Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2000, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2000, Blaðsíða 32
FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö I hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2000 Ótrúleg hætta leynist í verslunarmiðstöö í Grafarvogi: Lífshættulegar tröppur fyrir unga sem aldna „Þetta eru stórhættulegar tröppur. Ég hélt mér í handriðið en samt fóru fæturnir undan mér og ég rann öfug- ur niður þrepin og endaði á jafn- sléttu fyrir neðan,“ sagði Runólfur Sæmundsson, 75 ára íbúi í Vik í Mýr- dal, sem er einn af fjölmörgum sem segja farir sínar ekki sléttar eftir að hafa gengið um tröppurnar á milli húsa í nýju verslunarmiðstöðinni í Brekkuhúsum 1 í Grafarvogi. Sigrún Unnsteinsdóttir verslunar- eigandi segist ekki geta horft lengur upp á slys á staðnum - nánast á hverjum degi - svo marga hafi hún horft upp á meiða sig - ekki síst börn sem eru mjög mörg í þessu „unga hverfi". „Ég var með bamabarni mínu þeg- ar ég datt í morgun. Þegar ég lá flat- ur og blóðugur fyrir neðan kallaði bamið: „Afi, ég þori ekki lengra nið- ur,“ sagöi Runólfur. Þegar DV var að taka viðtal við Runólf í gær kom ung kona, Katrín María Guðbjartsdóttir og kvaðst hafa heyrt umræðuefnið - hinar hættu- legu tröppur. Hún upplýsti strax að fyrir nokkrum dögum hefði hún líka runnið á klakanum efst í tröppunum og niður alian efri stigann. „Ef maðurinn minn hefði ekki haldið í hönd mina og tekið versta fallið af mér veit ég ekki hvernig hefði fafið,“ sagði Katrín María. Tröppurnar em tvískiptar með palli á milli. Þrátt fyrir tommuþykk- an klaka á flestum tröppunum em þær undir glerþaki. Ekki þarf sér- fræðing til að sjá að hér er lífshættu- legt að ganga um - a.m.k. fyrir eldra fólk. „Þetta er skelfilegt ástand hérna," sagði Sigrún verslunareigandi. „Hér fyrir ofan er upphituð stétt. Vatnið af henni rennur niður tröppumar og þannig myndast klakinn. En ástand- ið hér er ekki bara slæmt á vetuma, því ég veit að aldrað fólk veigrar sér við að fara hér um á sumrin, því tröppumar em í senn brattar, gmnn- ar og óþægilega breiðar. Ég horfði til dæmis á lítinn dreng fara hér niður á reiðhjóli i haust. Hann endaði með því að skelia með höfuðið á pallinum og var fluttur á brott í sjúkrabíl." Sigrún kveðst hafa rætt oft við yf- irvöld i borginni. Þar vísi hver á ann- an. Vinnueftirlit komi ekki á staðinn nema vinnuslys verði, borgaryfirvöld vísi til að mynda á arkitekt. Hún seg- ir úttektarmenn hjá byggingafuiltrúa m.a. segja sér að ekki sé búið að taka tröppurnar út - lokaúttekt hafi ekki verið gerð, enda sé slíkt ekki gert fyrr en byggingameistari biðji um það. Ekki náðist í Magnús Sædal Svavarsson, byggingafulltrúa hjá Reykjavíkurborg, í gær. -ótt Viðbrögð vegna skoðanakönnunar DV: Vinstri-grænir á fleygiferð „Þetta er góð byrjun á árinu. Það gamla kvaddi vel og mér sýnist þessi könnun staðfesta þá tilhneigingu sem verið hefur okkur í hag. Þessi niður- staða hvetur okk- ur enn frekar til dáða,“ segir Stein- grímur J. Sigfús- son, formaður Vinstri hreyfmg- arinnar-græns framboðs, um nið- urstöðu skoðana- könnunar DV sem sýnir að flokkur hans er nú næst- stærstur og hefur aukið fylgi sitt um 2,3 prósent frá könnun DV í október. Mætti vera betra „Þessi niðurstaða er ekki ný fyrir okkur og er á sama róli og kannanir fyrir kosnihgar. Við höfúm að vísu dalað í skoðana- könnunum ef mið- að er við kosning- ar og ljóst er að þetta mætti vera betra," segir Sverrir Her- mannsson, for- maður Frjálslynda flokksins. Ekki nógu gott „Þetta er ekki nógu gott fyrir sam- fylkinguna og ekki í samræmi við það sem við viljum sjá. Það er ljóst að við verðum að bregð- ast við,“ segir Sig- hvatur Björgvins- son, alþingismað- ur Samfylkingar, um þá niðurstöðu skoðanakönnunar DV að Samfylking _ tapar rúmum 2%. Á réttri leið „Hvað varðar Sjálfstæðisflokkinn er ég ánægður með útkomuna. Hún er hvatning fyrir okkur sjálfstæðis- menn og bendir til þess að við séum á réttri leið með það sem við erum að gera,“ sagði Sturla Böðvarsson sam- gönguráðherra." Þá vekur athygli hve Samfylkingin er lág. Það hlýtur að vera þeim mikið umhugsunarefni á sama hátt og það vekur athygli hvemig vinstri-grænir styrkja stöðu sína.“ Umhugsunarefni „Við erum á þessu róli núna, það hafa aðrar kannanir einnig sýnt. Það er alltaf umhugsunarefni hvers vegna,“ sagði Valgerður Sverr- isdóttir iðnaðar- ráðherra. „Ég tel hins vegar að nú liggi allar leiðir upp á við og finn það í flokknum að það er mikill kraftur og menn ætla að vera samstiga í að láta ekki hér við sitja. Við erum tiltölulega bjartsýn í upphafi árs. Auðvitað er verra að öðrum stjómarflokkanna skuli fyrst og fremst þakkaður sá árangur sem er alltaf að nást í þess- ari ríkisstjórn.“ -JSS/-rt Torfi Hjaltalín hættir Séra Torfl Stefánsson Hjaltalín, sóknarprestur á Möðruvöllum í Hörgárdal, hefur ákveðið að hætta prestskap á staðnum og segja sig frá brauði og sókn. Stormasamt hefur verið um séra Torfa á Möðruvöllum og er litið á brott- hvarf hans af staðnum sem afleið- ingu þeirra deilna sem þar hafa verið. „Ég er hættur og á forum,“ sagði séra Torfi sem staddur var í Reykjavík um áramótin en ráð- gerði að fljúga norður í dag til að ganga endanlega frá stnum mál- um. -EIR Þessi tvö, Katrín Guðbjartsdóttir, íbúi í Grafarvogi, og Runólfur Sæmunds- son, 75 ára bílstjóri frá Vík í Mýrdal, þekkjast ekki neitt. Vegir þeirra lágu þó saman þegar DV fór að skoöa lífshættulegar tröppur sem þau eru í á milli húsa í verslunarmiðstöðinni í Brekkuhúsum 1 í Grafarvogi. Runólfur var heppinn að stórslasa sig ekki í gær á tommuþykkum klakanum - Katrín nokkrum dögum áður. Fjöldi annarra hefur meitt sig á þessum stórhættu- lega staö. Þarna fer mikill fjöldi barna um á hverjum degi. DV-mynd GVA MERKILEGA MERKIVELIN brother PT-igM Islenskir stafir 5 leturstærðir 8 leturgerðir 6,9 og 12 mm prentborðar Prentar (tvær linur Verð kr. 6.603 Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.