20 próent og
er nú sú lægsta sem þekkist á land
inu,“ sagði Oddur Steinarsson.
Sigurður
Guðmundsson
landlæknir.
lenska
hendi.
Útsendarar sænskra
sjúkrahúsa hafa komiö
hingað til lands áður sömu
erinda og rætt við lækna-
nema um störf strax að
námi loknu. Af þessu hef-
ur landlæknir vissar
áhyggjur:
„Að vísu erum við
frjálsir menn í frjálsu
landi og allt er þetta sam-
eiginlegur vinnumarkaður
en ég teldi miður ef ungir
læknar kynntust ekki ís-
heilbrigðiskerfinu frá fyrstu
Að auki er ég ekkert viss um
Sænskur „læknasmali“ um fund sinn með íslenskum læknanemum:
Stelum ekki unglæknum
- en erum tilbúin að taka við einhverjum
Okkur hefur vantað nokkuð af
læknum að undanfomu því að marg-
ir fara til Noregs og við sjáum fram á
að margir af okkar læknum sem
fæddir eru á fimmta áratugnum fari
að setjast í helgan stein. Þeir hætta í
síðasta lagi rétt eftir sextugt. Þess
vegna höfum við kosið að leita út fyr-
ir landsteinana og er ísland annað
landið sem við leitum til á eftir Finn-
landi," segir Karl Gustaf Svensson
frá Kalix-sjúkrahúsinu í Norður-Sví-
þjóð.
„Við erum með fimm spítala í
Norður-Svíþjóð og þar búa um
250.000 manns. Við höfum áhuga á að
ala upp fleiri unga lækna og við
menntum þá þangað til þeir sérhæfa
sig en við sáum í íslensku lækna-
blaði að hér er ekki boðið upp á að
læknar sérhæfi sig. Þeir þurfa að
fara utan til að sérhæfa sig en flestir
Karl Gustaf Svensson á fundi með íslenskum læknanemum f gærkvöld. Góð
mætlng var og er augljóst að einhverjir hafa áhuga á að starfa erlendis.
DV-mynd Teitur
snúa aftur heim. Það eru margir ís-
lenskir læknanemar sem hafa áhuga
á að í það minnsta hlusta á okkur
eins og sést á mætingunni á fundinn
og það gleður okkur að svo margir
sýni okkur áhuga. Það eru nokkrir
íslenskir sérfræðingar sem starfa í
Norður-Svíþjóð en við höfum ekki
fengið neina unga lækna héöan ný-
lega. Fyrir 15-20 árum komu nokkrir
ungir læknar en á síðustu 10 árum
hafa engir komið,“ segir Karl Gustaf.
„Nei, við erum ekki að reyna að
stela íslensku læknunum en ef þeir
hafa áhuga á að vera í Norður-Sví-
þjóð erum við tilbúin að taka við ein-
hverjum. Þeir munu ekki þurfa að
borga fyrir námið en þeir þurfa að
búa í háskólabænum og það kostar
sitt að lifa þannig að þeir þurfa að
taka lán sem tekur sinn tíma að
borga." -hdm
Myndlistargallerí verður ítrekað fyrir barðinu á þjófum:
Tvö innbrot á
þremur mánuðum
- eftirlætismynd Ríkeyjar stolið í innbroti
ert hefur til þjófanna, eða
„Þegar ég kom í morgun var
allt á hvolfi en ég er mjög fegin
að þeir brutu engar styttur,"
sagði Ríkey Ingimundar mynd-
listarkona en innbrot var
framið í listgallerí hennar við
Hverfisgötu i fyrrinótt.
Ríkey sagðist í gær ekki enn
hafa áttað sig að fullu á tjóninu
en þó væri ljóst að a.m.k. sex
málverk eftir hana sjálfa væru
horfin auk hljómflutnings-
tækja. Hún sagði jafnframt
hugsanlegt að einhverjar stytt-
ur hefðu verið teknar. „Ég varð
fyrir áfaili þegar ég kom og er
ekki búin aö ná mér. Og það er
sérstaklega erfitt að missa
þessa mynd,'“ sagði Ríkey um
málverk sitt „Ró“, sem er olíu-
verk á striga og margir kann-
ast við, en það sýnir grænan kött á stól.
„Þetta er mynd sem ég hef ekki viljað láta
fara þvi hún hefur mikið tilfinningalegt
gildi fyrir mig.“
Þjófarnir í heimsókn?
Þau tjórtán ár sem Gallerí Ríkey hefur
verið starfrækt við Hverfisgötuna hefur
þrisvar verið brotist þar inn, þar af tvisvar
á síðust þremur mánuðum. Þá var m.a.
stoliö tölvu og stórum antikspegli en ekk-
fengs þeirra, spurst.
Ríkey sagði ekki óliklegt
innbrotsþjófamir hafi
kynnt sér aðstæður í gall-
eríinu fýrirfram. „Ég er
mjög almennileg við fólk
og er ekki að reka það út
þótt ég sjái að það eigi ekki
krónu því kannski hefur
það gaman af myndlist.
Þaö komu til dæmis hér
inn menn fyrir svona
þremur vikum siðan sem
gætu hafa verið í þessum
hugleiöingum."
Ríkey sagði að þegar
brotist var inn hjá henni
fyrir allmörgum árum
hafi hún verið tryggð en
nú í tvö seinni skiptin
ekki. „Fátækir listamenn hafa ekki efni á
að kaupa dýrar tryggingar auk þess sem
tryggingamar borga aldrei raunvirði þess
sem stolið er,“ sagöi hún.
Fyrir nokkru gaf Ríkey listaverk á sölu-
sýningu til styrktar Krýsuvíkursamtökun-
um. „Þar var gæslukona sem brá sér frá
augnablik og á meðan var einni styttunni
minni stoliö. Ég fer að halda að ég sé vin-
sæl því það hvarf ekkert annað," sagöi
Ríkey. -GAR
Þessa mynd af grænum
ketti á stól málaði Ríkey
fyrir margt löngu og hefur
aldrei viljað láta. Nú hafa
þjófar rænt hana mynd-
inni.
að læknamir fengju betri menntun
í nágrannalöndunum en þeim er
boðið upp á hér heima. Unglæknar
gegna mikilvægu hlutverki á
sjúkrahúsum en ekki get ég sagt að
sjúkrahúsin yrðu óstarfhæf þó þeir
hyrfu allir á braut. Hitt er víst aö
það yrði mikil breyting á allri starf-
semi og vinnutilhögun á sjúkrahús-
unum ef svo færi. Það sem upp úr
stendur er sú staðreynd að við
stöndum nú frammi fyrir aukinni
samkeppni um starfsfólk í heilbrigð-
iskerfinu og sú samkeppni snýst
ekki síst um kjör,“ sagði landlækn-
ir. -EIR
Ríkey í listgallerfi sínu í gær eftir að innbrotsþjófar létu þar greip-
ar sópa.
Enga pólitík hér
Frá því var sagt í fréttum að
Björn Bjarnason menntamálaráð-
herra hefði gagnrýnt stjórnarand-
stæðinga á Alþingi fyrir pólitísk af-
skipti af innri málefn-
mn Ríkisútvarpsins.
Gagnrýni ráðherrans
kom í kjölfar gagn-
rýni stjórnarandstöð-
unnar á Bjöm sem
var sagður meðvitað
vinna að því að
veikja tiltrú fólks á
„útvarpi allra
landsmanna". Oft
er nú gaman að þeim í leikhúsinu
við Austurvöll og ákaflega skemmti-
legt að ráðherrann skuli setja ofan í
við pólitíska andstæðinga sina fyrir
pólitísk afskipti af Ríkisútvarpinu.
Það vita jú allir að sú merka stofnun
hefur alla tíð starfað án afskipta
stjórnmálaflokkanna, og þannig vill
ráðherrann hafa það áfram!
Hvað gerir Gaui?
Þá mun það frágengið eins og al-
þjóð veit að Guðjón Þórðarson,
fyrram landsliðsþjálfari í knatt-
spyrnu, fari að taka til hendinni i
herbúðum Stoke í
Englandi og bíða
menn spenntir fram-
haldsins. Núverandi
framkvæmdastjóri
liðsins mun eiga að
halda því starfi
fyrst um sinn
a.m.k. en Guðjón
verða yfirmaður
knattspymumála hjá fé-
laginu, hvað sem það nú þýðir. Þeir
sem þekkja til Guðjóns vita það hins
vegar að hann mun ekki lengi una
því að vera í „aftursætinu", metnað-
urinn er svo mikill. Gaui vill í brúna
og það verður gaman að fylgjast með
því þegar hann fer að láta til sín
taka í ensku knattspymunni, þessi
harðjaxl frá „sementsbænum" viö
Faxaflóa.
Jarðgangaslagur
Æðisleg barátta þingmanna Norð-
urlands eystra annars vegar og Aust-
urlands hins vegar vegna gerðar
næstu jarðganga hér á landi kristall-
aðist i umræðum á
Alþingi í síðustu
viku þar sem gamli
kratinn Kristján L.
Möller frá Sigló
spurði samgöngu-
ráðherra hvað liði
gerð nýrrar jarð-
gangaáætlunar.
Sturla Böðvars-
son samgönguráö-
herra mun hafa eitthvað um það að
segja hver forgangsröðin verður í
jarðgangagerð en barátta þingmanna
kjördæmanna tveggja sem berjast
hvor fyrir sínum jarðgöngum verður
harðvítug næstu vikur og mánuði.
Þar á eflaust eftir að hvína í en síðan
eiga þessir þingmenn að setjast niður
saman og fara að starfa í sameinuðu
Norðausturkjördæmi eftir næ'stu
kosningar.
Lokað fyrir norðan?
Meira af Sturlu Böðvarssyni
samgönguráðherra. Hann vill nú fela
sveitarstjómarmönnum á hverjum
stað það vald að ákveða hvort leyfð-
ur verði nektardans í
þeirra heimabæ. Á
Akureyri þar sem
þrír slíkir staðir eru
starfandi þykir
nokkuð ljóst hvem-
ig farið verði með
slík völd. í umræð-
um í bæjarstjóm
og í bæjarkerfinu
hafa menn nefnilega keppst við
að lýsa andúð sinni á þessari starf-
semi, en borið því við að þeir hafi
ekki vald til að banna hana. Nú fær-
ir samgönguráöherra bæjaryfirvöld-
um þennan kaleik og verður fróðlegt
að fylgjast með framhaldinu.
Umsjón Gylfi Kristjánsson
Netfang: sandkorn @ff. is
>li