Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1999, Síða 11
Ein áhrífamesta raftónlistarútgáfa heims er Warp
merkið í Sheffield. í tilefni af 10 ára afmælinu kynnti
TVausti Júlíusson sér málið og skrifaði afmælisgrein
Tíu ár með
tiþrifum
Warp-útgáfan í Sheffield er ein
áhrifamesta og virtasta útgáfa raf-
tónlistar í heimunum í dag. Hún hef-
ur á snærum sínum listamenn á
borð við Aphex Twin, Squarepus-
her, Autechre (sem kom til íslands
í vor), LFO, Boards of Canada,
Nightmares on Wax, Plaid, Broa-
dcast, Plone, Jimi Tenor, Red
Snapper o.fl.
í haust fagnar WarplO ára afmæli
sínu, meðal annars með þremur tvö-
fóldum geisladiskum. „WarplO-1 In-
fluences" inniheldur efni sem hafði
áhrif á stofnun fyrirtækisins,
„WarplO-2 Classics" hefur að geyma
sígild stykki frá þremur fyrstu árum
útgáfunnar og „WarplO-3 Remixes"
er safn 25 laga úr sögu merkisins
sem eru endurunnin af nokkrum af
fremstu raftónlistarmönnum dags-
ins í dag.
Það sem einkennir þessar plötur
og jafnframt sögu Warp er hversu
vönduð vinnubrögð eru þarna á
ferðinni. Öll smáatriði frá lagavali
til umbúða eru fullkomin. Og það er
ekki bara verið að henda saman ein-
hverju dóti i afmælispakka heldur
er alvöru konsept á ferðinni. Þú
færð í hendumar glás af góðri tón-
list en auk þess heimild sem
varpar ljósi á sögu Warp og
jafhframt á sögu og þróun raf-
tónlistar síðustu 13 árin. (In-
fluences-diskurinn inniheld-
ur efni frá árunum
1986-1990).
Þegar Steve Beckett og
Rob Mitchell stofnuðu Warp
árið 1989 var útgáfa á dans-
tónlist í Bretlandi á mjög
frumstæðu stigi. Acid house
sprengjan, sem hófst fyrir al-
vöru 1988, (og hafði aðallega
notast við influtt house og
teknó frá Detroit og
Chicago) var í rénun og það
sem var að gerast á senunni
var annars vegar indie-reif
blanda Happy Mondays o.fl.
í Manchester og hins vegar
nýtt breskt reif sánd -
„hardcore", sem var upphafið
að nýrri og mun stærri reif-
bylgju sem notaðist mest við
breska útgáfu. Upphaflega var
Warp hluti af þessaru senu.
Fyrstu útgáfur Warp voru hrá
og einfold tegund af danstón-
list. Forgemasters, Night-
mares on Wax, LFO, Sweet
Exorcist og Tricky Disco
voru helstu nöfnin.
„Bleep & bass“
En Sheffield-senan og Warp
mörkuðu sér fljótlega sér-
stöðu. Þungur bassi og sker-
andi píp lagsins „Testone"
með Sweet Exorcist (sem í
var m.a. Richard Kirk úr
Cabaret Voltaire) gaf
Sheffield-afbrigðinu nafnið
„bleep and bass“ en það þró-
aðist síðan út í að vera kall-
að bara „bleep“. Nokkrar af
Aphex Twin: engar smávegis túttur!
fyrstu smáskífum Warp náðu mik-
illi útbreiðslu.
Fimmta útgáfa fyrirtækisins, lag-
ið LFO með samnefndri hljómsveit,
sem skipuð var tveimur unglingum
frá Leeds, Mark Bell (sem síðar
vann „Homogenic" með Björk) og
Gez Varley, komst t.d. í 12. sæti
breska listans árið 1990 og var sam-
fellt 10 vikur á listanum. Warp áttu
nærri 2 prósent af allri plötusölu í
Bretlandi það árið. Bleep sándið
hafði mikil áhrif úti um allan
heim, t.d. á nýja kynslóð tónlistar-
manna í fæðingarborg teknósins,
Detroit, menn eins og Richie
Hawtin og John Acquaviva.
Það má segja að hardcore-senan í
Bretlandi árin 1990-92 hafi verið
upphafið að þeirri grósku sem hef-
ur verið þar síðan. Með henni
lærðu menn að gefa út plötur og
upp úr henni þróuðust mörg þau
afbrigði danstónlistar sem eru
hvað útbreiddust í dag, t.d.
jungle/drum & bass.
„Artificial lntelligence“
Þegar hardcore-tónlistin var farin
að þreytast nokkuð, árið 1992, sneri
Warp algerlega við blaðinu. Hún gaf
út safnplötuna „Artificial Intellig-
ence“ sem var beinlínis boðberi
nýrrar tegundar danstónlistar. Nú
var það danstónlist til að hlusta á
heima í stofu. Artificial Intelligence,
sem á voru m.a. stykki með
Autechre, Black Dog og The Dice
Man (öðru nafni Aphex Twin),
markaði tímamót. Hún var yfirlýs-
ing um að þú þyrftir ekkert endilega
að stíla inn á dansgólfið þó að þú
værir að búa til raftónlist. Warp hef-
ur síðan mest verið að gefa út tónlist
til heimabrúks en hefur á síðustu
árum einnig bætt við sig poppaðri
númerum, listamönnum eins og
Finnanum frábæra Jimi Tenor og
Red Snapper en þeir notast nær ein-
göngu við hefðbundin hljóðfæri og
hafa þvi nokkra sérstöðu hjá Warp.
Þegar maður hlustar á þetta klass-
íska efni frá fyrsta skeiði Warp þá
slær það mann hvað þetta er ennþá
ferskt. Þróunin í þessari tónlist er
mjög hröð og því er maður búinn að
venjast hugmyndinni að það sem er
gott í dag geti jafnvel verið orðið úr-
elt eftir hálft ár. Eitt af því sem
Warp hefur tekist er að þróa útgáf-
una með tíðarandanum án þess þó
að stökkva á það sem er mest í tísku
hverju sinni. Plötuútgáfa er alltaf
spurning um að veðja á réttan hest,
alltaf svolítið stökk út í óvissuna.
Warp hefur sjaldan skjátlast. Það
hafa fleiri danstónlistarútgáfur náð
svona löngum starfsferli (t.d. R&S í
Belgíu) en það sem gerir Warp ein-
staka er hvað meðalgæðin eru á
háu plani. Warp 10 serían er sér-
lega vel heppnað framtak. Með af-
mæliskveðjunni fær útgáfan óskir
um áframhaldandi velgengni
næstu 10 árin. Warp 10 seríuna
ætti auðvitað að setja í grunnskóla-
lögin en þangað til er þetta tilvalin
jólagjöf fyrir unnendur raf- og
danstónlistar.
plötudómur
Quarashi -Xeneizes ★★★★
Quarashi klikkar ekki
Þegar „Switchstance" ep-ið með
Quarashi kom út í nóvember ‘96
stóð íslenska poppþjóðin á öndinni.
Alvöru íslenskt rappband og bara
helv. gott! Breiðskífan „Quarashi",
sem fylgdi í kjölfarið tæpu ári
seinna, var staðfesting á ágæti sveit-
arinnar, kraftmikil rokk-rapp
blanda og flott sánd. Svolítið likt Be-
astie Boys en gott engu að síður. Nú
er svo komin önnur breiðskífa
þeirra pilta og ber nafnið
„Xeneizes". Xeneizes er nafn áhan-
genda argentínska fótboltaliðsins
Boca Juniors. Boca Juniors er lið al-
múgans í Buenos Aires, lið Mara-
dona og greinilega lið Quarashi!
Xeneizes er beint framhald af
fyrri plötu Quarashi. Uppistaðan og
áferðin eru svipuð og síðast en
breiddin heldur meiri. Við fáum
bæði kraftmikla rokkara eins og
opnunarlag disksins „Stick ‘Em Up“
og metal smellinn „Fuck You Pluto“,
rólegar poppaðar ballöður á við
„Dive In“ og „Brasilian Mongo“ og
allt þar á milli. Aðalsmerki hljóm-
sveitarinnar í gegnum þetta allt er
þó kraftmikið bít, hrár bassaleikur
(kemur sérstaklega flott út) og rapp
Steina og Höskuldar sem er í ætt við
bæði Beastie Boys og Zack de la
Rocha, söngvara Rage Against the
Machine. Við þennan grunn bætist
svo eftir þörfum, sömpl, gítarar,
rispur, hljómborð og effektar.
Þó að heildarsvipur plötunnar sé
nokkuð sterkur þá eru titillagið,
„Stick ‘Em Up“, „Punk“, „Jivin’
about“, „Brasilian Mongo“ og „Surr-
eal Rhyme“ að mínu mati bestu lög
plötunnar. Allt þrusugott efni þar
sem flottar lagasmíðar, kraftur, gott
sánd, frjóar útsetningar og tilþrif í
rispi og rappi hjálpast að við að
skapa ómótstæðileg meistarastykki.
Það hefur frekar lítið verið gert að
því að sampla úr íslenskum lögum
hingað til en á þessari plötu eru tvö
lög sem fá að láni viðlög úr klassisk-
um íslenskum poppverkum. „Tarf-
ur“ samplar „Ástarsælu" af Þú og ég
plötunni og kemur bara mjög vel út.
„Model Citizen" notar hins vegar
bita úr „í bláum skugga" Stuð-
manna og af einhverjum ástæðum
fer um mig hrollur í hvert sinn sem
ég heyri það. Kannski bara hvernig
ólíkir hlutar poppsögunnar hafa
raðast í hausnum á mér. Gott mál
samt ef Bjólan fær smáhöfundar-
laun!
Auk þess að vera hefðbundinn
hljómdiskur með 14 lögum er
Xeneizes líka margmiðlunardiskur
sem inniheldur 1 myndband, tengil í
J Quarashi xeneizes
v p y*
ihlL
Flottar lagasmíðar, kraftur, gott sánd, frjóar útsetningar og tilþrif í rispi og rappi hjálpast að við að skapa ómótstæðileg meistarastykki.
vefsíðu Quarashi og fjögur aukalög,
aðrar útgáfur af „Mayday" og „Show
Me What You Can“ (bæði meðal lak-
ari laga plötunnar) og tvö lög sem
ekki eru á hljómdisknum. Ágætis
viðbót það!
Á heildina litið er hér á ferðinni
einn af betri diskum ársins. Alvöru-
plata með góðum lagasmiðum og
flottu sándi. Ómissandi innlegg í ís-
lensku poppflóruna.
Trausti Júlíusson
hakkavél
D r- Gunna
THE WANNADIES
The Wannadies - Yeah
★★★
Fyrir ellefu árum stofnuðu
fimm Svíar hljómsveitina
Wannadies í krummaskuðinu
Skellefteá. Söngvarinn Pár
Wiksten vann í kirkjugarði og
hljómsveitin sótti innblástur í
goðapopp Sisters of Mercy og
klæddist svörtu. Einhvern tím-
ann á leiðinni óx bandið upp úr
goðapoppinu og gerðist straum-
línulagað popppönkband. Fyrsta
platan sem vakti athygli utan
Svíþjóðar var „Bagsy Me“ sem
kom út 1996. Hún var full af gríp-
andi pönkpoppi, alveg eins og
þessi hér. Um upptökustjórn sér
nú Ric Ocasek. Hann var einu
sinni aðalmaðurinn í The Cars og
hefur tekið upp fullt af góðum
plötum, eins og t.d. fyrstu plötu
Weezer. Sándið er því sláandi
gott og tónlist Wannadies ofur-
grípandi og hittir beint í mark.
Þeir sem einhvern timann hafa
sveiflað sér í lendunum yfir Pix-
ies, Weezer eða Foo Fighters fá
hér margar kraftmiklar melódíur
til að söngla með og það er ljóm-
andi gott. Hins vegar ef spurt er
um frumleika og framþróun verð-
ur lítið um svör hjá Svíunum
síkátu, nema þeir stynji: Rokkið
er dautt, lengi lifi rokkið!
The Bloodhound Gang«->
Hoorah For Boobies
Hvaða orð rímar við vagína? er
stóra spurningin í lífi Jimmy
Pop, söngvara þessa slappa geng-
is. Það kom á klakann og spilaði
á undan Blur í Laugardalshöll,
slefaðist í gegnum prógrammið
enda eru þetta stirðir spilarar og
áhorfendur tóku ekki við sér fyrr
en smellurinn „Fire Water Bum“
barst af sviðinu. Bandið er búið
að vera til síðan 1994 og þetta er
þriðja breiðskífan. Á þessum
tíma hefur sveitin ekki þróast
hið minnsta, er enn að juðast á
rokk/hipp-hopp blöndunni sem
Beastie Boys uxu upp úr strax
eftir fyrstu plötuna sína. Textarn-
ir eru eins og áður heimskulegt
bólugraftargrín í amerískum fá-
bjánaanda, fluttir frekjulega með
hvinandi vælurödd söngvarans.
Þetta er þvi ekki mjög skemmti-
leg plata nema fyrir þá sem fara
enn þá að skelliMæja þegar dóna-
leg orð eru sögð og geta horft
óendanlega oft á South Park
þætti og Beavis og Butthead. Fyr-
ir aðra er þessi plata niðurdrep-
andi píning.
12. nóvember 1999 f ÓkllS
11