Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1999, Qupperneq 3
MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 1999
29
Golf:
Elssetti
metog
sigraði
Brynjar byrjar vel
Brynjar Valdimarsson, einn besti íslenski snókerspilar-
inn í dag, hefur hafið leik í undankeppni heimsmeistara-
móts atvinnumanna sem fram fer í Englandi.
Brynjar lék gegn tveimur andstæðingum um helgina
og vann þá báða, 5-0. Fyrst sigraði Brynjar Danay
Singh og síðan John Esgrove en þeir eru báðir Eng-
lendingar. Brynjar feliur úr keppni við fyrsta tap.
-SK
Ernie Els frá Suður-Afríku sýndi allar sínar
bestu hliðar og sigraði með glæsibrag á milljóndoll-
aramótinu í Sun City í Suður-Afríku um helgina.
Els lék stórkostlegt golf, lék holurnar 72 á
aðeins 263 höggum eða 25 höggum undir
parinu á 72 holum. Þetta er mótsmet
en eldra metið átti Nick Price en hann *
lék á 24 höggum undir pari árið 1993.
„Þetta er að vísu ekki eitt af
stærstu mótunum fjórum en þetta er
stórt mót og virkilega gaman að bera
sigur úr býtum,“ sagði Els eftir að
sigurinn var í höfn.
Skotinn Colin Montgomerie
varð í öðru sæti. Hann lék á 20
höggum undir pari, á samtals 268
höggum. Darren Clarke frá Norður-
írlandi hafnaði í þriðja sæti á 270 högg-
um.
Þetta er í fyrsta skipti sem Ernie Els vinn-
ur sigur á mótinu en hann var nú á meðal þátt-
takenda í áttunda skipti. Á öðrum keppnisdegi
setti Els nýtt vallarmet er hann lék holurnar 18
á 64 höggum.
Lee Westwood varð fjórði á mótinu á 274 högg-
um, Jim Furyk fimmti á 275. í næstu sætum
komu þeir Carlos Franco, Nick Price, John
Houston, Sergio Garcia, Jose Maria Olazabal,
Miguel Angel Jiminez og Paul Lawrie.
-SK
II
Halldór vann silfurverðlaun á
EM í þolfimi.
Þolfimi:
Ernie Els frá
Suður-Afríku með
sigurlaunin eftir
glæsilegan sigur á
mótinu í Sun City í
gær.
Reuter
Lesendur DV velja
íþróttamann ársins
Halldór
krækti í
silfrið
Halldór B. Jóhannsson varð
um helgina í öðru sæti á Evrópu-
mótinu í þolfimi sem fram fór í
Birmingham í Englandi.
Haildór fékk einkunina 16.750
en Frakki sigraði á mótinu og
fékk 16.850 í einkunn. Þeir voru
jafnir eftir forkeppnina og eins
og tölurnar gefa til kynna var
Halldór aðeins hársbreidd frá
því að tryggja sér Evrópumeist-
aratitilinn.
Jóhanna Rósa Ágústsdóttir
varð í 16. sæti í undankeppninni
og komst hún ekki í úrslit en
þangað komust átta efstu
konurnar. -SK
Að venju munu lesendur DV velja
íþróttamann ársins. Þeir sem hafa
áhuga á að taka þátt í kjörinu þurfa
að fylla út atkvæðaseðil eins og
þann sem er hér að neðan og senda
hann til DV.
Rétt er að hvetja lesendur til að
senda inn atkvæðaseðla en frestur
til að skila inn seðlum rennur út að
kvöldi Þorláksmessu, 23. desember.
Mjög vegleg verölaun verða veitt
að þessu sinni og hafa þau aldrei
verið glæsilegri. Iþróttamaður árs-
ins hjá DV-Sport fær glæsilegan bik-
ar og vegleg verðlaun að auki og
heppinn lesandi DV mun einnig fá
afar vegleg verölaun. Dregið verður
úr innsendum seðlum.
Nánar verður greint frá kjörinu í
DV á næstu dögum og seðillinn birt-
ist daglega í blaðinu. -SK
Sport
Biand i poka
John Barnes, fyrrum leikmaður
Liverpool og nú framkvæmda-
stjóri hjá skoska liðinu Celtic,
hefur legið undir þungri gagn-
rýni undanfarið frá leikmönnum
og stuðningsmönnum félagsins.
Ástæðan er slakur árangur í
Evrópukeppni og nú siðast salan
á Craig Burley til Derby.
Um helgina kepptust forráða-
menn Celtic við að iýsa yfir
miklum stuðningi við Barnes og
hann mun á næstunni fá aura til
að styrkja liðiö fyrir komandi á-
tök um meistaratitilinn viö
Rangers.
Bandaríski tennisleikarinn
John McEnroe fór illa með and-
stæðing sinn og landa, Jimmy
Connors, í leik þeirra á móti
eldri tennisleikara í London um
helgina. Þetta var fyrsta viður-
eign þeirra á enskri grundu síð-
an 1984 en þeir McEnroe og
Connors voru lengi í fremstu röð
í heiminum. McEnroe sigraði,
6-1 og 6-0.
Bayer Leverkusen keypti enn
einn leikmanninn um helgina en
þá kom hinn 16 ára gamli Aust-
urríkismaður Philipp Weissen-
berger. Þessi sóknarmaður þyk-
ir eitt mesta efni sem fram hefur
komið lengi í Austurríki.
Nokkrum dögum áður voru
Króatíumennirnir Jurica
Vranjes og Marko Babic keypt-
ir frá Osijek.
Nú er ordið ljóst að Jamie Red-
knapp hjá Liverpool verður frá
keppni í þrjá mánuði vegna hné-
meiðsla. Forsvarsmenn Liver-
pool eru að vona að Redknapp
verði kominn á skrið í mars.
CSG Erlangen, lið Haralds Þor-
varðarsonar, tapaði fyrir efsta
liði 2. deiidar, VFL Pfullingen, í
þýska handboltanum um helg-
ina. Leikurinn fór fram á heima-
velli Erlangen og urðu lokatölur
22-25. Haraldur skoraði 8 mörk í
leiknum.
Um helgina fór fram fjórða og
síðasta stigamót meistaraflokks
á fyrri hluta keppnistímabils
snókermanna. Ásgeir Ásgeirs-
son lék til úrslita gegn Gunnari
Hreiðarssyni og sigraði mjög ör-
ugglega, 5-1. Brynjar Valdi-
marsson varð efstur í meistara-
flokki og hlaut 1200 stig þrátt fyr-
ir að hann væri ekki með á síð-
asta mótinu.
Það bar helst til tiðinda á stiga-
móti snókermanna um helgina
að Jóhannes B. Jóhannesson,
íslandsmeistari í snóker, féll i 1.
flokk, en hann hafnaði i 10. sæti
á stigalistanum. Að auki féllu
þeir Bjarni Jónsson, Svein-
björn Hansson og Jón Ingi Æg-
isson í 1. flokk. Upp úr 1. flokki
koma þeir Jóhannes R. Jó-
hannesson, Guðni Pálsson og
Daniel Pétursson og leika því í
meistaraflokki.
Teddy Lucic, landsliðsmaður
Svia í knattspymu, sem leikið
hefur með ítalska liðinu Bologna
hefur verið seldur til sænska fé-
lagsins AIK frá Stokkhólmi.
Lucic, sem er 26 ára gamall,
skrifaði undir fjögurra ára
samning við sænska liðið sem
hefur árum saman reynt að fá
landsliðsmanninn til liðs við sig.
-SK
ÞÍN FRÍSTUND
-OKKAR FAG
V
INTER
Bíldshöfða 20 • 112 Reykjavík « 510 8020
• www.intersport.is