Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1999, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1999, Side 10
■iniiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiii—nnnmiiiii[iiiiiimfinwMii[ vikuna 11.11- 19.11 1999 46. vika Jæja, þá eru Mausararnir byrjaðir að klóra í bakið á öllum topplögunum. Þeir koma galvaskir inn á listann með lagið Strengir og hoppa beint upp í 7. sæti úrþví 19. Fyrirþá sem eru lélegir 'jf í hugarreikningi eru þetta heil tólf sæti. Vá, frábært! Topp 20 (01) ToBeFree @ Stick’Em Up (03) Burning Down The House (04) Sun Is Shinning (05) Égerkominn (06) NewDay (07) Strengir (08) (You Drive Me) Crazy (09) Thursday’s Child (70) Supersonic (77) Deeplnside (72) Myndir (73) She’sTheOne (74) Alltáhreinu (75) Knew I Loved You (76) That’s The WayItIs (77) JustMyImagination Emilíana Torrini 0 8 Quarashi ‘t' 2 Tom Jones & The Cardigans 4 10 Bob Marley & Funkstar 1* g Sálin hans Jóns míns 4- 7 WyClefJean & Bono -4 4 Maus / B Britney Spears 4 9 David Bowie 'T 4 Jamiroquai 4 7 Páll Óskar t 5 Skítamórall 4 6 Robbie Williams 4 6 Land og SynirUnpretty ■f 5 Savage Garden Celine Dion The Cranberries t 4 X 1 t 3 78 Parada De Tettas Vengaboys 4 4 (79) Turn YourLights Down Low Lauryn Hill& Bob Marley 4 4 ýO) Selma t 3 Sætin 21 til 40 0 lopplag vikunnar 21. Heartbreaker Mariah Carey 22. BugABoo Destiny’s Child t 3 J hástðkkvari Jf víkunnar 23. IGotaGirl Lou Bega * 5 r 24. What’Cha Gonna Do Etemai X 1 )( nýtt á listanum 25. When The Heartache Is Over Tina Turner t 4 ?<£ stendurlstaS 'Jví' 26. Baraþig Sóldögg t 2\ hækkar sig frá 1 sftlistu víku 27. Around The World Red Hot Chilli Peppers 4 10 28. BlackBalloon Goo Goo Dills 4-3 i lækkar sig frá sifltstu viku 29. ITry Macy Gray 4- 2 30. 1 Saved The World Today Eurythmics n e fallvikunnar 31. Rhythm Divine Enrique Iglesias 4- 1 32. There She Goes Sixpence None The Richer 4* 10 33. Unpretty TLC 4, 21 34. KeepOnMovin’ Five X 1 35. NewYorkCityBoy PetShopBoys 4- 3 36. It’sOverNow Neve t 2 37. WÍII2K WillSmith X 1 38. GiveltToYou Jordan Knight t 2 39. She’sAll 1 Ever Had Ricky Martin í 4, 8 40. She’sSoHigh Tal Bachman X 1 Ifókus f Ókus 12. nóvember 1999 Bestu urnar eru Neil Tennant og Chris Lowe eru orðnir 45 og 39 ára. Saman hafa þeir þraukað í átján ár sem dúettinn Pet Shop Boys. Nýjasta platan, „Nightlife", sýnir að það er enn hellingsorka eftir í þeim gömlu og auðþekkjanlegt svuntu- þeysadiskóið þeirra gleður sem aldrei fyrr. Á Englandi hafa stundum kom- ið fram lagahöfundar sem saman hafa hitt naglann eftirmennilega á höfuðið. Lennon og McCartney og Jagger og Richards eru sígild dæmi en bæta má við Morrissey og Marr úr The Smiths og svo þá Tennant og Lowe sem saman myndi Pet Shop Boys. Fundum þeirra bar saman 1981 og fyrstu árin fóru í að gera demó sem gerðu ekkert. Úr samkrulli með diskó-framleiðandanum Bobby Orlando kom loks fyrsta útgáfan, lagið „West End Girls", 1984 og svo lagið „Opportrmites (Let’s Make Lots of Money)“, sem var háðsádeila á enskt þjóðfélag undir hægri stjórn Margrétar Thatcher. Með því þótti ljóst að Pet Shop Boys væru helstu kald- hæðnispúkar poppsins. plötudómur Glatt/sorgmætt diskó/popp að var samt ekki fyrr en árið hjólin fóru að snúast. Þá útgáfa Stephens Hagues End Girls“ og svo vel tókst til að sú smáskífa skreiddist í fyrsta sætið í Englandi og Amer- íku. Fyrsta stóra platan var „Plea- se“ og þar mátti strax heyra út á hvað sveitin gekk: tímalaust svuntuþeysa diskó/popp, glöð/sorgmædd lög með eftir- minnilegum viðlögmn og músík- in minnti jafhan á gamla sígilda dægurlagatíma Dietrich, Piaf og Brel. Platan „Actually" frá 1987 seld- ist gífurlega og hlaut ófá tónlistar- verðlaunin. Hér voru Gæludýra- búðarlokurnar á algjörum há- punkti eins og lögin „It’s a Sin“ og „It Couldn’t Happen Here“ bera vitni um. Platan „Introspective" kom næst (1988) og 1989 bar með sér samstarf við Dusty Springfield og Lizu Minnelli. Pet Shop Boys fóru einnig í sinn fyrsta alheimstúr á þessu ári. Dúóið virðist ekki mjög myndrænt við fyrstu sýn en tón- leikar þess ganga upp því notast er við dansara, leiktjöld, ljós og búninga til að skapa eftirminnileg sjó. Maus — í þessi sekúndubrot sem ég flýg ★★★★ Tertuhlaðborð Mausaranna Eins og Frank Sinatra! „Nightlife" er fjórða breiðskífa PSB á þessum áratug. Hinar eru ballöðuplatan „Behaviour” frá 1990, hin ofurgrípandi „Very“ frá ‘93 og „Bilingual" frá ‘96. Þar sögð- ust þeir vera undir suður-amerísk- um áhrifum enda nýbúnir að ferð- ast um latnesku Ameríku. í hvert skipti sem plata kemur út hefur bandið breytt um útlit og fá bönd eru jafnútlitslega meðvituð. Nú kynna karlarnir sig með appel- sinugulum hárkollum, sólgleraug- um og gylltum Versage málaragöll- um. „Við höfum alltaf verið okkur mjög meðvitandi um að vera ekki ekta, okkur finnst það skemmti- legra,“ segir söngvarinn Neil. „Mér hefur alltaf þótt bestu poppstjöm- urnar þær sem maður trúir varla að séu til í alvörunni." „Öll lögin á nýju plötunni gerast að nóttu,“ heldur söngvarinn áfram. „Á nóttunni er skynjun fólks á lifinu öðruvísi. Það er auð- veldara að verða hræddur og þörf- in fyrir ást og kynlíf er stærri. Allt þetta túlkum við á plötunni. Á viss- an hátt minnir platan mig á sumt af því sem Frank Sinatra gerði á sjötta áratugn- um. Platan okkur er nokkurs kon- ar nýtísku danspoppútgáfa af plöt- um eins og „In the Wee Small Ho- urs“.“ Þegar hefðbundinni tónleikaferð til að kynna „Nightlife" lýkur mun sveitin einbeita sér að söngleik sem hún hefur unnið að nokkuð lengi með leikritaskáldinu Jonath- an Harvey. „Fólk sagði að við myndum bara endast í þrjú ár þeg- ar við byrjuðum," segir Chris, „en við höfðum önnur plön.“ Og það er hverju orði sannara: Fá bönd lifðu af níunda áratuginn og fá bönd halda inn í næsta áratug með jafnmiklu öryggi og Pet Shop Boys. Svei mér þá ef það eru ekki bara komin rúmlega sex ár síðan Maus sigraði í Músíktilraunum. Strákarnir úr Árbænum dunda sér í rokkvitleys- unni sem aldrei fyrr og eftir tveggja ára hlé snúa þeir nú aftur með ijórðu plötuna. Fyrstu tvær voru svona og svona en með þeirri þriðju (Lof mér að falla að þínu eyra 1997) fékk band- ið loks almennilega athygli því lögin voru orðin grípandi rokklög sem skildu slóð eftir sig í heilum hlust- enda. Það sama er upp á teningnum hér. í Rokkkaupum er rokkið hjá Maus í sérhillu og það er séríslenskt eins og harðfiskur. Það heyrist strax að þetta er Maus. Auðvitað er það brothætt söngrödd Birgis sem kemur fyrst upp um Maus. Þeir sem þola ekki Maus skrifa óþolið á sönginn. En Birgir hefur aldrei verið jafn ör- uggur og hér enda hélt Daníel Ágúst í höndina á honum þegar platan var tekin upp. Og þau eru aldeilis alls konar blæbrigðin sem tekist hefur að kreista úr þessum takmörkuðu radd- böndum. Hljóðfæraleikarar Maus eru menn leikfléttna og „þeir eru öruggir í öllum sínum aögerðum" eins og færir íþróttamenn. Þeir fara þó aldrei auðveldustu leið heldur finnst þeim gaman að sprikla í kringum tónana. Til viðbótar fjörmikilli rokk- heföinni glymja á köflum strok- og blásturshljóðfæri f útsetningum Samma Jagúars. Það er algjör rjómi á tertuna sem aldrei slettist og lekur niðrá borð. Platan byrjar suddalega vel en hún lyppast aðeins niður í end- ann. Lögin eru tíu. Fimm eru frábær, þrjú eru fin, tvö ekkert sérstök. Það er nú ágætis hlutfall hefði maður haldið. Hnausþykkar djöflatertur eru fiðlurokkballöðurnar Draumafíkill og Kerfisbundin þrá - hlustendur munu standa á andlegu blístri og hvað er betra en að éta yfir sig af góðu rokki? Strengir og Gefðu eftir eru flott „í Rokkkaupum er rokkið hjá Maus í sérhillu og það er sér- íslenskt eins og harðfiskur.“ rokklög, það síðarnefnda meira „grúfi“ en Maus hafa áður verið. Bát- urinn minn lekur er svo enn eitt frá- bæra Maus-lagið, hægt/hratt, og Birgir flytur það krúttlega. í því er hann að syngja um mið- aldra mann sem er að fjara út og missa hárið á „aðgerðaleysisströnd". Dálítið háalvarlegur alltaf í texta- geröinni, hann Birgir, en ofarlega í fyrstu deild íslenskra textasmiða, það er ekki spurning, þó maður trúi sjaldnast að hann sé að syngja frá eig- in brjósti. Vonum allavega að depurð- in sé ekki öll ekta, hans vegna, held- ur skáldskapur. „í þessi sekúndubrot sem ég flýt“ er besta plata Maus til þessa. Svo ein- falt er það nú. Dr. Gunni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.