Dagblaðið Vísir - DV - 31.12.1999, Side 14
>
Foster vill
ekki lambið
Jodie Foster hefur ákveðiö að leika ekki FBI-
rannsóknarmanninn Clarice Starling í fram-
haldsmynd Silence of the Lambs, Hannibal,
sem á að
taka á næsta
ári. Foster á
að hafa hætt
viö hlutverkið
til þess að
einbeita sér
að því að leik-
stýra Claire
Daines í Flora
Plum, sem á
einnig að taka
á næsta ári.
Foster hefur
áður leikstýrt
tveimur myndum, Little Man Tate og Home
for the Holidays. Þetta birtist í blöðum í
Kanaveldi í gær þó svo aö Foster hafi verið í
viðtali fyrir nokkrum dögum hjá Larry King á
CNN þar sem hún sagðist ekki hafa ákveðið
neitt og væri að biða eftir því að sjá handrit-
ið að framhaldsmyndinni. Hún virtist þó vera
á báðum áttum og sagöist vilja sjá persón-
urnar tvær (Starling og Lecter) vandlega með
farnar.
Fantasía
2000
Nú þegar næstum því sextíu ár eru frá því aö
Walt Disney frumsýndi meistaraverk sitt,
Fantasíu, hefur hún veriö endurútgefin fyrir
IMAX-bióin. Hver hluti myndarinnar er kynntur
af einhveijum voða frægum og flottum, t.d.
Steve Martin, Angelu Lansbury og töfra-
mönnunum
I Penn & Teller. Á
I sinum tíma var
Walt með mikl-
■ ar hugmyndir
I um þann skiln
I ingarvitarússi-
bana sem
Fantasía átti aö
I vera og var hún
I einungis sýnd
I til að byrja með
i kvikmynda-
B húsum meö
fullkomnasta hljóðkerfi þess tíma. Einnig
hafði hann hugsaö sér aö á hverju ári myndi
liðið hjá fýrirtækinu taka fyrir einn hluta af
myndinni og lappa upp á hann. Þannig hefði
hann Walt kallinn eflaust veriö ánægöur ef
hann hefði brugðið sér inn í IMAX-bió og séð
draum sinn loksins rætast. Ætli það sé ekki
hægt aö mæta meö ísklumpinn sem hann
hvílir í og sjá hvað gerist?
Affleck er til
ef kærastan
er með
Ben Affleck hefur tekið boöinu um að leika
Batman í næstu mynd um dökka riddarann
en krefst þess þó aö kærastan hans, Gwy-
neth Paltrow,
leiki kattarkon-
una á móti sér.
Hins vegar
segja heimilda-
menn hjá
Warner Bros
að Ijóshærða
stjarnan eigi
eflaust eftir að
hafna hlutverk-
inu. Ástæöan
ku vera sú að
hún getur ekkí
ákveðið hvort þetta sé gott fyrir framtíöina og
ímyndina sfna. Herra Affleck virðist nú ekki
vera mjög sannfærandi í koddatalinu á næt-
urna fýrst hann getur ekki talið hana á að
koma aö leika meö sér.
Hogan
snýr aftur
Samkvæmt áströlskum kvikmyndablööum
ætlar kappi kappanna, Crocodile Dundee, að
snúa aftur á hvíta tjaldið von bráðar. Höfund-
ur og stjarna fyrri
myndanna tveggja
um Dundee, Paul
Hogan, er búinn að
vera að vinna í
myndinni og byrja
tökur á henni I
Queensland innan
fárra mánaða. Fjár-
magnið hljóöar upp
á 52 milljónir doll-
ara. Eiginkona Hog-
ans, Linda Kozlowski, mun einnig snúa aftur
sem ástarkvendi Dundees, Sue Charlton, en
þau tvö hittust við tökur á fyrstu myndinni
árið 1985. Nafnið á nýju myndinni er einkar
frumlegt og sniðugt, Crocodile Dundee Re-
turns.
Á nýársdag frumsýnir Háskólabíó nýjustu mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Engla
alheimsins. Myndin er byggð á samnefndri skáldsögu Einars Más Guðmundssonar.
Kuklad í
Nýjasta kvikmynd leikstjórans
Friðriks Þórs Friðrikssonar,
Englar alheimsins, verður frum-
sýnd í Háskólabíói á fyrsta degi
nýs árþúsunds, 1. janúar 2000.
Þannig er þetta fyrsta íslenska
myndin sem er frumsýnd á árþús-
undinu. Kvikmyndahandritið
Englar alheimsins er byggt á sam-
nefndri skáldsögu Einars Más Guð-
mundssonar. Bókina ættu nú ílest-
ir að þekkja enda fékk hún hók-
menntaverðlaun Norðurlanda á
sínum tima og er lesin í gagnfræða-
skólum út um allt land.
Adolf, Paul og Schiller
Sögð er saga Páls (Ingvar Sig-
urðsson), fjölskyldu hans og félaga
á Kleppi. Páli er fylgt inn í myrkrn-
geðsjúkdóms þar sem hann ein-
angrast og verður stöðugt erfiðari í
samskiptum við foreldra sina og
systkini. Þetta endar með því að
hann er sendur á Klepp. Á Kleppi
koma við sögu sálufélagar hans,
Óli bitill (Baltasar Kormákur),
ósköp rólegur gaur sem heldur að
hann hafi samið öll bítlalögin og
sent Paul og John og félögmn þau
sem hugskeyti, Viktor (Bjöm Jör-
undur) sem stundum breytist í Ad-
kolli
olf sjálfan Hitler en ber
með sér vissa menntun
og fágun og Pétur (Hilm-
ir Snær Guðnason), her-
bergisfélagi Páls sem far-
ið hefur yfir um á sýru
og trúir því að hann hafi
skrifað doktorsritgerð
um Schiller í Kína.
Fylgst er með ævintýr-
um þeirra félaga á og af
Kleppi og örlögum Páls.
Fleiri góða leikara ber
að líta i myndinni, til
dæmis Halldóru Geir-
harðsdóttir, Þór Tulini-
us, Egil Ólafsson og
Pálma Gestsson.
Þrettánda myndin
Tökur á myndinni
fóm fram í Reykjavík í
ágúst og september.
Englar alheimsins er
þrettánda mynd Friðriks
Þórs og er ferillinn
glæsilegur: Brennu Njáls saga,
Eldsmiðurinn, Rokk í Reykjavík,
Hringvegurinn, Kúrekar Norðurs-
ins, Skytturnar, Flugþrá (sjón-
varpsmynd), Englakroppar (sjón-
varpsmynd), Börn náttúmnnar,
Bíódagar, Á köldum klaka og nú
síðast Djöflaeyjan. Myndir hans
hafa verið tilnefndar til fjölda verð-
launa á kvikmyndahátiðum út um
allan heim og er skemmst að minn-
ast þess þegar Böm náttúmnnar
var tilnefnd til óskarsverðlauna
árið 1991. Tónlistina í myndini ger-
ir Hilmar Öm Hilmarsson en hann
vann einmitt evrópsku kvikmynda-
verðlaunin fyrir Böm náttúmnnar
á sínum tíma.
bíódómur
Stjörnubíó - The Messenger: The Story ofJoan ofArc ★ ★★
Friðarboðberi í herklæðum
bíódómur
Kringlubíó/Laugarásbíó - Deep Blue Sea ★★*,
og að systir hennar skuh hafa látið lif-
ið fyrir hendi breskra hermanna en
ekki hún gerir hana enn sterkari í
trúnni. Hún er sendiboði Guðs og um
tíma fær hún aðra til að trúa því. Það
er svo ekki fyrr en það hentar ekki
konungi Frakklands að nýta sér krafta
hennar, konungi sem hún átti stóran
þátt í að var krýndur, að hún fer að ef-
ast um að hún hafi skilið skilaboðin
rétt. í síðasta hluta myndarinnar er
hún ein með samvisku sinni innan
fangelsisveggjanna, samvisku sem
birtist í likama yfirheyrslumanns sem
yfirheyrir hana um stöðu hennar og
hvort hún hafi gert rétt. Hún efast í
lokin, enda búið að svíkja hana í bak
og fyrir en trúin á Guð verður yfir-
sterkari veraldlegum hvötum.
Þaö má sjálfsagt deila um túlkun
Millu Jovovich í hlutverki Jóhönnu og
hún fékk hlutverkið eingöngu út á þá-
verandi eiginmann sinn, Luc Besson.
Jovovich, sem svo smellpassaði í The
Fifth Element, sýnir ekki mikla dýpt í
leik sínum og gefur litla innsýn inn í
persónuna en lætur eins og hún sé á
ofskynjunarlyfjum mestan part mynd-
arinar. Þetta veikir myndina fyrir
þeim sem eru að leita að boðskapnum
en gefúr stríðsmanneskjunni Jóhönnu
mun meir styrk. John Malcovich er
snillingur í að leika falska og veik-
lynda náunga og Karl konungur verð-
ur ekki að eftirminnilegri persónu i
mannkynssögunni í hans meðforum.
Þá er vert að benda á góðan leik
Dustins Hoffmans í hlutverki hins
ímyndaða yfirheyrslumanns.
Jóhanna af Örk er mikið sjónarspil
og hefur Luc Besson sett allan sinn
metnað í hana. Ljóst er að hann hefur
ekki farið í sögulega leit, túlkar at-
burði sögunnar upp á eigin spýtur,
gerir Jóhönnu að meiri hermanni en
hún var en nær í lokin að framkalla
áhrifamikið raunsæi þegar Jóhanna
fer að efast um gerðir sínar.
Leikstjóri: Luc Besson. Handrit:
Andrew Birkin og Luc Besson.
Kvikmyndataka: Thierry Arbogast.
Tónlist: Eric Serra. Aðalhlutverk:
Milla Jovovich, John Malkovich,
Faye Dunaway, Dustin Hoffman,
Tcheky Karyo og Timothy West.
Hilmar Karlsson.
Með síðustu kvikmynd sinni, The
Fifth Element, má segja að Luc Besson
hafi horfið frá frönskum kvikmyndum
yfir í bandarískar stórmyndir. Það var
fátt í þeirri annars ágætu kvikmynd
sem minnti á Le Demier compat,
Subway, The Big Blue, Nikita og Leon.
Með The Messenger: The Story of
Joan of Arc tekur Besson fyrir það
sem Frökkum er heilagast, söguna um
dýrlinginn Jóhönnu af örk sem
brennd var á báli aðeins nítján ára.
Fer Besson að mestu leyti sömu leið
og hann gerði í The Fifth Element,
tæknibrellur eru nýttar til hins
ýtrasta í epískri stórmynd sem er fúll-
löng en býr yfir miklum krafti, svo
miklum að oft á tíðum er eins og Luc
Besson sé á ystu nöf með að halda
þræðinum.
Jóhanna af Örk Lucs Bessons er
öðmvísi Jóhanna. Allt frá þvi Carl
Dreyer gerði fyrstu kvikmyndina um
dýrlinginn árið 1928 hefur verið
ákveðinn helgiblær yfir ásjónu henn-
ar. Jóhanna hans Bessons er aftur á
móti ákafur unglingur sem býr yfir
sterkum vilja og miklu þreki, ungling-
ur eins og við
þekkjum til í nú-
tímanum, fullur
af áformum sem
hann telur að sé
þau einu réttu og
lætur engan
stöðva sig. Jó-
hanna er sann-
færð um að þær
sýnir sem henni
birtast segi
henni að hún sé
fædd til þess að
frelsa Frakkland
Varasamar
neðansjávartilraunir
Finninn Renny Harlin er snjall
spennumyndaleikstjóri. Þegar hann
fær góðan efnivið til að vinna úr eins
og í Die Hard 2, Clifíhanger og The
Long Kiss Goodnight nær hann að
halda áhorfandanum spenntum við
sætið frá upphafi til enda. Hann á
samt sína slæmu daga (Cutthroad Is-
land) eins og aðrir. Hversu góður
hasarmyndaleikstjóri hann er kemur
kannski best í Ijós í Deep Blue Sea,
þar sem hann er að vinna með slakt
handrit. Strax á upphafsmínútunni fá
áhorfendmr forsmekkinn af því sem
koma skal í atriði sem minnir kannski
um of á upphafsatriðið í Jaws, en er
samt vel gert. Og Jaws á eftir að koma
oftar upp í huga manns. Það voru
margir sem ekki þorðu nálægt strönd
í mörg ár eftir að hafa séð meistara-
verk Spielbergs, sem kom til vegna
þess hversu hákarlinn var nálægur
mennsku bóli. Hákarlarnir í Deep
Blue Sea, þótt stærri séu og gáfaðri,
hafa ekki þessa sömu nálægð, eru
meira verksmiðjufyrirbæri. Samt
tekst Harlin að gera þá ógnvekjandi og
það er aldrei að vita nema maður forð-
ist strendur þar sem hákarl hefur sést
í mílufiarlægð.
Sagan sem sögð er í Deep Blue Sea
er gömul klisja um vísindamenn sem í
skjóli vísindanna fara inn á hættuleg-
ar brautir til að framleiða efni sem á
að gera alzheimer-veikina læknanlega.
Til að ná árangri þarf að genabreyta
hákörlmn, gera þá stærri en þeir eru.
Það sem vísindamennimir segja ekki
frá er að þeir þurfa einnig að stækka
heila þeirra svo nægilegt magn af efni
náist. Þetta endar aðeins á einn veg,
þrír genabreyttir hákarlar fara að
hugsa og þá á mannskepnan sér fáa
björgunarleiðir, sérstaklega þar sem
atburðimir gerast í rannsóknarstöð
sem er að mestu leyti neðansjávar.
Deep Blue Sea stendur vel undir
nafninu háspennumynd. Einstaka at-
riði em geysivel gerð og Harlin hefur
tekist það sem nauðsynlegt er, að láta
hættima sem hákarlamir skapa aldrei
fara úr huga áhorfandans, þeir birtast
með reglulegu millibili og ávallt i leit
að fómarlambi.
Frammistaða leikara er upp og
ofan. Samuel L. Jackson er þekktastur
þeirra og eina persónan sem fær ein-
hverjar setningar af viti, aðrir þylja
gamlar lummur og verður myndin
varla þeim til framdráttar á lista-
brautinni. Renny Harlin stendur sig
aftur á móti vel eins og áður hefur
komið fram og er vonandi að hann
næli sér í bitastæðara handrit fyrir
næstu mynd.
Leikstjóri: Renny Harlin. Handrit:
Duncan Kennedy, Donna Powers
og Wayne Powers. Kvikmynda-
taka: Stephen Windon. Tónlist:
Trevor Rabin. Aðalleikarar:
Saffron Burrows, Thomas Jane,
Samuel L. Jackson, LL Cool J og
Stellan Skarsgard.
Hilmar Karlsson
14
f Ó k U S 30. desember 1999