Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1999, Blaðsíða 14
Allar líkur eru á því að enn ein
kvikrayndin um Jack Ryan,
njósnahetju skáldjöfursins Toms
Clancy, verði gerð og að sjálfsögðu
er Harrison Ford
fyrst nefndur til að
leika hann. The
Sum of All Fears
yrði fjórða kvik-
myndin sem gerð
er um svaðilfarir
Ryans. f fyrstu
kvikmyndinni,
The Hunt for Red
October, lék Alec Baldwin Ryan en
Ford lék hann síðan í Patriot
Games og Clear and Present Dan-
ger. Ford er, eins og kunnugt er,
einn eftirsóttasti leikarinn í
Hollywood og ef hann á að taka að
sér hlutverkið verður allt að vera
tilbúið um áramótin en þá lýkur
hann leik i What Lies Beneath.
Líklegt er talið að Philip Noyce,
sem leikstýrði Ford í Patriot
Games og Clear and Present Dan-
ger, muni leikstýra nýju myndinni.
Það er orðiö nokkuð langt síðan
ný kvikmynd með Arnold
Schwarzenegger leit dagsins ljós en
nú fer stóra stundin að renna upp
fyrir aðdáendur kappans þegar End
of Days verður frum-
sýnd á næstunni. Þar
er um mjög dýra
framtíðarkvikmynd
að ræða og verður
mikiö lagt í að
markaðssetja hana.
Meðal þess sem
Schwarzenegger
ætlar að gera til
að auglýsa myndina er að vera
gestastjómandi í vinsælasta fjöl-
bragðaglímuþætti Bandaríkjanna,
WWF SmackDown. Hvort þessi fyrr-
verandi hr. Heimur muni reyna sig
1 glímunni mun sfðar koma í ljós en
hann er orðinn 52 ára gamall og
sjálfsagt ekki til stórræðanna.
Allt er til reiðu að gera fram-
hald sakamálamyndarinnar Kiss
the Girls. Morgan Freeman hefur
samþykkt að end-
urtaka hlutverk
lögreglumannsins
Alex Cross í
Along Came a
Spider, en það
mun myndin
heita. Gert
hafði verið ráð
fyrir því að As-
hley Judd
myndi einnig endur-
taka sitt hlutverk, lögreglukonunn-
ar Kate McTieman, en nú hefur
hún hafnað þvi og Ijóst er að ein-
hverjar tafir verða meðan leitað er
að nýrri leikkonu. Þær sem nú
þykja helst koma til greina eru
Angelina Jolie og Winona Ryder.
Mike Figgis og
Salma Hayek
Breski leikstjórinn Mike Figgis
(Leaving Las Vegas) hefur tryggt
sér Salma Hayek í aðalhlutverkið í
næstu kvikmynd sinni, Time Code
2000, en lltið er vitað um innihaldið
annað en að Figgis
lýsir myndinni sem
sálfræöidrama sem
gerist á einum degi í
Los Angeles. f síð-
ustu tveimur kvik-
myndum hans, The
Loss of Sexual Inn-
ocence og Miss
Julie, hefur leikið
aðalhlutverkið breska leikkonan
Saffron Burrows en hún er sambýl-
iskona Figgis. Næsta kvikmynd
Hayeks sem sýnd verður er Dogma
sem Kevin Smith Ieikstýrir. Verður
hún frumsýnd vestanhafs 12. nóv-
ember.
y/\W-d J
ijBfjJu J'
lyÍJiJUíJJ,
Mfej)
ijjjjjJii&
* ■*!*
.iJljjUJJU
rJöjJ JJUIJU
Upphafið
Alvöruhræðsla eða plat?
Blair Witch Project, sem Sam-bíóin
frumsýna í dag, er eitt af mörgum æv-
intýrum í sögu kvikmyndanna. Mynd
sem gerð var fyrir „skiptimynt" hefur
gert aðstandendur hennar, fyrrum fá-
tæka kvikmyndagerðarmenn, að
margmilljónurum. Blair Witch
Project er ein allra vinsælasta kvik-
mynd ársins og ekki er nóg með að
mikil aðsókn hafi skilað góðum tekj-
um heldur hefur myndin verið svo
snilldarlega markaðssett á Netinu að
þar hafa einnig komið drjúgar tekjur.
Þess má geta að heimasíða myndar-
innar fékk fleiri heimsóknir en
heimasíða nýju Star Wars-myndar-
innar.
Hvað er það sem gerir kvikmynd,
sem allir eru sammála um að sé í út-
liti eins og kvikmynd eftir áhuga-
menn, svo vinsæla? Jú, gæði hennar
liggja einmitt í því að með þeim frum-
legu aðferðum sem notaðar hafa verið
verður hún trúverðug og út á það hef-
ur allt gengið. Hryllingssaga ung-
mennanna þriggja er svo trúverðug að
í fyrstu létu virt tímarit og blöð plat-
ast og héldu að um heimildamynd
væri að ræða. Meðal þess sem gert er
til að hún verði trúverðug er að láta
leikarana halda sínum nöfnum. Nú,
þegar allir vita að ekki er um heim-
Odamynd að ræða heldur leikpa mynd
hverfa kannski mestu áhrifln en það
er mikið eftir eins og væntanlegir
áhorfendur fá að sjá.
í Blair Witch Project segir frá
þremur nemum í kvikmyndagerð sem
í október 1994 fóru út í skóg nálægt
Burkittsville í Maryland. Þeir ætluðu
að gera heimildarmynd um þjóðsög-
una Blair Witch en hurfu allir spor-
laust og þrátt fyrir rækilega leit
fannst hvorki tangur né tetur af þeim.
Um það bil ári síðar fannst búnaður
krakkanna og var hann allur
óskemmdur. Myndin sýnir hvað það
var sem nemendurnir tóku upp áður
en þeir hurfu!
-HK
Hiyllingurinn
Háskólabíó frumsýnir
í dag Lak'e Placid,
hryllingsmynd með
gamansömu ívafi:
ÆL j
m\
í friðsælu
ii mhverfi
Háskólabió frumsýnir í dag
bandarísku kvikmyndina Lake
Placid sem gerist í smábæ í
Maine. Hingað til hefur ekki
verið mikið um að vera á þess-
um friðsæla staö en nú hefur
breyting orðið á því i vatni ná-
lægt bænum hefur hreiðrað um
sig skepna af krókódílakyni, tíu
metra löng og, það sem verra er,
henni þykir mannkjöt það besta
sem hún fær. Þegar ljóst er að
eitthvað verður að gera til að
stöðva varginn er sendur flokk-
ur manna á svæðið til að kanna
skepnuna. Þar greinir menn á
um aðgerðir - sumir vilja rann-
saka dýrið og fanga það lifandi
en aðrir einfaldlega drepa það.
f aðalhlutverkum eru BiU
Pullman, Bridget Fonda, Oliver
Platt og Brendan Gleeson. Leik-
stjóri er Steve Miner sem síðast
gerði Halloween: H20. Hann er
einn höfunda kvikmyndaseri-
unnar Friday the 13th, auk þess
sem hann hefur leikstýrt róman-
tískum kvikmyndum á borð við
Forever Young.
bíódómur
Regnboginn /Laugarásbíó /Sam-bíóin - Fight Club ★ ★'i
Sláðu mig eins fast og þú getur.
David Fincher er snjall leikstjóri
sem hefur sýnt það í þremur kvik-
myndum (Alien 3, Seven og The
Game) að honum lætur vel að vera á
mörkum raunveruleikans. Fincher
hefur mjög góða yfirsýn á möguleik-
um kvikmyndavélarinnar og allar
hans myndir eru flottar en um leið
drungalegar. Er hann einn fárra leik-
stjóra sem hefur getað sameinað
þetta tvennt. Samt er það svo að að-
eins ein kvikmynda hans, Seven, full-
nægir þeim kröfum sem gera verður
til leikstjóra sem vill leika þennan
línudans við áhorfendur, að hrella þá
um leið og hann nær að byggja upp
magnaða spennu og ástæðan var sú
að í Seven var Fincher með mjög vel
skrifað handrit.
Fight Club er hans fjórða kvik-
mynd og hún er jafnflott og drungaleg
og fyrri myndirnar en hvað Fincher
er að fara með henni og hver er i
raun tilgangurinn með gerð hennar
er óljóst vegna þess að hin flókna
saga gengur alls ekki upp. Það er eins
og Fincher hafi ætlað að fara út á
ystu nöf og hrapað. í raun má skipta
Fight Club upp í þrjá leikþætti þar
sem fyrsti þátturinn er frábær, annar
þáttur slæmur og þriðji þátturinn og
sá stysti, endirinn, er góður.
I byrjun kynnumst við ungum
manni sem við getum aðeins nefnt
Sögumann. Hann fær aldrei nafn af
þeirri ástæðu að það þjónar í lokin að
hann hafi ekki nafn. Hann er sjálfsagt
einn málglaðasti sögumaður kvik-
myndanna. Honum gengur vel í vinnu
en hundleiðist starf sitt og þjáist af
svefnleysi. Eina ráðið við svefnleysinu
og lífsleiðanum er að fara á stuðnings-
fundi hjá dauðvona fólki eða alkó-
hólistum sem berjast við löngun sína.
Hann fær kikk út úr því að hlusta á
fólk sem annað hvort er dauðvona eða
hefur misst fótanna í líflnu er áhorf-
andi sem þykist þjást og vill sitja einn
af þessu. Hann bregst því illa við þeg-
ar annar „áhorfandi“, stúlka, sækir í
sömu fundi og svefnleysið tekur aftur
völdin. í slíku ástandi kynnist hann
Tyler Burden sem kynnir honum fyr-
ir líkamlegum sársauka. Lausnin er
komin, nú líður sögumanni okkar að-
eins vel þegar hann hefur verið bar-
inn eða er að berja aðra. í nútímaþjóð-
félagi eru fleiri en sögumaður okkar
sem hafa þörf fyrir slíkt og Slagsmála-
klúbburinn er stofnaður, klúbbur sem
enginn má segja frá en fjölgar jafnt og
stöðug í.
Allt sem skeð hefur hingað til er
hreinasta snilld frá hendi Fincher,
ótrúlegt flæði snjallra hugmynda sem
eru á fóstum grunni. En nú fer held-
ur betur að halla undan, sögumaður
okkar missir jafnt og þétt tak á fram-
vindu mála á meðan Tyler þrýstir inn
hugmyndum sínum sem gera slags-
málaklúbbinn nánast að hryðju-
verkasamtökum með anarkisma að
leiðarljósi. Allar snjöllu hugmyndim:
ar í byggingu myndarinnar verða að
lúta fyrir einhæfri framvindu sem
þótt ótrúlegt sé, Fincher, ræður ekki
við. Og um rúmt miðbik myndarinn-
ar erum við bara að horfa á ofbeldi og
meira ofbeldi án þess að það sé nokk-
uð sem réttlætir það. Þegar svo í lok-
in í þriðja þætti við emm upplýst um
hvað f rauninni hefur verið að gerast
kemur í ljós að sú sagan gengur alls
ekki upp á móti kemur að sjálft loka-
atriðið er flott og áhrifamikið.
Fight Club kallar á tvo góða leik-
ara og Edward Norton sannar enn
eina feröina hvílíkur yflrburðaleikari
hann er. Hlutverk hans er mjög krefj-
andi, hann þarf að fara allan tilfmn-
ingaskalann auk þess sem sögumaður
þarf hann að geta haldið athygli
áhorfandans. Þetta gerir Norton allt
með miklum glans. Brad Pitt á ekki
eins góðan dag. Tyler Burden er með
svarta sál, nánast eins svarta og sá í
neðra hefur. Pitt hefur ekki þá dýpt
sem til þarf, hann er bara Brad Pitt í
hlutverki sem krefst þess að leikari
sýni ekki aðeins aðdráttarafl heldur
einnig innviðinn, það skiptir miklu
máli i því púsluspili sem áhorfandinn
án árangurs þarf siðan að rembast
við púsla saman í lokin.
Leikstjóri David Fincher. Handrit Jim
Uhls eftir skáldsögu Chuck Pala-
hniuk. Kvikmyndataka Jeff
Cronenweth. Tónlist The Dust
Brothers. Aðalleikarar: Brad Pitt. Ed-
ward Norton, Helena Bonham Carter
og Meat Loaf Aday.
Hilmar Karlsson
f Ó k U S 12. nóvember 1999