Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2000, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2000, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2000 11 Fréttir Losun á hundruðum tonna af svlnaskít 1 sjóinn: Enginn stórskaði - segir framkvæmdastjóri svínabúsins í Brautarholti „Við munum leggja mikla áherslu á að hafa umhverfismálm í lagi hjá okkur. Við dældum þess- um skít í sjóirm því við vildum ekki setja hann á frosna jörð í des- ember. Ég er að vona að til þessa þurfi ekki að koma oftar í vetur.“ Þetta sagði Kristinn Gylfi Jóns- son, framkvæmdastjóri svínabús- ins í Brautarholti á Kjalarnesi. Eins og DV greindi frá fyrir helgi áminnti Heilbrigðiseftirlit Reykja- víkur forsvarsmenn búsins fyrir að dæla 2-300 tonnum af svínaskít í sjóinn. „Búið er í uppbyggingu og við erum ekki komin í fulla fram- leiðslu,“ sagði Kristinn. „Heil- brigðiseftirlit Reykjavíkur veit að við munum leysa frárennslismál- in. Búin hafa'frest út þetta ár til að koma sínum málum í lag. Því mið- ur eru til svínabú sem hafa enn ekkert þróarrými. Svínabændur á höfuðborgarsvæðinu verða ekki eins lengi að leysa frárennslismál sín og sveitarfélögin verða að leysa sín skolpmál frá mannfólkinu. Það hefur enginn stórskaði átt sér stað þótt þama fari svínaskítur í sjóinn. Það sér þess enginn merki og hefur ekki í for með sér neina röskun á lífríki. Við höfum fullan hug á að nýta allan áburð frá búi okkar í framtíðinni. Það gerum við á tvennan hátt. Við ætlum að bera svinaskít á túnin og spara þannig tilbúinn áburð. Síðan ætlum við að koma okkur upp búnaði til að skilja á milli fljótandi efna og þurr- efnis. Þurrefnið munum við nota til jarðgerðar í samstarfl við ýmsa aðila sem hafa óskað eftir svína- skit til slíks. Við erum með þróar- rými fyrir 2600 tonn og munum tvöfalda það í vor. „ Kristinn kvaðst ekki gefa út hversu stór túnin væru í hektur- um. Forráðamenn búsins væru ekki sammála þeim kröfum sem heilbrigðiseftirlitið legði upp með um magn búfjáráburðar á hektara. Aðilar væru að vinna að því að fá niðurstöðu í það mál. Kristinn sagði möguleika á að brjóta upp meira land til nýtingar. „Við erum á skilgreindu land- búnaðarsvæði og höfum öll fullgild leyfi til að starfrækja þetta svína- bú. Reykjavíkurborg tók það sér- staklega fram þegar hún sameinað- ist Kjalameshreppi fyrir tveimur árum að það ætti að efla og við- Sauðkrækingar reisa skíðalyftu um hávetur Sérkennileg steypuvinna í brattri fjallshlíðinni halda þeim blómlega landbúnaði sem er á Kjalamesisagði hann og gagnrýndi jafnframt að nú þeg- ar hefði Heilbrigðiseftirlit Reykja- víkur unnið að starfsleyfl fyrir búið í eitt ár en málið væri þó enn ekki í höfn. -JSS Bílaleiga r Það gerist ekki ódýrara 0 Kr. á dag (ekkert daggjald) AVIS mælir með Opel S:568-8888 Dugguvogur 10 - 104Reykjavik „Þetta er frábær áfangi hjá okk- ur og mér sýnist að öllu óbreyttu að það muni takast að opna svæð- ið og vígja nýju skíðalyftuna öðru hvoru megin við næstu mánaða- mót,“ segir Viggó Jónsson, formað- ur framkvæmdanefndar vegna byggingar nýrrar skíðalyftu skíða- deildar Tindastóls, en hann hefur staðið í ströngu að undanfomu við að smala saman mannskap. Síð- ustu undirstöðurnar fyrir lyftuna vom steyptar fyrir skömmu og þar með má segja að skíðamenn séu komnir fyrir hom og það takist sem margir voru orðnir svartsýnir á - að nýja skíðasvæðið komist í gagnið í vetur. Síldarstúlkurnar fornu, sem gerðu Siglufjörð að sælureit, er vart hægt að finna í vélvæðingu nútímans. Allt er orðiö vélvætt og sárafáir handfjatla silfur hafsins, hvort heldur síldin er söltuö eöa fryst. Það er helst kryddlyktin, þessi góði ilmur, sem læðist um vinnslusalinn og minnir á gamla, góöa tíma þegar síldarsöltun var og hét. DV-mynd Júlía Imsland Óþrifin viö Hverfisgötu: Konan með frest til að þrífa „Konan fær frest til úrbóta. Við fórum lögformlegar leiðir og málið er í eðlilegum farvegi," sagði Rósa Magnúsdóttir hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur um málefni konunnar á Hverfis- götu sem býr þar í kjallara við slík óþrif að öðrum er ekki vært í húsinu. Á dögunum fékk hún heimsókn viðgerðarmanna í eit- urefnabúningum þegar gera þurfti við rafmagn í húsinu. „Það er útilokað að segja nokk- uð til um það hversu langan tíma það tekur að koma þesu máli í höfn en konan hefur sinn rétt sem eigandi íbúðarinnar og Konan við hús sitt á Hverfisgötunni. sá réttur er mikill sem bet- ur fer,“ sagði Rósa Magn- úsdóttir og tók fram að þetta mál væri ekkert einsdæmi í höfuðborginni. Gunnar Hjaltason, sem keypti íbúð fyrir ofan kon- una, hefur ekkert getað unnið að endurbótum á eign sinni eins og hann hugðist gera vegna ódauns sem leggur úr kjaUara konunnar. Hann segist bíða átekta og vonar það eitt að konan fari að þrífa hjá sér. -EIR Eins og fram hefur komið var gamla skiðalyftan á Laxárdals- heiði ónýt eftir að hafa verið á undanþágu til fjölda ára. Því lögðu skíðamenn allt kapp á að koma nýrri lyftu upp fyrir vetur- inn, en í haust var gengið frá samkomulagi við Sveitarfélagið Skagafjörð um uppbyggingu nýja skíðasvæðisins í Tindastóli. Uppsetning skíðalyftunnar er í raun talsvert mannvirki. í hvort endamastranna um sig þurfti um 20 rúmmetra af steypu, og 10 millimöstur eru í lyftunni, og alls fóru i undirstöðurnar 87 rúmmet- ar af steypu. Það sem menn höfðu mestar áhyggjur af var hvemig tækist að koma steypunni í mót- in, rúmlega kílómetra leið upp bratta hlíðina. Það var gert með því að mixa steypusíló framan á tönn snjótroðara, sem hvert um sig tók um hálfan rúmmetra af steypu. Þetta tókst með ágætum, en hver ferð tók troðarana um 20 mínútur með steypuna undir efsta mastrið, en styttri tima eftir því sem neðar dró. Þrír troðarar vom notaðir við verkið, frá Tindastóli, Skíðafélagi Fljóta- manna og Höfðahreppi á Skaga- strönd. Framkvæmdir við skíða- lyftuna hafa að miklu leyti verið unnar i sjálfboðavinnu. -ÞÁ É náttúrulega! heilsuhúsið Skólavörðustíg, Kringlunni & Smáratorgi FRAMBOÐSFRESTUR Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæða- greiðslu um kjör stjórnar, trúnaóarmanns og endur- skoðenda í Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur fyrir árið 2000. Framboðslistum eða tillögum skal skila á skrifstofu félagsins, Húsi verslunarinnar 1. hæð Kringlunni 7, eigi síöar én kl. 17:00, miðvikudaginn 26. janúar 2000. Kjörstjórnin Verzlunarmannafélag Reykjavíkur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.