Dagblaðið Vísir - DV - 31.12.1999, Page 21
myndlist
Karl hefur
hýst 100 listamenn
á 10 árum
inn. Það eru plötusnúðarnir Berti og Siggi
sem sjá um fjörið.
Þeir sem komu að lokuðum dyrum á Wunder-
bar í gærkvöld geta mætt á staðinn í kvöld þar
sem Dj Finger og Dj Le Chef sjá um áramóta-
fjörið.
Úlrik býður aðdáendum sínum gleðilegt nýtt ár
á Café Amster-
dam. Fjöl-
mennið því
þetta er líklega
i síðasta sinn
sem þessi
sveit stigur á
stokk þar sem
hún er að spá í að leggja upp laupana.
>Böll
k^Það verður ekta nýársdansleikur i Iðnó.
Hljómsveitin Todmobile leikur fýrir dunandi
dansi. Gleðin hefst klukkan 23.00 og þá verð-
ur gestum boðið upp á glimrandi gæðafor-
drykk að hætti hússins. Verö fyrir fordrykk og
dansleik er 5000 krónur. Allar nánari upplýs-
ingar eru i síma 530-3030.
Hótel Borg er draumastaður margra á nýárs-
kvðld en færri komast að en vilja. Ef þú átt
ekki nú þegar miöa þá geturðu þara gleymt því
að sjá Fönkmaster 2000 og Stjórnina troða
upp í Gyllta salnum. Mundu þara að panta lyrr
næst.
Hilmar Sverris og Anna Hilmars skemmta
gestum Næturgalans. Allir sem mæta milli kl.
22 og miðnættis fá léttar veitingar í boði
hússins. Það skal einnig tekið fram að verð á
drykkjum hækkar ekki þótt það sé nýársdag-
ur.
Nýársdansleikur Óperunnar er aö vanda hald-
inn á Broadway. 30 manna hljómsveit Óper-
unnar spilar fyrir dansi og þetta er ekta gala-
Verslun Sævars Karls á 25 ára
afmæli á þessu ári og samnefnt
gallerí er 10 ára. I tilefni af 10 ára
afmæli gallerisins er búið að
opna þar samsýningu þar sem
hátt í 50 listamenn sýna verk sín.
Þetta eru allt listamenn sem hafa
áður sýnt í galleríinu en um
hundrað listamenn hafa sýnt hjá
Sævari siðan galleríið opnaði og
taka um helmingur þeirra þátt í
þessari samsýningu.
„Ég hef mikinn áhuga á list en
ég get alls ekki gert upp á milli
þessara listamanna," segir Sævar
Karl, þegar hann er spurður að
því hvaða listamaður sé honum
kærastur. Móttó Sævars, „Ég hef
mjög einfaldan smekk, ég vel að-
eins það besta“, gildir þó jafht um
málverkin sem fotin, því eins og
hann orðar það þá hefur hann
reynt að halda vissum standard á
því sviði líka.
„Það sem mér finnst svo
skemmtilegt er að margir þessara
listamanna sýndu í fyrsta sinn
hjá mér en eru nú búnir að sýna
úti um allan heim,“ segir Sævar
stoltur. Það var ónýttur lager
baka til í versluninni á Banka-
stræti 11 sem á sínum tima varð
til þess að galleríið sá í upphafi
dagsins ljós. Meðal þeirra fjöl-
mörgu listamanna sem sýna á af-
mælissamsýningunni eru: Hall-
grímur Helgason, Gabríela Frið-
riksdóttir, Hubert Nói, Jón Ósk-
ar, Hulda Hákon, Ólöf Nordal og
Þór Elís Pálsson. Þema sýningar-
innar er aldamót þar sem lista-
mennirnir túlka aldamótin hver á
sinn hátt. Sýningin stendur til 15.
janúar.
Buttercup
syngurá
frönsku
Á útgáfutónleika Buttercup,
sem haldnir voru 1 íslensku óper-
unni fyrir skömmu, var mættur
franskur gæi á vegum franska ut-
anríkisráðuneytisins. Hann var að
ieita að þremur íslenskum hljóm-
sveitum til að fara í tveggja vikna
tónleikafor til Frakklands. Honum
leist svona líka vel á Buttercup og
hefúr sveitinni sem sagt verið boð-
ið að koma til Frakklands í sept-
ember og spila í fimm borgum.
Sveitin stendur nú í ströngu við
að snara textum sinum yfir á
ensku og er meira að segja búin
að þýða lagið „Meira dót“ á
franska tungu. Að sögn Heiðars
Kristinssonar i Buttercup er það
er mikiU heiður fyrir sveitina að
fá að leika fyrir Frakka sem
kandídatar íslands og vera valin
tU þess hlutverks úr öUum þeim
íslensku hljómsveitum sem eiga að
vera svo gott sem búnar að meika
það erlendis.
haf
Bíóborgin
The World is not Enough ★★ Hér sýnist mér
skorta allnokkuð uppá galskapinn, framand-
leikann og lostann. Þetta er Bond í meðallagi.-
ÁS
Runaway Bride ★★ Best í vídeótækinu. -ÁS
Tarzan ★★★ Tarzan er afbragðs skemmtun
sem allir ættu að geta haft gaman af. -ÁS
Blair Witch Project ★★★★ The Blair Witch
Project er snilld og víst er að hún fer í flokk allra
bestu hryllingsmynda. -HK
Enemy of my Enemy Spennumynd í anda
kalda striðsins.
Inspector Gadget Slök brellumynd.
Bíóhöllin
End of Days ★ Drungaleg dellumynd um skratt-
ann sem stígur uppá yfirborðið til að serða
stúlku en hittir fyrir ömmu sína í líki Arnolds
Schwarzenegger. Er að mestu leyti á einhverju
einkennilegu plani þar sem bjánagangur og innri
rökleysaberja saman hausum. -HK
Járnrisinn Lítill strákur eignast járnrisa sem
vin. Ku vera nokkuð góð.
Blue Streak i Martin Lawrence með kjaft og
grin.
Tarzan ★★★ Tarzan er afbragðs skemmtun
sem allir ættu að geta haft gaman af. -ÁS
South Park ★★★ Með fyndnari
prumpubröndurum seinni ára.
American Pie ★ Satt að segja stóð ég í þeirri
meiningu að meira en nóg væri af svona efni í
sjónvarpi. -ÁS
The King and I ★★ Margt er vel gert og söng-
ur ágætur, en tilraunin til að gera söngleik að
teiknimynd virkar ekki nógu sterk. -HK
Joan of Arc ★★★ Luc Besson tekst nokkuð
vel upp með þessa epísku stórmynd. Milla er
mjög góð Jóhanna.
Mystery Men ★ I Mystery Men er samankom-
ið einvalalið leikararí einhverri vitlausustu kvik-
mynd sem lengi hefur sést. Þegar á heildina er
litið þá myndin eitt allsherjar klúður og er illa
farið með góðan leikarahóp. .-HK
Háskólabíó
Mickey Blue Eyes Hugh Grant er alltaf voöa
sætur sem aulalegi klaufinn sem vill ofsa vel.
Hér giftir hann sig óvart inn í harðsvíraða
mafiuna og kann ekki alveg nógu vel við það.
Augasteinninn þinn ★★★ Spænski leikstjór-
inn Fernando Trueba (Belle Epoque) góðlátlegt
grin að kyikmyndaiðnaðinum á Spáni og Þýska-
landi í lok fjórða áratugarins þegar almenningur
átti undir högg að sækja gagnvart striðandi fylk-
ingum. Myndin er oft á tíöum byggð upp eins og
farsi án þess þó að fara langt frá raunveruleik-
anum, skemmtilega útfærð í einstaka atriðum
en er of brokkgeng til geta kallast heilsteypt
verk. -HK
Ungfrúin góða og húsiö ★★★ Eftir dálítiö
hæga byrjun er góður stígandi í myndinni sem
er ágæt drama um tvær systur snemma á öld-
inni.Tinna Gunnlaugsdóttir og Ragnhildur Gísla-
dóttir ná einstaklega góðu sambandi viö perón-
urnar og sýna afburðaleik. -HK
Myrkrahöfðinginn ★★★ Myrkrahöfðinginn er
ekki gallalaus kvikmynd, en Hrafn Gunnlaugs-
son hefur ekki gert betri mynd frá því hann
gerði Hrafninn flýgur. Hilmir Snær Guðnason
sýnir snilldarleik í hlutverki prestsins sem á T
mikilli baráttu við sjálfan sig og aðra. -HK
Life ★★ Brokkgeng gamanmynd með misgóð-
um bröndurum. -HK
Torrente ★* Sjálfsagt einhver subbulegasta
persóna sem lengi hefur sést á hvíta tjaldinu.
Svarti húmorinn er ekki vel heppnaður og
subbuskapurinn nánast gengur frá myndinni.
-HK
A Simple Plan ★★★★ Sagnagaldur sem hitt-
ir beint í mark á áreynslulausan og einfaldan
hátt. -ÁS
Rugrats myndin ★★ Skrítið að hún skuli ekki
vera talsett. -HK
Todo Sobre Mi Madre ★★★ Almodovar skilar
frábærri mynd sem er einkar blæbrigðarik og
með heillandi persónum.
Kringlubíó
Deep Blue See ★★★ Renny Harlin er þrusu
hasarleikstjóri og hér sannar hann það með
ágætis mynd úr slöppu handriti. -HK
End of Days ★ Drungaleg dellumynd um skratt-
ann sem stígur uppá yfirborðið til að serða
stúlku en hittir fyrir ömmu sína í líki Arnolds
Schwarzenegger. -HK
Tarzan ★★★ Tarzan er afbragðs skemmtun
sem allir ættu að geta haft gaman af. -ÁS
The King and I ★★ Margt er vel gert og söng-
ur ágætur, en tilraunin til að gera söngleik að
teiknimynd virkar ekki nógu sterk. -HK
Járnrisinn LTtill strákur eignast járnrisa sem
vin. Ku vera nokkuð góð.
Laugarásbíó
Deep Blue See Renny Harlin er þrusu
hasarleikstjóri og hér sannar hann það með
ágætis mynd úr slöppu handriti. -HK
Mickey Blue Eyes Hugh Grant er alltaf voða
sætur sem aulalegi klaufinn sem vill ofsa vel.
Hér giftir hann sig óvart inn í harðsvíraða
mafíuna og kann ekki alveg nógu vel við það.
The Sixth Sense ★★★ The Sixth Sense er
þessi sjaldgæfa tegund Hollywood kvikmyndar;
greindarleg, blæbrigðarík ogfull af göldrum.-ÁS
Rokkaö í Detroit Myndin segir frá fjórum
hljómsveitartöffurum sem fara til Detroit til að
sjá Kiss.
Regnboginn
EndofDays ★ -HK
Tarzan ★★★ Tarzan er afbragðs skemmtun
sem allir ættu að geta haft gaman af. -ÁS
FightClub ★★★ -HK
An Ideal Husband ★★★ Alveg stanslaust fjör
en þegar betur er skoðað kemur í Ijós aö allt fír-
verkið er aukaatriði líkt og oftast hjá Wilde, það
sem máli skiptir er að hér fær skemmtilegt fólk
tækifæri til að sjarmera okkur T tæpa tvo tíma
eða svo með skemmtilegu spjalli, hnitmiðuöum
yfirlýsingum og meinfyndnummisskilningi. Fyrir-
taks skammdegisuppbót. -ÁS
Stjörnubíó
Joan of Arc ★★★ Luc Besson tekst nokkuð
vel upp meö þessa epísku stórmynd. Milla er
mjög góð Jóhanna.
Virtual Sexuality ★
Eitt sinn stríösmenn 2 ★★★ Líkt og forver-
inn, Eitt sinn stríðsmenn, er þetta eftirtektar-
verð saga sem, þrátt fyrir að liggja mikið á
hjarta um hlutskipti Maoríanna, fjallar fyrst og
fremst um hiö mannlega ástand af hispursleysi
og án vorkunnsemi. -AS
Járnrisinn Lítill strákur eignast járnrisa sem
vin. Ku vera nokkuð góð.
Andri Sigþórsson fótboltakappi meö sína fyrstu fótboltaskó.
„Ég fékk þessa skó þegar ég var fimm eða sex ára gamall. Þá voru
þeir vel rúmir á mig og ég man ég varð að ganga með bómull inni í
tánni. Ætli ég hafi ekki notað þá í svona þrjú ár. Þetta eru Patric-
skór, kallaðir Kikan kid, með áltökkum í botninum og þetta voru
sem sagt mínir fyrstu fótboltaskór. Skómir fundust fyrir algjöra til-
viljun niðri í geymslu hjá foreldrum mínum þegar ég var farinn til
Þýskalands að spila sem atvinnumaður. Þá voru þeir teknir fram í
dagsljósið og ákveðið að þeim skyldi haldið til haga. Síðan þá hef ég
haldið mikið upp á þá og fer afskaplega vel með þá.“
■ • - eru íótboltaskór
AlUaf ferskt.
í Smárai
URSMIÐUR
Laugavegi 62- Sími: 551 4100
30. desember 1999 f ÓkllS