Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2000, Síða 8
Útlönd
MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2000
Stuttar fréttir
Haider sækist
ekki eftir því að
verða kanslari
Leiðtogi Frelsisílokksins I
Austurríki, Jörg Haider, lýsti því
yfir í gær að hann vildi vera
áfram fylkisstjóri í Kárnten, jafn-
vel þótt flokkur hans tæki þátt í
stjórnarmyndun. Þessa yfirlýs-
ingu gaf Haider rétt áður en
stjórnarmyndunarviðræður
flokks hans og Þjóöarflokksins
hófust í Vín í gær. Þar með getur
Wolfgang Schtissel, leiötogi Þjóð-
arflokksins, orðið nýr kanslari
Austurríkis.
Viðræður Frelsisflokksins og
Þjóðarflokksins hófust í gær eftir
að Viktor Klima, starfandi kansl-
ari, tilkynnti að hann gæfist upp
við tilraunir til myndunar minni-
hlutastjómar undir stjóm jafnað-
armanna.
Viðbrögðin við fréttinni um
þáttöku Frelsisflokksins í stjóm-
armyndunarviðræðum voru víða
neikvæð í gær. ísraelar ítrekuðu
hótun sína um að kalla heim
sendiherra sinn frá Vín um leið
og „manneskja með skoðanir
eins og Haider fengi sæti í stjóm
landsins". í Strasbourg varaði
Evrópuráðið viö áhrifum öfga-
sinnaðra hægriflokka í aðildar-
ríkjunum.
Útiloka ekki að-
gerðir gegn
Helmut Kohl
Kristilegi demókrataflokkurinn
í Þýskalandi kann að grípa til
lagalegra aðgerða gegn fyrrver-
andi leiðtoga sínum og kanslara
Þýskalands, Helmut Kohl, að því
er Heiner Geissler, í fram-
kvæmdastjórn flokksins, greindi
frá í gær. Eftirmaður Kohls í leið-
togastólnum, Wolfgang Scháuble,
sagði á mánudaginn að flokkur-
inn ætlaði ekki að draga Kohl fyr-
ir rétt til aö þvinga hann til að
segja frá gjöfum til flokksins.
Bíleigendur, athugið
20%
verðlækkun
á varahlutum
tvarahlutir
Hamarshöfða 1, sfmi 567 6744
A1 Gore eldhress eftir sigurinn í Iowa:
Segir Bush ógnun
viö efnahagslífið
A1 Gore, varaforseti Bandaríkj
anna, efldist allur við sigurinn í for
kosningunum í Iowa á mánudags
kvöld. Hann veittist að George W
Bush, ríkisstjóra í Texas og líkleg
um mótherja sinum í forsetakosn
ingunum í haust, í gær og kallaði
hann ógnun við efnahagslífið, um-
hverfið og rétt kvenna til að velja
að gangast undir fóstureyðingu.
Gore var í New Hampshire í gær
þar sem forkosningamar verða á
þriðjudag í næstu viku. Þar eyddi
hann meira púðri á Bush en á Bill
Bradley, helsta keppinaut sinn um
útnefningu demókrataflokksins.
Gore ræddi við fréttamenn í
kleinuhringjasölu á Granítgötu í í
Manchester í New Hampshire í
gær. Hann sagði gera því skóna að
ef Bush yrði kjörinn forseti myndi
hann skipa hæstaréttardómara
sem væru andvígir fóstureyðing-
um. Bush lýsti því einmitt yfir í
síðustu viku að hæstiréttur Banda-
ríkjanna hefði farið út fyrir verk-
svið sitt þegar hann heimilaði fóst-
Al Gore, varaforseti Bandaríkjanna,
er farinn aö iemja á George W.
Bush, ríkisstjóra f Texas, fyrir for-
kosningarnar mikilvægu f New
Hampshire t næstu viku.
ureyðingar í frægum úrskurði árið
1973.
„Pat Robertson og Jerry Falwell
segjast báðir hafa fengið tryggingu
fyrir því hjá honum,“ sagði Gore.
„Hann er á móti því að konur hafi
rétt til að velja.“
Robertson og Falwell eru íhalds-
samir sjónvarpsprestar og hatramm-
ir andstæðingar fóstureyðinga.
George W. Bush, sem sigraði í for-
kosningum repúblikana í Iowa,
sagði í gær að sigurinn myndi
styrkja stöðu hans í New Hamps-
hire. Samkvæmt skoðanakönnun-
um er fylgi hans álíka mikið, eða
heldur minna en fylgi öldungadeild-
arþingmannsins Johns McCains.
Bush sagði að gott gengi milljóna-
mæringsins Steves Forbes í Iowa
ætti ekki að breyta neinu í grund-
vallaratriðum í New Hampshire.
„Mér líöur vel. Ég er tilbúinn í
slaginn," sagði Bush viö fréttamenn
áður en hann brá á leik í snjónum
með eiginkonu sinni fyrir fréttaljós-
myndarana.
Vfgalegir vfkingar eru nú saman komnir f Leirvfk á Hjaltlandi þar sem þeir halda svokallaöa Up Heliy AA hátfö sfna.
Hátíö þessi stendur á gömlum merg og er hún haldin sföasta þriöjudag í janúar ár hvert. Þar er margt sér til gamans
gert, til dæmis kveikt f langskipi aö fornum vfkingasið.
Ráðstefna í Stokkhólmi:
Helfarar gyðinga minnst
Leiðtogar gyðinga báru í gær lof á
sænsk stjómvöld fyrir hvað þau hafa
verið opinská um gerðir Svía á tím-
um nasista. Ráðstefna um helfór gyð-
inga hefst í Stokkhólmi í gær meö
ávörpum Ehuds Baraks, forsætisráð-
herra ísraels, Gerhards Schröders
Þýskalandskanslara og Görans Pers-
sons, forsætisráðherra Svíþjóðar.
Ráðstefnan er eins konar fram-
hald upplýsingaherferðar sem
sænsk stjómvöld stóðu fyrir á árinu
1997.
Þá hafði komið i ljós að aðeins
tíu prósent sænskra skólabarna
höfðu vitneskju um helforina þar
sem nasistar drápu sex milljónir
gyðinga.
Persson forsætisráðherra leggur
mikla áherslu á að breiða út vit-
neskju um helforina á sama tíma og
Svíar þurfa að kljást við fjölgun of-
beldisverka nýnasista og annarra
kynþáttahatara.
Á stríðsárunum var Svíþjóð hlut-
laust land en átti engu að síður í
viðskiptum við Þýskaland Hitlers.
Oveður í Bandaríkjunum
Loka varð skólum og opinber-
um stofnunum í Washington í
gær vegna mikillcU- snjókomu.
Röskun varð á samgöngum á
austurströnd Bandaríkjanna
vegna bylsins.
Heilarnir fiúnir
Þeir sem pöntuðu morðið á
serbneska stríðsherranum Arkan
hafa sennilega
flúið land, að
því er blaðiö
Politika, sem er
hliðhollt yfir-
völdum í
Belgrad, skrif-
aði í gær. Þrír
menn, þar af
tveir fyrrverandi lögreglumenn,
hafa verið handteknir vegna
morðsins. Arkan var skotinn til
bana í anddyri hótels í Belgrad 15.
janúar síðastliðinn.
Yfirvöld gagnrýnd
Þrír skæruliðanna tíu, sem
voru drepnir við björgun sjö
hundruð gísla á sjúkrahúsi í
Taílandi, höfðu tekið þátt í árás á
sendiráð Burma í Bangkok í októ-
ber síðastliðnum. Sæta yfirvöld í
Taílandi nú gagnrýni fyrir að
hafa sleppt skæruliðunum á sín-
um tíma.
Létust í sprengingu
Þrír biðu bana og þrír særðust
er hús í bænum Names í Frakk-
landi eyðilagðist í sprengingu.
Talið er aö um gasleka hafi veriö
að ræða.
Hans Blix í eftirlit
Svíinn Hans Blix, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Alþjóða kjarn-
orkumálastofnunarinnar, virtist í
gær líklegur til að verða útnefnd-
ur yfirmaöur vopnaeftirlits-
manna í írak á vegum Sameinuðu
þjóðanna.
Hættur viö framboð
Öldungadeildarþingmaðurinn
Orrin Hatch frá Utah er hættur
við að keppa eftir að verða út-
nefndur forsetaefni repúblikana.
Hatch fékk aðeins 1 prósent at-
kvæða í forkosningunum í Iowa á
mánudagskvöld. Búist er við að
Hatch greini formlega frá ákvörð-
un sinni í dag.
Pútín miðlar málum
Svo virtist sem kreppan í rúss-
neska þinginu væri aö leysast í
gær. Vladimir
Pútin, forsætis-
ráðherra og
starfandi for-
seti Rússlands,
greip sjálfur
inn í til að
reyna að leysa
deiluna sem
hann var reyndar sjálfur sagður
hafa valdið með því að skipta for-
mannsstöðum í þingnefndum
milli kommúnista og Einingar-
flokksins. í gær tók Pútín á móti
Sergej Kíríjenkó sem lýsti því yf-
ir að loknum fundinum að hann
hefði náð samkomulagi viö Pútín
og leiðtoga Einingar, Borís
Gryslov.
Lestarslys í Rússlandi
Að minnsta kosti tveir létu lífið
þegar farþegalest og flutningalest
rákust á í Novgorodhéraði í norð-
vesturhluta Rússlands snemma í
morgun. Óttast er að um 60
manns séu lokaöir inni i lestar-
vögnum sem hvolfdi við árekstur-
inn, að því er rússneska frétta-
stofan Interfax greindi frá.
Á FM 103.7 Á FÖSTI