Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2000, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2000, Blaðsíða 24
48 MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2000 Fréttir íbúum fækkar í Dalvíkurbyggð DV, Dalvík: íbúum Dalvíkurbyggöar fækkaði um 29 eöa 1,42% frá 1. desember 1998 til 1. desember 1999 samkvæmt bráðabirgðatölum frá Hagstofu ís- lands, á sama tíma og ibúum lands- ins fjölgaði um 1,25%, og íbúum á Norðurlandi eystra fækkaði um 0,6%. íbúafjöldi i Dalvíkurbyggð nú er 2040 manns en var 2069 1. desem- ber 1998. Ekki var hægt að fá uppgefnar tölur miðað við gömlu sveitarfélög- in, aðeins tölur úr byggðarkjömum. Samkvæmt þeim fækkaði íbúum á Dalvík um 24 (1,62%), úr 1503 í 1479, á Árskógssandi fjölgaði hins vegar um 8 manns (6,7%), úr 120 í 128, og á Hauganesi fjölgaði um 1 (0,6%), úr 159 í 160. Þá hefur íbúum i dreifbýl- inu fækkað um 14 (5,12%), úr 287 í 273. -hiá Anna María Ágústsdóttir og Magnús Jóhannsson með jólabörnin Söru Mjöil 5 ára og nýfæddan jóladrenginn sem kom í heiminn á aðfangadagskvöld. DV-mynd Njörður Helgason. Selfoss: fbúum hefur fækkaö í Daivíkurbyggö. Nýr umboðsmaður í Neskaupstað Klara Sveinsdóttir Sími 477 1489 Alliance Francaise Frönskunámskeið fyrir byrjendur, lengra komna, börn og eldri borgara verða haldin 17. janúartil 15. apríl. Innritun alla virka daga frá kl. 11-19 í Austurstræti 3, sími 552 3870. Veffang af@ismennt.isnetfang www.ismennt.is/vefir/af Ath.: Ferðamálafranska og viðskiptafranska. Útsalan hefst mánudaginn 3. janúar kl. 8.00 5—50% afsláttur Úlpur, jakkar, kápur, pelskápur, hattar o.íl. Opiö laugardag frá kl. 10-16 Ao^HUSID Mörkinni 6, sími 588 5518 Bílastæöi við búöarvegginn Fyrsta barn siðustu jóla aldarinnar DV, Suðurlandi: „Við vorum heima í Gunnarsholti þegar fyrstu verkirnir komu. Þá fór- um við fyrst hingað á Selfoss en vegna þess að sá litli var svolítið skakkur vorum við send á Landspít- alann þar sem hann kom í heiminn ílmm mínútur yfir átta á aðfanga- dagskvöldið," sögðu Anna María Ágústsdóttir og Magnús Jóhanns- son alsæl með litla jóladrenginn sinn á sjúkrahúsinu á Selfossi í gær. Eins og áður sagði fæddist hann á Landspítalanum, fyrsta bamið á siðustu jólum aldarinnar. Fljótlega eftir fæðinguna hélt hann ásamt for- eldrum sínum austur á Selfoss, í heimabyggð þeirra og þar ætla þau að vera þar til farið verður heim að Gunnarsholti. Anna María og Magnús sögðust hafa verið á Sel- fossi þegar jólin voru hringd inn, en fljótlega var farið í bæinn. Þeim fannst það skrýtin tilfrnn- ing að aka í gegn um Reykjavík á áttunda tímanum á aöfangadags- kvöldinu. „Allt var svo kyrrt og enginn á ferli,“ sögðu þau. Litli jóladrengur- inn var 17 merkur og 54 sentímetr- ar við fæðingu. Hann er annað barn hjónanna. Þau eiga fyrir dótturina Söru Mjöll sem er nýorðin fimm ára gömul, varö það reyndar þann 22 desember. Það eru því sannkölluð jólabörn sem þau hjónin eiga. Magnús sagði að ef horft sé á litla jóladrenginn þeirra örli fyrir geisla- baug yfir höfði hans. Sara Mjöll stóra systir hans hafði eftir nógu að biða fyrir jól. Afmæli, jólunum og litlu systkini. Hún sagðist þó ekki geta gert upp á milli hvort hafi ver- ið betra að fá Baby bom í jólagjöf eða lítinn bróður. -NH. Á Sandskeiöi var allt baðaö í mánaskini, ratljóst var um heiðina þegar jólatungliö hellti geislum yfir svæðið. DV-mynd Njörður Helgason Sólgleraugu í tunglsljósinu DV, Suðurlandi: Á vetrarsólstöðum var (jóla)tunglið í sögulegri nálægð við jörðina og birtustig þess með því allra mesta. Birtan á Hellisheiði var slík að hún var litlu minni en á sumarnóttu. Einn vegfarandi, sem fór um heiðina, sagði fréttaritara DV að legið hefði við að sólgleraugu hefði þurft til að keyra á móti tunglsljósinu. -NH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.