Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1999, Side 32
I
Sölukössum er lokað
kl. 19.30
á laugardögum
og dregið
kl. 19.45
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö t DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1999
Parí
sjálfheldu
á hálendinu
Lögreglan á Selfossi óskaði eftir
‘SBstoð björgunarsveitar í morgun
til að huga að pari sem fór í Svarta-
botna á þriðjudaginn. Parið hugðist
vera þar eina nótt en hefur ekki
skilað sér. Að sögn lögreglunnar fór
félagi fólksins að svipast um eftir
því í gærkvöldi en varð að snúa við.
Mikið hefur snjóað á þessu svæði
undanfarið og verður mjög snjó-
þungt þar. Mest snjóaði aðfaranótt
miðvikudagsins en fólkið hugðist
fara heim þann daginn. Samkvæmt
upplýsingum Vegagerðarinnar eru
allir hálendisvegir ófærir og ein-
göngu hægt að komast að illfærum
stöðum á vel búnum jeppum.
Skálinn sem parið gisti í er á
sýslumörkum Ámessýslu og Húna-
?jíitnssýslu og er innst í dalnum.
Lögreglan taldi að fólkinu hlyti að
vera orðið kalt þar sem skálinn er
ekki sérstaklega vel búinn. Það
hafði farsíma meðferðis en ekkert
símasamband er á þessu svæði.
Björgunarsveit hóf því leit í morg-
un.
-hól
Heim með
* Svanavatniö
I Helgarblaði DV er viötal við
Helga Tómasson, stjórnanda San
Francisco-ballettsins sem mun sýna
Svanavatnið á Listahátíð í Reykja-
vík i sumar. Helgi segir frá upp-
byggingu ballettflokksins, danshöf-
undarferli sínum og nýjasta áhuga-
málinu. Birtir verða kaflar úr 2.
bindi ævisögu Einars Benediktsson-
ar og úr ævisögu Jóns Leifs sem
kemur út á næstu dögum. Einnig er
spjallað við rithöfundinn Ólaf
Gunnarsson, skyggnst í ljósmynda-
bók Maríu Guðmundsdóttur og rætt
við serbneskan lækni sem hefúr
starfað með Læknum án landamæra
eh starfar nú á Sjúkrahúsi Reykja-
víkur.
Leikrit Karls Ágústs Úlfssonar, Ó - þessi þjóð, var frumsýnt í gærkvöld í Kaffileikhúsinu. Þetta er ný revía eftir Karl
í leikstjórn Brynju Benediktsdóttur. Á myndinni eru kampakátir aöstandendur sýningarinnar. Frá vinstri: Óskar Ein-
arsson tónlistarstjóri, Vala Þórsdóttir og Erla Ruth Harðardóttir leikkonur, Agnar Jón Egilsson leikari og höfundur-
inn, Karl Ágúst Úlfsson. DV-mynd Teitur
Utanríkisráðuneyti sagt hygla einu fyrirtæki á kostnað annarra:
Viðskiptasam-
böndum spillt
- segja Samtök verslunarinnar. Veit minnst, segir utanrikisráðherra
„Fulltrúar ráðuneytisins eru bein-
línis að blanda sér í markaðsátak
Fiskmiðlunar Norðurlands með því
að bjóða til mikillar kvöldverðar-
veislu og senda út í nafni ráðuneytis-
ins bréf þar að lútandi," segir Stefán
S. Guðjónsson, framkvæmdastjóri
Samtaka verslunarinnar, sem hafa
sent Halldóri Ásgrímssyni utanríkis-
ráðherra bréf með harðyrtri gagnrýni
á þátt ráðuneytisins í markaðsmálum
íslenskra fiskútflutningsfyrirtækja í
Nigeríu.
í bréfmu segir að með aðkomu
ráðuneytisins aö kynningarmálum
eins fyrirtækis (Fiskmiðlunar Norð-
urlands) á Nígeríumarkaði hafi ráðu-
neytið farið „langt út fyrir það sem
hægt er að flokka sem almennt kynn-
ingarstarf og þannig ekki gætt jafn-
fræðis meðal útflytjenda sambærilegr-
ar vöru og jafnvel komið viðskipta-
samböndum annarra íslenskra fyrir-
tækja í uppnám".
„Ég hef verið
erlendis og veit
nú minnst um
þetta mál. Sverr-
ir Haukur Gunn-
laugsson ráðu-
neytisstjóri hefur
verið alveg í
þessu þannig að
ég vísa á hann í
því,“ segir Hall-
dór Ásgrímsson
utanríkisráð- Halldór
herra. Ásgrímsson.
Auk Sverris fór
Benedikt Höskuldsson, forstöðumaður
viðskiptaþjónustu ráðuneytisins, til
Nígeríu. Þeir fóru utan á þriðjudag en
eru væntanlegir heim á laugardag en
kaupstefnu Fiskmiðlunar Norður-
lands lýkur á mánudag. Ekki náðist í
Sverri Hauk í morgun enda er hann í
Nígeriu að spjalla við -viðskiptavini
keppinauta Fiskimiðlunar Norður-
lands þar í landi.
Stefán segir framtak utanríkisráðu-
neytisins m.a. hafa orðið til þess að
einn skreiðarútflytjandi hafi í gær
gert sér sérstaka skyndiferð til Níger-
íu til að gæta sinna hagsmuna. „Hann
taldi málið það alvarlegt, að það gæti
spillt fyrir hans samböndum og að
hann yrði að fara út. Menn eru alveg
hundfúlir."
Að sögn Stefáns er ekki við Fisk-
miðlun Norðurlands að sakast í mál-
inu. „En ráðuneytið gengur fulllangt í
að styðja við bakið á þessu fyrirtæki.
Þetta getúr spillt fyrir viðskiptasam-
böndum annarra fyrirtækja og það er
einmitt þarna sem opinberir aðilar
þurfa að setja strikið; að fara ekki nið-
ur á sölusviðið sem er verkefni fyrir-
tækjanna. Það er enginn akkur að því
fyrir Island að ráðstafa skattfé til þess
að kynna íslenska framleiðsluvöru og
flytja útflutningsviðskipti frá einu is-
lensku fyrirtæki yfir í annað.“-GAR
Veðrið á morgun:
Rigning eða
slydda
sunnanlands
Suðlæg átt, 10-15 m/s verður
sums staðar vestanlands en
annars hægari. Rigning eða
slydda verður sunnanlands en
slydda eða snjókoma norðvestan
til.
Hiti 0 til 6 stig.
Veðrið í dag er á bls. 29.
Guðmundur Kristján Guðbjörns-
son, tólfti fanginn í stóra fíkniefna-
málinu, yfirgefur Héraðsdóm í gær í
fylgd Arnars Jenssonar frá efna-
hagsbrotadeild ríkislögreglustjóra.
DV-mynd S
Fíkniefnafangarnir:
Líklega í haldi
fram að dómi
Héraðsdómur Reykjavíkur fram-
lengdi síðdegis í gær gæsluvarð-
haldsúrskurð yfir tólfta fanganum í
stóra fíkniefnamálinu um eina
viku. Maðurinn var handtekinn á
heimili sínu í Vogum á Vatnsleysu-
strönd sunnudaginn 24. október síð-
astliðinn.
Gæsluvarðhaldsúrskurðir allra
fanganna í stóra fikniefnamálinu
renna út á næstunni en samkvæmt
heimildum DV má telja næsta víst
að hinir grunuðu sem í haldi eru
verði látnir sitja inni áfram.
„Það er engin regla í þessu sam-
bandi. Það eru þó fordæmi þess að
menn séu látnir sitja inni frá því að
ákæra er gefin út og þar til dómur
gengur ef sakir eru taldar miklar,"
sagði Jón Snorrason hjá efhahags-
brotadeild ríkislögreglustjóra.
-EIR
Hestaskólinn:
Nemendur
í hættu
- segja fyrrverandi nemar
„Ég vil einnig nefna að nemendur
voru settir í mikla hættu. Okkur
var skipað að fara á bak ungum
hestum og ríða í fyrsta skipti, átta
manns saman, beint í áttina að þjóð-
vegi númer 1. Þetta var í fyrsta
skipti sem hrossunum var riðið
utan dyra, en við höfðum aðeins far-
ið á bak þeim tvisvar eða þrisvar."
Þetta segir m.a. í grein Irmu
Schortinghuis, fasteigasala í
Hollandi, í DV í dag. Þar lýsir hún
reynslu sinni af Hestaskólanum að
Ingólfshvoli, en hún var þar við
nám sl. vetur. Tvær greinar sama
efnis, eftir Imu og annan fyrrver-
andi nemanda skólans, hafa beðið
birtingar hjá hestatímaritinu Eið-
faxa síðan í vor. -JSS
Sjá nánar bls. 2 og 13
Dagatöl
NYIAR tV VÍDDIR
Sími 569 4000
Hafnarbraut 23, Kóp.