Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1999, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1999, Blaðsíða 21
artin Lawrence ?glumanninn ian hann fæst vid ilgast demant éímur árum. svalasti Hin kostulega spennu- og gam- anmynd Bad Boys gerði tvo óþekkta leikara að stjörnum, Will Smith og Martin Lawrence. Þeir stóðu jafnfætis eftir þá mynd en vegm- Will Smith hefur allur verið upp á við, á meðan Martin Lawrence lék í misheppnuðum kvikmyndum þar til nú að Blue Streak sló óvænt í gegn í Banda- ríkjunum þar sem hún hefur ver- ið meðal vinsælustu kvikmynda á undanfórnum vikum. Hvort vinsældirnar hafi eitt- hvað með það að gera að Martin Lawrence veiktist lífshættulega nokkrmn dögum fyrir frumsýn- ingu skal ósagt en alla vega þykir hann fara á kostum í hlutverki meistaraþjófs, sem þarf að dulbú- ast sem rannsóknarlögregla til að nálgast þýfi sem hann faldi fyrir tveimur árum. Lawrence leikur Miles Logan, sem tveimur árum áðm- hafði ver- ið svikinn af félaga sínum. Þeir höfðu staðið fyrir miklu ráni í New York á demant sem metinn er á 20 milljón dollara. Þegar rán- ið mistekst vegna svika tekst Miles að fela demantinn áður en hann er handsamaður af löggunni. Hann felur demantinn í nýbygg- ingu einni og leggm- vel á minnið hvar staðurinn er: „Þriðja hæð, norðurhliðin - homið á Fimmtu og Grand-stræti. Miles afplánar tveggja ára dóm í fangelsi og fer strax að felustaðnum. Þegar þang- að er komið bregður honum held- m- betur í brún því þá sér hann að húsið, sem demanturinn er falinn í, er lögreglustöð. í fyrstu ákveður Miles að dulbúast sem pitsusendill og ráfa um lögreglustöðina til að forvitnast um afdrif þýfisins. Hann hefur ekki árangur sem erf- iði í því hlutverki. Það þarf mun áræðnari áætlun sem felst í því að Miles dulbýr sig sem rannsóknar- lögreglumaður. Hann kallar sig Malone og fellur strax inn í hóp- inn enda maður mannblendinn og með kjaftinn á réttum stað. Hann fær þó ekki mikinn frið til að finna demantinn góða því afbrotin eru mörg sem þarf að leysa, auk þess er honum fenginn félagi í læri sem erfitt er að umbera..." Auk Martins Lawrence leika í myndinni Luke Wilson, Peter Greene, William Forsythe, Dave Chapelle og Nicole Ari Parker. Leikstjóri er Les Mayfield sem síð- ast leikstýrði Flubber með Robin Williams i aðalhlutverki. Aðrar myndir sem hann hefur leikstýrt eru Miracle on 34th Street og Encino Man. -HK * - * Martin Lawrence er í tvöföldu hlutverki í Blue Streak, lögreglumaður á yfirborð- inu en demantsþjófur í eöli sínu. Martin Lawrence „Ef þú trúir ekki á sjálfan þig, hver trúir þá á þig? Það er fullt af fólki sem vill koma þér á framfæri en þetta fólk er kannski ekki að hugsa um þinn frama fyrst og fremst, það er því nauð- synlegt að skapa sín eigin tækifæri sjálfur." Þetta er lífsmottó Martins Lawrences, sem fæddist 15. apríl 1965 og hefúr verið gamanleikari frá því hann var táningur, Hann kom fyrst fram í sjónvarpsþættinum Star Search og vakti strax mikla athygli. Fékk hann fljótt boð um að koma fram í sjónvarpsþáttum og á skemmtistöðum. Skólagangan varð ekki löng og skemmtanabransinn tók við honum fimmtán ára gömlum. Strax í upphafi var það grófur húmor sem stundum var á mörkum velsæmis sem fleytti honum áfram og þessi grófi húmor passaði vel í hina vinsælu sjónvarps- þætti Saturday Night Live og Def Comedy Jam en í fimm ár starfaði Martin Lawrence nánast eingöngu í sjónvarpinu. Áður en hann sló í gegn sem grínisti hafði hann þó leikið lítil hlutverk í kvikmyndum og var það Spike Lee sem fyrstur bauð honum hlutverk. Kvikmyndaheimurinn með- tók hann þó ekki fyrr en með Bad Boys. Helsti galli við feril Lawrence sem kvikmyndaleikara er að hann er nánast alltaf að endurtaka sig: Do the Right Thing, 1989 Talkin' Dirty After Dark, 1991 Boomerang, 1992 Bad Boys, 1995 A Thin Line Between Love and Hate, 1996 Nothing To Lose, 1997 Life, 1999 BlueStreak, 1999 -HK BMW Compact Sport Edition Grjótháls 1 söludeild 575 1210 Giæsilegur BMW sportbíll! Glæsilegur BMW, hlaðinn aukahlutum og búnaði, með aksturseiginleika sem aðeins BMW státar af. Sérstakur búnaður: • M-leður/tau áklæði á sætum • M-leðurklætt stýri • M-fjöðrun • M-spoilerar allan hringinn • 10 hátalara hljómkerfi • Þokuljós • Fjarstýrðar samlæsingar og ræsivörn BMW ánægja og öryggi: • BMW útvarp með geislaspilara • ABS og ASC+T spólvörn • 4 loftpúðar, 5 höfuðpúðar • Vökva- og veltistýri • Frjókornasía í loftræstingu 1.948.000 kr. Engum líkur * Aukabúnaður á mynd: álfelgur. 5. nóvember 1999 f Ókus 21

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.