Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1999, Síða 8
MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 1999
Félagar Ole Gunnars
Soiskjærs fagna honum
eftir ad hann skoradi
eitt fjögurra marka
sinna gegn Everton á
laugardag. Þetta er i
armað skiptið sem Ole
Gunnar skorar fjögur
mörk í ieik meö
Manehester United.
Reuter
ENGLAND
Enska knattspyrnan um helgina:
Peter Reid, framkvæmda-
stjóri Sunderland, stjórnaði
liði sínu í 200. skipti í
deildakeppninni gegn Chel-
sea. Hans menn gerðu leik-
inn eftirminnilegan fyrir
framkvæmdastjórnann.
Stoke City gerði um helgina
jafntefli, 1-1, á heimavelli
Oxford. Stoke er í 8. sæti í C-
deildinni, átta stigum á eftir
toppliði Wigan.
Sigursteinn Gislason lék
allan leikinn fyrir Stoke en
Einar Þór Danielsson kom
inn á sem varamaður á 63.
mínútu. Stoke var mun betri
aðilinn í leiknum en tókst
ekki að knýja fram sigur.
Liverpool hefur orðið fyrir
miklu áfalli því Jamie Red-
knapp leikur ekki með lið-
inu fyrr en í mars á næsta
ári. Hann hefur gengist und-
ir uppskurð vegna meiðsla á
hné sem voru alvarlegri en
fyrst var talið.
Þetta eru mjög mikil von-
brigði fyrir Liverpool en iið-
ið hefur verið að rétta úr
kútnum undanfarið. „Ég
vona að hann verði ekki
lengur frá en þrjá til fjóra
mánuði," sagði Gerard
Houllier, stjóri Liverpool.
Kevin Phillips er nú
markahæstur I ensku A-
deildinni og hefur skorað 16
mörk. Alan Shearer,
Newcastle, og Andy Cole,
Man. Utd koma næstir með
12 mörk.
í skosku úrvalsdeildinni er
Mark Viduka, leikmaður
Celtic, markahæstur með 14
mörk.
Skoski landsliösmaðurinn
Billy Dodds hefur verið
keyptur til Glasgow Rangers
frá Dundee United. Doods
skoraði 21 mark fyrir lið sitt
á síðustu leiktíð en hann er
alinn upp hjá Chelsea.
Enska knattspyrnusam-
bandið hefur ákveðið að
kæra Jim Smith, stjóra Der-
by, fyrir óviðurkvæmileg
ummæli um dómarann 1
leik Derby og Manchester
United á dögunum.
I>V
Sport
Uí ENGLAND
Úrslit í A-deild:
Aston Villa-Newcastle.......0-1
0-1 Ferguson (65.)
Bradford-Middlesborough ... 1-1
0-1 Ricard (13.), 1-1 Mills (60.)
Leicester-Arsenal ..........0-3
0-1 Grimandi (23.), 0-2 Dixson (54.),
0-3 Overmars (75.)
Manchester United-Everton . . 5-1
0-1 Jeffers (7.), 1-1 Irwin víti (26.), 2-1
Solskjær (29.), 3-1 Solskjær (43.), 4-1
(52.), 5-1 Solskjær (58.)
Southampton-Coventry........0-0
Sunderland-Chelsea..........4-1
1-0 Quinn (1.), 2-0 Phillips (23.), 3-0
Phillips (36.), 4-0 Quinn (38.), 4-1
Poyet (81.)
Wimbledon-Watford ..........5-0
1-0 Cort (15.), 2-0 Earle (32.), 3-0
Hartson (61.), 4-0 Euell (67.), 5-0
Gayle (78.)
Derby-Leeds.................0-1
0-1 Harte, víti (90.)
Liverpool-Sheff. Wed........4-1
0-1 Alexanderson (18.), 1-1 Hyypia
(21.), 2-1 Murphy (41.), 3-1 Gerrard
(70), 4-1 Thompson (80.)
Tottenham-West Ham . . . í kvöld
Staðan í A-deild:
Leeds 17 12 2 3 30-19 38
Manch.Utd 16 11 3 2 40-21 36
Arsenal 17 11 2 4 31-16 35
Sunderland 17 10 4 3 31-17 34
Liverpool 17 9 3 5 24-14 30
Leicester 17 9 2 6 26-23 29
Tottenham 15 8 2 5 25-20 26
Chelsea 15 7 3 5 21-15 24
West Ham 15 7 3 5 17-14 24
Middlesbro 17 7 3 7 21-24 24
Everton 17 5 6 6 25-27 21
Wimbledon 17 4 8 5 27-29 20
Newcastle 17 5 4 8 28-30 19
Aston ViUa 16 5 4 7 13-17 19
Coventry 16 4 6 6 21-17 18
Southampt. 16 4 5 7 20-25 17
Bradford 16 3 4 9 13-25 13
Derby 17 3 3 11 15-29 12
Watford 17 3 2 12 13-33 11
Sheff.Wed. 16 1 3 12 14-40 6
Úrslit í B-deild:
Barnsley-Charlton............1-1
Bolton-Tranmere..............2-3
Crewe-Crystal Palace.........2-0
Fulham-Birmingham............0-0
Huddersfield-QPR ............1-0
Norwich-WBA..................2-1
Port Vale-Blackburn..........0-0
Sheffield Utd.-Portsmouth....1-0
Stockport-Grimsby ...........2-1
Swindon-Walsall..............1-1
Wolves-Man City..............4-1
Nott.Forest-Ipswich..........0-1
Staðan í B-deild:
Huddersf. 21 13 4 4 42-20 43
Man.City 20 12 4 4 29-16 40
Charlton 19 12 3 4 35-20 39
Barnsley 20 12 2 6 38-28 38
Stockport 20 9 7 4 27-26 34
Ipswich 20 9 6 5 34-24 33
Bolton 20 9 5 6 32-22 32
Norwich 20 8 7 5 19-16 31
Wolves 19 7 9 3 25-17 30
Birmingh. 20 7 8 5 30-23 29
Tranmere 21 8 5 8 32-29 29
QPR 20 7 8 5 27-24 29
Fulham 20 7 8 5 21-18 29
Blackburn 18 4 9 5 21-20 21
WBA 19 4 9 6 17-22 21
Port Vale 21 5 6 10 22-28 21
Portsmouth 21 5 6 10 27-36 21
Sheff.Utd 20 5 6 9 21-31 21
Crewe 19 5 4 10 19-28 19
Grimsby 20 5 4 11 18-35 19
Nott.For. 20 4 6 10 21-26 18
Cr.Palace 20 4 6 10 25-36 18
WalsaU 21 3 7 11 17-33 16
Swindon 21 3 7 11 14-35 16
Leeds á toppinn
Leeds fékk vitaspyrnu á
silfurfati.í gær í leik sínum gegn
Derby og komst þar með í efsta
sæti deildarinnar á ný.
Það var Harte sem skoraði úr
vítinu á síðustu mínútu leiksins.
Áður hafði Alan Smith skorað
fyrir Leeds en markið var dæmt
af.
-SK
Solskjær
- skoraði fjögur gegn Everton. Útreið Chelsea
Ole Gunnar Sclskjær var maður helgarinnar í ensku knatt-
spyrnunni. Hann gerði fjögur mörk fyrir Manchester United
sem gersigraði slakt lið Everton, 5-1.
United hóf leikinn með miklum látum gegn Everton en Jeffers
kom gestunum yfir þvert gegn gangi leiksins á 7. mínútu. Litlu
munaði að hann skoraði annað mark skömmu síðar en þá skall-
aði hann laglega í stöng. Eftir þetta var leikurinn eign United og
eftir að Irwin hafði jafnað úr vítaspyrnu skoraði Solskjær fjög-
ur mörk á aðeins 29 mínútum. Og Sir Alex Ferguson, stjóri
United, var ánægður með piltinn eftir leikinn: „Ole Gunnar er
stórkostlegur í því að nýta færin. Hann les leikinn vel og er
mjög vel gefinn. Hann átti frábæran leik og ég er mjög glaður
fyrir hans hönd,“ sagði Ferguson. Breiddin er mikU hjá United
og það kom ekki að sök þótt Beckham, og Yorke lékju ekki með
og Cole kæmi aðeins inn á í lokin sem varamaður. Teddy Sher-
ingham lék með Solskjær i fremstu vigllnu og Ferguson var
einnig mjög ánægður með hans frammistöðu í leiknum.
Walter Smith, stjóri Everton, var ekki upplitsdjarfur eftir út-
reiðina gegn United: „Varnarleikur okkar var hreint út sagt
hræðUegur. Varnarmenn mínir hafa ekki leikið jafn Ula frá þvi
ég kom tU liðsins. Við ætluðum að taka vel á þeim og ekki að
leika upp á jafntefli. Við gáfum þeim mörkin fimm á silfurfati
og leikmenn United skoruðu þau öU eftir mistök í vöm okkar,“
sagði Smith.
Arsenal vermdi toppsæti deildarinnar í þrjár klukkustundur
rúmar en liðið sigraði Leicester örugglega að morgni laugar-
dags. Alveg er ljóst að Arsenal er að sækja 1 sig veðrið og þrátt
fyrir að marga fastamenn, eins og Bergkamp, Vieira, Seaman og
Parlour vantaði í liðið, virkaði Arsenal sterkt og Leicester átti
aldrei möguleika. Arsenal verður í toppbaráttunni fram á síð-
asta dag og það þarf ekki að koma neinum á óvart.
„Mínir menn léku mjög vel i þessum leik. Við erum betur
undir það búnir að taka þátt í mörgum keppnum en í fyrra og
tU þess að eiga möguleika í úrvalsdeUdinni verðum við að vinna
leiki á útivöUum,“sagði Arsene Wenger, stjóri Arsenal eftir leik-
inn. Martin O’NeUl, stjóri Leicester, var ekki eins kátur. Þetta
var hræðUegur leikur af okkar hálfu. Við vomm aUtaf á eftir
þeim í baráttunni um boltann og leikmenn Arsenal vom einfald-
lega mun betri að þessu sinni," sagði O’NeUl.
Chelsea fékk háðulega útreið gegn Sunderland. Það tók sókn-
arparið Quinn og PhiUips aðeins 37 mínútur að skora fjórum
sinnum og gera út um leikinn. Chelsea hefur gengið afleitlega í
deUdinni undanfarið og aðeins unnið einn sigur í síðustu sjö
leikjum. Með þessu áframhaldi verða menn Gianluca Vialli
fjarri toppslagnum þetta tímabilið.
„Við skulduðum þeim þetta og náöum að borga fyrir okkur i
dag. Ég verð að segja að NiaU Quinn hefur verið frábær það sem
af er leiktíðinni og sömu sögu má segja um Kevin PhiUips. Ég
var að sjáifsögðu ekki ánægður með að fá markið á okkur en
plúsamir í leik okkar voru mun fleiri en mínusamir," sagði Pet-
er Reid, stjóri Sunderland, eftir leikinn. Chelsea sigraði Sunder-
land, 4-0, i opnunarleik deUdarinnar í haust.
ViaUi var ekki mjög ánægður: „Þessum stóra ósigri er vitan-
lega mjög erfitt að kyngja. Það vantar aUan stöðugleika í leik
okkar í deildinni. Þetta verðum við að laga sem fyrst því við höf-
um skyldum að gegna við stuðningsmenn liðsins, við félagið og
okkur sjálfa," sagði ViaUi.
Liverpool vann stóran sigur á Sheffield Wednesday á Anfieid
og ljóst að Wednesday fer beint niður í B-deUdina. Liverpool
hins vegar er til aUs líklegt í framhaldinu. Robbie Fowler kom
inn á sem varamaður í leiknum eftir langvarandi meiðsli.
-SK
Eióur Smári Guójohnsen
skoraði fyrra mark Bolton
er Uðið tapaði á heimaveUi
fyrir Tranmere, 2-3. Eióur
Smári lék aUan leikinn en
Guóni Bergsson var ekki
með vegna meiðsla.
Lárus Orri Sigurósson lék
allan leiktímann með West
Bromwich Albion gegn
Norwich.
Mark Bosnich, markvörður
Man. Utd varð að yfirgefa
vöUinn snemma leiks gegn
Evérton vegna meiðsla. Van
der Gouw tók stöðu hans og
átti náðugan dag.
Dómarinn í leik Manchest-
er United og Everton gaf Ole
Gunnari Solskjcer boltann
sem spUað var með eftir
leikinn gegn Everton.
Alex Ferguson sagði erfitt
að velja lið United fyrir
næsta leik á miðvikudags-
kvöld gegn Valencia í Meist-
aradeUd Evrópu. Hann sagði
öruggt að Mark Bosnich
yrði ekki i markinu og
Raimond Van der Gouw
léki í markinu gegn Val-
encia.
Forráðamenn japanska
knattspyrnusambandsins
hafa enn og aftur lýst því
yfir að þeir vUji fá Arsene
Wenger, stjóra Arsenal, tU
að taka við landsliði Japans
og stýra því í heimsmeist-
arakeppninni árið 2002 en
HM fer þá fram í Japan og
Kóreu. Þeir hafa áður boðið
honum starf landsliðsþjálf-
ara en Wenger sagði þá nei,
takk.
Nú œtla Japanir að bjóða
Wenger guU og græna
skóga. Þeir ætla að greiða
Wenger um 350 mUljónir
króna i árslaun og verður
erfitt fyrir Wenger að hafna
boðinu í þetta sinn.