Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2000, Page 2
2
MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2000
Fréttir
Sigurbjörn Báröarson hefur náö undraverðum bata:
Kominn á hestbak
eftir hryggbrot
- finn ekki annað en bakið haldi, segir Sigurbjörn
Sigurbjörn Báröarson, heimsmethafi og hestaíþróttamaöur, hryggbrotnaði fyrr í haust er hann varö undir fjórhjóli
sem hann notaöi viö smölun á hrossum. Hann er nú kominn á bak aftur. DV-mynd GVA
„Ég byrjaði að ríða út um helgina
og það er ekki annað að finna en
bakið á mér haldi, enda hefur upp-
byggingin eftir meiðslin verið
markviss og góð,“ sagði Sigurbjöm
Bárðarson, heimsmethafi og hesta-
íþróttamaður síöasta árs. Hann
hryggbrotnaði fyrr í haust er hann
varð undir fjórhjóli sem hann not-
aði við smölun á hrossum.
„Ég fer nú bara á feti og tölti
svona fyrst um sinn enda er það vís-
indalega sannað að þær hreyfingar
á hestinum eru mjög góöar til að
byggja upp vööva í baki á fólki. Ég
slæ ekkert af þrátt fyrir það sem á
undan er gengið, baráttuviljinn er
enn þá til staðar. Ég fæ líka kraft-
inn af því aö umgangast það unga
fólk sem er að aöstoða mig við þjálf-
un hrossanna, þá Gylfa Gunnars-
son, ísólf Þórisson og fjölskylduna
alla. Auðvitað hefur það hvarflað að
mér, meðan ég hef átt í þessum
meiðslum, að nú væri kominn tími
til að draga sig í hlé. En þegar mað-
ur finnur svona mikinn áhuga allt í
kringum sig getur maður ekki ann-
að en haldið áfram og hugsað um að
gera enn betur en síðast.
„Stórmót eru haldin á hverju ári
eftir að landsmótiö er haldið annað
hvert ár og þess á milli heimsmeist-
aramót þannig að rólegheit eiga ekki
við í þessu sambandi ætli maður sér
að vera á toppnum. Og það útheimt-
ir ennþá meiri vinnu.“
Hvernig er þá með hestakostinn
þegar þú stendur kannski frammi
fyrir því að fara með bestu hestana
úr landi annað hvert ár?
„Þetta lýsir því kannski hvaða
vinnu maður þarf að leysa af hendi.
Þetta er ekki bara spuming um þjálf-
un hrossa fyrir keppni, þetta er líka
stöðug leit að góðum hrossum og þau
eru ekki á hverju strái.“ Þá er nær-
tækast fyrir blaðamann að spyrja
hvemig hestakosturinn sé fyrir kom-
andi keppnistímabil?
„Hann er góður, skal ég segja þér,
hefur í rauninni aldrei verið betri og
af mörgu er að taka. Þar má nefna
kynbótagripina Óskar frá Litla-Dal
og Markús frá Langholtsparti sem
var stjama síðasta árs og sagður föð-
urbetmngur Orra og þá er nú mikið
sagt. Svo hefur uppvakningin í
kringum kappreiðamar undanfarin
misseri hvatt mann tO að gera betur
þar. í því sambandi vil ég nefna nýj-
an vekring sem ég ætlaði að koma
fram með síðasta haust en ekkert
varð úr vegna slyssins. En það er
óhemjuvakur hestur, Óðinn frá
Gunnarsholti, undan Funa frá Stóra-
Hofi og honum ætla ég stóra hluti.“
Það er ekki að heyra annað en
Sigurbjöm sé í sama keppnisham og
áður enda hugsunin að tapa ekki til
i hans huga. -HÓ
Hljómsveitin SigurRós.
SigurRós í London:
Slegist um
miðana
„Þetta hefur gengið mjög vel,
uppselt á tónleikana í bæði
skiptin og allt að verða vitlaust.
Það er slegist um miða á tónleik-
ana i kvöld,“ sagði Kristinn Sæ-
mundsson, umboðsmaður hljóm-
sveitarinnar SigurRósar í gær-
kvöld, en hún hefur veriö í
London að undanförnu þar sem
hún spilaði á tvennum tónleik-
um, hinum síðari í gærkvöld.
í dag liggur leið hljómsveitar-
innar til Danmerkur. Hún mun
spila í Óðinsvéum. Síöan leikur
hún í Sviþjóð og lýkur ferðalag-
inu í klúbb kvikmyndahátíðar-
innar í Gautaborg á sunnudag.
Þar verður hún með tónleika í
tengslum við sýningu á Englum
alheimsins sem verður opnunar-
myndin á kvikmyndahátíðinni í
Gautaborg. -JSS
Átak Reykjavíkurborgar til aö útrýma flækingsköttum:
Vanhugsuð vinnubrögð
- segir Sigríður Heiöberg í Kattholti
Sigríöur Heiðberg. Ekki hrifin af kattahreinsunar-
átaki.
Þær upplýsingar fengust hjá
Heilbrigöisnefnd Reykjavíkur að
kvartanir vegna katta af ýmsum
toga hafi margfaldast undanfama
Engar skýringar
„Þessi auglýsing er dæmi
um fljótfæmisleg og van-
hugsuð vinnubrögð. Þarna
eru ekki settar fram skýr-
ingar svo fólk verður vitan-
lega hrætt. Það er Ula gert
að gera að gamni sinu að
hræða fólk,“ segir Sigríður
Heiðberg í Kattholti í sam-
tali við DV. „Vanræksla á
köttum er gífurleg en það
er ekki rétt að þessu staðið.
Þeir hafa ekki einu sinni
samband við þá sem vinna
við málefni katta áður en
þeir framkvæma," sagði
Sigriður. Hún sagðist hafa
haft samband við Gatna-
málastjóra og gert sam-
komulag um að kettirnir yrðu
vistaðir hjá henni eftir aö mein-
dýraeyðir hefði náð þeim.
-hól
Það var ekki laust við að dýra-
vinir yrðu slegnir óhug þegar
auglýsing frá Hreinsunardeild
Reykjavíkurborgar birtist í gær-
dag um átak til að fækka flæk-
ingsköttum. Þar segir að auglýst
verði vikulega í hvaða hverfi
meindýraeyðir Reykjavíkurborg-
ar verði viku seinna. Þá skulu
kattaeigendur halda köttum sín-
um inni í vikutíma svo þeir verði
ekki teknir. Ekkert er sagt til um
hvernig eða hvaöa dýr verði num-
in af meindýraeyðunum en eig-
endur hvattir til að hafa þá vel
merkta.
Guðmundur Björnsson mein-
dýraeyðir segir að fólk geti hringt
og látið þá vita um ketti sem vitað
er að eru heimilislausir eða hafa
valdið viðkomandi ónæði. Verði þá
búr með agni sett innan lóðar-
marka þeirra sem um ræðir. Dýrin
verða handsömuð og færð til Katt-
holts þar sem þau verða geymd í
eina viku. Ef enginn saknar þeirra
katta sem hafa verið handsamaðir
verður þeim lógað. Guðmundur
sagði þessa aðferð vera þá einu
sem framkvæmanleg væri til að út-
rýma flækingsköttum. Þannig er það
á ábyrgð dýraeigenda að halda sínum
kisum innandyra þá viku sem átakið
er í hverju hverfi.
mánuði. Það þótti tilefni til
að setja af stað þetta átak
vegna mikilla kvartana
íbúa yfir flækingsköttum.
Margir höföu samband við
hreinsunardeildina í gær-
dag og sagði Guðmundur
tilganginum náð með aug-
lýsingunni.
Stuttar fréttir dv
Heildarsýn
Fjármálaráðherra hefur lagt
fyrir ríkisstjóm ýmsar tillögur
til að styrkja
framkvæmd
fjárlaga og
festa í sessi
vinnureglur
um viðbrögð
við umframút-
gjöldum og
verklag við
gerð fjárlaga og fjáraukalaga.
Markmiðið er að tryggja heild-
arsýn yfir ríkisfjármálin, að
samþykktir útgjaldarammar
haldi þannig að aukafjárveiting-
ar verði í lágmarki.
Yfirvinnubann
Aðgerðahópur stætisvagna-
stjóra í Reykjavík hefur ákveðið
yfirvinnubann í þrjá daga vegna
óánægju með launakjör. Vagn-
stjórar telja sig vera að dragast
aftur úr í launum miðað við
aðra borgarstarfsmenn og krefj-
ast leiðréttingar. RÚV greindi
frá.
Skurðdeild lokað
Skurðdeild verður lokaö á
Landspítalanum i byrjun mars en
Ríkisspítölum hefur verið gert að
minnka rekstrarkostnað um 200
milíjónir á þessu ári. RÚV greindi
frá.
Sameining
Útgáfufyrirtækið Fróði hf. og
bókaútgáfan Iðunn ehf. hafa ver-
ið sameinuð, með það fyrir aug-
um að mynda öflugt alhliða út-
gáfufyrirtæki á sviði prentmiðla
og rafrænnar útgáfu og er áætlað
að velta hins sameinaða fyrir-
tækis verði um einn milljarður
króna á þessu ári og ársstörf um
170.
Sameiginlegt slökkvilið
Borgarráð samþykkti í gær að
ganga til viðræðna við Garðabæ,
Hafnarfjörð,
Kópavog, Mos-
fellsbæ, Sel-
tjarnarnes og
Bessastaöa-
hrepp um stofn-
un byggðasam-
lags um rekstur
slökkviliðs höf-
uðborgarsvæðisins. Á undanföm-
um mánuðum og árum hafa
möguleikar á sameiningu slökkvi-
liðanna tveggja á höfuðborgar-
svæöinu, Slökkviliös Reykjavíkur
og Slökkviliðs Hafnarfjarðar, ver-
ið kannaðir.
Opnað fyrír Visa
Aftur verður hægt að greiða
með VISA-kortum á nektardans-
stöðunum Maxim’s og Club Clint-
on, en greiðslukortasamningum
við þessa staði haföi áður verið
rift. Sett eru ströng skilyrði fyrir
viðskiptunum og hámarkseyðslu
á dag. RÚV greindi frá.
Áminntur
Yfirlæknir heilsugæslustöðvar-
innar í Árbæ sendi tilkynningu
til sjúklinga stofnunarinnar þar
sem sagði að upplýsingar úr
sjúkraskrám þaðan mundu ekki
fara í gagnagrunninn án skrif-
legrar heimildar sjúklinga. Stjóm
heilsugæslu Reykjavíkur ákvað
að áminna lækninn vegna þessa.
Ríkissjónvarpið greindi frá.
Tvöföldun
Flugstöð Leifs Eiríkssonar
verður tvöföld að stærð á næsta
rúma ári. Stækkunin mun kosta
um fjóra milljarða. Tilboð voru
opnuð í gær. Stöð 2 greindi frá.
Til Indlands
Forseti Islands, Ólafur Ragnar
Grímsson, mun
fara í opinbera
heimsókn til
Indlands dag-
ana 20.-26. mars
næstkomandi
og vera þar í
boði K.R. Nara-
yanan, forseta
Indlands. Dagur greindi frá.
-hdm