Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1999, Qupperneq 20
Lífid eftir vmnu
Las Vegas velslan heldur áfram í Egllsbúð Nes-
kaupstað. Sýningin hefur fengiö frábæra dóma
og þetta er síðasta tækifærið til að sjá sýning-
una. Fullt af góðum dönsurum, söngvurum og
hljómlistarmðnnum. Matur á staðnum.
Þaö verður ólýsanlega gaman i Lundanum. Vest-
mannaeyingar gleyma öllum gosum og detta
bara í það. Hljómsveitin Hafrót gýs af hreinni
tónaútrás og Eyjamenn týnast í tíma og rúmi.
Oddvltlnn getur ekki hætt að gleðja Akureyr-
inga. Hljðmsveitin Bahoja heldur spileríinu
áfram og ærir óstöðugan. Fyrsta flokks gleði.
Hljómsveitin Dans á rósum dansar á rósum á
Krlstján! IX. Grundfirðingar ærast, kyssast og
dansa með. Einhver drepst kannski inni á kló-
setti.
Slxtles leikur lausum hala í Bolungarvík og ger-
ir allt vitlaust í félagsheimilinu.
SJallinn sjatnar
ekki og hamingju-
sprengjan spring-
ur. Páll Óskar
> kynnir nýjan disk
og Á mótl sól
slær taktinn.
Glænýr unaður og Akureyringar verða ekki eldri.
Stjórnln ráöskast með fólk í Ingólfscafé, Ing-
ólfshvoli. Það verður rosalega gaman og allir
hlýöa Slggu.
Stúlll og Stelni trylla iýöinn í Ólafshúsl, Sauðár-
króki. Alheimsalsæla og óendanleg hamingja.
ö
Select
Ný
Selectstöb
í Smáranum
Alltaf ferskt... Select
Fókus býður
i i o i tct/ o I ct
á „Blair
Witch“
Meira fyrir eyrað er söngskemmtun með lögum
Jóhanns G. Jóhannssonar við Ijóð Þórarlns Eld-
Járns í tilefni af hálfrar aldar afmæli Þórarins.
Þar syngja þau Slgrún HJálmtýsdóttir, Örn Árna-
son og Stefán Karl af mikilli list á stóra sviðlnu
í Þjóðlelkhúslnu kl.15.
Loftkastalinn heldur áfram að sýna SOS Kabar-
ett kl. 20,30. Fyndið söngstykki sem flaggar
Krlstjönu Stefáns og fleiri góðum. Verkið þykir
fyndiö en er þó aðallega lofað fyrir fallegar radd-
ir. Síminn í Loftkastalanum er 552 3000.
María Ellingsen leikur aðalhlutverkið í Sölku
sem er einmitt ástarsaga eftir Halldór kallinn
Laxness. Hafnarfjarðarleikhúslð á heiöurinn af
þessari uppfærslu en sýningin í kvöld hefst
kl.20.
Á Stóra sviði Þjóðleikhússlns eru þeir Örn Árna-
son og Hllmir Snær Guðnason að leika farsa-
kennda stykkið Tveir tvöfaldir eftlr Ray Coon-
ey. Sýningin hefst kl. 20 og síminn er 551
1200.
Hugleikur sýnir leikritið Völin, kvölln og mölin í
Mögulelkahúslnu við Hlemm kl. 20.30. Athugið
þetta er síöasta sýning.
Fókus býður þér á frumsýn-
ingu á hryliingsmyndinni „Bla-
ir Wicth“ í Kringlubiói í kvöld,
kl. 19. Það eina sem þú þarft að
gera er að klippa út bíómiðann
hér við hliðina og fara með
hann í miðasölu Kringlubíós og
fá einn alvöru bíómiða í stað-
inn. Sú gullna regla gildir að
fyrstur kemur fyrstur fær. At-
hugið að ekki er hægt að kaupa
miða á þessa sýningu, einungis
er hægt að fá miða með þessum
hætti og það er til nóg af mið-
um, eða um 400 stykki. Margir
hafa beðið með eftirvæntingu
eftir að þessi mynd kæmi til
landsins, enda er hún orðin ein
aðsóknarmesta kvikmynd árs-
ins vestanhafs. Nánari upplýs-
ingar um söguþráð myndarinn-
ar er að finna á síðu 14 í blað-
inu.
Leikhús
Stefán Karl fer á kostum í hlutverki pirraðs
uppa á leið um háloftin. 1000 eyja sósa er
skrifað af Hallgrími Helgasyni og er sýnt með
léttum málsverði í Iðnó kl.12. Drifið ykkur því
þeir fara að henda Sósunni út.
Á Litla sviðl Þjóðlelkhússins er veriö að leika
dramað Abel Snorko býr einn eftlr Erlc
Emmanuel Schmltt kl. 20. Þetta er vinsæl sýn-
ing og því er nauðsynlegt aö hringja í síma 551
1200 og athuga með miða.
Ó þessi þjóð er sýnd í Kaffileikhúsinu kl.21.
Hér er hægt að sjá allar helstu persónur Is-
landsögunnar Ijóslifandi.
Sigurganga Þjóns í súpunni heldur áfram. Áhorf-
endur taka þátt í sýningunni og það er eitthvað
sem virðist leggjast vel í Islendinga. Verkiö er
sýnt í Iðnó og hefst sýningin kl. 20. Ath. að
þetta eru allra síðustu sýningar. Síminn er 530
3030.
•Kabarett
Það eru fimm söngelskir piltar sem syngja
þekktustu lög hinna skærrödduðu Gibb-bræðra
á Bee-Gees sýningu á Broadway í kvöld. Piltarn-
ir heita Kristlnn Jónsson, Davíö Olgelrsson,
Kristján Gíslason, KristbJörn Helgason og
Svavar Knútsson. Til að styðja söngdrengina
þenja tvær ungar söngkonur, Guðrún Árný Karls-
dóttir og Hjördís Elín Lárusdóttir, sig í þakrödd-
unum.
Ný hönnun eftir Islenska hönnuöi verður til sýn-
is á Hönnunardegi í fjórum fyrirtækjum. Á. Guð-
mundsson, Epal, GKS og Penninn bjóða áhuga-
sömu fólki að koma í verslanir sfna milli klukk-
an 10 og 16 til að dáðst að yfir tuttugu nýjum
húsgöngum og innréttingum eftir tólf íslenska
hönnuði. Þar verður hægt að sjá það verk sem
fékk Hönnunarverðlaunln 1999 deginum áður.
SJúkrasagan heldur áfram á Sögu. Svaka stuö
og óhemju hlátur. Helga Braga, Steinn Ármann,
Halll og Laddi kynna gleöisprengju ársins á Hót-
el Sögu.
Fyrir börnin
Góðan dag Einar Áskell! Hver man ekki eftir
sögunum um hann Einar, vitleysinginn atarna.
Möguleikhúsið við Hlemm sýnir Einar kl.14 en
ekki eru margar sýningar eftir.
Kl. 20 og svo aftur kl.23 verður Baneltrað sam-
band á Njálsgötunni eftir Auöi Haralds sýnt í ís-
lensku óperunnl. Þetta er verk sem mörgum
hlakkar til að sjá. Fjallar um samband 16 ára
stráks við móður sína og í Ijósi þess hversu vel
heppnaðar bækur Auðar um Elías voru ættu
sem fæstir að láta þessa sýningu framhjá sér
fara. Síminn í tslensku óperunni er 5511475.
Þaö er fjölskyldudagur í félagsheimili aldraðra í
Kópavogi, Gullsmára. Þar verður fjölbreytt dag-
skrá sem hefst kl. 14. Kór Snælandsskóla mun
syngja nokkur lög, ungir dansarar frá dansskóla
Sigurðar Hákonarsonar, sýna dans og íþrótta-
þjálfari mun bregða á leik með gestum svo fátt
eitt sé nefnt. Ókeypis aðgangur, svo lengi sem
húsrúm leyfir.
Bíóleikhúsið er nýjasta leikhús bæjarins. Það
hefur aðsetur sitt í Bíóborglnnl við Snorrabraut
og stendur á bak við sýninguna á Kossinum eft-
ir Hallgrím Helgason rithöfund. Sýningin hefst
kl. 19 og síminn er 5511384.
Þá er þaö Leitin að vísbendingu um vltsmuna-
líf í alhelminum eftir Jane Wagner á litla sviöinu
í Borgarlelkhúslnu. HérferEdda BJörgvinsdótt-
Ir á kostum undir leikstjórn Maríu Sigurðardótt-
ur. Sýningin hefst kl.19.
Leikfélag Reykjavíkur heldur áfram að sýna Lltlu
hrylllngsbúðina eftir þá Howard Ashman og
Alan Menken. Sýningin hefst kl.20.
Iðnó sýnir ævintýriö Gleym-mér-ei og LJónl
Kóngsson. Enn eru nokkur sæti laus þannig að
það er ekkert annað að gera en að hringja í
Iðnó f síma 530 3030.
•Opnanir
Gallerí 101 við Laugaveg opnar nýja sýningu i
dag, kl. 17, Anatomy of Feellngs. Þar gefur að
Ifta uppgötvanir sem Haraldur Jónsson gerði
meöan hann dvaldi nýveriö í sjálfskipaðrl eln-
angrun inni f norskum skógi. Á sýningunni eru
telkningar, textaverk og myndband.
Helgi Snær Sigurðsson opnar sýningu á grafík-
myndlist
Lárus Karl Ingason er með Ijósmyndasýnlngu i
kaffistofu Hafnarborgar. Sýningin stendur til 13.
des.
Helgi Snær Slgurðsson sýnir grafikmyndir í Ust-
húsl Ófelgs. Sýningin stendur til 27. nóvember.
Gallerí 101 við Laugaveg sýnir Anatomy of Feel-
Ings. Þar gefur að Ifta verk Haraldar Jónssonar.
Á sýningunni eru telknlngar, textaverk og mynd-
band.
Ufi Kalevala er yfirskrift myndlistarsýningar f sýn-
ingarsölum Norræna hússins. Sýningin er opin
þriðjudaga til sunnudaga, kl. 14-18. Lokaö er á
mánudögum. Aðgangur kr.200.
Jean Posocco sýnir vatnslitamyndir i kaffihús-
inu Nönnukoti í Hafnarfirði. Sýningin er opin alla
daga nema mánudaga milli klukkan tvö og sjö.
Tolll sýnir verk sín í fyrirtækinu Kraftvélar.Dal-
vegi 6-8 Kópavogi. Sýningin verður opin virka
daga á milli Kl 14 -18 og lýkur laugardaginn 20
nóvember.
Myndlistakonar Slgurrös Stefánsdóttlr er meö
sýningu í Bílar og list Vegamótastfg 4. Yfirskrift
sýningarinnar er Á ferð. Sýningin stendur til 25.
nóvember.
Sýningin Hverfingar stendur yfir f Gerðasafni.
Sýning er oþin frá 12 -18 alla daga nema mánu-
daga og stendur til og með 21. nóvember.
Guðmundur BJörgvinsson er með málverkasýn-
ingu f 12 tónum Grettisgötu 64.
BrynJa Árnadöttlr sýnir pennateikningar á kaffi-
húsinu Vlö árbakkann á Blöndósi. Þetta er 12.
einkasýnig Brynju.
Magnús Pálsson er með sýningu í gallerí 18 þar
sem hann sýnir silfurstóla og myndband.Sýning-
in er opin fimmtudaga til sunnudaga frá kl.14 -
18.
Gunnar Karlsson myndlistarmaður er með mynd-
listarsýningu í Kringlunni fsamvinnu við Gallerí
Fold og Krlngluna. Sýningin, sem ber nafnið
Kringlu Kristur, samanstendur af fjórum 5 metra
háum myndverkum sem sérstaklega eru gerðar
með hið stóra rými Kringlunnar í huga.
Listamaður nóvembermánaöar í Llstafléttunnl á
Akureyri er grafíklistamaðurinn Marlyn Herdis
Mellk. Listafléttan er opin frá kl. 11-18 virka
daga og laugardaga frá 11-14.
ALBA ALBA dúettinn sem samanstendur af
þeim Baldrl J. Baldursyni og Kristnl Pálmasynl
sýnir í Gallerí HlemmL.Sýningin stendur til 21.
nóvember
Sýning á verkum fimm félaga SÚM-hópslns, sem
allir stóðu að opnun Gallerí SÚM fyrir 30 árum,
myndum í Listhúsi Ófeigs á Skólavöröustfgnum
kl. 14. Sýningin stendur til 27. nóvember.
Þjóðminjasafn Islands og Islandspóstur efna til
sýningar á nýjum klæðum islensku jólasveln-
anna og nýjum jólasveina
frímerkjum í Ráðhúsl
Reykjavíkur. Sýningin
stendur f dag og á
morgun og er opin
frá kl. 12-18.1 fyrra-
vetur efndi Þjóð-
minjasafnið til sam-
keppni um hugmyndir aö
nýjum jólasveinafötum. Um
30 tilllögur bárust og varð Bryndís Gunnarsdótt-
irkennari og brúðugerðarkona hlutskörpust.
Ufi Kalevala er yfirskrift myndlistarsýningar
sem opnuð er f sýningarsölum Norræna húss-
ins í dag, kl.15, f tilefni afmælisdagskrárinnar
Kalevala um víða veröld. Sýningin kemur frá Ak-
seli gallen-Kallela-safninu í Helsinki. Á sýning-
unni er grafík, málverk, höggmyndir, innsetning-
ar, Ijósmyndir, myndbönd og íkonar ásamt
myndskreytingum og málverkum eftir hinn sér-
stæða finnska listamann Akseli Gallen-Kallela
og fullt af öðrum gaurum og gellum. Sýningar-
salurinn er opinn þriöjudaga til sunnudaga, kl.
14-18. Lokað er á mánudögum. Aðgangur að
sýningunni er kr. 200.
Trélist er heiti á listsýningu i Iðnsvelnafélags-
húslnu Tjarnargötu 7 í Keflavík sem er opin f
dag kl. 12-19 og líka á morgun á sama tíma.
Bíó
Þann 19.júní sfðastliðinn sigldi hópurfrá Fjalla-
vinafélaglnu Kára fyrstur manna á gúmbátum
gegnum Dimmugljúfur og voru leiðangurinn og
gljúfrin kvikmynduð f því skyni að skapa heimild
um þessi stærstu og hrikalegustu gljúfur lands-
ins. Félagið stendur fyrir skyggnusýningu frá
leiðangrinum f Háskólabíói kl. 14.
•Sport
Ir og Haukar mætast i knattspyrnuvellinum við
Austurberg klukkan 16.30 f leik Nissan deildar-
Innar.
Fimm leikir eru i 1. delld kvenna i handbolta i
dag. IR mætir IBV við Austurberg klukkan
14.30. Stjarnah og FH leika f Ásgarði klukkan
16.30., og á sama tfma mætast Fram og
Hauka f Safamýr, KA og Valur á Akureyri og Vík-
ingur og UMFAI Víkinni.
Sunnudaguh
14. nóvember
•Krár
Ahh, fínt að róa sig aðeins niður eftir helgina og
hlusta á Bjarna Tryggva á Gauknum. Nei,
kannski ekki, hann ætlar að rokka feitt. Jæja,
kíkja samt.
Café Romance svíkur engan. Bretinn Josep
OYBrian fer löðurmannlegum fingrum um pianó-
ið og viðstaddir verða ekki eldri.
Dúett GogE gerir allt vitlaust á Kringlukránnl og
allir syngja með. Svaka, svaka gaman.
I kvöld ætla þeir Svensen og Hallfunkel að
mæta ! kjól og hvítt á Gullöldina i Grafarvogi.
Þess vegna hvetja Gullaldarmenn gesti til aö
draga fram sparigallann, helst kjólföt og pfpu-
hatta. Ekki vera feimnir við aö mæta fínir þó
boltinn rúlli í sjónvarpinu.
Böl 1
Hljómsveitin Capri heldur ball í Ásgarði f Glæsi-
bæ f kvöld.
Kántríkóngurinn Vlðar Jónsson heldur uppi ekta
kántrístuði á Næturgalanum í Kópavogi. Mætið
með kúrekastígvélin og snöruna. Ballið byrjar
kl. 21.
D jass
Hljómsveitin Jazzbræður verður með tónleika á
jazzklúbbnum Múlanum á efri hæð Sólons ís-
landuss f kvöld. Jazzbræöur eru Ólafur Jónsson
saxófónleikari og Ástvaldur Traustason pfanó-
leikari sem nú hafa aftur sameinað krafta sfna
eftir nokkurra ára aðskilnað. Með þeim f sveit-
inni eru Birgir Bragason bassaleikari og Pétur
Grétarsson trymbill. Á efnisskránni eru bæði
frumsamin lög og þekktir standardar. Tónleik-
arnir hefjast kl. 21:00. Aðgangseyrir er 1000 kr.
og 500 kr. fyrir nemendur og eldri borgara.
•Klassík
Sfðustu tónleikar Norðurljósa, tónlistarhátiöar
Musica Antlqua, veröa i Listasafni íslands
klukkan 20.00 f kvöld. Ruttir verða enskir,
franskir og ítalskir dansar og söngvar frá endur-
reisnartímanum eftir Susato, Attaignant,
Arcadelt, de Rore, Gastoldl, Holborne og
Dowland. Flytjandi er sönghópurinn Gríma.
Hljóðfæraleik annast blokkflautuleikararnir
Camilla Söderberg. Helga Aðalheiður Jónsdótt-
ir, Ragnheiður Haraldsdóttir og Þórdís Heiða
Kristjánsdóttlr. Ólöf Sesselja Óskardóttir leikur
á gömbu og Snorrl Örn Snorrason á lútu. Að-
göngumiðasala er viö innganginn. Á efnis-
skránni eru enskir, franskir og ítalskir dansar og
söngvar frá tfmum endurreisnarinnar.
Leikhús
Á stóra sviðinu i Borgarleikhúsinu eru sýningar
á Vorið vaknar eftir Frank Wedekind f fullum
gangi. Skiptar skoðanir eru um ágæti sýningar-
innar en Halldór Gylfa þykir þó fróa sér af mik-
illi list. Vertu umræðuhæfur og drifðu þig, sýn-
ingin hefst kl.19.
Djúpt inni í maga Þjóðleikhússins, nánar tiltek-
ið i Smíðaverkstæðinu, er gríski harmleikurinn
Fedra sýndur kl.20.30. Fedra er reyndar franskt
verk en Hilmi Snæ, Arnari Jónssynl og Tlnnu
Gunnlaugsdóttur er nokk sama og leika þau
með miklum tilþrifum.
Enn er Helllsbúinn aö
blfva feitt. Gæinn f lendar-
skýlunni virðist einfald-
lega höfða til innstu hvata
nútímamannsins þvf það
er eiginlega alltaf uppselt.
Sýningin hefst kl.20 f Is-
lensku Óperunni en sfm-
inn f miðasölunni er 551-
1475.
Leikfélag Kópavogs kynnir Klrsuberjagarðlnn
eftir Tsjekhov. Algjört þrumudúndurverk sem
gleður geðillar leikhúsfælur jafnt sem drama-
gleðifíkla. Frumsýningin verður engu lík og mun
lifa f minnum manna um ókomna tíð. Þrumu-
dúndurverkið þyrjar kl,16:00 f Félagsheimili
Kópavogs.
Möguleikhúslð vlð Hlemm sýnir kl.14 og kl.16
við góðar undirtektir Langafa prakkara eftir Sig-
rúnu Eldjárn. Þetta stykki fékk fina dóma hér f
DV og er þrælskemmtilegt. Siminn í miðasöl-
unni er 562 5060.
Þá er það Leitln að vísbendingu um vltsmuna-
líf í alhelminum eftir Jane Wagner á litla sviðinu
i Borgarlelkhúslnu. Hérfer Edda Björgvinsdött-
Ir á kostum undir leikstjórn Maríu Slgurðardótt-
ur. Sýningin hefst kl.19.
Meira fyrlr eyrað er söngskemmtun með lögum
Jóhanns G. Jóhannssonar viö Ijóð Þórarins Eld-
jáms i tilefni af hálfrar aldar afmæli Þórarins.
Þar syngja þau Sigrún HJálmtýsdóttir, Örn Áma-
son og Stefán Karl af mikilli list á stóra sviðinu
í Þjóðleikhúsinu k1.21.
©Kabarett
Það verður mikið um kvenlega dýrð á Grand Hót-
eli i kvöld. Kl. 20 hefst sýningin Konan í aldar-
lok. Það eru þær Rósa Ingólfsdóttir og Guðný
Gunnarsdóttir sem skipuleggja þessa huggu-
legu kvennakvöldstund. Þegar konurnar mæta
verður tekið á móti þeim með dömudrykk árs-
ins 2000. Sýndar veröa nýjar og gamlar vörur
stendur yfiri i stóra salnum i Llstasafni íslands.
Sýning stendur til 28. nóvember.
Sigurður Magnússon er með málverkasýningu f
Sverrissal f Hafnarborgar. Hann sýnir 20 olíu-
málverk og ber sýningin yfirskriftina „Fleiri þanka-
strik".
Myndir Jóns Baldurs Hlíðbergs úr náttúru ís-
lands eru til sýnis I Hafnarborg. Sýningin stend-
ur til 13.des.
I landi blrtunnar er heiti á sýningu með myndum
eftir Ásgrímur Jónsson sem er f Ustasafnlnu.
Hér er að finna vatnslitamynda sem eiga sér
enga hliðstæðu í íslenskri myndlist. Sýningin
stendur til 28.11.
Ragna Róbertsdóttir sýnir verk úr vikri, gler og
hluta af Mýrdalssandi á Kjarvalstöðum. Sýningin
stendur til 19. nóvember. Opið alla daga frá
klukkan 10 -18. Leiðsögn er um sýningar safns-
ins alla sunnudaga kl.16.
Grafik í mynd heitir sýning á Kjarvalstöðum þar
sem sýnd eru verk innlendra og erlendra lista-
manna. Sýningin stendur til 19. nóv.
Sýnlngln Fjar-skyn stendur yfir í Nýlistasafninu,
Vatnsstíg 3B. Sýningin er opin daglega frá kl. 14-
18 nema mánudaga. Aðgangur er ókeypis og all-
ir vekomnir.
Árþúsunda arkitektúr eða Mlllennial Archltect-
ure er heiti samsýningar sem sýnd er í Gerðar-
safnl i Kópavogi. Geröarsafn er opið alla daga
nema mánudaga frá kl. 12 -18.
Jón Axel Björnsson sýnir f Gallerí Sævars Karls.
Sýning samanstendur af 12 andlitum, þekkjan-
legum eða óþekkjanlegum, einu skúlptúr, nátt-
úrustemmingum og kolteikningum á striga.
Llstasafn Akureyrar sýnir nú skúpltúra Stefáns
Jónssonar. Einnig er yfirlitssýning f gangi í
safninu sem hlotið hefur heitið Sjónauki, en í
þeim verður ýmsum hugsuðum boöið að rýna í
ákveöna þætti myndlistarsögunnar. Fyrstur til að
ríða á vaðið er heimspekingurinn og útvarpsmaö-
urinn Hjálmar Sveinsson sem fjallar um „dauða-
hvötina" sem hann telur sig greina hjá islenskum
myndlistarmönnum. Sýningin er opinn frá kl. 14-
18 og stendur hún fram til 5. desember.
Hönnunarsafn íslands stendur fyrir sýningu að
Garðatorgi 7, nýbyggingu f mlðbæ Garðabæjar,
sem nefnist íslensk hönnun 1950-1970. Sýning-
in stendur til 15. nóv, og er opin mánudaga-
föstudaga kl. 14-19 og laugardaga-sunnudaga
kl. 12-19.
7 myndlistarkonur sýna f Sparisjóðnum Garða-
torgi 1, Garðabæ.
t
20
f Ó k U S 12. nóvember 1999