Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2000, Síða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2000
Fréttir
Gunni RE fórst út af Akranesi í gær:
Skipverja saknað
eftir sjóslys
- leit haldið áfram í dag
Mótorbáturinn Gunni RE 51 fórst í
gærdag um fjórar sjómílur suövestur
af Akranesi. Báturinn lét úr höfn í
gærmorgun og var á leið til veiða þeg-
ar hann fórst. Að sögn sjómanna sem
voru á svæðinu mun báturinn hafa
farist um hálftólfleytiö og var þá mik-
ill öldugangur en rok átti eftir að
aukast þegar leið á daginn. Tveir
menn voru um borð og bjargaði þyrla
Landhelgisgæslunnar öðrum þeirra,
skipstjóranum og eiganda, en hins er
enn saknað. Leit var hafin eftir að
farþegaflugvélar tilkynntu Flugstjóm
um neyðarsendi í gangi við Suðvest-
urland. Skömmu síðar fóra að berast
skeyti frá gervitunglum sem staðsettu
neyðarsendinn í Faxaílóa. í leitinni
tóku þátt, auk þyrlu Landhelgisgæsl-
unnar, tvær varnarliðsþyrlur, varð-
skip og fjórir fiskibátar, m.a. Aðal-
björg og Aðalbjörg II. Leit verður
haldið áfram í dag og verða þá fjörur
gengnar.
Skipverjar á
Aðalbjörgu II
náðu að bjarga
björgunarbáti
Gunna RE og
skömmu siðar
kom þyrla Land-
helgisgæslunnar
til bjargar. Aðal-
björgin náði um
borð fiskkörum
úr Gunna og
komu bátarnir
með þetta 1 land
á áttunda tíman-
um í gærkvöld.
-hdm
Skipverjar á Aðalbjörgu II komu með björgunarbát
Gunna RE 51 til hafnar á áttunda tímanum i gærkvöld.
Þegar skipverjar á Aðalbjörgu komu í land í gærkvöld voru meðal annars
fiskkör úr Gunna um borð. DV-myndir S
Sigur rós vekur athygli:
Utnefnd sem
bjartasta
vonin
DV Akranesi:
Hróöur íslensku hljómsveitarinn-
ar Sigur rósar hefur farið víðs veg-
ar um heim. í vikunni var tilkynnt
um val lesenda New Musical Ex-
press á hinum ýmsu hljómsveitum
til verðlauna en kosningin hefur
staðið undanfarnar vikur. Meðal
annars var kjörin besta hljómsveit-
in, besta platan, besti söngvarinn og
bjartasta vonin.
Einmitt í þeim flokki sem kallast
The Philip Hall og Award for The
Brightest Hope eða bjartasta vonin
voru fimm stigahæstir. Það voru ís-
lenska hljómsveitin Sigm- rós, Terr-
is, Coldplay, Doves, og Slip Knot.
Niðurstaðan var sú aö Terris var
kosin bjartasta vonin. Beatles var
kosinn besta hljómsveitin til þessa.
-DVÓ
Yfirmaður Evrópuherstjórnar Atlantshafsbandalagsins SACEUR, Wesley K. Clark, kom í kveðjuheimsókn í gær-
morgun hingað til lands. Myndin var tekin við það tækifæri í Ráðherrabústaðnum en hann átti fund meö Davíð Odds-
syni forsætisráöherra og Halldóri Ásgrímssyni utanríkisráöherra. DV-mynd GVA
Fjármálastjóra Þjóðminjasafnsins vikið úr starfi:
Ólga meðal starfsmanna
- talið að þjóðminjavörður beri sjálfur ábyrgð á Qármálunum
ábyrgö á fjármálum safnsins og er
það mál manna að ef um svo alvar-
leg afglöp sé að ræða eins og af er
látið hefði hann átt að taka afleiö-
ingunum og segja af sér. Telja marg-
ir starfsmenn safnsins það harka-
legar og óréttlátar aðgerðir að reka
fjármálastjórann og hefur verið boð-
að til fundar í starfsmannafélagi
Þjóðminjasafnsins í dag végna máls-
ins.
Gunnar Jóhann Birgisson, for-
maöur Þjóöminjaráðs, vildi ekki tjá
sig um uppsögnina sem slíka en
sagði að unnið væri að því að skoða
fjármál safiisins og finna leiðir út
úr rekstrarvanda þess. Ekki náðist í
Þór Magnússon þjóðminjavörð
vegna málsins. -hdm
„Það er mjög mikil ólga innan-
húss því það mætti ætla að hver
einn og einasti starfsmaður mætti
eiga von á svipaöri útreið ef einhver
þarf að bjarga eigin skinni," sagði
heimildarmaður DV í gær en Þór
Magnússon þjóðminjavörður sagði
fjármálastjóra Þjóðminjasafnsins
upp fyrir helgi og eru menn ekki á
eitt sáttir við þá ákvörðun. Við upp-
gjör ársins í fyrra kom í ljós að
Þjóðminjasafnið fór u.þ.b. 46 millj-
ónir fram úr fjárhagsáætlun. „Að
verulegu leyti telur fjármálastjóri
að þessi upphæð stafi af afleiðing-
um af ákvörðunum sem hann tók
ekki þátt í og voru teknar fyrir utan
Þjóðminjasafnið, þ.e. af byggingar-
nefnd safnsins og öðrum aðilum,"
segir heimildarmaður
blaðsins.
Þjóðminjasafnið flutti á
síðasta ári og var vinnu-
staðnum skipt í tvennt og
ákveðið að kostnaður
vegna flutninganna skyldi
greiddur af byggingar-
nefnd safnsins, en sá kostn-
aður er greiddur úr endur-
bótasjóði menningarbygg-
inga. í öllum fjárhagsáætl-
unum safnsins í fyrra var
gert ráð fyrir því að þetta yrði end-
urgreitt enda lágu vilyrði fyrir því
að það yrði gert. í lok desember lá
hins vegar fyrir ákvörðun um það
að aðeins lítill hluti af þessari upp-
hæð yrði endurgreiddur, eða ein-
ungis sjö milljónir í stað 21.
Annar hluti af þessum 46
milljónum er annar kostnað-
ur sem er afleiðing af þvl að
safnið flutti, kostnaður sem
ekki var séð fyrir í rekstrar-
áætlunum safnsins. Eftir
stendur að hinn raunveru-
legi rekstur safnsins kostaði
u.þ.b. 12-13 milljónir um-
fram það sem heimild var
fyrir. Samkvæmt heimildum
DV vilja framkvæmdaráð og
fjármálastjóri bera fulla ábyrgð á
þeirri upphæð enda venjan að bitið
sé á jaxlinn og sú stefna rétt af.
Þeir sem DV ræddi við í gær
vegna málsins eru á því að það sé
þjóðminjavörður sem í raun beri
Þór Magnússon
þjóbminja-
vörbur.
Stuttar fréttir i>v
Enginn ágreiningur
Davíð Odds-
son forsætisráð-
herra segir að
enginn ágrein-
ingur sé í ríkis-
stjórn um sölu
Landssímans.
Hann segir mál-
ið enn óútkljáð
og á hann frekar von á því að af
sölu verði á kjörtímabilinu.
Búist við töfum
Bifreiðum hefur fjölgaö um
40.000 í landinu frá lýðveldishátíð-
inni fyrir 6 árum. Lögregluyfir-
völd búast við því að gríðarlega
miklar umferðartafir verði á Þing-
völlum í tilefni Kristnitökuhátíð-
ar í júlí næstkomandi. RÚV
greindi frá.
Hátæknisjúkrahús
Læknafélag íslands og Læknafé-
lag Reykjavíkur hafa ályktaö um
nauðsyn þess að reisa nýtt há-
tæknisjúkrahús i Reykjavík og
einnig efnislega að ekki sé nægi-
lega vel staðið að samrunamálum
Sjúkrahúss Reykjavíkur og Land-
spítalans. Dagur sagði frá.
Síbrotamenn
Rúna Jónsdóttir, fræðslu- og
kynningarfulltrúi Stígamóta, segir
kannanir sýna að töluverð hætta sé
á að dæmdir kynferðisafbrotamenn
brjóti af sér aftur. Stöð 2 greindi
frá.
Útrunnir
Kjarasamningar um 50.000
manna, 29 stéttarfélaga og sérsam-
banda, renna út í dag. Samninga-
viðræður margra verkalýðsfélaga,
sambanda og atvinnurekenda era
hafnar. Einni kjaradeilu hefur
verið vísað til ríkissáttasemjara.
RÚV greindi frá.
Bjöik
Jakob Magn-
ússon er staddur
í Noregi með
undirskriftalista
Umhverfisvina
og gerir hann
talsvert úr því að
nafn Bjarkar
Guðmundsdóttur
sé þar á meðal. Jakob fer mikinn í
samtali við Norska Dagblaðið og
slær blaðið því upp í fyrisögn að
Björk leiði hóp hinna óánægðu ís-
lendinga sem vOji ekki að risaál-
verksmiðja verði reist á sögueyj-
unni.
25% lægra verð
Danska sementsverksmiðjan
Álaborg Portland, sem ætlar að
hefla innflutning á sementi á ís-
landi seinna á þessu ári, býður að
minnsta kosti 25% lægra verð en
sementverksmiðjan á Akranesi.
RÚV greindi frá.
Ríkið sýknað
Héraðsdómur Reykjavíkur
sýknaði i gær Bændasamtökin,
landbúnaðarráðuneytið og fjár-
málaráðuneytið um að hafa ólög-
lega stöðvað beingreiöslur til
hjóna sem höfðu flutt fé sitt á
milli tveggja jaröa.
Raflínur metnar
Landsvirkjun mun í næstu og
þar næstu viku leggja fram skýrsl-
ur um mat á umhverfisáhrifum
vegna byggingar raftnagnslína á
Austurlandi, en þær tengja Fjóts-
dalsvirkjun við raforkukerfið.
Mbl. greindi frá.
Ekki á Netinu
Páll Hreinsson, formaður tölvu-
nefndar, segir í viðtali við Mbl. að
bannað verði að tengja gagna-
grann á heilbrigðissviði við Netið.
Varamenn
Tveir vara-
menn tóku sæti
á Alþingi í dag.
Margrét Sverr-
isdóttir fyrir
Frjálslynda
flokkinn í
Reykjavík og
Helga Amheið-
ur Erlingsdóttir fyrir Vinstri-
græna á Norðurlandi eystra. RÚV
greindi frá.
-hdm
ieiðir