Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2000, Qupperneq 6
6
MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2000
Viðskipti__________________________________________________________________________________________________dv
Þetta helst: Viðskipti á VÞÍ 482 m.kr. ... mest með hlutabréf, 323 m.kr. ... Mest viðskipti með Nýherja, Samherja og
Skeljung, 35 m.kr. ... Skeljungur hækkaði mest eða um 8,92% ... Fiskiðjusamlagið og Hraðfrystistöð Þórshafnar hækkuðu um
5% ... OLÍS lækkar um 4,3% ... Opin kerfi lækka um 3,6% ... Úrvalsvísitala lækkaði um 0,33% í gær og er nú 1.676 stig ..
Heildarvelta með bréf deCODE
tæpir 12 milljarðar í fýrra
veltuhæsta félag á íslandi
Búnaðarbankinn áætlar að velta
með bréf í deCODE genetics Inc. hafi
numið 11.900 milljónum króna á síð-
asta ári að meðtöldum kaupum bank-
anna á bréfum í félaginu fyrir um 6.000
milljónir i júní sl. Séu kaup bankanna
ekki meðtalin var velta með bréf i
deCODE engu að síður meiri en velta
með bréf veltuhæsta félagsins á VÞÍ í
fyrra.
„Þegar heilbrigðisráðherra afhenti
rekstrarleyfi til starfrækslu gagna-
grunns á heilbrigðissviði til íslenskrar
erfðagreiningar ehf. sl. laugardag var
stigið stórt skref í íslensku viðskipta-
lifi,“ segir í Hálffimm fréttum Búnað-
arbankans. Fram kemur að rekstrar-
leyfið skapar skilyrði fyrir skráningu
deCode Genetics Inc., móðurfélag ís-
lenskrar erfðargreiningar, á erlendan
hlutabréfamarkað. Yrði félagið þá
fyrsta fyrirtækið sem starfrækt væri
hérlendis til að hljóta slíka skráningu.
Búnaðarbankinn segir ljóst að íslensk-
ir íjárfestar binda miklar vonir við
Samherji
kaupir hlut í
Hraöfrystistöö
Þórshafnar
Samherji hf. hefur keypt ríf-
lega 31% hlut í Hraðfrystistöð
Þórshafnar hf. Bréfln eru keypt af
Þórshafnarhreppi og Landsbanka
íslands hf. Við þessu var búist
eins og sagt var frá i DV í gær.
„Við teljum Hraðfrystistöö
Þórshafnar vera góðan fjárfest-
ingarkost og sjáum ýmsa mögu-
leika í samvinnu þessara fyrir-
tækja, bæði í veiðum og vinnslu.
Við vonum að þessi samvinna
verði til að efla hag beggja fyrir-
tækjanna og skila eigendum
þeirra auknum arði á komandi
árum,“ segir Þorsteinn Már Bald-
vinsson, forstjóri Samherja. Eng-
in áform eru uppi um sameiningu
fyrirtækjanna.
Skjalaskúpar
í miklu úrvali
Bresk
hágæðavara
Verðfrákr. 16.808
H. Ólafsson og Bernhöft ehf.
Kaplahrauni 1,220 HafnarfirSi
Sími 555 6600, fax 555 6606,
netfang hob@hob.is
skráningu félagsins þar sem mark-
aðsvirði þess er nú þegar komið í 1,8
milljarða Bandaríkjadala sé miðað við
að heildarútgefið hlutafé sé 30 milljón-
ir hluta og gengi félagsins um 60. „Það
jafngildir um 130 milljörðum króna og
miðað við það er deCode langverð-
mætasta fyrirtæki landsins en næst á
eftir er Eimskipafélagið, sem nú er
metið á rúma 40 milljarða króna, eftir
miklar hækkanir síðustu mánuði."
Miðað viö áætlun Búnaðarbankans
var heildarvelta með hlutabréf í
deCode um 11.900 m.kr. á síð-
asta ári að meðtöldum kaup-
um Búnaðarbankans, FBA og
Landsbankans í júní 1999 en
þau kaup voru um 6.000 m.kr.
Viðskipti með hlutabréf
deCode, skv. þessari áætlun,
voru því ámóta og með það fé-
lag sem skráð er á VÞÍ sem
mestu viðskipti urðu með á
síðasta ári, þ.e. FBA. Sé horft á
veltu án kaupa bankanna, til
að forðast tvítalningu, er velta
áætluð um 5.900 m.kr. Veltumesta fé-
lag á VÞÍ á síðasta ári var Islands-
banki með um 4.800 m.kr. heildarveltu.
„Forvitnilegt verður að fylgjast með
verðmati erlendra sérfræðinga á félag-
inu, ef félagið fær skráningu á erlend-
an markað líkt og það stefhir að. Mik-
il ásókn er nú í hlutabréf erlendra líf-
tæknifyrirtækja og hafa þau hækkað
mikið síðustum misseri. Án efa hefði
það griðarleg áhrif á allt atvinnulíf
landsmanna ef erlendir aðilar viður-
kenna verðmæti deCode. Ef vel tekst
til getur það haft mikil og góð áhrif á
framlag fjárfesta til áhættufiárfestinga
hér á landi og þannig stuðlað að frek-
ari nýsköpun hérlendis.
Rétt er að minna á að samfara mik-
illi hækkun á gengi hlutabréfa, líkt og
hjá deCode og mörgum öðrum líf-
tæknifyrirtækjum, eykst hlutabréfaá-
hætta til muna. I tilfelli deCode er ljóst
að markaðsáhætta erlendis vegur
þyngst þar sem óvist er hvort félagið
fær sömu athygli og þau félög sem
skráð eru á markaði í dag. Óvissa um
framtíðarmöguleika deCode, líkt og
armarra líftæknifyrirtækja, er mikil.
Því er ráðlegt fyrir fjárfesta að hafa
eingöngu hluta af eignum sínum í líf-
tæknifyrirtækjum og öðrum áhættu-
fjárfestingum.
Sölugengi á hlutabréfum í deCode
getur verið mismunandi á milli verð-
bréfafyrirtækja og því er fjárfestum
bent á að gera verðsamanburð áður en
að ákvörðun um kaup er tekin,“ segir
í Hálffimm fréttiun Búnaðarbankans í
fyrradag.
Hnseyjarferjan ekki
afhent fvrr en í vor
Stáltak hf. er verktaki við smíði
Hríseyjarferjunnar Sævars fyrir
Vegargerð ríkisins. Eins og fram
hefur komið i fréttum að undan-
fömu hefur afhending ferjunnar
dregist fram yflr umsaminn tíma.
Stafar sá dráttur fyrst og fremst af
vandamálum sem upp hafa komið
við skrúfubúnað skipsins en sá bún-
aður var keyptur frá dönskum fram-
leiðanda samkvæmt ósk frá verk-
kaupa. Hinum danska framleiðanda
var gefínn lokafrestur til að skila
búnaðinum af sér í umsömdu
ástandi til 21. þessa mánaðar. Þetta
tókst framleiðandanum ekki og hef-
ur samningum um kaup á þessum
búnaði verið rift að höfðu samráði
við verkkaupa.
Öflum nýs skrúfubúnaðar og upp-
setning hans í skipið mun taka
nokkra mánuði. Stáltak hf. og Vega-
gerð ríkisins hafa tekið upp viðræð-
ur um breytingu á verksamningi í
samræmi við þessar breyttu for-
sendur og er þess vænst að þeim
ljúki innan skamms. Fyrirsjáanlegt
má telja að afhending skipsins geti
ekki farið fram fyrr en á vormánuö-
um þessa árs.
Erlendir fjárfestar til Islands?
- tveir hvatar að mati Fjárfestingarbanka atvinnulífsins
Til tíðinda gæti borið á árinu 2000 ef
erlendir fjárfestar halda innreið sínaá
íslenskan verðbréfamarkað. Þetta kom
ffam í Morgunkomi FBA í gær. Sér-
fræðingar FBA telja að þar yrði fyrst og
fremst um að ræða tvo hvata, þ.e. raf-
ræna skráningu verðbréfa og tengingu
Verðbréfaþings íslands hf. við samnor-
rænt viðskiptanet kauphalla, Norex.
Það hefur löngum hamlað áhuga er-
lendra fjárfesta á fjárfestingu hér á
landi að verðbréf eru einkum gefm út á
pappírsformi en ekki rafrænt. FBA seg-
ir að á næstu mánuðum mun Verðbréfa-
skráning Islands hf. hefja starfsemi og
útgáfu fyrstu flokka verðbréfa á raf-
rænu formi og því styttist óöum i að
þessi hindmn verði ekki lengur í vegin-
um.
I Morgunkominu kemur ffam að þró-
un, sem er ekki síður áhugaverð, gæti
orðið með samtengingu Verðbréfaþings-
ins við Norex þar sem um gífúrlega
margfóldun verðbréfaflokka og fjárfesta
yrði að ræða sem jafhffamt hefði í fór
með sér meiri seljanleika og lægri
kostnað, svo dæmi séu tekin. Þar
meðættu íslenskir fjárfestar kost á að
fylgjast á virkan hátt með félögum sem
skráð em annars staðar á Norðurlönd-
unum og útgefendur geta náð athygli er-
lendra aðila. Jafnffamt gæti opnast að-
gangur að skipulegum afleiðumörkuð-
um sem fyrr en seinna hljóta að hefja
innreið sína á íslenska markaðinn. Þó
er líklegt að slík samtenging leiði til enn
meiri sérhæfmgar fjárfesta og kaup-
halla og væri þar lag fyrir íslenskan
verðbréfamarkað að sýna þekkingu og
áhuga á fyrirtækjum á sviði sjávarút-
vegs og sérhæfðari líftæknifyrirtækjum,
s.s. á sviði erfðafræði.
Verðbréfastofan með 6,2% í
Plastprenti
Verðbréfastofan hf. hefur aukið
hlut sinn í Plastprenti hf. og er
eignarhlutur Verðbréfastofunnar
nú 6,2%. Tilkynning frá Verðbréfa-
stofunni til Verðbréfaþings þess
efriis barst i gær.
Flugleiðir fjórða besta
evrópska flugfélagið
Á hverju ári velja lesendur hins
virta bandaríska ferðatímarits
Condé Nast Traveler þau flugfélög,
bílaleigur og hótel sem þykja skara
fram úr hvert á sínu sviði. I nóvem-
berhefti síðastliðins árs voru birtar
niðurstöður könnunar tímaritsins
fyrir árið 1999. Könnunin leiddi
meðal annars í ljós að Keflavíkur-
flugvöllur þykir að mati lesenda
áttundi besti flugvöllur i heimi og
að Flugleiðir þykja fjórða besta evr-
ópska flugfélagiö. Viðskiptavefur-
inn á Vísi.is greindi frá í gær.
Jón Karlsson löunni og Magnús
Hreggviösson, Fróöa.
Fróði og Iðunn sameinast
Útgáfyrirtækið Fróði hf. og bóka-
útgáfan Iðunn ehf. hafa verið sam-
einuð. I fréttatilkynningu kemur
fram að markmiðið með sameining-
unni sé að mynda öflugt alhliða út-
gáfufyrirtæki á sviði prentmiðla og
rafrænnar útgáfu. Fróði er stærsti
útgefandi tímarita á íslandi, auk
þess sem fyrirtækið hefur geflð út
nokkrar bækur árlega. Iðunn hefur
í áratugi verið ein af þekktustu
bókaútgáfum landsins og meðal
annars gefið út mikið af stórum og
veigamiklum ritverkum.
Mun tímaritaútgáfa hins samein-
aða fyrirtækis framvegis sem hingað
til vera i nafni Fróða en öll bókaút-
gáfa í nafni Iðunnar. Jón Karsson,
sem verið hefúr framkvæmdastjóri
Iðunnar, mun veita bókaútgáfunni
forstöðu. Magnús Hreggviðsson
verður stjómarformaður hins nýja
félags. Áætluð velta hins sameinaða
félags er um einn milljarður á þessu
ári og ársstörf um 170.
Landsíminn í WAP
WAP hefur skotist hratt upp á
stjörnuhimin á Islandi að undan-
fórnu og hafa íslandsbanki og Bún-
aðarbankinn boðið upp á þennan
valkost. Islandssími ætlar að hella
sér í þessa baráttu og mun bjóða
WAP-þjónustu fljótlega. Viðskipta-
blaðið, sem kom út í morgun,
greindi frá þessu. Ólafur Stephen-
sen, forstöðumaður upplýsinga- og
kynningarmála Landssímans, segir
að þegar Landssiminn fari með
þessa þjónustu af stað muni þjón-
ustan batna verulega.
Viðræður um sameiningu BGB hf. og Snæfells hf., dótturfélags KEA svf.
Formlegar viðræður hafnar
- veruleg hagræðing fólgin í sameiningu
Stjómir sjávarútvegsfyrirtækjanna
Snæfells hf. og BGB hf. í Dalvíkurbyggð
hafa ákveðið að hefja formlegar samn-
ingaviðræður með það að markmiði að
sameina fyrirtækin og miðist samein-
ingin við síðustu áramót. Markmiðið
með sameiningunni er að endurskipu-
leggja rekstur beggja íyrirtækja með
það fyrir augum að ná fram hagræð-
ingu.
Snæfell hf. var stofhað þann 19. júní
1997 og var grunnurinn að því fisk-
vinnslusvið KEA og Útgerðarfélag Dal-
víkinga sem vom að fullu í eigu KEA.
KEA á nú rúm 50% hlutafjár í Snæfelli
og Kaldbakur hf„ sem er fjárfestingarfé-
lag í eigu Samherja hf. og KEA, á rúm
40% hlutafjár.
Snæfell hf. gerir út þrjú skip: Frysti-
skipið Björgvin EA 311, ísfiskskipið
Björgúlf EA 312 og Kambaröst SU 200. Á
Dalvík og Stöðvariirði rekur íelagið
frystihús sem aðallega vinna afúrðir úr
bolfiski. Þá er verið að ljúka fram-
kvæmdum við sambyggða pökkunar-
stöð á Dalvik og er þar ennfremur rekin
saltfiskvinnsla. Á Hjalteyri fer fram
þurrkun hausa og skreiðarverkun.
Snæfell hf. hefur yfir að ráða veiði-
heimildum sem samsvara 8.250
þorskígildistonnum, auk nokkurra
þorskveiðiheimilda í Barentshafi.
Starfsmenn fyrirtækisins em nú um 300
talsins.
BGB hf. hóf rekstur þann 1. janúar
1997 en það var stofnað með samruna
fyrirtækjanna Blika hf. á Dalvik og G.
Ben. sf. á Árskógssandi. BGB hf. gerir út
rækjufrystiskipið Blika EA 12, síldar- og
loðnuskipið Amþór EA 16 og þorsk-
veiði- og rækjuskipið Sæþór EA 101.
Fyrirtækið rekur fiskþurrkun á Dalvík
og saltfiskverkun á Árskógssandi. Veiði-
heimildir þess nema um 3.400
þorskígildistonnum, auk nokkurra
þorskveiðiheimilda í Barentshafi.
Starfsmenn BGB hf. em um 80 talsins.
Veruleg hagræöing fólgin í
sameiningu
Ljóst er að með sameiningu Snæfells
hf. og BGB hf. myndi nást fram veruleg
hagræðing í útgerð og stjómun. Enn-
fremur myndi nást fram umtalsverð
hagræðing i landvinnslu. Af framan-
sögðu má ráða að ef af sameiningu þess-
ara tveggja fyrirtækja verður mun
verða til eitt mjög öflugt sjávarútvegs-
fyrirtæki við utanverðan Eyjafjörð.