Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1999, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1999, Blaðsíða 15
 aldir upp í kauphöllum úti í heimi og það snjallir, margir hveijir, að þeir sem hingað til hafa setið í ákvörðunarstólum og við völd sjá ekki við þeim. „Þessir ungu gullgrafarar eru kallaðir barnabankastjórar," held- ur Sigmjón áfram, „en mín tak- markaða reynsla af þeim er að þeir eru allir eldklárir, yfirleitt vel menntaðir og víðsýnir og ég myndi veðja á þá hvenær sem er.“ Ertu kapítalisti? „Ég lít á það þannig að hluti af þeirri þversögn sem býr í mér er að í aðra höndina er ég þessi eld- harði amerískmarkaði bissness- maður en í hina höndina er ég fé- lagshyggjumaður sem hef engan áhuga á að græða peninga pening- anna vegna. Peningar eru og eiga að vera hreyfiafl og hvati til að ýta undir nýsköpun og framþróun á öllum sviðmn, hvort sem um er að ræða viðskipti eða listir. Að safna peningum í sarpinn er jafnsiðlaust og að sóa þeim.“ Fjörðurinn góði Hvar ertu núna? „Ég er nú bara í göngutúr," seg- ir Sigurjón en þannig nær hann deginum úr sér. Annað hvort með langri gönguferð eða TM-hug- leiðslu sem hann reynir að iðka tvisvar á dag. Ertu ekki kominn i þá stööu í dag að þú getir gert hvaö sem þú vilt? „Það er nú sagt í kvikmynda- bransanum að þú sért bara jafn- góður og síðasta mynd sem þú gerðir." Hvaö meö heimferö, á ekkert aö fara að flytja heim? „íslendingar eru húnir að tala um að fá mig heim í 15 ár en þar sem ég eyði miklum tíma á íslandi þá finnst mér ég halda góðum tengslum. Ég á líka hús á íslandi og stimda viðskipti en er samt nokkuð viss um að ég kem ekki heim á næstu fimm árum. Samt veit maður aldrei.“ Og þú ért aö spá í aö kaupa þér fjörö? „Já,“ segir Sigutjón og hlær. „Maður kemur kannski heim ef maður fær fjörðinn góða.“ Fjörður- inn góði heitir Hellisfjörður og Sig- urjón er enn að reyna að kaupa hann. „Þetta er nú dæmigert ís- lenskt með fjörðinn góða fyrir austan. Ég er viðriðinn kaup á þessum firði og það er komið í blöðin." gaman að sjá hvað kemur út úr því.“ Á nœstunni koma frá syni þínum tvœr ef ekki þrjár íslenskar biómynd- ir. Ertu ekkert aö hjálpa honum viö Jjármögnun? „Nei. Það var einmitt einn úr kvik- myndabransanum heima að spyrja mig út í það af hveiju ég tæki ekki meiri þátt í því sem Þórir er að gera en ég vil alls ekki gera neitt til að hafa áhrif á hans myndir nema þá að gefa honum góð ráð. Ég hef alla vega aldrei látið Þóri hafa neitt og ég vildi fá hann, á sínum tíma, hingað út í kvikmyndaskóla í Hollywood," segir Siguijón og bætir því við að sonur hans hafi ándúð á Hollywood. En nú ertu aftur farinn að ala upp. Þiö Sigríöur œttleidduö Sigurborgu, sem nú er fimm ára, fyrir nokkrum árum. Er ekki skrýtið að verða pabbi í annað sinn? „Jú. Þaö er mjög athyglisvert að ala upp bam í annað sinn og maður hefur orðið að hægja aðeins á sér til að njóta uppeldisins. Þetta er allt öðruvísi en þegar Þórir var bam. Það er lítið sem ekkert kynslóðabil á milh mín og Þóris. Margir vina hans eru vinur mínir og þess vegna vil ég meina að maður eigi annað hvort að eignast bam mjög ungur eða á miðj- um aldri þegar maður hefur róast að- eins.“ Ekki með leikstjóra- drauma En hefur þig aldrei langaö til aö leikstýra myndum í staö þess að framleiöa þær? „Nei. Þó ég sé fagmenntaður leik- stjóri hef ég ekki viljað leikstýra myndum. I fyrsta lagi hef ég verið svo heppinn að vinna með mörgum af bestu leikstjómm heims og það er erfiður samanburður. í öðru lagi þá hentar mér best að vera með tíu bolta í loftinu í einu. En ef það myndi hægjast eitthvað um hjá mér gæti ég hugsað mér að skrifa og kannski geri ég það einhvem tima á næstu öld.“ Nú framleiöiröu kvikmyndir til af- þreyingar fyrir fólk úti um allan heim, hvaö gerir þú þér til afþreying- ar? „Min helsta afþreying er að lesa og ég kaupi mikið af íslenskum bók- um þegar ég er á íslandi en kanadískum bókum þegar ég er í Kanada og svo framvegis. Ég reyni svona að kynnast því sem er helst á döfinni í því landi þar sem ég er staddur í það og það skiptið.“ Hefurðu einhvern tíma lesiö bók, keypt réttinn og filmaö? „Já. Til dæmis Wild at Heart og Thousand Acres.“ Svona að lokum: Þegar þú varst í flugvélinni á leiöinni út í nám í Bandaríkjunum, hvarflaói þaö aö þér aö þú yröir staddur þarna í dag? „Ég hafði nú alltaf hugsað mér að læra kvikmyndagerð og fara svo heim og gera íslenskar kvikmyndir. Þegar ég var búinn í námi var kon- an mín enn í námi og ég fór að finna ' mér eitthvað að gera,“ segir Sigur- jón og sá hefur aldeilis fundið sér eitthvað að gera. -MT Eldra barn Siguijóns og konu hans Sigríöar Þórisdóttur er kvik- myndaframleiðandi eins og pabb- inn. Hann heitir Þórir Snœr og ólíkt pabbanum framleiðir hann myndir á íslandi, á íslensku. „Auðvitað finnst mér spennandi að Þórir skuli vera að gera það sem ég ætlaði mér að gera fyrir 20 árum. Ég ætlaði mér alltaf að fara heim og framleiða myndir á ís- landi. En nú eru alla vega mjög spennandi hlutir í gangi heima og Það er erfitt að vera manneskja og þeim mun ómögulegra að vera heiðarleg manneskja. Þetta veit Fókus og getur eiginlega ekkert gert í þessu annað en að hvetja fólk til að taka þetta próf hérna og reikna út hvort þér sé bjargandi eða að þú sért á beinni leið á Hraunið og munir á endanum brenna í helvíti. Ertu glæpahundur? ®Ef þú færð vitlaust til baka í búðinni, vílarðu ekki fyrir þér að stela upphæðinni, enda er þetta allt sama fýrirtækið? Já Nei 0Þú átt svartan skuldlausan BMW? Já Nei #Hefurðu einhvem tima farið niður í bæ og dottið í það, verið í réttum og teigað brennivín fyrir framan fullt af fólki eða með einhverjum hætti drukkið á almannafæri? Já Nel #Hefurðu hengt upp plakat á raf- magnskassa? Já Nel #Finnst þér sjálfsagt að horfa á sjónvarpið hjá vini þínum án ^ þess að hafa samband við Innheimtudeild Ríkisútvarpsins? Já Nel #Finnst þér leikritið Rómeó og Júlía góð skemmtun þrátt fyrir að verkið fjalli um tólf ára krakka sem gifta sig og þar af leiðandi er efnið viðbjóðslegt barnaklám? Já Nel #Hefurðu pissað í námunda við alþingishúsið þannig að eitthvað gæti hafa slest á það ef vindáttin hefði ver- ið rétt? Já Nei ®Hefurðu stolið smápeningum frá foreldrum þínum? Já Nel ®Hefurðu átt gæludýr sem dó vegna vanrækslu? Já Nel #Ef systir þín eða besta vin- kona væri einstæð móðir en byrjuð að dúlla sér með ein- hverjum gæja sem væri nánast fluttur inn en hún vildi ekki gera mikið úr því til að tapa ekki barna- bótum, myndirðu hylma yfir með henni? #Yfirmaður þinn kemur til þín og segir þér að þú haf- ir staðið þig ofsa- lega vel í góðærinu síðustu mán- uði og til að und- irstrika ánægju slna gefur hann þér nýjan GSM-síma. Biðurðu hann vin- samlegast um að gefa símann upp sem fríðindi og borgar af honum skatt? já Nei #Hefurðu sofið hjá manneskju sem var yngri en átján ára þegar mökin áttu sér stað? Já Nei ®Hefurðu einhvern tíma grætt á samförum annarra? Til dæmis þegar systir þín eða frænka var að passa þig í gamla daga og einhver gaur kom í heimsókn og gaf þér fullt af nammi til að þú myndir halda kjafti á meðan hann færi inn í herbergi með tíkina og tæki hana? Já Nei #Hefurðu freistast til að fara yfir á rauðu ljósi þegar engir eru á ferli? Já Nei #í Bretlandi er eingöngu leyfilegt að tveir karlmenn stundi endaþarmssamfarir og þá ólöglegt fyrir konu og karl að stunda slíkan ólifnað. Hefurðu stundað enda- þarmssamfarir við hitt kynið í Bretlandi? Já Nei # Gefurðu þau símtöl upp til skatts, sem launafríð- indi, sem þú hringir fyrir sjálfan þig í vinnunni? Já Nel #Áttu hníf með yfir sjö sentímetra löngu blaði sem þér þykir sjálfsagt að fara með út úr húsi ef svo ber undir? Já Nei #Hefðuröu stundað samfarir undir berum himni? Já Nel #Keyrirðu aldrei hraðar en á 30 kílómetra hraða í íbúðarhverfi? Já Nei #Þegar þú gengur út úr rikinu með fuflan plastpoka af brennivíni er þér þá skítsama um að þú ert að brjóta lög um að bannað er að hafa brennivín undir höndum á almannafæri? já Nei #K a u pir ð u óskrásettar eftir- líkingar (eða, hreinlega falsan- ir) á heimsþekkt- um vörumerkjum í Kolaportinu? Já Nel #Er eitthvað for- rit í tölvunni þinni fengið með ólöglegum hætti, þá kóperað eða fengið hjá vini? Já Nel #Vinnurðu hjá Rimax-kjötvörum? Já Nei #Hefurðu keypt brennivín einhvers staðar annars staðar en í ÁTVR? Já Nei #Þegar þú leggur í bílastæði með stöðumæli og sérð stöðumælavörðinn ganga í burtu, sleppirðu því þá að borga í þeirri trú að hann muni ekki koma aftur fyrr en eftir klukkutíma? Já Nei #Fyndist þér ekkert mál að fjölfalda klámmynd fyrir vin þinn? Já Nei #Hefurðu reykt hass eða marjuana eða tekið kókaín eða amfetamín í nefið eða gleypt Ecstacy eða sýru? Já Nel #Ef frændi þinn, sem er nítján ára og hljóp yfir einn bekk í Menntó, væri að útskrifast sem stúdent úr MH og bæði þig að redda sér kippu af bjór i tilefni dagsins myndirðu láta það eftir honum? Já j Nei #Hefurðu tekið geisladisk eða hljómplötu upp á kassettu án þess að hafa samband við höfundinn? Já [ Nei #H e f ð u r ð u barið frá þér þannig að ein- hver hljóti minnsta skaða af? Já Nel Teldu stigin Fyrir hvert „Já“ færðu fimm stig en tvö fyrlr „Nel“. 1-59 stlg: Jæja, kallinn (eða kerlingin). Þú ert ekki bara lyginn og ófyrir- leitinn heldur glæpahundur af verstu gerð þar sem það er ekki hægt að fá undir 60 stigum í þessu prófi. Hvernig fórstu eiginlega að þessu? Ann- að hvort ertu svona heimskur að þú getur ekki lagt saman eða þú ert for- fallinn lygalaupur. Þú ert mjög sár yfir því að þínu aðalheimili, Keisaran- um, var lokað í vikunni, er það ekki? Eina von þín er að Jesú Kristur end- urfæðist á íslandi, hitti þig og frelsi. Haldi þér frá dópi og þjófnaði eða snerti þig með þeim hætti að þú fáir eitthvað af heilasellunum sem þú hefur drukkið frá þér, aftur. 60-89 stlg: Sæll, Jesús. Hvar hefurðu verið? Þú ert heilagri en Maria mey. Ert eflaust hrein mey eða hreinn sveinn og ef þú býrð yfir þeim hæfi- leikum að lækna sjúka - sem þú eflaust gerir - ertu vinsamlegast beð- inn að tilkynna þig I afgreiðslu DV. Við ætlum að taka viðtal við þig í Kirkjugörðum Reykjavfkur til að athuga hvort þú getir lífgað hina látnu viö. En ef þú ert ekki, Jesú, þá er nokkuð Ijóst að einhver óprúttinn aðili hefur lokað þig inni við fæðingu og ætlar aldrei að hleypa þér út. Búðu þér til vopn úr hnífapörum og berstu, berstu, berstu. 90-119 stlg: Helgin er að koma og þú veist því hvað þú átt í vændum. Ef þú vaknar ekki einn morguninn á löggustöðinni þá munu þeir heim- sækja þig eftir helgi vegna gruns um að þú hafir framið eitthvað af glæp- unum sem framdir voru um helgina. Auðvitað ertu saklaus en það eru all- ir saklausir. Þú verður að taka þig á og reyna að ganga þröngan veg rétt- vísinnar sem góður maður. Það væri því best fyrir þig í stöðunni að tölta niður á Lögreglustöð og játa allt. Yflr 120 stlg: Þetta er auðvitað sjokk fyrir þig en þar sem þú ert á Hraun- inu ráðleggur Fókus þér að hafa samband við fangelsissálfræðinginn og ræða þetta við hann. En kannski gengur það ekki. Ætli fangelsismála- stjórinn banni þér ekki að tala við hann vegna sparnaðar. En það bannar þér enginn að tala við sjálft almættið. Það er líka eina vitið. Spurðu al- vitran guð þinn hvort þú eigir þér viðreisnarvon. Hann svarar auðvitað ekki en þú getur huggað þig við að ef hann myndi tala við okkur mennina þá myndi hann segia þér að þú færir til helvítis. ■■■■■■■■■■■■■■■■■■ mm wmmm 5. nóvember 1999 f ÓkllS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.