Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2000, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2000, Side 10
10 2000 MÁNUDAGUR. 3 JANÚAR Fréttaljós Deilurnar í Tónlistarskóla Garðabæjar: Sky ri ngar vantar - nýr skólastjóri á erfitt verk fyrir höndum Hörð hríð hefur dunið á Tónlist- arskóla Garðabæjar undanfarnar vikur. Þessi öflugi skóli með um 320 nemendur og 40 kennara hefur leik- ið á reiðiskjálfí vegna deilna. Ekki er fyrirséð hvernig eða hvort nýjum skólastjóra tekst að halda utan um starfsemina, sem „búið er að brjóta í mola“, svo vitnað sé til orða eins af kennurum skólans. Eitt er víst, það verður ekki auðvelt fyrir hinn nýja skólastjóra að taka við stjórn- artaumunum eins og mál hafa skip- ast að undanfórnu. Orrahríðin hófst um leið og og bæjarstjórn tók ákvörðun um að ráða Agnesi Löve í starf skólastjóra Tónlistarskólans. Gísli Magnússon, fráfarandi skólastjóri, hætti vegna aldurs. Hann var vel liðinn og hafði náð upp góðum starfsanda í skólan- um þar sem allir lögðust á eitt um metnaðarfullt og öflugt starf. Allmargar umsóknir bárust um starfið. Var sett saman nefnd sem hafði það hlutverk að ræða við um- sækjendur. Hún mælti með þremur þeirra þegar umsóknirnar fóru fyr- ir skólanefnd. Skólanefndin taldi Smára Ólason, yflrkennara við skól- ann, hæfastan. Greiddi öll nefndin honum atkvæði, að Birni Pálssyni, Sjálfstæðisflokki, undanskildum. Síðan fór málið fyrir bæjarráð. Bæjarstjórn gegn Smára Bæjarráð tók ekki afstöðu til ráðningarmálsins en vísaði því áfram til bæjarstjórnar. Þar kvað við annan tón heldur en í skóla- nefnd því bæjarfulltrúar greiddu öðrum umsækjanda, Agnesi Löve, atkvæði sín, allir sem einn. Kennarar brugðust ókvæða við. Þeir skrifuðu allir undir skjal þar sem þeir mótmæltu ráðningu Agn- esar. Eindreginn vilji þeirra var að Smári yrði ráðinn í starfið. Þá vís- uðu þeir í reglugerð skólans þar sem segir að bæjarráð ráði „skóla- stjóra og aðra fasta starfsmenn að fengnum tillögum skólanefndar". Töldu kennararnir að ekki væri far- ið aö reglum þegar ráðningin var sett í hendur bæjarstjórnar. Kennarar hertu enn róðurinn og báru mótmæli við ráðningunni i hvert hús í Garðabæ. Formaður skólanefndar var einnig afar ósáttur við ákvörðun bæjarstjórnar og kvaðst mundu segja af sér ef hún yrði látin standa. Yfirkennarinn sagði við DV að hann myndi ganga út um áramót ef hann fengi ekki skýringar frá bæjaryfirvöldum á af- greiðslu umsóknar sinnar. Fleiri kennarar hugsa sér til hreyfings ef Agnes verður ráðin. Foreldrar í Garðabæ hafa safnað undirskriftum Foreldrar söfnuöu undirskriftum þar iö aö söfnuninni. þar sem bæjarstjóm var hvött til að fara eftir tillögu skólanefndar sem sem bæjarstjórn var hvött til aö fara aö tillögu skólanefndar. Á myndinni er unn- DV-mynd Hilmar Þór Snörp átök urðu um nýbyggingu tónlistarskólans fyrir fáeinum árum þar sem bæjarstjóri vildi minnka bygginguna miöað viö teikningar en skólastjóri og yfirkennari ekki. Utsala á handhnýttum, austurlenskum gæðateppum á Grand Hótel, Sigtúni. Mánudaginn 3. jan. til sunnudagsins 9. jan.,frá kl. 13-19. Allt að 40% afsláttur ef greitt er með korti 5% aukaafsláttur við staðgreiðslu HÓTEI, REYKJAVIK Verðdæmi Stærð: Verð áður: Nú star.: Pakistan sófaborðsstærð, Tabriz frá Iran, Balutch-bænamottur og margt, margt fleira ca 125x175-200 ca 2x3, 33-42.600 103.800 10-16.200 27.900 64.800 8.900 Raðgreiðslur T'ófratepp/^ 861 4883 hefði tekið ákvörðun á faglegum for- sendum. Þrátt fyrir fundahöld bæjarráðs með skólanefnd og kennurum hefur ekki tekist að leysa málið. Það er í hörðum hnút sem kennarar hafa enn hert með ályktun þess efnis að þeir vilji að staðan verði auglýst á nýjan leik. Vantar skýringar Samkvæmt þeim upplýsingum sem fram hafa komið er haldið með óvenjulegum hætti á ýmsum atrið- um er varða ráðningu í skólastjóra- starfið. Spyrja má hvers vegna bæj- arráð hafi ekki tekið ákvörðun í málinu eins og kveður á um hlut- verk þess í reglugerð skólans. Þá vekur þáð athygli, að atkvæða- greiðsla í bæjarstjórn skyldi vera leynileg samkvæmt beiðni Erlings Ásgeirssonar, fulltrúa Sjálfstæðis- flokks. Fréttaljós Jóhanna Sigþórsdóttir Eins vekur það athygli að Smári Ólason hefur ekki fengið afdráttar- laus svör við þvi á hvaða forsendum Agnes var talin hæfari heldur en hann, þrátt fyrir ít- rekaðar fyrirspum- ir þar um. Hitt virð- ist standa að gögn sem hann lét fylgja umsókn sinni fóru aldrei fyrir allar þær nefndir og ráð sem um málið fjöll- uðu. Þetta fullyrðir formaður skóla- nefndar. Umrædd gögn voru m.a. með- mæli og fleira sem yfirkennarinn vildi koma fyrir sjónir forráðamanna bæj- arins. Sambærileg gögn annarra um- sækjenda voru „ljós- rituð bak og fyrir“ og látin fylgja um- sóknunum. Kennar- ar skólans ályktuðu sérstaklega vegna meðferðar gagna yfirkennar- ans. Hér að framan eru nokkur at- riði sem bæjaryfirvöld verða að gefa skýringar á, vilji þau forðast ólykt af málinu. Átök um nýbyggingu í þeirri miklu umræðu sem orð- ið hefur um ráðningu nýs skóla- stjóra tónlistarskólans hafa skotiö upp kollinum gömul ágreiningsmál forráðamanna skólans við bæjaryf- irvöld. Þegar taka átti ákvörðun um nýbyggingu hans fyrir 2-3 árum urðu snarpar deilur milli bæjar- stjóra annars vegar og skólastjóra og yfirkennara hins vegar um stærð hússins. Bæjarstjóri vildi minnka það miðað við teikningar en skóla- menn vildu ekki gefa það eftir. Þar gekk yfirkennarinn snarplega fram, svo og í fleiri hagsmunamálum skól- ans. Ólafur Elíasson, kennari við skól- ann, sagði við DV að það væri mat allra sem hann hefði talað við innan skólans að nú væri Smári Ólason „að verða fyrir persónulegri óvild bæjarfulltrúanna" með því að hafna honum í starf skólastjóra. Bæjar- stjórn hafi þegar „valdið miklum skemmdum á góðum skóla með þessum hrossakaupum". Bæjaryfirvöldum er vandi á höndum. Velferð öflugs og metnað- arfulls tónlistarskóla er í veði. Tím- inn einn getur leitt í ljós hvort val þeirra á nýjum skólastjóra var skref fram á við eða til baka. I H |t>

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.