Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2000, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2000, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2000 Fréttir i>v sandkorn Fulltrúalýðræði á stofnfundi Samfylkingar: Stórslys að nota gamlar skrár - segir Jóhanna Sigurðardóttir sem vill grasrótina í formannskjörið í dag eða á næstu dögum skilar níu manna hópur flokkanna þriggja, sem standa að Samfylking- unni, tillögum um það hvemig velja eigi fulltrúa á stofnfund Samfylk- ingarinnar sem stjórnmálaflokks. Samkvæmt heimildum DV er líkleg- asta niðurstaðan sú að aðildarfélög- in, nýju samfylkingarfélögin, al- þýðuflokksfélög, alþýðubandalagsfé- lög og ýmsir angar kvennalistans sendi fulltrúa sina á stofnfundinn og að þeir muni velja flokknum nýja forystu. Enn er þó verið að skoða möguleikann á því að allir félags- menn geti kosið í kjördeildum í kjördæmunum sem taka ábyrgð á öllum kjörgögnum og senda síðan atkvæðin til talningar á landsfund- inum. Þetta þykir hins vegar frem- ur ólíkleg niðurstaða að þessu sinni þó að hugmyndih njóti vaxandi fylg- is. Þá hefur einnig verið rætt um póstkosningu en sú aðferð er sögð illframkvæmanleg af tæknilegum ástæðum. Stofnfundurinn verður haldinn í lok mars eða í byrjun apr- íl. Póstkosning reyndist vei Á liðnum árum hefur val fulltrúa á landsfundi flokkanna þriggja verið með mismunandi hætti. Kvennalistinn skar sig úr að því leyti að félagar hans hafa ávallt all- ir haft rétt til setu á landsfundi að sögn Þórunnar Sveinbjarnardóttur sem situr í áðurnefndum undirbún- ingshópi. Þórunn segir að tillögur undir- búningshópsins muni liggja fyrir á allra næstu dögum og telur hún ein- hug innan Samfylkingar- innar um niðurstöður hans. „Það er að nást mjög góð sátt,“ segir hún. Margrét Frímannsdóttir, formaður Alþýðubanda- lagsins, segir að alþýðu- bandalagsfélög um land allt hafi sent fulltrúa sína á landsfundi f hlutfalli við fjölda meðlima í félögun- um. Fulltrúamir haft haft atkvæðisrétt á landsfund- um en fundimir verið að öðru leyti opnir öllum fé- lagsmönnum. Hins vegar hafi árið 1995 verið tekin upp sú regla í Alþýðu- bandalaginu að formaður var kosinn af öllum flokksbundnum alþýðubandalagsmönnum í póst- kosningu í stað fulltrúakosningar á landsfundi. Hún segir fyrirkomu- lagið hafa gefið góða raun og að Samfýlkingin ætti að íhuga svipaðar leiðir til að virkja krafta stuðnings- manna sinna. „Við það að viðhafa þessa aðferð fjölg- aði töluvert í flokknum og auð- vitað hljóta menn að velta þvl fyrir sér í framhaldinu hvernig við getum best tryggt að fé- lagsmenn í Sam- fylkingunni finni þessi lýðræðislegu vinnubrögð,“ segir hún. Margrét segir ótímabært að kynna tillögur undirbúningshóps- ins. „En ég reikna með að við skilum þeim öllum fyrir helgina," segir hún. Úreltar félagaskrár Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Þjóðvaka, segir að á landsfundi Þjóðvaka hafi þeir félagar í Þjóðvaka sem skráðu sig til þátttöku tveimur vikum fyrir fund rétt til setu á fundinum með fullum atkvæðisrétti. Hins vegar hafi fyrsti landsfundur Þjóðvaka, þar sem flokknum voru sett lög og honum kosin for- ysta, verið öllum opinn með fullum atkvæðisrétti. Jóhanna telur að tryggja eigi sem lýðræðislegastar aðferðir við kjör á forystu Samfylkingarinn- ar. „Á fjölmennum fundi í Samfylk- ingunni í Reykjavík á laugardaginn rikti eindrægni um að hafa sem mest jafhræði og kjörið opið. Hugmyndin um póstkosningu formanns nýtur nokkurs fylgis. Ég tel þá leið áhuga- verða því þá geta allir sem skrá sig fyrir tiltekinn tíma sem félagar í nýju samfylkingarfélögunum í kjör- dæmunum kosið formanninn. Það á ekki að styðjast við félagaskrár gömlu flokksfélaga A-flokkanna og kvennalistans því þær skrár eru bæði úreltar og ómarktækar," segir Jóhanna. „Grundvallaratriði er að það sé jafnræði á milli allra við kosningu á forystunni en ekki að óháðir, eða þeir sem eru ekki félagar í gömlu flokkunum, hafi skertan atkvæðis- rétt. Ef ekki er fallist á póstkosn- ingu er næstbesta leiðin að tiltekinn dag fyrir stofnfund megi félagar Samfylkingarinnar skrá sig til þátt- töku á stofnfundinum með jöfnum atkvæðarétti. En mér finnst það ómöguleg leið og stórslys ef sú leið verður valin að aðildarfélög gömlu flokkanna kjósi fulltrúa eftir úrelt- um skrám sínum," segir Jóhanna Sigurðardóttir. -GAR Jóhanna Sigurö- ardóttir: „Stórslys ef sú leiö veröur valin aö aöildarfé- lög gömlu flokk- anna kjósa full- trúa eftir úreltum skrám sínum.“ Þetta reddast UUiirj/j Um þessar mundir detta litskrúðug umslög inn um bréfalúgur á heimil- um. I þeim er að finna uppgjör yfír kreditkortaviðskipti heimilismanna fyrir jól og áramót og reikning sem ber að greiða eigi síðar en 3. febrúar. Hætt er við að einhverja setji hljóða þegar bréfið er rifið upp. Geti ómögu- lega séð hvernig borga á reikninginn. Skilji ekkert í eyðslunni fyrir hátíð- arnar og spyrji sig í uppgjafartón hvort þeir hafi virkilega þurft á öll- um þessum ósköpum að halda. Dreifa má greiðslu reikningsins 1 marga mánuði, bæta enn einum greiðslum á kort sem þegar er hlaðið greiðslum af ýmsu tagi. Heimildin er við það að springa áður en kortið kemst svo mikið sem nálægt fyrsta posanum á nýju kortatímabili. Því er erfiður tími í nánd hjá mörgum korthöfum. En það er engin ástæða til að ör- vænta. Þessir erflðleikar eru fráleitt korthöfum að kenna og því þýðir lít- ið að tala til þeirra í umvöndunartón. Jólin eru tími ástar og kærleika þar sem allir gera vel við sjálfa sig og aðra í mat, drykk og gjöfum. Það eiga allir að leyfa sér allt yfir hátíðarnar. Korthafar eru auk þess fórnar- lömb útsmoginna markaðs- og auglýsingaspek- inga sem svifu á alltumvefjandi kærleiksanda jól- anna inn í viðkvæmt sálartetur korthafanna. Gátu snúiö þeim að vild í villtu atinu svo þeir keyptu þetta fyrir einhverþúsundniuhundruðo- gnítíu og keyptu hitt á raðgreiðslum, einhverþús- undníuhundruöognitíu á mánuði. Það er ekki sérviska nokkurra ólánsamra einstaklinga að kenna öðrum um þegar illa fer. Þetta er viður- kenndur og sjálfsagður hluti þjóðarsálarinnar, hárra sem lágra, ríkra sem fátækra. Þetta gerir íslendinga að sönnum ís- lendingum. Meðan óviðráðanlegir þættir eins og kreditkort, notuð í dá- leiðsluástandi, hátíðar, auglýs- ingar og útsmognir markaðs- fræðingar gera harða atlögu að efnahag heimilanna getur lausn- in einnig borist að utan, komið eins og sending af himnum ofan. Það sem dynur á okkur og er öðrum að kenna getur einnig horfið eins og dögg fyrir sólu og einnig verið öðrum að kenna. Eða öllu heldur öðrum að þakka. Þetta vita markaðsfræðingar og auglýsingapésar og hafa I nógu að snúast. Lausnin liggur í lottómiðanum. Miði er möguleiki eins og sagði réttilega í auglýs- ingunni forðum. Og þó möguleik- inn á stóra vinningnum sé einn á móti stjarnfræðilegri tölu getur heillastjaman svifið yfir höfði okaðs korthafa á íslandi. Jú, vist... hún geröi það fyrir jólin. Stóri vinningurinn gæti reddað kreditkortinu. Kort- hafar geta því hugsað með hlýhug til 3. febrúar og farið óhræddir með kortin i næstu jólaös. Þetta reddast - alltaf. Dagfari Kaupum hann Það olli töluverðu uppnámi í Há- skóla íslands þegar Viðskiptaháskól- inn breytti nafni sínu í Háskólinn í Reykjavík. Háskólamenn, þ.e. þeir við Suðurgötuna, voru ekki allt of hressir með nýja nafnið og vísuðu til þess að Há- skóli íslands væri iðulega kallaður Há- , skólinn í Reykjavik til aðgreiningar frá Háskólanum á Ak- ureyri og erlendis væri hefð fyrir því háskóla við borgir. væri þeirra. Páll Skúlason, háskólarektor við Suður- götu og heimspekingur, er ekki bein- línis þekktur fyrir að vera herskár i viðskiptum. Sagan segir að þegar nafnaslagurinn var að mestu afstað- inn í fjölmiölum hafi Páll þó glott út í annað í samræðum vestur í Háskóla og spurt hvort ekki væri hægt að leysa málið með því að kaupa Háskól- ann í Reykjavík... að kenna Hefðarrétturinn Á tánum Hreinsunardeild Reykjavíkurborg- ar hefur nú auglýst átak til að fækka flækíngsköttum en margar kvartanir munu hafa borist til borgaryfirvalda vegna þeirra. Verður borgin kembd alveg frá vesturbæ og upp á Kjalarnes. Margir munu sjálfsagt taka þessu átaki fagn- andi, ekki síst þeir sem hafa orðið fyrir barðinu á köttum. í þeim hópi er vænt- anlega Hildur Helga Sigurðardóttir sjónvarpskona en barn hennar var bitið af ketti á dögunum. Á hinn bóginn er við því að búast að kattavinir muni óttast um ketti sína í þessum hreinsunum þó rækilega sé auglýst að þeir skuli halda köttum sínum innan dyra og hafa þá vel merkta. Meðal frægra kattavina sem væntanlega verða á tánum á næstunni má nefna Illuga Jökuls- son, pistlahöfimd með meiru, en Dlugi var allt annað en hrifinn af upphlaupi HOdar vegna bitsins ... Rakettuveður Nú sér víst fyrir endann á góðviðr- iskaflanum sem gælt hefur við lands- menn lungann úr janúar. Veðurstofan, með Magnús Jónsson í broddi fylk- ingar, hefur boðað að veður eigi eftir að kólna og versna svo um munar næstu daga, með roki og tO- heyrandi leiðindum. Er viðbúið að grípa verði tO kuldagaOa og heimskautaúlpna ef ekki á Ola að fara. Sumir láta sér þó fátt um finnast þótt viðvaranir komi frá Veðurstofunni, minnugir spádóma hennar fyrir síðasta gamlárskvöld, þar sem veðurfræðingar köUuðu „úlfur, úlfur“ og spáðu ruddaveðri. Meðal gár- unga er hretið sem Veðurstofan spáir á næstunni því káUað rakettuveður ... Jón Briem Einn ástsælasti handknattleiksmað- ur þjóðarinnar, Jón R. Kristjánsson, vann um árabO hjá Reykjavíkurborg en ákvað að snúa við blaðinu og réð sig tO starfa hjá tölvufyrir- tæki í bænum, að sögn sem kvörtunarstjóri. Svo mikil ánægja er með störf Jóns hjá fyrirtækinu að hann þykir um margt minna á kvörtunar- stjóra Flugleiða, Ólaf Briem, sem senn lætur af störfum. Nú hefur það heyrst að Flugleiðir hafi gert boð í Jón því hann geti svæft reiðasta fólk með því að blikka augunum. Gengur hann því undir nafninu Jón Briem um þessar mundir... Umsjón Haukur L. Hauksson Netfang: sandkorn @ff. is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.