Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1999, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1999, Síða 8
f Ó k U S 5. nóvember 1999 / * Quarashi-flokkurinn er á fullri ferð þessa dagana. Hann er að fagna útgáfu glænýrrar, spikfeitrar plötu, Xeneizes. Eins og gefur að skilja fylgir útgáfunni mikið flakk og tónleikahald. Síðastliðinn laugardag var stefnan tekin vestur til ísafjarðar og fékk Fókus að slást með í för sem var, vægast sagt, furðuleg. Strandaglópar á hjara veraldar Auðvitað mættu allir allt of seint út á flugvöll. Klukkan var tiu mín- útur yfir þrjú og vélin átti að fara í loftið eftir fimm minútur þegar lít- ill blll, stútfullur af gaurum með húfurnar niður fyrir augu og Technics-plötuspilara í handar- krikanum, brunaði upp að flugstöð- inni. En það var bara kúl og við tókum af stað. Flugferð frá helvíti Um leiö og í loftið var komið fór það ekki fram hjá neinum að flugvél- in hristist allt of mikið. Loftókyrrð- in var þvílík, vélin tók lóðréttar dýf- ur og í öllu vagginu og veltimni lá við að maður skrifaði umsóknar- beiðni í Rauðu örvamar fyrir flug- manninn. Það var eins og stórt tröll, sem hossaði sér aftur og aftur, héngi í bandi neðan úr vélinni. Kannski var þetta ekki tröll, kannski var flugmaðurinn bara haugfullur, hann var nú vægast sagt skrýtinn: „Jæja, góðir farþegar, þetta er allt í lagi. Ja, bara smánorðanstrekkingur héma við Esjuna. En svona í tilefni af því þá er best að þið séuð bara í örygg- isbeltunum alla leið og flugfreyjan komi ekki með kaffi til ykkar. Við viljum nú ekki að allir fái kaffið í klofið, ha!“ Þanin raddböfia og pungsvit. eru einkunnarorð Quarash. a tónleikum. Brostmr draumar Hössa um g.tarsnilli fengu nýtt líf meö smá- hjálp frá Hemma bransakalli. Fljótlega fór maður að finna hvemig þung og römm ælulyktin byrjaði að svífa yfir vötnum í flug- vélinni. Kvöldið áður var að taka sinn toll hjá mörgum farþegum, þar á meðal í búðum Quarashi, og ekki hjálpaði hossandi tröllið. En loks eft- ir klukkutíma af þessarri geðveiki var lagt í bijálaðasta aðflug landsins og lent á ísafjarðarflugvelli. Quarashi blekktir Frábært, skítkalt og snjókoma! Bailhaldaramir taka á móti okkur og keyra okkur út eftir að Á Eyrinni þar sem allt á að gerast um kvöldið. Þar er hamborgurum og kótelettum skellt á borðið og rætt um kvöldið áður. Það er mikill hiti í mönnum því þá átti Quarashi að spila fyrir 16 ára og eldri en vegna fregna um risaskóla- ball sem tæki allan lýðinn frá þeim hættu þeir við. Þá kom í ljós að þetta var allt hreinn uppspuni og var það fyrram umboðsskrifstofu Quarashi, Promo, að kenna. Því var ákveðið að kýla vestur á laugardaginn. Allir vor- um við hálftussulegir eftir bæjar- röltið kvöldið áður og flugferðina frá helvíti og var því ákveðið að fara í sund þegar búið væri að koma sér fyrir á gistiheimilinu. Gaurinn til- kynnir okkur að við þurfum allir að sofa í sama herbergi og flestir em sáttir með það. Þangað til strákamir byrja að rifja upp táfýluna af Sölva sem þeir segja vera þá allra verstu okkar megin við Súesskurð. „Ekki lengin'. Ég læknaðist," segir Sölvi og reynir að sannfæra okkur hina um að hann hafi verið svo mikið berfætt- ur í S-Ameríku að allt sé í lagi. í kjöl- farið vilja allir segja táfýlusögur en loksins drífum við okkur í sund. ísa- fjörður er ekki stór bær þannig að við römbuðum strax á Sundhöllina, hún er við hliðina á bíóinu. Maður- inn sem húkti í dyrunum sagði okk- ur að hún væri löngu lokuð þannig að við ákváðum að bregða okkur yfir í heilsuræktarstöðina sem við höfð- um Iabbaö ö'am hjá. Hún var með pott og leigði sem betur fer út sund- skýlur, þó svo að þær væru skraut- legar, því fæstir höfðu tekið þær með sér. Sölvi og Hössi höfðu samt sigur- inn í ljótum skýlum og þurftu að halda þeim uppi til að þær þjónuðu einhverjum tilgangi. Potturinn vár rnjög þægilegur og hjálpaði mönnuin aöjafna sig. ■ is 11 JH 10 ár eftir í bransanum „Er þetta ekki Fagranesiö?" spyr Hössi, lítandi út á höfn. Það er.fátt um svör hjá okkur hinum. Mikið rosalega er annars mikið af skipum á ísafirðí. Ætli það séu ekki ein tutt- ugu stykki í þessari pínulitlu höfn. Þetta er nú eitthvað skrýtið og kom iríér þónokkuð á óvart. Ég átta mig á þvlað ég veit nánast ekkert um þenn- an'bæ, enda hef ég aldrei komið hingáð áður. Ég þarf að fara að fylgj- ast betur ineð umheiminum. Um kvöiiijliö, þegar beðið var eftir gigginu þýdái lítið annað að gera en Þaö er ekki verra aö hafa eitt stykki Hemma til aö massa 1 græjurnar til fyrir tónleika. Oavld vs. Sölvl Munnræpumaðurinn Um ellefuleytið kemur einn af skipuleggjendum ballsins og segir ekki neitt rosalega mikið af fólki vera mætt á staðinn. „Strákar, þið verðið sko að kíkja yfir og sýna ykk- að hanga úti á gistiheimili við drykkju, Veiðimann og spjall. Inn í hópinn bættist Ómar djassgítarleik- ari sem gisti á sama stað. Hann virt- ist ekki kannast við strákana en var þó nokkuð bransaður. Hafði meira að segja spjallað við Skitamóral í Vest- mannaeyjum og sagðist fila þá. Ómar dró fram gítarinn og djassaði eins og sönnum geggjara sæmir. Honum tókst þó ekki að snúa strákunum al- farið yfir í djassinn þannig að Xeneizes flaug brátt á fóninn. „Það var algjört klúður að missa af tón- leikunum fyrir 16 ára og eldri í gær. Máliö er að við emm að missa af liði sem filar okkur vel og við viljum spila fyrir,“ segir Sölvi. „Annars er þetta í lagi, við eigum 10 ár eftir í bransanum." ur. ísfirðingar verða nefnilega að sjá hvar stuðið er, þá mæta þeir. Sko, ég veit um eitt 50 manna parti og annað 20 manna sem ætla að mæta, þetta verðui' geðveikt. Það vilja sko allir sjá ykkur en ekki Buttercup á Sjall- anum!“ Svoga heldur hann linnulaust áfram í 10 mínútur. Þá er ákveðið að senda Bjössa plötusnúð yflr til að verma lýðinn með ljúfura tónum. „Hvað er þetfa eiginlega, þeir halda | furöuleg bMpHvað eigum við að j gera, labba um, sýna okkur og heilsa liðinu?.“ spyr Hössi okkur hina þegar munríræpumaðurinn eq farinn. Bjössi plötusnúður snýr aftur eftir hálftima með slæmar fréttir: „Þetta er allt fertugt fólk þarna hinum meg- infótrúlega skrýtin stemning. Eina spumingin sem ég fékk var hvort égj ætlaði að spila þessa ömurlegu tón- list í allt kvöld." Stick ‘em up Þetta breytir engu og hálftíma seinna er kíkt á staðinn. Sem betur fer er miklu meira af liði mætt og ágætisstemning. Strákamir stíga á stokk og allt fer i gang. Tónleikamir vom að sjálfsögðu þrusugóðir og lyftu þakinu af húsinu. Það helsta sem ég tók þó eftir var að ísfirðing- ar em ekki gjamir á að klappa eða fagna eftir lög. Þetta fannst mér frekar furðulegt og þegar ég koin inn á klósett tók ég líka eftir því að þeir henda handþurrkunum í piSsuskál- ina. Hvort þetta tvennt helst i hend- ur veit 6g ekki enjþetta er vissulega athyglisvert. Eftir fimm uppklöpp hættu drengirnir áð spila og húsið fékk spennufall. Allir vora ánægðir og fóra beint á barinn. Slatti var nú samt liðinn á nóttina og eins og sannri grúppu sæmir var farið i það að redda eftirparti. „Ekki málið, fór- um,“ sögðu lókalamir. Eftirpartíið var nú ekki ýkja merkilegt eða rétt- ara sagt: Það var ekkert mikið af grúppíum í eftirpartíinu. Einhvem veginn tókst okkur þó að koma okk- ur fyrir í þægilegum sófa með eld- vatn og Formúluna í sjónvarpinu. Biðin ógurlega á Isafjaröarflugvelli. Bylurinn ber niöurnar og vindurinn nístir1 hlustirnar. ' Þó svo aö Bjössl sé glæsilegur ungur maöur er Steini óneitanlega betur lagaður. Quarashl rokkaði húsið svo feitt að þaklð lyftist og flöskurnar brotnuðu yfir barlnn. Alla vega vora þama bílar. Partíið var samansafn af furðulegu fólki sem talaði of mikið og einum hundi sem heitir Sesar. Þetta var viðkunn- anlegasti hundur sem var greinilega ..vanur gestagangi. Kannski á hann það til að verða einum of hrifinn af gestunum því einu skilyrði gest- gjafans þegar hann skildi okkur eina eftir í húsinu (hann og allir aðrir forðuðu sér í annað partí) var að : passá að hundurinn færi ekki með okkur út. í haldí á ísafirði Morgunninn eftir var nú ekki sá gæfulegasti sem ég hef upplif- að. Við vöknuðum klukkan 12 og fengum að vita að það heföi farið vél í bæinn klukkan 11 en útlitið væri ekkert allt of gott það sem eftir væri af deginum. Eftir mikl- ar stunur og smámat í magann drifum við okkur út á flugvöll með geðveikislegan glampa í aug- unum og endurtekningu í hugan- um: Við förum heim, við lörum heim. Þegar við erum búnir að sitja i klukkutíma úti á velli segir flugvallargaurinn í hátalaranum: „Farþegar á leio til Reykjavíkur, vélin er stödd á Patreksfirði og ætlar að reyna að fljúga hingað yfir.“ Þó svo að þetta hljómaði ein- um of tvísýnt voru þetta góðar fregnir og núna gat maður rýnt með jánægju í gegnum bylinn á I himinhá fjöllin. Eftir mikla spennu lenti vélin hálftíma síðar. I Farangrinum var hent inn og allir hlupu' í sætin og öskruðu: „Go!“. „Þetta hafðist," sagði Sölvi. Halldór V. Sveinsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.