Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2000, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2000, Blaðsíða 28
36 ÞRIÐJUDAGUR. 4 JANÚAR 2000 T>V ionn Ummæli Framsóknar- bankastjórinn „Farsinn í kringum ráöningu , Finns er misbeiting á , pólitisku valdi og er vitaskuld lítilsvirð-1 ing við aðra um- , sækjendur. Sjálf- : sagt segja þeir hæfu einstaklingar innan bankans „ ekki mikið sem sóttu um og verða nú undirmenn Finns framsóknarbankastjóra." Ágúst Einarsson prófessor, ÍDV. Yfirburðamaður „Það er fagnaðarefni að nú skuli hafa verið ráðinn yflrburða- maður á sviði viðskipta og hag- fræði í stöðu seðlabankastjóra. Sem kunnugt er hafði þessi staða verið laus lengi enda fannst eng- inn afburðamaður í starfið. Uns Finnur Ingólfsson viðskiptaráð- herra hjó á hnútinn og gaf kost á sér.“_ Ármann Jakobsson íslenskufræð- ingur, í DV. Hrossalækning „Síendurteknar vaxtahækkan- ir og þar með óeðlilega hátt gengi íslensku krónunnar til þess að halda niðri verðbólg- unni er sannkölluð hrossalækning fyrir iðnaðinn í landinu." § Haraldur Sumarliða- son, formaður Samtaka iðnaðarins, í DV. Hlaðborðin „Eins og jólahlaðborðin skilja eftir innvortis óróa, ógleði og.l jafnvel eftirsjá eftir að hafa ekki smakkað á öllum réttunum skilja bókahlaðborðin eftir andlega upp- þembu sem vekur lestrarleiða sem hjá mörgum endist allt aö næsta hlaðborðstíma." Árni Björnsson læknir, í DV. Ráðuneytismenn fara á taugum „Ráðuneytismenn eru að fara á taugum vegna þess að við höfum ekki veitt nema um 80 þúsund tonn af loðnu á vertíðinni og rjúka upp til handa og fóta.“ Sverrir Leósson út- gerðarmaður, i DV. Föst á rauðu ljósi „Samfylkingin er ekki enn búin að semja stefnuskrá og væri j henni sæmst að fylgja áðumefnd- um krataflokkum ef hún ætlar ekki að eftirláta Sjálfstæðis- I flokknum alla miðjuna í íslensk- um stjómmálum og sitja sjálf eft- ir fóst „á rauðu ljósi“.“ Jónas Bjarnason efnafræðingur, í DV. Gunnar Sigurðsson, formaður Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi: Áhugamálið að fegra ásýnd Akraneskaupstaðar DV, Akranesi: „Það er lítið um nýja starfið að segja á þessu stigi, framtíðin verður að leiða það í ljós. Ég kvíði ekki að takast á við þetta verkefni ef það verður með þeim hætti sem lagt var upp með,“ segir Gunnar Sigurðsson, oddviti Sjálfstæðis- flokksins á Akranesi, umdæmisstjóri Olís á Vesturlandi og nýkjörinn for- maður Samtaka sveitarfélaga á Vestur- landi. Gunnar var kjörinn til setu í bæjarstjórn Akraness árið 1995 en hef- ur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum. Hann er meðal annars fyrrverandi for- seti bæjarstjórnar Akraness og for- maður bæjarráðs. Hann hefur m.a. setið í stjóm Knattspyrnusambands íslands og var formaður Knatt- spyrnufélags ÍA til margra ára. Þeir sem gleggst þekkja til Gunnars segja að það sé honum að þakka að Akranes er það stórveldi í knattspymunni sem raun ber vitni. Þeir hinir sömu segja að ekki hafi verið hægt að fá betri mann sem formann SSV. Verkefni sem Gunnar taki að sér leggi hann sig allan í og leysi á góð- an máta. Ástæðan fyrir því að Gunnar tók að sér formennskuna segir Gunnar vera að hann hafl m.a. fengið áskor- un frá félögum sínum í stjóm SSV auk annarra. „Á meðal stjórnarmanna SSV er sveitarstjórinn í Búðardal. Hann lagði að mér áð taka starfið að mér þrátt fyrir að eðlilegt hefði verið talið að formennskan færðist tfl Búðardals að þessu sinni.“ Nú hefur bæjarstiórnar- meirihlutinn á Ákra- nesi gagnrýnt formanns- kjörið. Hvað viltu segja um það? „Á bæjarstjómarfundi á Akranesi þann 21. desember sl. kom skýrt fram Maður dagsins að meirihlutinn taldi að úrsögn Akraness úr samstarfinu hefði ekk- ert með mína persónu að gera. Formaður hæjar- ráðs Akraness sagði m.a. að hann hefði kosið mig til helstu trúnaðar- starfa á Akranesi og treysti mér full- komlega. Ég tel úrsögnina hálfhjákát- lega þar sem hún snýst fyrst og fremst um að ég fékk fjögur atkvæði til formanns en Sigríður Gróa Krist- insdóttir aðeins þrjú. Það að Sjálf- stæðisflokkurinn skuli vera stærsta stjórnmálaaflið á Vesturlandi fer í taugarnar á meirihlutanum á Akra- nesi. Annars segir þessi úrsögn allt sem segja þarf um þann hug sem meirihlutinn á Akranesi ber til jg. samstarfs við önnur sveitarfélög á Vesturlandi. Menn verða að gera sér grein fyrir því að það verður ekki bæði sleppt og haldið i þessum efhum frekar en öðrum." Áhugamál Gunnars eru knattspyrna, laxveiði og stjómmál og svo er það sér- stakt áhugamál hans að fegra ásýnd Akraneskaup- staðar, m.a. með því að leggja meira fé í götur og •j& r gangstéttir. Annars lætur Í hann flest mannlegt koma sér við og gildir einu á hvaða sviði það er.“ Gunnar er í sambúð með Sigrlði Guðmundsdóttur, innkaupastjóra Sjúkrahúss Akraness. Hann á tvö böm, þau Örn lögfræðing og Ellu Maríu, viðskiptafræðinema og starfsmann Kaup- þings. -DVÓ Breakbeat.is: D J Kontrol á tuttugu og tveimur Annað kvöld kl. 21 verð- ur vefsíðan Breakbeat.is opnuð formlega, en vefsíða þessi er helguð drum & -5 bass, jungle og annarri breakbeat tón- list og þeirri menningu sem snýst í kringum breakbeat tónlistarformið út um aflan heim. Samhliða opnun síðunn- ar verður annað kvöld hald- ið sérstakt opnunarkvóiu breakbeat.is á efri lueö Veitingahússins 22. Þar mun breski drum & bass tónlistarmaðurinn og plötu- snúðurinn DJ Kontrol koma fram og spila sem plötusnúður. Kontrol er vel þekkt nafn í drum & bass heiminum og er talinn til- heyra nýrri og upprennandi kynslóð í þeim bransa. Kontrol hefur spilað á helstu drum & bass klúbb- 'm Bretlandseyja og gefur önlist sina út hjá þekktum útgáfufyrirtækjum. Skemmtanir Myndgátan Klauflás Myndgátan hér aö ofan lýsir lýsingarorði. Jóhann Sigurö- arson leikur blaða- mann- inn. Abel Snorko býr einn Nú eru aðeins örfáar sýningar eftir á hinu vinsæla leikriti Abel Snorko býr einn, sem hefur verið sýnt á annað ár á Litla sviði Þjóð- leikhússins fyrir fullu húsi. Næsta sýning er í kvöld kl. 20 á Litla sviðinu, Lindargötu 20. Leik- ritið verður að víkja þrátt fyrir góða aðsókn vegna næstu frum- sýningar Þjóðleikhússins, sem er leikritið Hægan, Elektra eftir Hrafnhildi Hagalín Guðmunds- dóttur. Leikhús Leikritið Abel Snorko býr einn er eftir eitt vinsælasta leikskáld Frakka, Eric-Emmanuel Schmitt og fjallar um Abel Snorko, nóbels- verðlaunahafa í bókmenntum sem ákveður að veita blaðamanni við- tal á eyjunni þar sem hann býr einn, fjarri heimsins glaumi. Fundur þessara bláókunnugu manna verður upphafið að óvæntu og mögnuðu uppgjöri. Arnar Jónsson og Jóhann Sig- urðarson fara með hlutverkin tvö í leikritinu og hefur leikur þeirra verið rómaður. Kristján Þórður Hrafnsson þýddi verkið. Leik- stjóri er Melkorka Tekla Ólafs- dóttir. Bridge Stærsta sveifluspilið á Norður- landamóti yngri spilara var þetta sem kom fyrir í 7. umferð. ísland á slæmar minningar frá þessu spili í báðum flokkum, tapaði 17 impum í leik yngra liðsins gegn Dönum og 18 impum í leik eldra liðsins, sömu- leiðis gegn Dönum. Sagnir gengu nánast á sama hátt á öllum borðum, en sömu spil voru spiluð á öllum borðum í báðum aldursflokkum. Austur gjafari og a-v á hættu: 4 ÁDG10753 •r - •f 63 * 10873 Austur Suðm- Vestur Norður 3 4 pass 6 pass pass p/dobl Allir austurspilaramir opnuðu á spaðahindrun í upphafi og vestur, sem átti 11,5 slaga hendi, lét vaða í hjartaslemmu. Þrír sagnhafar fengu að spila þá slemmu ódoblaða, en 5 spflarar í suður dobluðu til að fá spaðaútspil í upphafi (Lightner- dobl). Norður sá í hendi sér að spaðaútspil myndi tæpast duga suðri eftir hindrun austurs, þar sem líklegt var að vestur ætti einnig eyðu i litn- um. Sumir spil- uðu því tígulkóngnum út, en nokkr- ir hlýddu dobli félaga og spiluðu út spaða. Hins vegar gátu fjórir spilar- ar í norður ekki stillt sig um að spila út einspili sínu í laufi. Sex hjörtu stóðu á fjórum borðum (af 8) eftir laufútspil, en voru dobluð í tveimur af þeim tilfellum. Laufút- spilið er ekki gott, því varla getur verið skynsamlegt að reyna að sækja sér stungu í þeim lit. Ef suð- ur á laufásinn má líklegt telja að tíg- ulkóngur nægi einnig til að hnekkja slemmunni. ísak öm Sigurðsson 4 K9864 4» 105 4 KD10: * 9 4 - 932 ♦ G984I * D654Í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.