Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1999, Qupperneq 14
14
FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1999
Fréttir__________________________________________________________pv
Raufarhöfn skuldaði 1,2 milljónir króna á hvern ibúa um síðustu áramót:
Skuldirnar horfnar - og kvótinn líka
- Qarvinnsla er 21. öld Raufarhafnar, segir sveitarstjórinn
„Þó fjölmiðlar og aðrir prelátar
hafi verið að blása út skuldastöðu
hreppsins þá var hann aldrei á
neinni vonarvöl," segir Reynir Þor-
steinsson, sveitarstjóri Raufarhafn-
arhrepps, en hreppurinn var skuld-
settasta sveitarfélag landsins um
síðustu áramót. Þá námu skuldirn-
ar 1.162 þúsundum króna en munu
nema aðeins 25 þúsundum króna í
lok þessa árs, að sögn Reynis.
Ástæða umskiptanna er einföld:
Raufarhafnarhreppur seldi 60%
hlut sinn í útgerðarfélaginu Jökli til
Útgerðarfélags Akureyringa fyrir
580 milljónir króna fyrr á árinu og
hefur greitt niður skuldir í gríð og
erg.
Skuldirnar í sér félag
Nú er svo komið að skuldir Rauf-
arhafnarhrepps, sem samtals námu
472 milljónum í árslok 1998, eru að-
eins 100 milljónir króna. Þar af er 40
milljóna skuld við hafnarsjóð, sem
er í eigu hreppsins sjálfs, og svo
skuldir Raufarhafnar við þriðja að-
ila sem nema 60 milljónum króna.
Reynir segir að fljótlega verði skuld-
imar ekki nema 10 milljónir króna,
eða tæplega 25 þúsund krónur á
hvern hinna rúmlega 400 íbúa
hreppsins, þegar íbúðir á vegum
hreppsins, og þar með 50 milljóna
króna skuld við íbúðalánasjóð,
verða færðar í sérstakt félag. „Þetta
er eins og flest önnur sveitarfélög
hafa gert til að bæta stöðu sveitar-
sjóðs. Það munum við líka gera til
þess að okkar tölur verði saman-
burðarhæfar við reikninga annarra
sveitarfélaga, þó slíkt gefl að sjálf-
sögðu falska mynd af raunverulegri
stöðu. Þannig að um næstu áramót
verða skuldir sveitarsjóðs 10 millj-
ónir,“ segir Reynir.
Rúmar 200 milljónir í sjóði
Reynir segir ekki raunhæft að
einblína á skuldahliðina vilji menn
fá rétta mynd af fjárhagsstöðunni.
„Þegar menn skoða reikningana
hoppa þeir gjarnan yfir þann lið
sem heitir peningalegar eignir en
hann sýnir eignir að frádregnum
skuldum. Þrátt fyrir þessar miklu
skuldir var staða hreppsins mjög
sterk,“ segir hann og bendir á að
peningaleg eign Raufarhafnar-
hrepps, þ.e. eignir umfram skuldir,
hafi numiö 115 þúsundum króna á
hvern íbúa um áramótin síðustu.
Raufarhöfn hafði tekið stórt lán á
árinu 1997 til að viðhalda eignarhlut
sínum í Jökli samfara hlutafjárút-
boði sem þá var í fyrirtækinu. „Þá
vorum við að gera upp við okkur
hvert við ætluðum að stefna Jökli
og skuldastaðan rauk upp úr öllu
valdi. En lánið hefur nú verið greitt
niður ásamt öllum skammtíma-
skuldum. Þannig hafa verið greidd-
ar 370 milljónir króna af lánum og
hreppurinn á eftir rúmlega 200
milljónir í beinhörðum peningum
sem koma á móti áðumefndri 100
milljóna króna skuld. Og í raun á
hreppurinn mun meira vegna eigna
sinna í fasteignum og ýmsum lausa-
fjármunum,“ segir Reynir.
Miöaö viö
áramót '98 -'99
Þús. kr.
200
Skuldir sveitarfélaga
- Þúsundir króna ó íbúa
Mestu skuldir
Sveitarfélög meö 300 til 999 íbúa
i ii ...i hí'..“""—.r
1
i
-271,4 -270,2 244,1 -239,4
Skuldir sveitarfélaga
- Þúsundir króna ó íbúa
Minnstu skuldir
Sveitarfélög meö 300 til 999 íbúa
<D
■n
■o
c
Miöaö viö
áramót '98 -'99
ÞÚS. kr.
10
20
30
40
50
60
70
80
90
100
Kvótaleiga borgaði tap
frystihússins
Kvótinn sem fylgdi Jökli til ÚA
nam sjö þúsund þorksígildistonnum
en hann hafði allur verið leigður ann-
að síðustu þrjú til fjögur árin en
heimamenn unnið rússaþorsk. Reynir
óttast ekki að ÚA hætti landvinnslu á
Raufarhöfn.
„Þeir hafa gefið það út aö þeir ætli
sér að reka hér mjög öfluga vinnslu og
það var einmitt verið að fjölga starfs-
fólki. En þó að reksturinn á húsinu
hafi gengið mjög vel þá er ekkert gef-
ið í sjávarútvegi. Eitt ár eru menn að
gera ágætishluti en næsta ár er bull-
andi tap. Við gerum okkur fulla grein
fyrir því að þegar við ráðum ekki
lengur yfir kvótanum er ekki sama ör-
yggið í rekstrinum á húsinu vegna
þess að kvótinn hefur verið að reka
húsið, það er að segja; kvótinn hefur
verið að borga niður tapið á húsinu
undanfarin ár,“ segir sveitarstjórinn.
Nú starfá átján mánns viö fjar-
vinnslu íslenskrar miðlunar á Raufar-
höfn og. Reynir sér mikla framtíðar-
möguleika í þeirri grein. „Við ætlum
að knýjá Raufarhafnarhrepp inn í 21.
öldina óg nota þá peninga sem við eig-
um tO þéss að koma af stað fleiri fyr-
irtækjum í fjarvinnslu. í allri þessari
umræðu um landsbyggðaflótta situr
ríkistjórn Davíðs Oddssonar með
lausnina í höndunum; það er að ílytja
fjarvinnsluverkefnin út á land. Þar er
ódýrt húsnæði og stöðugt vinnafl,"
segir Reynir Þorsteinsson.
-GAR
LANGUR laugardagur
LANGUR
LAUGAR-
DAGUR
LANGUR
LAUGAR-
DAGUR
<$utl
afsláttur af öllum vörum
in
LANGAN LAUGARDAG Laugavegi 49.
.... .... Sími 561 7740.
TRÚLÖFUNARHRINGAR A GOÐU VERÐI
SENDUM MYNDALISTA
Full búð aF
Flottum
undirFötum
Mörg tilboð
í gangi
jÚ^/ÁÁ/o/híAím/
Laugavegi 4 * S. 4473
rtu vlðbúiii
etrinum
dúnúlpur
úlpur
• stuttfrakkar
• kápur
• peysur
MESSAGE
<9
Cinde^ella
cor B-vou\(.
áyfU*ttrn$r
Laugavegi 83 • Sími 562 3244