Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2000, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2000, Side 10
10 MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2000 Spurningin Á aö reka Þorbjörn Jensson, landsliösþjálfara í handknattleik? Gunnar Örn Eggertsson nemi: Já, hann hefur ekki rétta andann né skapið í þetta. Hjalti Sigurðarson nemi: Já, hann er búinn að vera alltof lengi. Það þarf ein- hvern ferskan eins og Sigga Sveins. Daði Gíslason, starfsm. Flugleiða: Nei, hann er búinn að gera góða hluti. Strákarnir standa sig hins vegar ekki nógu vel. Kolbeinn Freyr Kolbeinsson, starfsm. Flugleiða: Já, hann er bú- inn að fá sinn séns. Guðmundur Dagur Ólafsson, 11 ára: Nei, hann getur ekkert gert að því þótt strákarnir standi sig ekki. Hlynm- Ólafsson, 11 ára: Nei, strákamir eiga ekki séns í þessi lið og það er ekki honum að kenna. Lesendur Formannsefniö er Margrét Frímannsdóttir: Samfylkingin skuld- ar henni stuðning Margrét Frímannsdóttir alþm. og talsmaður Samfylkingarinar frá upphafi. - Frambærileg, háttvís og máiefnaleg, segir bréfritari sem vill að hún skipi formannssæti Samfylkingarinnar undir nýju heiti. Magnús Stefánsson skrifar: Ótrúlegar fmnst mér þær um- ræður og vangaveltur sem mað- ur les og heyrir í fjölmiðlum um hverjir skuli skipa forystu Samfylkingarinnar á stofnfundi raunverulegs flokks eftir nokkr- ar vikur. Ég kaus Samfylking- una í síöustu kosningum og tel að vel hafi verið að verki staðið í því að koma flokkunum á vinstri vængnum saman í eitt kosningabandalag. Þótt ein- hverjir hafi helst úr lestinni er það min trú að þeir sem eftir standa þurfl ekki að bera kvíð- boga fyrir frekari flótta en orð- inn er. Eftir að hafa heyrt í nokkrum forsvarsmönnum Samfylkingar- innar að undanfornu og fundist þeir í raun vera komnir í bar- áttuhug til formannsembættis þykir mér hafa farið lítið fyrir stuðningi þessara aðila og þakk- læti til Margrétar Frímanns- dóttur sem bar þó hitann og þungann af þvi að sameina vinstri öflin í eina fylkingu. Hún hefur verið óþreytandi talsmaður hennar allt frá upp- hafl og mest mætt á henni að öðrum góðum og trúverðugum sam- fylkingarmönnum ólöstuðum. Mér finnst satt að segja að Sam- fylkingin eigi að standa einhuga og óskipt að þvf að bjóða Margréti Frí- mannsdóttur sæti fyrsta formanns hins nýja stjórnmálaafls. Ein- hver allra þeirra sem hingað til hafa verið að kynna sig sem hugsanleg formannsefni eða varaformenn gætu svo komið inn í stöðu varaformanns. Ég tel það eiginlega vera skyldu sam- fylkingarfólks að standa að þessu framtaki. Samfylkingin skuldar Margréti þennan stuðn- ing. Bæði Össur Skarphéðins- son, Guðmundur Ámi Stefáns- son, Lúðvík, Jóhanna, Bryndís og allir aðrir sem eru vissulega frambærilegir til forystu ættu að geta sameinast um þetta. Þau ættu nú öll að koma sér saman um hvert þeirra myndi bjóða sig fram til varaformanns með Margréti fyrsta heila árið sem Samfylkingin starfar undir nýju nafni. Ég er ekki einn um þessa skoðun því ég hef orðað þetta í kunningjahópi þar sem m.a. stuðningsmenn Samfylk- ingarinnar voru samankomnir, og þetta fékk góðan hljómgrunn. Og eftir að ég sá Margréti í ný- legum sjónvarpsþætti ásamt for- manni Vinstri grænna var ég ekki í vafa. Hún er afar fram- bærileg, háttvís og málefnaleg. Hún fengi mikinn vegsauka og virð- ingu af formannsstöðunni og hún á hana skilið. Nýr vegur um Kambana Andrés Guðnason skrifar: Nokkuð hefur þeirri hugmynd verið hreyft að undanfórnu að nauð- syn sé að lýsa upp veginn á Hellis- heiði og áskorun hefur komið úr Hveragerði um að svo verði gert. Annað virðist þó vera miklu meira aðkallandi. Það er að leggja beinan veg um Kambana. Hugmyndin væri þá sú að byggð- ur yrði upp aflíðandi beinn akvegur úr miðjum Kömbum austur undir Hveragerðisvegamót. En efri hluti Kambavegar væri sprengdur niður eftir því sem þurfa þætti (kannski á um 500-1000 metra kafla) og byggt yflr með bogaþaki. Ekki er neinn vafl á því að þetta er framkvæmanlegt og menn gætu hugsað sér hver munur væri að aka þarna á beinum aflíðandi vegi eða að sniglast um þessa fáránlegu hlykki sem nú eru á veginum. Fróðlegt væri að fá verkfræðilegt álit á því hvað beinn vegur um Kambana, líkt og lýst er hér að ofan, myndi kosta. Með þessari breytingu myndi veg- urinn styttast verulega og öryggið yrði meira á beinum vegi. Og ef síð- an yrði lagður beinn vegur frá Þrengslaafleggjara og upp fyrir Skíðaskála, eins og bent hefur verið á, væru Hellisheiði og Kambamir ekki lengur neinn farartálmi fyrir þá miklu umferð sem er á þessari leið. Tina Turner - drottning rokksins Skarphéðinn Einarsson skrifar: Um sl. jól gisti ég á hóteli í Glas- gow er ég var á leið heim til íslands úr ferðalagi. Bretar hafa ann- an háttinn á heldur en við ís- lendingar um jól og áramót. Þar er fólki m.a. boðið upp á sjónvarps- veislu og sjón- varpsstöðvar Skarpheöinn kappkosta að Emarsson. ^afa það besta sem völ er á. í einni dagskránni sá ég t.d. viðtal við hina heimsþekktu rokkstjörnu Tinu Tumer sem er þeldökk en syngur samt rokk. Tina lék á als oddi þótt hún verði 60 ára á árinu. Einnig voru sýnd myndbönd með hennar bestu lögum, en hún hefur átt hvert vinsældalag- ið á fætur öðru beggja vegna Atl- antsála síðan hún yflrgaf fyrrum eiginmann sinn, Ike Tumer, sem var langt leiddur af notkun eitur- lyfja, eins og íslendingar muna, þeir sem sáu bíómynd um ævi Tinu sem sýnd var hér í kvikmyndahúsum. Eitt er það sem fer óskaplega í [UÍgifÍ[flr)lD)/s\ þjónusta. allan sólarliringinn « H H K) K 5S;H ■iÆ. | ■ • Lesendur geia sent mynd af sér með bréfum sínum sem birt verða á lesendasíðu Eöalsöngkonan Tina Turner sem hyggst hætta aö syngja á þessu ári. - Verö- ur meö tónleika á útileikvangi f Glasgow í júní nk. taugamar á mér, það er þegar vit- grannir eða illa upplýstir útvarps- menn hér kynna Tinu alltaf sem „ömmu“ rokksins, og stagast sífellt á aldri hennar, og sem er hrein móðg- un við þessa heimsþekktu listakonu. Meira að segja hefur RÚV haft þenn- an hátt á. Hjá BBC og öðrum stöðv- um í Bretlandi er hún kynnt sem eð- alsöngkonan Tina Tumer. í fyrmefndu viðtali kom fram að hún hyggst hætta núna á árinu 2000, og bætti við að öllum leik skyldi hætt þá hæst hann stæði. Hún myndi ferðast um Evrópu í sumar í síðasta sinn til gamans fyr- ir þá sem vilja sjá hana. Til upplýs- ingar fyrir þá sem vilja sjá Tinu verður hún með tónleika 7. júní á Ibrox leikvanginum í Glasgow. Hvar er Karelía? Ámi Sigurjónsson hringdi: Seint á sL ári skýrði Morgunblaðið frá því í frétt að hér væri kominn í opinbera heimsókn Sergei nokkur, formaður ríkisstjórnar rússneska Karelíulýðveldisins, í boði utanríkis- ráðherra. Nema hvað! Formaðurinn frá Karelíu kom til að ræða um sam- skipti landanna tveggja með áherslu á viðskiptatengsl hér í Reykjavík, á Akureyri og á Dalvik, af öllum stöð- um. En þar vildi formaðurinn frá Karelíu kynna sér útgerð og fisk- vinnslu. Gott var að þá var búið að færa alla fiskvinnslu úr Hrísey, og bæta henni við á Dalvík. Ég khppti þessa frétt úr Mbl., mér fannst hún svo sniðug og bara sláandi fyrir okk- ur og samskipti við ríki vítt og breitt um heiminn. En ég spyr: Hvar er Karelía með leyfi? Lesendasíða DV leitaði lengi að Karehu og fann hana loks í námunda við Eystrasaltsríkin. - Og nú er bara að hífa upp samskipti og viðskipta- tengsl við þetta ágæta lýðveldi. Dorritdagar í London Ásta Ólafsdóttir skrifar: Loks er farið að segja okkur íslend- ingum hvenær forsetiim okkar fer til fundar við sína heittelskuðu ástkonu í London. Ég las í DV sl. mánudag að forsetinn hefði eytt þar tíu dögum. Um var að ræða einkaheimsókn seg- ir fréttin og dvaldi forsetinn á heim- ili vinkonu sinnar. Líklega til að spara dagpeningana. En forsetinn á rétt á dagpeningum eins og ahir aðr- ir opinberir embættismenn, þótt þeir séu ekki beinlínis í vinnuferðum. Ég fagna því mjög, að forsetinn skuli halda þessu sambandi við og ég er að vona að eitthvað verði úr þessu, svo að fólk sé ekki að gantast með þetta samband, sem er þó einkar eðlilegt úr því sem komiö er. Mér frnnst hka sjálfsagt að láta vita af ferðum forseta því hann er þó okkar eina skrautfjöð- ur sem við getum kahað svo - æðsti embættismaðurinn. Þeir „nikka“ fréttamennirnir Þórhildur Ó. skrifar: Manni blöskrar oft þegar frétta- menn sjónvarpsstöðvanna eru að flytja manni viðtölin við stjórnmála- menn eða aðra og ræða við þá í ná- vígi. Það bregst varla, sjáist th spyrl- anna eða fréttamannanna, að þeir séu ekki sífeht að nikka (kinka kohi) framan í viðmælenduma. Eru þeir svona svakalega sannfærandi (ég á við viðmælenduma) eða er hér á ferðinni gamla, dulda þýlyndið gagn- vart yfirvaldinu, að fréttamennirnir þurfi sí og æ að kinka kohi eins og th að samþykkja orð viðmælenda (sem eru nú oftar en ekki hreint rugl hvort eð er)? Nú skulið þið, frétta- menn sjónvarpsstöðvanna, bara hætta þessum höfuðkippum, þeir minna aht of mikið á parkinsons- veikina, og hún er hræðileg. Upp með sjálfstæðið á nýrri öld. Rússnesk leikrit óaðgengileg Þorvaldur skrifar: Mér sýnist að leikhúsin stóm hér í borginni leggi dálítið upp úr því að setja rússnesk leikverk á svið með vissu millibili. Þannig eru hinir svoköhuðu stóra meistarar í bók- menntum Rússa oft keyrðir upp í leikritum og talsvert gert úr þessu í kynningum leikhúsanna. Nú er enn eitt verkið komið á fjalirnar og nú í Borgarleikhúsinu, Djöflarnir eftir Fjodor Dostojevskí. Ekki hef ég séð þetta leikrit en hef séð önnur rúss- nesk leikrit, þ. á m. Kirsuberjagarð- inn. Ég veit ekki um aðra, en mér fínnast rússnesk leikrit óaðgengheg fyrir okkur hér. Oft mikið um geð- veikar persónur eða þunglyndar i leikritunmn. Auk þess sem þau eru bara þung og torskilin, enda aht annar heimur og hugsanagangur þarna eystra. Ég er ekki viss um að Borgarleikhúsið græði á þessu. Landinn vih líka miklu fremur sjá stykki eins og Sex í sveit. Og er þá nokkur ástæða th að rikka upp þess- um Djöflum með tapi?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.