Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2000, Blaðsíða 16
+
16
ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2000
ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2000
25
Sport
Sport
'*1
—
ENGLAND
A-deild:
Derby - Watford ............2-0
1-0 Strupar (2.), 2-0 Strupar (72.)
Everton - Leicester .........2-2
1-0 Hutchison (15.), 1-1 EUiott (26.),
1-2 Elliott (31.), 2-2 Unsworth (56.)
Leeds - Aston ViUa ..........1-2
0-1 Southgate (19.), 1-1 KeweU (46.),
1-2 Southgate (62.)
Newcastle - West Ham........2-2
1-0 Dabizas (18.), 2-0 Speed (65.), 2-1
Lampard (84.), 2-2 Stimac (88.)
Sheff.Wednesday - Arsenal . . 1-1
0-1 Petit (40.), 1-1 Sibon (56.)
Southampton - Bradford .... 1-0
1-0 Davies (55.)
Tottenham - Liverpool.......1-0
1-0 Armstrong (23.)
Wimbledon - Sunderland .... 1-0
1-0 Cort (30.)
Coventry - Chelsea .....i kvöld
Manch. Utd - Middlesbro . frestað
Leeds 21 14 2 5 35-24 44
Manch.Utd 19 13 4 2 50-25 43
Arsenal 21 12 4 5 37-21 40
Sunderland 21 11 5 5 35-25 38
Liverpool 21 11 4 6 31-18 37
Tottenham 20 10 4 6 32-23 34
Chelsea 18 9 3 6 26-18 30
Leicester 21 9 3 9 30-30 30
Everton 21 7 8 6 35-30 29
Aston Villa 21 8 5 8 21-22 29
West Ham 20 7 7 6 24-23 28
Middlesbro 19 8 3 8 23-26 27
Wimbledon 21 5 10 6 32-35 25
Coventry 19 6 6 7 26-22 24
Newcastle 21 6 6 9 34-37 24
Southampt. 20 5 5 10 24-32 20
Derby 21 5 4 12 19-32 19
Bradford 20 4 5 11 15-30 17
Watford 21 4 2 15 17-44 14
Sheff.Wed. 20 2 4 14 17-J6 10
B-deild:
Birmingham - Huddersfield .... 1-0
Blackburn - Wolves............1-1
Charlton - Nottingham Forest . . 3-0
Crewe - Manchester City......1-1
Fulham - Tranmere.............1-0
Grimsby - Sheffield United .... 2-2
Norwich - Portsmouth..........2-1
Port Vale - Ipswich...........1-2
Stockport - Crystal Palace...1-2
Swindon - QPR.................0-1
WalsaU - Bolton...............2-0
WBA - Barnsley ...............0-2
Man. City 26 16 4 6 40-21 52
Charlton 25 15 5 5 45-26 50
Ipswich 26 14 7 5 43-27 49
Barnsley 25 15 3 7 50-36 48
Huddersf. 26 14 5 7 44-27 47
Stockport 26 11 7 8 32-35 40
QPR 26 10 9 7 35-30 39
Fulham 26 9 12 5 25-20 39
Blackburn 25 9 10 6 32-25 37
Norwich 25 10 7 8 25-23 37
Wolves 25 9 9 7 29-25 36
Tranmere 26 10 5 11 37-37 35
Birmingh. 25 9 8 8 34-28 35
Cr. Palace 26 8 8 10 36-41 32
Bolton 25 8 8 9 33-30 32
Sheff. Utd 26 8 7 11 33-41 31
Nott. For. 26 7 7 12 26-32 28
Crewe 26 7 7 12 25-33 28
Grimsby 26 7 6 13 27-45 27
WBA 26 5 12 9 24-32 27
Port Vaie 25 5 8 12 28-36 23
Portsmouth 26 5 8 13 28-41 23
Walsall 26 5 7 14 26-42 22
Swindon 26 3 9 14 18-42 18
C-deild:
Brentford - Stoke............0-1
Cardiff - Preston............0-4
Staða efstu Uða:
Wigan 24 15 9 0 47-20 54
Preston 24 15 7 2 42-19 52
Bristol R. 24 15 5 4 32-15 50
Millwall 24 13 6 5 38-25 45
Burnley 24 12 7 5 33-21 43
Gillingham 23 12 6 5 42-28 42
Notts Co. 25 12 6 7 37-26 42
Stoke 24 11 8 5 34-21 41
Brentford 25 10 7 8 36-33 37
Boumemth 25 10 4 11 35-36 34
Luton 24 9 6 9 30-32 33
Wycombe 24 8 8 8 30-30 32
Bury 22 7 9 6 35-29 30
Enska knattspyrnan í gær:
Southgate
felldi Leeds
- staöa Man. Utd oröin mjög vænleg
Manchester United þurfti ekki að
spila í gær til að styrkja verulega
stöðu sína við topp ensku A-deildar-
innar. Meistararnir sitja reyndar
enn í öðru sætinu en á meðan þeir
voru á flugi til Brasilíu þar sem þeir
taka þátt í heimsmeistaramóti fé-
lagsliða beið Leeds óvæntan ósigur
heima gegn Aston Villa. United á nú
tvo leiki til góða á Leeds en einu
stigi munar sem fyrr.
Vamarjaxlinn Gareth Southgate
lék Leeds grátt. Tvö fyrstu deilda-
mörk hans síðan í desember 1998
tryggðu Villa sigur á Elland Road,
1-2. Glæsimark frá Harry Kewell
eftir 15 sekúndur í seinni hálfleik
var Leeds skammgóður vermir.
„Þeir hljóta að vera kátir í Ríó
núna. Öll hin toppliðin misstigu sig
S dag. Við vorum án fimm sterkra
leikmanna og það var of mikiö,“
sagði David O’Leary, stjóri Leeds.
Hermann nálægt marki
Wimbledon kom í veg fyrir að
Sunderland kæmist nær efstu liðun-
um með 1-0 sigri. Carl Cort skoraði
markið og litlu munaði að Hermann
Hreiðarsson bætti öðru við fyrir
Wimbledon en eftir mikinn 60
metra sprett var hann stöðvaður á
siðustu stundu af Steve Bould.
Heppnin var með Wimbledon í lok-
in þegar Kevin Phillips átti hörku-
skot í þverslá. Hermann lék allan
leikinn í vöm Wimbledon.
Arsenal mátti sætta sig við jafn-
tefli gegn botnliði Wednesday en
þar jafnaði Hollendingurinn Gerald
Sibon fyrir heimaliðið með glæsi-
legu skallamarki, 1-1.
Tottenham vann mjög verðskuld-
aðan sigur á Liverpool, 1-0. Chris
Armstrong fór illa með fjögur
dauðafæri en skoraði með glæsilegu
langskoti og það færði liði hans stig-
in þrjú. Liverpool ógnaöi sjaldan,
enda Michael Owen og Robbie
Fowler ekki með.
Branko Strupar, belgíski Króat-
inn hjá Derby, skoraði fyrstu mörk
sín eftir komuna frá Genk þegar
Derby vann Watford, 2-0. Fyrra
mark hans, eftir 70 sekúndur, var
jafnframt fyrsta mark aldarinnar í
deildinni og Derby slapp úr fallsæti
þar sem Bradford tapaði á meðan í
öðrum fallslag í Southampton. Jó-
hann B. Guðmundsson lék ekki með
Watford.
West Ham átti góðan endasprett í
Newcastle, skoraði tvivegis undir
lokin og krækti í stig úr leik sem
virtist tapaður.
Amar Gunnlaugsson sat á vara-
mannbekk Leicester sem gerði 2-2
jafntefli við Everton.
Bolton lá í Walsall
í B-deildinni skellti Walsall Bol-
ton með 2-0 sigri en Bolton var
manni færra allan síðari hálfleik-
inn. Eiður Smári Guðjohnsen og
Guðni Bergsson léku allan leikinn
með Bolton en hvorugur íslending-
anna var í hópnum hjá Walsall.
Lárus Orri Sigurðsson tók út leik-
bann þegar WBA beið lægri hlut
fyrir Barnsley, 0-2.
Enn útisigur hjá Guðjóni
Guðjón Þórðarson stýrði Stoke
enn til útisigurs í C-deildinni, nú
0-1 gegn Brentford. Peter Thome
skoraði markið á 60. mínútu. Einar
Þór Daníelsson kom inn á fyrir
hann 8 mínútum fyrir leikslok en
Sigursteinn Gíslason var ekki með
Stoke. Ekki heldur Brynjar Björn
Gunnarsson, sem væntanlega leikur
sinn fyrsta leik fyrir félagið um
næstu helgi. Ivar Ingimarsson lék
allan leikinn með Brentford og vsir
rétt búinn að skora i byrjun leiks.
Stoke er áfram i 8. sæti en er nú al-
veg á hælum næstu liða fyrir ofan.
Sjötta sætinu þarf að ná tn að kom-
ast i úrslit um sæti í B-deildinni.
Bjarki Gunnlaugsson lék síðustu
20 minúturnar með Preston sem
burstaði Cardiff í Wales, 0-4. -VS
Gareth Southgate, annar frá vinstri, fagnar ásamt félögum sínum eftir að
hafa skorað annað mark sitt og Aston Villa gegn Leeds. Reuter
Draumalið
Evrópu
iþróttafréttamenn hafa valið
knattspyrnulið ársins í Evrópu
1999 sem nefnist draumaliðið.
Liðið er skipað eftirtöldum:
Markvörður:
Oliver Kahn......B. Miinchen
Vamarmenn:
Jaap Stam .........Man. Utd
Roberto Carlos...Real Madrid
Lilian Thuram........Parma
Miöjumenn:
David Beckham .....Man. Utd
Sebastian Veron......Lazio
Luis Figo........Barcelona
Rivaldo .........Barcelona
Sóknarmenn:
Gabriel Batistuta .Fiorentina
Andrei Shevchenko..AC Milan
Christian Vieri......Inter
-GH
Fowler er
ekki til sölu
Gerard Houllier, knattspymu-
stjóri Liverpool, sagði í gær-
kvöld að ekkert vær hæft í frétt-
um um að félagið myndi selja
Robbie Fowler til Manchester
United eða Leeds. Enskir fjöl-
miðlar gerðu mikið úr því í gær
og fyrradag og vangaveltur voru
uppi um að Eiður Smári Guð-
johnsen yrði keyptur frá Bolton í
stað Fowlers.
„Fowler er einn besti sóknar-
maður heims og hornsteinn í liði
framtíðarinnar sem við erum að
byggja upp á Anfield. Framlag
hans tO liðsins síðan ég gerði
hann að varafyrirliða í sumar
hefur verið fyrsta flokks," sagði
m.a. í yfirlýsingu frá Houllier.
-VS
Valdimar Grímsson æföi með landsliðinu í gær:
Tel mig vera
á réttri leið
- fer í læknisskoðun í Wuppertal á föstudag
Valdimar Grímsson tók þátt í
æfingu landsliðsins í Laugardals-
höllinni í gærkvöld. Eins og áður
hefur komið fram fékk Valdimar
blóðeitrun í hnéð í kjölfar aögerðar
sem hann gekkst undir í nóvem-
ber. Hann hefur eins og gefur að
skilja verið fjarri góðu gamni með
þýska liðinu sínu Wuppertal. Hans
hefur þar verið sárt saknað enda
einn af lykilmönnum liðsins.
„Ég tel mig vera á réttri leið en
þetta er auðvitað allt spurning um
tíma. Ég tók ekki á til fulls á þess-
ari æfingu en það þýðir ekkert
annað en vera bjartsýnn á fram-
haldið,“ sagði Valdimar eftir æf-
ingu í gærkvöld.
Valdimar hefur ekki enn fengið
leyfi frá félagi sinu fyrir þátttöku
á Evrópumótinu í Króatíu sem
hefst síðar í þessum mánuði.
Hvert verður næsta skref Valdi-
mars í því máli?
„Ég fer I læknisskoðun í Wupp-
ertal á fostudaginn kemur. Ef ég
stenst hana fæ ég um leið græna
ljósið frá félaginu fyrir undirbún-
ing og keppni með landsliðinu. Þá
ætla ég að fara til móts við liðið
sem verður í Frakklandi um helg-
ina,“ sagði Valdimar í gærkvöld.
Áður kynnst meiðslum fyrir
stórverkefni
Valdimar hefur áður kynnst því
að eiga í meiðslum fyrir stórverk-
efni með landsliðinu. Hann hafði
þá með ótrúlegri seiglu að koma
sér í form áður en til kastanna
kom.
„Jú, ég hef tvívegis áður meiðst
skömmu fyrir keppni með landslið-
inu. í fyrra dæminu teygði ég á
krossböndum í júní fyrir Ólympíu-
leikana í Barcelona 1992 og í
seinna skiptið handarbrotnaöi ég
fyrir heimsmeistaramótið hér á
landi 1995. í báðum tilfellunum
kom ég mér í form og tók þátt í
báðum keppnunum. Við skulum
vona að svo verði einnig nú,“ sagði
Valdimar Grímsson,
-JKS
Valdimar Grímsson teygir á hnénu sem hann hefur átt í meiðslum í á æfingunni í gærkvöld. Á meðan ræðir hann við félaga
sinn í landsliðinu, Róbert Sighvatsson. DV-mynd Hilmar Þór
^ Þorbjörn Jensson um æfingar næstu daga:
I stífari kantinum
- sex æfingar fyrir Frakklandsferðina á fimmtudag
Duranona til Kúbu
- kemur í undirbúninginn til íslands 11. janúar
Róbert Duranona kemur ekki til
móts við landsliðið fyrr en 11. janúar.
Hann verður því fjarri góðu gamni í
landsleikjunum við Frakka ytra um
næstu helgi. Duranona hélt til Kúbu
eftir síðasta leik hans með Eisencah
sem hann leikur með í Þýskalandi.
„Af persónulegum aðstæðum fór
Duranona til Kúbu. Móðir hans á í
veikindum og vildi hann vera hjá
henni í nokkra daga áður en hann
kæmi til íslands. Ég tók fúllt tillit til
íslenska landslíðið í handknattleik
kom saman í fyrsta sinn saman í gær
til undirbúnings fyrir Evrópumótið í
Króatíu síðar í þessum mánuöi. Á síð-
ari æfingunni í Laugardalshöllinni í
gærkvöld voru langflestir mættir sem á
annað borð ganga sæmilega heilir til
skógar. Nokkur meiðsli eru í hópnum
og getur Aron Kristjánsson fyrst um
sinn ekki verið með.
Á hinn bóginn tóku þeir Valdimar
Grímsson og Bjarki Sigurðsson þátt í
æfingunni en svo virðist sem þeir séu
á batavegi. Ólafur Stefánsson kom
beint frá Þýskalandi á æfinguna í Höll-
inni og var ekki annað aö sjá en létt
væri yfir hópnum að vanda. Mann-
skapurinn fer í gegnum nokkuð harðar
æfingar fram að ferðinni til Frakk-
lands en lagt verður upp þangað á
fimmtudagsmorguninn. Leikið verður
við Frakka á fóstudag og sunnudag í
borgunum Bordeaux og Pau.
Markmiðið að fá sem mest út
úr leikjunum við Frakka
„Við verðum með sex æfingar fram
að Frakklandsferðinni. Æfingar verða
í stífari kantinum og við munum keyra
okkur upp, eins og sagt er. Með hlið-
sjón af þvi má búast við að strákarnir
verði í þyngri kantinum gegn Frökk-
um. Við munum að sjálfsögðu samt
gera okkar besta gegn þeim og mark-
miðið er að fá sem
mest út úr þeim
leikjum. Eftir heim-
komuna taka við æf-
ingar og leikir og
þeir eiga eftir að
vekja athygli. í þeim
verða eflaust óvænt-
ar uppákomur. Ég
tel þetta prógramm
henta okkur betur en að fá Túnismenn
hingað heim sem ekkert varð af þegar
til kastana kom. Það er gaman að vera
búinn að fá mannskapinn í hendur og
ég horfi bara bjartsýnn fram á veginn,“
sagði Þorbjörn Jensson landsliðsþjálf-
ari. -JKS
Bjarki Sigurðsson:
Fara varlega
„Ég hef hvílt vel undanfarið og
þetta lítur ágætlega út. Eins og
staðan er í dag verð ég með á EM
í Króatíu en það er ljóst að ég verð
að fara mjög varlega. Æfrngin í
gær kom ágætlega út. Hvað hönd-
ina varðar þá hef ég ekki áhyggj-
ur af henni. Mér hefur einhvem
veginn tekist að útiloka þau
meiðsli og þau há mér ekki sem
stendur. Verra er með lær-
vöðvann en ef ég fer gætilega þá
gengur þetta vonandi. Er á meðan
er,“ sagði Bjarki Sigurðsson.
-SK
Aron á batavegi
Aron Kristjánsson, sem leikur
með danska liðinu Skjem, horfði á
félaga sína í landsliðinu á báðum æf-
ingum þess í gær. Aron varð fyrir
því óláni að slita liðþófa í hné fyrir
nokkrum misserum og gekkst undir
aðgerð hér á landi nokkrum dögum
fyrir jól.
Aron sagði i gærkvöld að aðgerðin
hefði gengið vel og hann vonaðist eft-
ir því að geta farið af stað á næstu
dögum. Brynjólfur Jónsson, læknir
liðsins og sá sem gerði aðgerðina á
Aroni, skoðaði hnéð f gær og var
5
NBA-DEILDIN
Urslitin í nótt:
Boston - Cleveland........105-98
Walker 32, Pierce 17 -
Kemp 23, Murray 22.
Philadelphia - Milwaukee 124-120
Iverson 45, Hill 22 -
Robinson 25, Allen 25.
Washington - Golden State .99-87
Richmond 19, Strickland 15 -
Jamison 21, Starks 16.
Orlando - Detroit.......106-118
Gattling 26, Magette 20 -
Hill 42, Hunter 25.
Chicago - Portland .......63-88
Brand 23, Benjamin 19 -
Stoudemire 16, Wells 15.
Utah - Denver.............109-89
Malone 33, Russel 17 -
McDyess 24, Van Exel 16.
í fyrrinótt:
Miami - Orlando ........111-103
Lenard 23, Mashburn, Mouming 21 -
Wahad 22, Armstrong 16, Doleac 14.
Miami vígði nýja og glæsilega keppn-
ishöll í leiknum gegn Orlando. Lengst
af stefndi í öruggan sigur Orlando en
Miami skoraði 32 stig gegn 19 í fjórða
leikhluta og jafnaði, og sigraði síðan
í framlengingu.
Fyrsta stórmót ársins í golfi:
Lehman hreppti
72 milljónirnar
- Tiger Woods langt frá sínu besta
Tom Lehman lék á als oddi og sýndi allar sínar bestu hliðar. I sigurlaun fékk hann litlar 72 milljónir króna
Reuter
Bandaríkjamaðurinn Tim Leh-
man sigraði á fyrsta stórmóti ársins
í golfi en 12 af fremstu kylfingar
heims öttu kappi á golfvellinum í
Arizona í Bandaríkjunum um helg-
ina.
Lehman lék hringina fjóra á 267
höggum eða 13 undir parinu og fékk
i sigurlaun 1 milljón dollara eða um
72 milljónir króna. Lehman lék á
þremur höggum færra en landi
hans, David Duval, sem kom í öðru
sætinu á 270 höggum. Duval lék sið-
asta hringinn á parinu, eða 70 högg-
um, en Lehman lék á 67. Þeir voru
jafnir eftir níu holur á síöasta
hringnum en þá skildu leiðir.
Lehman átti feikigóðan endasprett
og fékk fugl á fimm af síðustu sex
holunum og tryggði sér sigur.
Duval fór ekki tómhentur heim
þvi hann fékk í sinn hlut um 36
milljónir króna.
267 Tom Lehman 68 65 65 67
270 David Duval 65 69 66 70
275 Vijay Singh 70 69 67 69
277 David Love 70 67 73 67
278 Sergio Garcia 71 69 68 70
279 Justin Leonard 69 72 69 69
280 Paul Lawrie 70 70 66 74
281 John Houston 74 67 72 68
281 Hal Sutton 70 72 69 70
282 Tiger Woods 65 71 70 76
288 Phil Mickelson 72 74 72 70
292 Mark O’Meara 73 71 73 75
þessara aðstæðna hans og það varð aö
samkomulagi á milli okkar að hann
kæmi til íslands 11. janúar. Þá um leið
tekur hann þátt í undirbúningi okkar
fyrir Evrópumótið, sagði Þorbjöm
Jensson landsliðsþjálfari. -JKS
ákveðiö að hann færi í styrkjandi æf-
ingar næstu daga.
Þorbjöm Jensson landsliðsþjálfari
sagði að Aron liti vel út. Þorbjöm
sagði enn fremur að danska liðið
hans, Skjem, hefði legið í honum til
aö taka þátt í bikarúrslitaleiknum
þann 9. janúar.
„Læknir landsliösins telur það
ekki skynsamlegt. Það tekur einfald-
lega tíma að ná sér af þeim meiðsl-
um sem Aron stendur í. Því minna
sem áreitið er á hnéð því fyrr fer
hann í gang,“ sagði Þorbjöm. -JKS
Tiger Woods, sem var nær ósigr-
andi á síðasta ári, náði sér ekki á
strik að þessu sinni og varð að láta
sér lynda 10. sætið. Woods lék síð-
asta hringinn á sex höggum yfir
parinu, á 76 höggum, sem er
slakasta skor Woods í eitt og hálft
ár en hann lék samtals á 282 högg-
um.
Úrslitin urðu annars þessi:
-GH
Bland í poka
Ásgeróur Ingibergsdóttir var á
gamlársdag útnefnd íþróttamaður
Vals 1999. Ásgerður leikur meö
kvennaliði Vals í knattspymu og is-
lenska landsliðinu og varð marka-
drottning fslandsmótsins með 20
mörk.
Magnús Árnason var útnefndur
íþróttamaður FH 1999. Magnús leikur
í marki meistaraflokks karla í hand-
knattleik og á liðnu ári átti hann
einna stærstan þátt í góðum árangri
FH á íslandsmótinu og i bikarkeppn-
inni.
ítalski markvörðurinn Massimo
Taibi, sem er á mála hjá Manchester
United, er að reyna að komast að hjá
ítölsku A-deildarliði. Hann vill vera
þar í sex mánuði og mæta svo sterk-
ur til leiks með United þegar næsta
tímabil hefst í haust. United keypti
Taibi frá Venezia fyrir 500 miRjónir
króna fyrir tímabilið. Hann fékk að
spreyta sig í upphafi leiktíöarinnar
en gerði sig sekan um mörg slæm
mistök og var settur út í kuldann.
Bandaríski landsliðsmarkvörðurinn
Brad Friedel, varamarkvörður
Liverpool, hefur komið þeim skila-
boðum til norska meistaraliðsins
Rosenborg að hann sé falur. Rosen-
borg hefur veriö í markvarðarleit en
sem er kunnugt hefur Árni Gautur
Arason verið á mála hjá Rosenborg.
Leicester, liö Arnars Gunnlaugs-
sonar, er á höttunum eftir Sören
Frederiksen, framherja danska A-
deildarliðsins AaB. Frederiksen hélt
til viðræðna við Martin O’Neill,
stjóra Leicester, í gær en liðið er sagt
reiðubúiö að greiða um 100 milljónir
króna fyrir leikmanninn.
Luis van Gaal, þjálfari spænska
knattspymuliðsins
Barcelona, og brasil-
iski sniUingurinn
Rivaldo hafa ekki náð
að sætta sjónarmið sín
en eins og fram kom f
fréttum á síðustu dög-
um nýliðins árs lentu
þeir upp á kant hvor
við annan þegar van
Gaal viðraði þá hug-
mynd að færa Rivaldo til á vellinum
og láta hann leika úti á vængnum í
stað þess að spila á miðjunni.
Rivaldo, sem kjörinn var knatt-
spyrnumaður ársins 1999, verður
ekki í byrjunarliði Börsunga í leikn-
um gegn Real Sociedad annað kvöld
vegna þessara deilna við van Gaal og
framtíð hans hjá félaginu er óráðin
þó svo að hann sjálfur vilji ekki yfir-
gefa liðið. Fram hefur komið að
ítalska liðið Lazio er tilbúið að greiða
morðfé fyrir Rivaldo og eins hafa for-
ráðamenn Manchester United litiö
hýra auga til kappans.
Daninn Lars Christiansen í Flens-
burg er markahæsti leikmaður þýsku
A-deildarinnar í handknattleik. Hann
hefur skorað 127 mörk. Kyung-Shin
Yoon, Gummersbach, kemur næstur
með 109 mörk, Stephane Joulin,
Eisenach, 100, Johan Pettersson,
Nordhorn, 99 og Nicolaj Jacobsen,
Kiei, 99. Enginn íslendingur er i hópi
20 markahæstu leikmanna en Rúss-
inn Dmiti Filippow, fyrrum leik-
maður Stjömunnar, er í 18. sæti með
72 mörk.
Sundmaöurinn Örn Arnarson hef-
ur verið kjörinn
íþróttamaður Hafnar-
fjaröar. Þetta þarf
ekki að koma neinum
á óvart enda vann Öm
glæsileg afrek á síö-
asta ári. Þetta er þriöji
titilinn sem Örn hlýt-
ur á skömmum tima
en hann var útnefhd-
ur íþróttamaður árs-
ins af Samtökum íþróttafréttamanna
og lesendur DV völdu hann íþrótta-
mann ársins.
Jim Smith, knattspymustjóri Derby,
hyggst reyna að fá skoska landsliðs-
manninn Jackie McNamara frá
Celtic en McNamara er meö lausan
samning í vor og því ekki eins dýr nú
og ella. Smith hefur þegar keypt
Craig Burley frá Celtic, Branko
Strupar frá Genk og fengiö Georgi
Kinkladze á leigu frá Ajax, og hyggst
leggja aUt í sölumar til að koma Der-
by úr fallbaráttu ensku A-deildarinn-
ar hið fyrsta.
Roberto Baggio tilkynnti í gær að
hann myndi leika áfram með Inter
Milano í ítölsku knattspymunni, út
þetta tímabil hið minnsta. Baggio hef-
ur lítiö fengið aö spila í vetur og virt-
ist á leiö frá félaginu eftir snörp orða-
skipti hans og Marcellos Lippis
þjálfara í fjölmiðlum en nú hafa sætt-
ir tekist.
-GH/VS