Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1999, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1999, Side 9
FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1999 9 Utlönd Einhver árangur í loftslagsviöræöunum í Bonn: Stefnt að samn- ingi á næsta ári Ekki dró til neinna stórtíðinda á loftslagsráðstefnunni sem lauk í Bonn í Þýskalandi í gær. Þjóðir heims sögðu þó að einhver árangur hefði náðst í baráttunni fyrir niður- skurði á losun gróðurhúsaloftteg- unda út í andrúmsloftið. Embættis- menn voru samt bjartsýnir á að samkomulag myndi takast á næstu stórráðstefnu um málið að ári. „Eins og búist var við, var þetta ekki tími neinna stórafreka en um- fram allt var mjög jákvætt and- rúmsloft á ráðherrafundunum. Það er gífurlega mikil vinna fram undan næsta árið,“ sagði Michael Zammit Cutajar, helsti sérfræðingur Sam- einuðu þjóðanna um gróðurhúsaá- hrifm, í samtali við fréttamann Reuters. Árangri tveggja vikna fundahald- anna í Bonn má líkja við að hús- grunnurinn sé kominn og að fyrir liggi teikningar um framhaldið. Formaður bandarísku sendinefnd- arinnar lýsti því sem svo að þakið vantaði á húsið og það væri svo sannarlega ekki enn orðið íbúðar- hæft. Loftslagssamningurinn sem gerð- ur var i Kyoto árið 1997 skyldar iðn- ríkin til að minnka losun gróður- húsalofttegunda um 5,2 prósent mið- að við magnið 1990 og á þeim niður- skurði að vera lokið á árunum 2008 til 2012. Fáar þjóðir hafa hins vegar enn staðfest samninginn vegna mis- munandi hagsmuna einstakra ríkja. „Enn er deilt og ekki hefur allur ágreiningur verið leystur,“ sagði Al- exander Bedritskí, formaður rúss- nesku sendinefhdarinnar. Meðal erfiðra mála sem bíða úr- lausnar eru hugsanlegar refsingar fyrir þau ríki sem ekki standa við mengunarmarkmiö sín. Þá er enn eftir að finna lausn á því að hve miklu leyti þjóðir geta borgað öðr- um til að draga úr mengun fyrir sína hönd. Sádi-Arabar vöktu litla hrifningu þegar þeir sögðust eiga skilið að fá fébætur þar sem þeir myndu vænt- anlega selja minna af oliu i kjölfar nýs loftslagssamnings. Margir fund- armenn sögðu að fulltrúar Sádi-Ar- abíu hefðu tafið störf fundarins. „Þetta er hreint ekki satt,“ sagði Mohammad A1 Sabban," einn full- trúa Sáda. Bandaríkjamenn eru sér á parti í sumum málum og gæti af þeim sök- um reynst erfitt að berja saman samkomulag. Fulltrúar 173 þjóða tóku þátt í fundahöldunum í Bonn. Næsti fund- ur verður í Haag í Hollandi í nóv- ember á næsta ári en áður verða tveir smáfundir í Bonn. Ehud Barak, forsætisráðherra ísraels, aðstoðar Daliu Rabin Pelessof, dóttur Yitshaks Rabins, við að kveikja á kertum við gröf hins látna forsætisráðherra. Fjögur ár eru liðin sfðan Rabin var myrtur. Símamynd Reuter Wahid lofar þjóöar- atkvæðagreiðslu í Aceh Nýr forseti Indónesiu, Abdurrah- man Wahid, heitir því að íbúamir í Aceh fái sjálfir að ákveða framtíð sína. Sagði Wahid í gær að Indónes- ar væru reiðúbúnir að samþykkja þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálf- stjóm eða sjálfstæði. Skæruliðar í Aceh hafa í 23 ár barist fyrir sjálf- stæðu íslömsku ríki á svæðinu sem er á norðurhluta eyjunnar Súmötra. Indónesíski herinn hefur verið sakaður um gróft ofbeldi og mann- réttindabrot í Aceh þar sem mikla olíu og gas er að frnna. íbúamir í Aceh segjast ekki fá sinn skerf af náttúraauðlindunum. Síðasta hálfa árið hafa verið famar fjöldagöngur til að krefjast sjálfstæöis. Síðastlið- inn þriðjudag skutu indónesískir hermenn á mótmælendur. Nýr yfir- maður vamarmála í Indónesíu, Widodo aðmíráll, lofaði í gær að að- skilnaðarsinnar yrðu ekki beittir of- beldi. Sportbúð Títan - Seljavegi 2, 101 Rvík, s: 551-6080, www.isa.is Fékk skilnað vegna sóða- skapar karlsins Argentínsk kona hefur fengið skilnað vegna þess hversu eigin- maður hennar var sóðalegur og hirðulaus. Hann lyfti ekki einu sinni fingri þegar flæddi upp úr salemisskálinni, að því er argent- ínsk blöð greindu frá í morgun. „Hann er ótrúlegur sóði. Hann hirðir ekkert um bömin og honum er sama þó það flæði úr salemis- skálinni inn í stofu," segir konan í blaðaviðtali. Eiginmaðurinn, sem hún hafði verið gift í 25 ár, vildi ekki skilja. Sóðaskapur hans þótti næg ástæða til skilnaðar FUJIFILM 1U0SMYNDAV0RUR Skipholti 31,568 0450 Kaupvangsstræti 1, Ak. 461 2850 HIUN B£STU niMKdLlUNINA SAMANBURÐUR A ENDINGU A UTMYNDAPAPPÍR Niðurstöður Rannsóknar Wilhelm Imaging Research Fujicolor Crystal Archive pappír 60 ár Kodak Edge 7 og Royal VII pappír 18 ár Kodak Portra III Professional pappír 14 ár Konica Color QA pappír gerð A7 14 ár Agfacolor pappír gerð 11 13 ár Copyright 1999 Wilhelm Imaging Research Inc. www.fujifilm.is FUJIFILM FRAMKÖLLUN UM ALLT LAND

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.