Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2000, Blaðsíða 18
26
ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2000
Sviðsljós
Hopkins ösku-
reiður við Jodie
Breski stórleikarinn Anthony
Hopkins ku vera öskuillur út í
bandarísku prímadonnuna Jodie
Foster fyrir aö hafna endanlega
góöu boði um að leika í fram-
haldsmynd um mannætuna
Hannibal Lecter. Framleiðandi
myndarinnar mun einnig vera
æfur, að sögn breska blaðsins
Daily Express. Það sem þeim fé-
lögum gramdist mest er að síð-
ustu breytingamar sem gerðar
voru á handritinu voru einmitt til
að koma til móts við kröfur Jodie.
Hún mun hafa sett sig upp á móti
því að Hannibal æti sig.
Spáð í Gillian í
stað Jodie Foster
Vangaveltur eru uppi um að
sjónvarpsleikkonan vinsæla og
kynþokkafulla, Gillian Anderson,
betur þekkt sem Dana Scully í
Ráðgátum, muni taka við hlut-
verkinu sem Jodie Foster hafnaði
í framhaldsmyndinni um Hanni-
bal Lecter. Gillian virðist í það
minnsta vera hæf til starfans. í
Ráðgátum leikur hún FBI konu
og þar hefur hún komist í kynni
við raðmorðingja, svipaðan
Hannibal Lecter, og myndað við
hann tilfinningatengsl. Hvort hún
vill er hins vegar annað mál.
Drottning aðlar
Sean Connery
Skoski þjóðemissinninn og
Hollywoodsjarmörinn Sean Conn-
ery hlaut loks náö fyrir augum al-
mættisins i Bretlandi um áramót-
in þegar Elísabet drottning aðlaði
hann á gamlársdag. Connery, eða
Sir Sean eins og hann verður
framvegis kallaður, missti af öðl-
un fyrir tveimur árum vegna
þjóðemissinnaðra skoðana sinna.
Leikkonumar Elizabeth Taylor
og Julie Andrews voru einnig að-
laðar við sama tækifæri, ásamt
mörgum fleirum, til dæmis söng-
konunni Shirley Bassey.
Vilhjálmur prins:
Með timburmenn
eftir nýársfagnað
Vilhjálmur prins viðurkenndi
fyrir flugfreyju, sem spjallaöi við
hann á leið til Wales um helgina að
hann hefði verið með timburmenn
eftir gamlárskvöld. Vilhjálmur hélt
til Wales ásamt Karli föður sínum
og Harry til að taka þátt í hátíðar-
höldum þar.
Á gamlárskvöld vom prinsamir í
húsi móðursystur sinnar, Jane, og
eiginmanns hennar. Þar var einnig
frænka prinsanna og dóttir Jane,
Laura, sem er 19 ára, auk um 20
annarra ungmenna. Haft er eftir
einum veislugestanna að dansað
hafi verið fram eftir nóttu. Flestir
hafi skálað í kampavini en Vil-
hjálmur, sem er 17 ára, og Harry, 13
ára, hafi látið nokkra bjóra nægja.
Að sögn veislugestsins gætti Vil-
hjálmur Harrys vel.
Skömmu eftir miðnætti hringdi
Vilhjálmur og Harry.
Viihjálmur í föður sinn, sem dvaldi
á sveitasetri sínu í Gloucestershire
ásamt Camillu Parker Bowles, og
óskaði honum gleðilegs árs.
Eitt af því fyrsta sem Karl gerði
þegar nýja árið var gengið í garð
var að hringja í ömmu sína. Bresk
slúðurblöð höfðu greint frá því í
desember að Karl væri með sam-
viskubit yfir því að fagna ekki nýju
ári meö ömmu sinni. Drottningar-
móðirin vildi vera í Sandringham-
höll á gamlárskvöld og hvergi ann-
ars staðar. Hún var heldur ekki til-
búin að vera með Camillu á þessum
tímamótum. I staðinn skálaði drott-
ingarmóðirin við Margréti
prinsessu. Elísabet drottning og Fil-
ippus maður hennar voru í
Árþúsundahöllinni í London á
gamlárskvöld en héldu til
Sandringham á nýársnótt.
Krúttleikkonan Cameron Diaz varö fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu um daginn aö ráövilltur aödáandi hennar stal
af henni buddunni og vegabréfinu. Sjö þúsund dollarar, eöa um hálf milljón króna, voru í buddunni. Sökudólgurinn
starfaði vlö öryggisgæslu á flugvellinum í Los Angeles. Maöurinn var handtekinn fijótlega og líklega rekinn.
Mel G fleygði Jimmy út
Kryddpían Mel G ætlar að skilja
við eiginmann sinn, Jimmy Gulsar,
ef marka má frásögn breska blaðs-
ins Daily Mail. Hjónakomunum
tókst ekki að lappa upp á hjóna-
bcmdið, sem verið hefur í molum,
um jólin.
Að sögn Daily Mail voru Mel G og
Jimmy Gulzar saman um jólin
ásamt syninum unga sem er orðinn
10 mánaða. Reyna átti að bjarga
hjónabandinu.
En jólahátiðin varð ekki ánægju-
leg á heimili Kryddpiunnar og á
gamlárskvöld sauð alveg upp úr. Þá
lauk harkalegu rifrildi Mel G og
Jimmys með því að hún fleygði hon-
um út úr glæsivillu þeirra í Little
Marlow fyrir vestan London.
Nú hefur tengdamóðir Mel G,
Mary Dixon, staðfest í viðtali við
Daily Mail að hjónabandi sonar
Mel G tókst ekki aö bjarga hjóna-
bandinu. Símamynd Reuter
hennar og Kryddpíunnar sé endan-
lega lokið.
„Öllum hefur verið kunnugt um
að samskiptin hafa ekki verið góð
og að þau hafi rifist stöðugt. En það
er synd og skömm að þau skuli ætla
að skilja og ég vorkenni henni,“ er
haft eftir tengdamömmu Kryddpí-
unnar.
Kryddpíumar urðu rétt fyrir jól-
in enn einu sinni að kveða niður
orðróm um að leiðir þeirra skildu
brátt.
Fyrir jólin voru sögur á kreiki
um aö Kryddpíumar hefðu nú loks
ákveðið að leysa upp grúppuna. Ein-
ungis þyrfti að taka ákvörðun um
hvenær tilkynna ætti aðdáendum
ákvörðunina. Kryddpíurnar hafa
hins vegar lofað aðdáendum bæði
tónleikum og nýrri plötu á þessu
ári.
DV
Lopez talar ekki
við kærastann
Jennifer Lopez, kynþokka-
fyllsta kona í heimi hér, að sögn
erlendra blaða, er svo reið út i
kærastann, rapparann Pufiy, að
hún talar ekki lengur viö hann.
Ástæðan er skothríð í diskóteki í
New York fyrir áramót og afskipti
lögreglunnar þar af. Áreiðanlegar
heimildir herma að ástarsamband
Jennifer og Puffys muni syngja
sitt síðasta innan skamms vegna
alls þessa. Eins og menn muna
var Jennifer í löngum yfirheyrsl-
um hjá löggunni eftir skotárásina
og sjálfur hefur Puffy verið
ákærður fyrir ólöglegan vopna-
burö. Jennifer fékk bara nóg.
Nafn elskhugáns
flúrað á bakið
Norsk-bandaríska leikkonan
Renee Zellweger veit sem er að i
Hollywood er ekkert jafnhverfult
og ástin. Hún hafði því vaðið fyr-
ir neðan sig þegar hún lét flúra
nafn elskhugans, gúmmíkarlsins
Jims Carreys, á bakið á sér neð-
anvert. Flúrið er þeirrar náttúru
að það máist af eftir nokkrar vik-
ur. Ef þau verða ekki hætt saman
getur hún bara látið skrá nafnið á
sama stað á nýjan leik. Annars
segja vinir skötuhjúanna að þau
séu alveg vitlaus hvort í annað.
Við sjáum hvað setur.
Stjömur flytja í
nýjar glæsihallir
Drew Barrymore er ekki há í
loftinu, að minnsta kosti ekki
ýkja gömul. Samt er hún búin að
kaupa sér draumahús í drauma-
hverfmu Hollywood Hills þar sem
búa stórmenni á borð við Leon-
ardo DiCaprio. Þá hafa leikara-
hjónin Antonio Banderas og Mel-
anie Grifflth fest kaup á risahöll í
Miðjarðarhafsstíl í fínu hverfi í
Los Angeles, með níu svefnher-
bergjum og tilheyrandi. Gamla
húsið þeirra keypti svo leikarinn
Dylan McDermott.